Vísir - 02.01.1978, Síða 3

Vísir - 02.01.1978, Síða 3
3 vism Mánudagur 2.janúar 1978 ASÍ um vörubílstjóramálið: Gróf brot á grund vallarréttindum verkalýðsins ,/AÖ fyrirlagi sam- gönguráöuneytisins hefir vegagerðin að undan- förnu þvingað vörubif- reiðastjóra við tilteknar nýbyggingar- framkvæmdir til að lána öll aksturslaun sin um óákveðinn tíma" segir i ályktun frá miðstjórn ASÍ þar sem þessu háttalagi er mótmælt. Eins og Visir skýrði frá fyrir stuttu hafa vörubifreiðastjórar er vinna við hraðbrautarfram- kvæmdir við Isafjörð orðið að lána vinnu sina vaxtalaust fram i marsmánuð. Miöstjórn ASl telur þetta at- ferli rikisvaldsins gróft brot á grundvallarréttindum verkalýðsins. Segir i ályktun- inni að ef vörubifreiðastjórar hafi neitað þessum kostum þá hafi þeim veriö neitað um vinnu. Mun miðstjórnin styðja Landssamband vörubifreiða- stjóra um skjóta leiðréttingu mála sinna. —SG Norrœna samvinnusambandið: Hafa áhuga á iðn- rekstri hér á landi „Það er stefna Norræna sam- vinnusambandsins að byggja upp samnorrænan iðnað”, sagði ErlendurEinarsson forstjóriSlS i samtali við Visi, ,,og annarsstað- ar á Norðurlöndum hafa verið reistar verksmiðjur með eignar- aðildfélaga i Norræna samvinnu- sambandinu. Ég hef undanfarin ár átt sæti i stjórn Samvinnusafn- bands Norðurlanda og þar hef ég hvatt til þess að menn gleymi ekki Islandi i þessu sambandi” Erlendur sagði að undirtektir hefðu verið mjög jákvæðar og samvinnusambönd á Norðurlönd- um fús til að starfrækja verk- smiðjur hér á landi. Sagði Erlendur að einn megin kostur þessarar samvinnu væri að framleiðslan yrði seld á vegum Norræna samvinnusambandsins i gegnum mjög fullkomið dreif- ingarkerfi sem hefði traustan markað. Framleiðslan væri ýmis konar iðnaður, einkum neytenda- vörur svo sem hreinlætisvörury sælgæti og niðursuðuvörur. „Hugmyndin er i fullum gangi”, sagði Erlendur, ,,þó að ekkertákveðið sé á prjónunum og má segja að til þess að hrinda henni i framkvæmd vanti litið nema tillögur frá okkur um hver framleiðslan eigi að vera”. — KS Miðstjórn ASÍ: L0GÞVINGUN LIFEYRISSJÓÐA MUN DRAGA ÚR LÁNVEITINGUM Miðstjórn Alþýðusambands þeim ástæðum algerlega óeðli- Islands hefur samþykkt ályktun leg. þar sem mótmælt er mjög harð- Þá segir i ályktun ASt að þessi lega þeirri ákvörðun meirihluta iögþvingun muni einnig koma alþingis að lögbinda kaup lif- sér mjög ilia fyrir sjóðfélaga eyrissjóðanna á skuldabréfum vegna stórskertrar getu þeirra fjárfestingarlánasjóöa. til að veita þeim lán til ibuða- Minnt er á að til hinna bygginga. almennu lifeyrissjóða var stofn- Einnig átelur miðstjórnin sér- að með frjálsum samningum staklega að engar samningatil- aðila vinnumarkaðarins og öll raunir voru reyndar áður en iögþvingun á fjárhagsráðstöf- gripiö var til þessara aögeröa. unum sjóðanna þvi strax af —SG Kœmi til greina að selja ríkinu Sambands- húsið ,,Ef við fengjum lóðarað- stöðu sem myndi henta okk- ur þá gæti það komið vel til greina frá minum sjónarhóli að selja Rikinu Sambands- húsið en um það hafa engar formlegar viðræður farið fram ennþá”, sagði Erlend- ur Einarsson forstjóri SIS i samtali við Visi. Erlendur sagði að þetta mál hefði komið upp vegna þess að Sambandshúsið væri samkvæmt aðalskipulagi Reykjavikurborgar á svæði sem væri hugsað fyrir starf- semi Rikisins. Sagöi Erlend- ur að frumkvæði að hugsan- legri sölu hefði komið frá stjórnvöldum þar sem Sambandshusiö væri áfast Arnarhvoli en engin sala væri á döfinni núna. — KS. Simrad CD myndtalvan vakti mikla athygli ráðstefnugesta og með- al þeirra sem sjást hér viö tölvuna er Þröstur Sigtryggsson skip- herra. (Visism. SHE) Fjohnenni ó ráð- stefnu Simrad A ráðstefnu sem Simrad verk- smiðjurnar i Noregi efndu til i Reykjavik milli jóla og nýárs komu saman á annað hundrað manns. Fjölmargir skipstjórar og útgerðaraðilar utan af landi komust þó ekki á ráðstefnuna vegna óveðurs sem hamlaði flugi. I samvinnu við Friörik A. Jónsson h.f. sem er umboðsaðili Simrad á Islandi, voru kynntar margar nýjungar sem verk- smiðjan býður upp á i sambandi við fiskveiðar og fiskileit. Fluttir voru fyrirlestrar, sýndar kvikmyndir og gestum gafst tækifæri til skoða ný tæki frá Simrad. Er þetta i fyrsta sinn sem svo viðamikil sýning er haldin á tækjum frá Simrad hériendis, en stór hiuti fiski- skipaflotans er búinn tækjum frá þessum þekktu verksmiðj- um. —SG Jan Boye Woll sölustjóri sýnir Jóni Jónssyni forstöðumanni Haf- rannsóknarstofnunnar skynjara er mæla aflamagn I vörpunni. ÁRAMÓTA- SPILAKVÖLD Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, verðurfimmtudaginn 5. janúar kl. 20.30 að Hótel Sögu, Súlnasal. Húsið opnað kl. 20.00. Ávarp: Geir Hallgrímsson forsaetisráðherra. Ómar Ragnarsson skemmtir. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi til kl. 1. Síðast var húsfyllir, tryggið ykkur spilaspjöld í tíma. Glæsileg spilaverðlaun. Spilaspjöld afhent á skrifstofu Varðar, Sjá/fstæðishúsinu Valhöll, Háaleitisbraut 1, 2. hæð, 2., 3., 4. og 5. janúar, sfmi82963 eða 82900 á venjulegum skrifstofutíma. Spilaspjöldin gilda sem happdrættismiöi. Vinningur flugfar fyrir einn Keflavík-Kaupmannahöfn-Keflavík með Flugleiðum. GEIR HALLGRlMSSON FORSÆTISRÁÐHERRA HLJÓMSVEIT RAGNARS BJARNASONAR ÓMAR RAGNARSSON Landsmálafélagið Vörður, samband félaga Sjálfstæðismanna í hverfum Reykjavíkur.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.