Vísir - 04.12.1977, Side 10

Vísir - 04.12.1977, Side 10
10 Sunnudagur 4. desember 1977. VISIR grundvöllur svona hljómsveitar væri syndin. Eg meina hljóm- sveitar sem eingöngu spilar á dansleikjum. Það er annað með hljómsveitir sem spila bara i stúdióum.” ,,En það er ekki ætlunin að hætta að spila. Reyndar hyllir undirkristilega plötu. Það hefur verið farið fram á það við okkur Þorvald Halldórsson að við söfnum efni á slika plötu. Við vonum að af þvi geti orðið, en það hefur verið litill timi enn sem komið er.” „Músikin hlýtur að vera besti fjölmiðillinn fyrir trúna. Hún spilar svo stóran þátt i lifi fólks, og sérstaklega ungs fólks.” ,,Þetta er endurfæðing” Þau eru sammála um að lif þeirra sé bæöi betra og meira spennandi nú en áður. ,,Við er- um eins og nyfædd'' segja þau. ..Þetta er endurfæðing, það er alveg á hreinu.” Guðfinna varð fyrri til. ,,Ég lór i kristilegt partý af þvi að ég var forvitin. En þetta hreif mig og heillaði og ég vildi fara oftar og fór að fara á samkomur. En þeireru margir sem vilja koma og kynnast þessu en treysta sér ekki beint á samkomu. Þá er þeim boðið heim til einhvers úr hópnum, og það köllum við kristileg partý.” ,,Ég heillaðist af þessu en Ingi skildi migekki. Hann var óhress yfir þessu til að byrja með”. ,,Já, ég hafði af henni stórar ahyggjur”, bætirhann við. ,,En það vildi svo til að Þorvaldur og Gréta konan hans komu heim ásamt Arnóri bróður minum. Hann var kominn i þetta og það var hann sem kom mér tii að hugsa um þetta. Ég sá svo mikla breytinguá honum, að ég fór að velta þvi fyrir mig, hvort þetta væri virkilega hamingj- an.” „Leitaði að hamingjunni ialls kyns veseni” ,,Ég heillaðist af þessu lika. Núna finnst mér þetta stórkost- legt. Ég hef fundið kærleik og lifsgleði sem ég þekkti ekki áð- ur”. „Maður hiður fyrir þeim sem áður nálguðust það að vera óvinir manns.” skýtur Guðfinna inn i. , Hermann Ingi: ,,Hér áður byrjaði maður á einhverju, full- viss um að maður væri að gera rétta hlutinn. En allt fölnaði og endaði i' sömu grámyglunni og ég varð hundsvekktur og leiður. Og auðvitað leitaði maður að hamingjunni i alls kyns veseni. En að hugsa sér að þetta hefur verið manni opið alla tið! „En auðvitað eru margir ánægðir með sitt lif eins og það er, en það lif getur orðið helm- ingi betra ef fólk opnar það fyrir Guði”, segja þau. ,,En það má enginn misskilja okkur. Það er ekki eins og við séum að troða pólitik inn á fólk. Okkur langar aðeins til að aðrir kynnist þessu.” Biðja borðbænir „Lif okkar hefur breyst al- gjörlega. Besta sönnunin og staðfestingin á þvi að Guð er í mér, er breytingin á mér sjálf- um”, segir Hermann Ingi. „Hér áður hafði ég ýmsar langanir, mjög sterkar, en þær eru gjör- samlega horfnar. Dagarnir voru oft gráir áður en aldrei núna.” „Sambandið við börnin er ekkert svipað. Maður einblfndi á Mammon: ég fer út að vinna og þú ferð út að vinna. Við þurf- um þetta og við þurfum hitt. En á börnunum var ekkert uppeldi. Við höfðum ekki tima fyrir þau nema á kvöldin og um helgar. og sunnudagarnir voru oft svona og svona. Maður ýtti börnunum hreinlega til hliðar.” Guðfinna tekur i sama streng. ,,Það er einmitt þetta sem ég finn fyrst og fremst. Það er að ég á börn. þrjú yndisleg börn. Ég vann úti allan daginn en mér finnst það rangt. Núna finnst mér ég fínna börnin. En mér finnst það of seint; ég hefði vilj- að uppgötva þetta fyrr”. ,,Við finnum lika mikla breyt- ingu á börnunum”, segja þau. ,,öll börn bera mikla virðingu fyrir Guði. óafvitandi.” „Það sem okkur hefur tekist á þessum tveimur mánuðum, frá þvivið frelsuðumst, er ótrúlegt. „Það væri ekki dónalegt ef lieilt band frelsaðist”! — Ilermann Ingi liermanns- son. Samband okkar hefur breyst ofsalega.” Hermann fngi: „Ég var með allan minn áhuga á músfkinni og bandinu, en Finna ekki, og var frekar á móti þessu. Nú eig- um við allt sameiginlegt, hverja einustu minútu i sólarhringn- um.” Þau biðja borðbænir og morg- unbænir. „Við biðjum á öllum timum. Ef okkur liður illa, biðj- um við til Guðs og það bregst ekki að okkur liður vel á eftir.” Þau segjast ekki hafa horft a sjónvarpið siðan þau hleyptu Guði inn i lif sitt.aÉg settist nið- ur eitt kvöldið og ætlaði að horfa á mynd, en hafði engan áhuga og stóð strax upp aftur”, segir Hermann Ingi. Nú tala þau saman á kvöldin, syngja saman og lesa Bibliuna. „Og við höfum nóg við timann að gera. Þar er svo mikið að gera siðan við frelsuðumst.” Þau frelsuðust á samkomu þegar Jónas Gislason predikaði. Þau lýsa þvi svo að þeim hafi hreinlega fundist Guð tala til sin. Þau voru knúin til að standa upp og láta frelsast. Um leið frelsuðust sjö aðrir. Gúðfinna sagði að þetta hefi verið svo áhrifamikið að hún hafi hrein- lega svitnað. „Við sjáum ekki eftir að hafa stigið þessi skref og vonum að það geri fleiri.” „Það er eitt sem mig langar að láta kóma fram”, segir Her- mann Ingi, „Það er i sambandi við foreldrana og börnin. Það er talað um unglingavandamál-, en, það er ekki til. Þetta er foreldravandamál. Vandamálið er bein afleiðing af lifsgæða- kapphlaupinu. Við. ýtum börn- unum i 'burtu. Börnin þurfa mest á ást og kærleik að halda, ekki bara á kvöldin. Og það eitt að fjölskyldan skuli geta gefið sér tima til að sameinast, það hlýtur að vera gott”. —EA Við berum ábyrgð á okKar tíð" — fylgst með einni samkomu hópsins í Eyjum sem vill efla og glœða lífið innan kirkjunnar Þau tóku vel i að viö kæmum og yröum viöstödd eina sam- komu. Mónudagskvöld varð fyrir valinu. í rigningarsudda þetta kvöld i síöustu viku, komum viö svo aö KFUM-húsinu i Vest- mannaeyjum. Húsið er eitt af þeim slapp naumlega viö aö veröa hraunfióðinu að bráð á sínum tima. Það stendur við Vestmannabraut, rétt viö hraunjaðarinn. Viö mættum klukkan átta, klukkutima of fljótt. En komum ekki að tómum kofanum samt. t sal hússins var samankominn hópur unglinga á samkomu. En þau sem viö vorum aö sverma fyrir mættu ekki fyrr en um nlu. Þau mættu tólf þetta kvöld. Samkoman var haldin I rúmgóöu herbergi i húsinu og stóluin raöaö þannig aö þeir mynduöu hring. Það var létt yfir fólki þegar þaö tindist inn og menn settu þaö ekkert fyrir sig þó Vlsismenn hygöust fylgjast með öllu. Gítarinn gripinn.... Þorvaldur Halldórsson (söngvarinn góðkunni) greip fljótlega gitarinn eftir að hann settist. „Hvar er nöglin” spurði hann, en fékk hana fljótlega i hendurnar, svo hann gat byrjað slá á strengina. Við fengum söngbók i hend- urnar eins og hinir, og áður en langt um leið upphófst hressi- legur söngur. Þorvaldur sá um gitarspilið og allir sungu: „Frjáls og fagnandi þjóð — flyt- ur lofgjörðaróð — Drottni Jesú Sá litli, Rikharður örn, vaknaði upp og fékk að vera með pabba og mömmu á samkomunni. Þau Þóranna og Steingrimur kynntust i kristilegum félagsskap. „Byggjum allt okkar líf — Þorvaldur Halldórsson og Margrét Scheving heimsótf Þaö var stór bópur sem var aö hefja kvöldverö þegar viö bönk- uöum upp á hjá Þorvaldi Halldórssyni og konu hans Margréti Scheving. Fjölskyldan býr viö Vestmannabrautina, og komi mönnum þaö á óvart aö allar þær fjölskyldur sem hér er rætt viö, skuli búa viö eina og sömu götuna, er þaö hrein tilviljun, þvi Vestmannabraut er meö lengstu götum I Eyjum. Við borðstofuboröiö, sátu auk Þorvaldar og Margrétar þrjú börn hennar, faöir hennar og svo þrjú börn önnur, sem eins og þau komust aö oröi „Guö sendi þeim”. Þaö var beöin boröbæn áöur en þau tóku til matar sins. Þorvaldur fór meö stutta bæn, og allir spenntu greipar. A þvi heimili er engin máltiö snædd án þess aö boröbæn sé beö- in áöur. Og engin ákvöröun er tekin nema þau séu viss um aö sú ákvöröun sé vilji Guös. En lif Margrétar og Þorvalds tók ekki breytingum á einum degi. „Upplifðum eitthvað þann dag” „Þegar við kynntumst ákváð- um-við að hef ja nýtt lif saman”, segir Þorvaldur. „Við höfðum komist að þvi hversu fánýtt þetta heföbundna skemmtanalif Islendinga er og við vorum bæði leitandi. Hvað sjálfan mig snertir, þá hafði ég ekki hleypt Guði inn i mitt lif um árabil, ekki i nokkrum hlut. En innst inni þráði ég réttlæti og ég held að ungt fólk geri það”. „Við fluttumst hingað ’74. Þá var lif okkar smám saman að breytast. Við skrúfuðum fyrir ákveðnar venjur, tóbaksnotkun ogvinneyslu og hættum að hafa afskipti af almennum skemmt- unum. Og við tókum upp á þvi að fara i kirkju á sunnudögum. Það gerðum við eftir að við gift- um okkur en þá höfðum við búið ár hér i Eyjum”. „Þann dag upplifðum við eitt- hvað sérstakt. Við fundum ná- vist Guðs. Og ég varð fyrir þvi láni að kvöldi þess dags, að kon- an min gaf mér Bibliu”. „Aður fannst okkur við lifa alveg ágætis lifi. Við höfðum fundið nokkuð fastan punkt, en lifðum lifinu mest fyrir okkur sjálf.Eneftir þetta fórum við að leita meira i orðið. Við fórum að lesa Bibliuna sem er nokkuð hörð ræða oft, og hvetur mann mjög”. „í sumaráttum svo leið fram- hjá KFUM-húsinu, þar sem „Ungt fólk með hlutverk” var með samkomu. Við fórum inn og frelsuðumst á þessari sam- komu. Viðhöfðum aldrei farið á svona samkomu áður, en ég vil hvetja alla til að prófa það. Hér var greinilega heilagur andi að verki, og þegar spurt var: Vilt þú gefast Jesú Kristi i lifi þinu, gátum við ekki annaö en sagt já. Urðu vitni að lækning- um Margrét og Þorvaldur sóttu ó kœrleika og san siðan samkomur og voru þá meðal annars vitni að lækning- um. Margrét sagði að það hefði farið þannig fram, að prédikar- inn hefði mælt fram i salinn að einhver sem þar sæti væri hald- inn þessumkvilla eða öðrum. Sá sem það átti við var beðinn að standa upp, þar sem Guð vildi lækna hann i kvöld. Og sá hinn sami læknaðist. — Var það varanlegt? Þorvaldur: „Það varirlengur en augnablik þegar Guð’læknar. Á einni samkomunni var t.d. maður sem hafði verið haltur. Hann slasaðist á ökla og var haltur eftir það. Hann gekk haltur þetta kvöld upp til prédikarans, en gat hoppað eftir það, og hefur ekki verið haltur siðan”. Þau nefna fleiri dæmi, t.d. konu sem var með hendina i íatla, þar sem það hafði farið vatn milliliða. Hún losaði sig við fatlann á einu kvöldi og varð heil heilsu. Guð læknaði magasár- ið „Við höfum sjálf fengið að Margrét Scheving:„Ég hlakka til hvers dags. Hver dagur er spennandi". Ljósmyndir Guöm. Sigfússon. upplifa bæði lækningu og bæn- heyrslu”, segja þau. Þorvaldur hafði verið maga- sjúklingur lengi. „Ég var með magasár fyrir ári. Ég var far- inn að fá bata en var á sérstöku mataræði og þurfti á meðulum að halda. Og ákveðnar tegundir af mat þoldi ég alls ekki. Svo læknaðist ég. A fyrstu samkom-

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.