Vísir - 21.12.1977, Síða 12

Vísir - 21.12.1977, Síða 12
12 Miövikudagur 21. desember 1977 VISIR INGÓLFSPRENT IIF. — SKIPHOLTI 70. — SÍIVII 38780. SKRIFTIR TIL SJOS OG LANDS eftir Jónus Guómundssun. Sjómannabókin í ár. Frábær bók, sem enginn er svikinn af að kaupa. RYK eftir Yael Dayan, dóttur Dayans hershöfðingja. Magnþrungin ástarsaga frá ísrael /i(* Bækur úr Ljóðhúsum Samastaður i tilverunni eftir Málfríði Einarsdóttur Málfríður Einarsdóttir er mörgum bók- menntavinum kunn af kvæðum sínum f rumortum og þýddum og af f rásögnum og ritgerðum sem birst hafa í tímaritum og blöðum. í bók þessari, sem er ólík flestum endurminningabókum öðrum, lýsir hún ,,samastöðum'' sinum fyrstu þrjá áratugi aldarinnar. Umhverfi, þjóðlíf, fólk, sálarlíf er framkallað af lifandi nærfærni og með slikum stílþrótti að sjaldgæft er. 302 bls. Verð kr. 5400,- Fiðrið úr sæng Daladrottningar Ljóð eftir Þorstein frá Hamri Frá því Þorsteinn frá Hamri hóf skáldferil sinn fyrir tæpum tuttugu árum hefur list hans auðgast og tekið á sig ný blæbrigði með hverri nýrri bók, en ekki er ólíklegt að Fiðrið úr sæng Daladrottningar verði talin heilsteyptasta Ijóðabók hans. 64. bls. Verð kr. 3600.- Augað i f jallinu Ljóð eftir Elísabeti Þorgeirsdóttur Elisabet Þorgeirsdóttir er ung skáldkona, ættuðfrá ísafirði. Hún yrkir um viðfangs- efni og vandamál ungs fólks, gleði og sorg, — og einnig stundum í gamansömum og ofurlítið hæðnislegum tón. Aðeins fá þess- ara Ijóða hafa áður birstá prenti og er þetta fyrsta bók Elísabetar. 84 bls. Verð kr. 2880.- Bókaútgáfan I Ljóðhús ,, ; aufásvegi 4, pósthólf 629, Simar 17095 & 20040 Borgarstjórn reið- ir til höggs /-------------------> Baldur Hermannsson skrifar um Melavöll- inn: „Þessi lausn er hreint frábært dæmi um pólitíska tvöfeldni. Menntamálaráðuneyt- ið nær öllu sínu á þurrt gagnvart bókhlöðu- sinnum og borgar- stjórn kvíðir engu, því að þeir verða sjálfsagt hundrað ár að róta upp grunninum. Hvar voru þeir staddir, unn- endur fornra mannvirkja, þegar vinnuvélar hins opinbera létu til skarar skriöa gegn Melavellin- um i byrjun desember? í hvert skipti sem borgar- stjórn hyggsthrófia viö fáeinum feysknum kumböldum niöri I miöbæ eöa skuggahverfinu bak viö Morgunblaöshöllina, ætlar allt af göflum aö ganga og þá er skeleggum Torfusamtökum aö mæta. En nú hefur þaö sannast aö elsta og merkilegasta iþróttamannvirki borgarinnar á sér formælendur fáa. Þarfur þjónn Melavöllurinn hefur þjónaö Reykvikingum i hálfa öld og fjórum árum betur. Þar háöu landslið okkar i frjálsum iþrótt- um og knattspyrnu hildi marga og þangaö hafa vist flestir borg- arbúar einhverntima lagt leiö sina til að sjá uppáhaldsliðiö veita keppinautunum maklega ráðningu. Þegar saga Vallarins verður skráð, munu mörg ógleymanleg atvik öðlast sess i iþróttabók- menntunum. Hver getur til dæmis gleymt tilþrifum Helga Dan i markinu, þegar hann skutlaði sér á boltann og varði vitaspyrnu Irlendinga, eða þá gatmarkinu umdeilda sem færði Akurnesingum Islandsbikar- inn? Eða óbugandi bjartsýni Egils rakara sem hvatti KR- inga til sigurs af jafn mikilli ein- urö þótt þeir væru þrem mörk- um undir og fimm minútur til leiksloka. Valsarar áttu engan slikan bakhjarl á áhorfenda- pöllunum, þvi að Pétur Svein- bjarnarson var ennþá dularfulla blóðið i draumi gjaldkerans. Hrollvekja byggingalistarinnar En nú á Völlurinn að vikja fyrir þjóðarbókhlööu, þvi að enn skal aukið við þá hrollvekju byggingalistarinnar, sem Há- skólahverfið er orðið. Upphaflega stóð vist til aö leggja nýjan völl niðri i mýri, en sú áætlun hefur einhvern veginn gufað upp. Málið var þæft fram og aftur árum saman eins og venjulega, og þegar spurt var um fyrirætlanir hjá mennta- málaráðuneyti eða borgaryfir- völdum, þá visaði hver kerfis- þjónninn á annan þvi að enginn ber ábyrgð á neinu og almenn- ing varðar ekkert um hvernig þessari borg er stjórnað. Lausn viöhæfi En loks datt borgarstjórn niður á lausn sem hæfir reisn ráðamanna. Völlurinn skal færður um eina tuttugu metra innan vallargirðingar, svo að þar fást að nafninu til einhveé iþróttaaðstaða meðan lokið er fyrsta áfanga bókhlöðubygging- ar. En siðan er saga Vallarins öll. Þessi lausn er hreint frábært dæmi um pólitiska tvöfeldni. Menntamálaráðuneytið nær öllu sinu á þurrt gagnvart bókhlöðu- sinnum i tæka tið fyrir erfiðar þingkosningar, og borgarstjórn með sinar kosningar framundan ypptir öxlum: engu að kviða vinir, þeir verða sjálfsagt hundrað ár að róta upp grunnin- um fyrir bókhlööuskriflinu og Völlurinn þraukar allavega á meðan. Athvarf trimmara Melavöllurinn er eina aöstað- an til að halda Reykjavikurmót i knattspyrnu, eini völlur borg- arinnar sem ekki er lagður i mýri og eini völlurinn sem er nothæfur til iþróttaiðkana mest- allan tima ársins. Hann er eini völlurinn sem unnt er að leggja undir skautasvell fyrir æskulýð borgarinnar og hann er helsta athvarf sivaxandi fjölda Reyk- vikinga, sem stunda reglu- bundna likamsrækt eða trimm. Þangað er stutt að skreppa úr miðborginni ýmist i hádeginu eða eftir vinnu og skokka fáeina hringi á hlaupabrautinni eða niðri i hljómskálagarði. Þeir allra vöskustu láta sig ekki muna um að skokka frá bún- ingsklefunum upp i öskjuhlið hvernig sem viðrar og stæla skrokkinn á malarstigunum, sem þar voru lagðir fyrir til- styrk dr. Gunnlaugs Þórðarson- ar á sinum tima. En Gunnlaugur datt út úr borgarpólitikinni og nú eiga iþróttamenn og trimmarar eng- an hauk i horni þar. Svona getur stundum munað um einn mann. Lengier von á einum Það er ekki nóg að reisa heilsugæslustöövar og sjúkra- hús. Reglubundin likamsrækt lengir lifiö, bætir heilsuna, fækkar veikindadögum og for- föllum frá vinnu, eflir þrekiö og bætir sambúð á vinnustað. Allt eru þetta atriði sem visinda- menn hafa sannað fyrir löngu. En meðan frostið ræöur rikj- um og hlaupabrautir liggja i klakaböndum geta iþróttamenn og trimmarar látið sig dreyma stóra drauma um röggsama borgarstjórn i Reykjavík. Borgaryfirvöid þora ekKi að hrótia við ómerkilegum fúakumböld- um niðri i bæ, en reiða til höggs gegn elsta og merkilegasta Iþrótta- mannvirki borgarinnar. SELJENDUR lótið skró eignina hjó okkur. Lögmenn ganga frá öllum samningum HAALEITI, I1S16 FASTEIGNASALA HÁALEITISBRAUT 68 AUSTURVERI 105 R SÖLUSTJÓRI: HAUKUR HARALDSSON HEIMASlMI 72164 GYLFI THORLACIUS HRL. SVALA THORLACIUS HDL OTHAR ÖRN PETERSEN HDL

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.