Vísir


Vísir - 07.01.1978, Qupperneq 13

Vísir - 07.01.1978, Qupperneq 13
12 Laugardagur 7. janúar 1978 vism VISIR Laugardagur 7. janúar 1978 13 Bamber Gascoigne heima i stofu, með konu sinni. Þættirnir Kristmcnn sem is- lenska sjónvarpið sýnir nú klukkan 5 á sunnudögum hafa vakið nokkra athygli þeirra sem á hafa horft. Það er kannski engin furða. Gifurleg vinna var lögð i að gera þá sem best úr garði. Hópurinn hjá Granada sjón- varpsstöðinni bresku sem að gerö myndarinnar stóð feröaöist til 25 landa og tók upp um 70 kilómetra af kvikmynda- filmu. Um 7 kilómetrar voru notaöir. Kynnir þáttanna Bamber Gascoigne, hefur ekki svo vitað sé áður sést i islensku sjónvarpi. En Bretarnir hafa séð hann nokkrum sinnum. Hann hefur verið umsjónarmaöur þáttar- ins University Challenge, sem er spurningaþáttur háskóla samfíeytt frá árinu 1962. Þátt- urinn hefur sem sagt gengið i meira en 15 ár einu sinni i viku. Og svo erum við að kvarta þó Onedin sé hér i tvo vetur. „Ég trúi ekki á Guð En Bamber þessi er aö mörgu leyti athyglisverður maður og það er einnig athyglisvert að sjónvarpsstöðin skuli hafa valið hann til að sjá um þættina. Ef hann væri spurður: „Af hverju trúir þú á Guð?” Yrði svarið áreiöanlega: „Ég trúi ekki á Guð”. Gascoigne hefur ekki verið trúaður i mörg herrans ár og ekki sótt kirkju sjálfs sins vegna siðan á herskyldu árun- um. „Og það var vegna þess að ég vorkenndi prestinum — hann virtist svo einmana.” Fjögurra ára rannsóknir meðal kristins fólks hafa ekki breytt honum. „Ég sé ekkert nýtt” segir hann og bætir við eins og sjónvarpsmanni sæmir „lýsingin er alveg sú sama”. En af hverju hefur Granada sjónvarpsstöðin faliö trúlausum manni að semja og kynna svona gifurlega dýran myndaflokk um kristni. Skýring Granada er sú að þættirnir séu ekki gerðir til að fjölga kristnu fólki. Og for- ráðamenn stöðvarinnar benda á að ekkert væri athugavert þótt þættir um kommúnisma væru gerðir af manni, sem ekki væri Marxisti. Skýr í kollinum Bamber er nú 42 ára gamall og býr i Surrey. Hann er kvænt- ur en barnlaus. Faöir hans var kauphallarbraskari, en móðirin heima vinnandi húsmóðir. Bamber varð strax óvenju skyr i kollinum. Hann fékk á náms- árum sinum marga styrki og verðlaun fyrir góöan náms- árangur. Vegna áhuga á leik- húsinu fór hann siðan að skrifa gagnrýni — fyrst fyrir háskóla- blað i Cambridge og siöan i Spectator. Tuttugu og tveggja ára gamall skrifaði hann reviu sem sýnd var meira en 300 sinnum — og Bamber hafði slegið I gegn. Hann gerði þó ekki mikiö meira i leikhúsinu sem i frásög- ur er færandi. Næstu leikrit hans voru misheppnuö — en hann hafði efni á dálitlum skakkaföllum þvi hann hafði tekið við kynningu á spurninga- þættinum sem áður er getið. Flogiö fram og til baka Hann er talinn svo ómissandi i þeim þáttum að eitt sinn sem oftar þegar hann og kona hans voru á Indlandi lét sjón- varpsstöðin sig hafa það að fljúga með hann á hverjum miö- vikudegi heim til Manchester i upptöku, og siðan til baka aftur. Og svo var ákveöið að hann fengi tækifæri til að spreyta sig á dálitlu öðru. Bamber er bara nokkuð bjartsýnn á framtið kristninnar eftir að hafa rann- sakað og rannsakað i meira en fjögur ár. Hann telur aðlögunarhæfni helst styrk trúarinnar. „Aöur fyrr” segir hann, „gekk þetta allt út á refs- ingar og helviti — núna er það ást og mannleg samskipti og i framtiðinni, ef þjóðfélögin verða sósialiskari en nú er, mun Kristni liklega snúast um það að deila með öðrum.” „Virðing min fyrir sann- kristnu, heittrúðu fólki hefur aukist feikilega, svo framarlega sem það heldur trúnni með sjálfu sér. Ekkert fer eins i taugarnar á mér og kristinn maður sem litur á það sem galla i þérað trúa ekki á Guð, og held- ur að ef hann aðeins reyni oftar og betur geti hann gert úr þér kristinn mann.” —GA Sýndur verður besti kafli Islenska liösins I siðari landsieiknum við norðmenn I handknattieik sem háður var á milli jóla og nýárs i sjónvarpinu Idag. BJARNI KEMUR VÍÐA VIÐ! „Það verður viða komið við i iþróttaþættinum i dag”, sagði Bjarni Felix - son er við spurðum hann hvað hann ætiaði að bjóða áhorfendum upp á á iþróttasviðinu þegar þeir opna fyrir sjónvarpið kl. 16.30 i dag. „Þaö verður i fyrsta lagi handbolti”, sagöi Bjarni. „Það verður sýndur kaflinn úr siðari iandsleik islands og Noregs —kaflinn þar sem íslenska liðið vinnur upp forskot norðmanna. Þá verður sýnt frá heimsbikarkeppninni á skiðum, giefsur úr körfuboltaieik og loks verður lýst kjöri iþróttamanns ársins, og sýnt frá afhendingunni, sem var i gær.” „Hvaða ieikur veröur svo á dagskrá i ensku knattspyrnunni i dag?” „Við höfum ekki fengið neina sendingu eftir jól, en við eigum einn hörkuleik sem við sendum þá út i staðinn — leikur Nottingham Forest og Coventry”. -klp- Þeódórakís kemur aftur Útvarpið endurflytur þóttinn um þennan frœga Grikkja ó sunnudaginn Útvarpið endurtekur á sunnudaginn kl. 16,25 þátt sem var á dagskrá á jóla- dag og vakti þá verðskuld- aða athygli. Þáttur þessi, sem er í umsjá Friðriks Páls Jóns- sonar útvarpsmanns, f jall- ar um gríska tónskáldið Þeódórakís, sem er eitt ástsælasta tónskáld Grikkja. ( þessum þætti tekur Friðrik Páll fyrir æfi hans og segir jafnframt frá hinni pólitísku hlið hennar, en Þeódórakis hefur alla tíð látið pólitík og alþýðuna mikið til sín taka. Aðall þáttarins er þó að sjálfsögðu tónlist hans, sem sprottin er af grískri alþýðutónlist. Mörg af lög- um hanseru leikin í þættin- um, —klp— Heyrst hefur að grfska tónskáldið Þeódórakis komi hingað á Listahátíðina í sumar. Hann er hér á þessari mynd ásamt landa sinum Melinu Mercouri, sem syngur nokkur laga hans i útvarpsþættinum á sunnudaginn. Umrœður í Teboði í kvöld: Ekki matarlyst heldur matargerðarlist Þeir sem þurfa ekki að passa linurnar og hafa ánægju af góð- um mat, ættu að fá sér sæti við útvarpið i kvöid kl. 21.00. Sigmar B. Hauksson býöur þá þrem góðkunnum mönnum i „Teboö”, og ætlar aö ræða við þá um matargeröarlist, eða „gastronomi” eins og það heitir á finu máli. Þeir sem koma til hans eru Gunnar Gunnarsson, Ib Wess- mann og listamaðurinn Balthaz- ar. Allir hafa þeir mikið vit á mat, og'kunna eða hafa lesið sig til I þeirri list að búa til góðan mat. Getur orðið fróðlegt að hlusta á þessar umræður. Þó er það ekki ráðlegt fyrir fólk sem er i megrun þessa dagana þvi slikar umræður gætu „kveikt i þeim” og orsakað að allt góðgætið úr isskápnum hyrfi —klp— # § EKKI EINN—HELDUR BILAR I ASKRIFENDAGETRAUNINNI Argerft 1978, verbmæti um 2 millj. kr. VERÐLAUNIN 1. FEBRUAR. FORD FAIRMONT □ SIMCA 1307 órgerí 1978. verðmæti 3.4 millj. kr. VERÐLAUNIN 1. APRIL. Argerft 1978, ver&mæti 2,3 millj. kr. VERDLAUNIN 1. JUNL VlSIR Simi 66611 VÍSIR Simi 82260 VÍSIR simi 86611 VÍSIR Simi 82260 VlSIR sími 86611 VÍSIR

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.