Vísir - 12.01.1978, Qupperneq 11
visra Fimmtudagu
r 12. janúar 1978
11
Stundum veröur þrýstingurinn svo mikill að ekki rennur nógu vel eftir láréttu
sprungunum og þá brýst kvikan upp á yfirborðið. Enn hefur það ekki gerst nema í
öriitlum mæli. Visismynd -LÁ
farið lárétt en ekki lóðrétt (nema
i sáralitlum mæli) úr neðan-
jarðarrónni og þessvegna er enn-
þá stöðvarhús við Kröflu.
NAMAFJALL
Síðustu atburðir
Það sem hefur verið að gerast
siðustu daga við Kröflu er i stuttu
KROFLUASKJAN
Stoðvarhús _ Leirhnjúkur
máli það að hraunkvikuþróin var
orðin full og þrýstingurinn mikill.
Sem betur fór braust hún ekki upp
á yf irborðið, heldur eftir láréttum
GJASTYKKI
Mjög einföld skissa sem lýsir hugmyndum um kvikurennsli undir Kröflusvæði.
(Teikningarnar eru úr grein dr. Axels Björnssonar í Náttúrufræðingnum.)
Gosbeltið á Norðausturlandi. Eftir dökku beltunum
hefur hraunkvikan runnið frá Kröf lu í norður og suður
og því hefur ekki orðið meiriháttar gos á svæðinu. En
hvað gerist ef þessar sprungur fyllast?
sprungum, i norðurátt, að Keldu-
hverfi.
Það var sérstakt viö þetta
„gos” að jarðskjálftar voru litlir
á Kröflusvæðinu sjálfu, en tölu-
verðirfyrir norðanþað og fundust
meðal annars snarpir kippir allt
til Siglufjarðar.
Þetta er vegna þess að landið er
búið að siga og risa svo oft við
Kröflu aö jarðlög þar eru eins og
„möluð” eftir teygingarnar og
brotna ekki með brestum og
skjálftum eins og áður.
En verður þá ekkert gos við
Kröflu? Um það vilja jarðfræö-
ingarhelstekki spá. Dr. Axel seg-
ir i grein sinni að vænta megi þess
að órói verði áfram á þessu svæði
i einhver ár enn.
Um þróun þess óróa segir
hann: „Ógerlegt er að segja með
vissu hvernig sá órói þróast og
hvort upp muni koma meiriháttar
hraun eða ekki. Þó er rétt að
benda á að hraunrennslið upp á
yfirborð varð mest undir lok Mý-
vatnselda.
Sé hraunkvika nú að smáfylla
upp i sprungusveiminn norðan og
sunnan öskjunnar og haldi að-
streymi kviku aö neðan áfram,
verður að telja likur á hraungosi
á næstu árum nokkuð miklar.”
Breytingar
eru
kosningum hafa sem næst fimm-
faldan atkvæöisrétt kjósanda i
Reykjaneskjördæmi, sem býr við
skaröastan hlut í þessu tilliti.
Slikt getur ekki gengið lengur. Ég
er fylgjandi þvi, aö atkvæöi utan
þéttbýliskjarnans viö Faxaflóa
vegi nokkru þyngra en atkvæöin
þar. Hlutfallið 1 atkvæði á móti
1.5 væri réttlætanleg viömiöun i
þessum efnum.
Margir þeirra, sem raunar eru
mótfallnir öllum breytingum á
knýjandi nauðsyn
á kjördæmaskipan, sem fyrst og
fremst er réttlát gagnvart kjós-
endum og flokkum en jafnframt
einföld og skilvirk aö allri gerö.
Meginreglur kjördæmaskipunar-
innar á að festa i stjórnarskrá —
þó verulega færri en nú er — en
önnur atriöi i lögum um kosning-
ar til Alþingis. Þannig tel ég, að
ákvæðið um fjölda þingmanna
eigi að standa I stjórnarskrá en
tölu þingmanna hvers kjördæmis
eigi að ákveða i kosningalögum,
þar sem gert sé ráö fyrir endur-
skoðun á þessu atriði á 10 ára
fresti.
Þann 19. mai 1972 var kosin á
Alþingi 7 manna nefnd til þess að
endurskoöa stjórnarskrána. Þótt
nefnd þessi veröi brátt 6 ára hefur
litiö markvert frá henni heyrst
um endurskoðunarstarfið. Nú er
sagt, aö hún muni skila áliti fyrir
næstu alþingiskosningar, en þó
engum heildstæðum tillögum um
meiriháttar breytingar á gildandi
kjördæmaskipan! Margirhafa þó
talið það helsta verkefni hennar.
Reynist þetta rétt, eru viðhöfð
forkastanleg vinnubrögð, sem
leiöa hugann að því, hvort há-
stemmt tal um nauösyn úrbóta f
þessum efnum sé alvarlega
meint.
Breyting á kosninga-
lögum nægir ekki
Misvægi atkvæðisréttarins eftir
búsetu er nú slíkt, aö kjósandi í
þvf kjördæmi, sem fæsta kjósend-
ur hefur, mun í næstu alþingis-
kjördæmaskipuninni og kosn-
ingatilhöguninni, en telja sig þé
knúöa til aö fylgja nokkrum
breytingum á því sviði, benda á,
að nægilegt sé að breyta kosn-
ingalögum til aö leiðrétta þetta
misvægi. Breytingar þær, sem
þeir tala um, lúta aö nýjum regl-
um um úthlutun uppbótarsæta,
þ.e. að afnema hlutfallsregluna
og bannið við þvf, aö fleiri en einn
uppbótarþingmaöur hvers flokks
komitil greina íhverju kjördæmi.
Aö mlnu viti nægir þetta ekki,
heldur er aöeins I stil viö fyrri
kákráðstafanir I þessum efnum.
Breyting á sjálfri stjórnarskránni
er forsenda sanngjarnrar kjör-
dæmaskipunar, sem lengi gæti
staðið.
Til stuðnings þessari skoöun
minni birti ég hér töflu um þann
fjölda kjósenda, sem var aö baki
hverjum þingmanni I kosningun-
um 1974, eftir að uppbótarsætum
hafði veriö úthlutaö. 1 töflunni er
viö þaö miðaö, að hlutfallsreglan
hafi veriö úr gildi felld sem og
ákvæöiö um, að hver flokkur skuli
aöeins fá einn uppbótarmann I
hverju kjördæmi:
Reykjanes 2.876
Reykjavlk 2.653
Vesturland 1.567
Vestfirðir 1.119
Norðurland vestra 1.205
Noröurland eystra 2.235
Austurland 1.360
Suöurland 1.775
Af þessu má sjá, að kjósandi I
Vestfjarðakjördæmi hefði haft
nærri þrefaldan atkvæðisrétt
kjósanda I Reykjaneskjördæmi I
kosningunum 1974. í kosningun-
um I ár yrði hann sennilega rúm-
lega þrefaldur, þrátt fyrir það, aö
svigrúm til breyting á kosninga-
lögunum væri nýtt til hins Itrasta
til þess aö leiðrétta misvægi at-
kvæöisréttarins. Sllk leiörétting
er þvl ekki nægjanleg.
Aukið persónukjör
Þaö sem hvaö mestri gagnrýni
hefur sætt I gildandi kosningatil-
högun er, að kjósendur ráöi litlu
sem engu um hverjir frambjóð-
enda á rööuðum framboöslistum
flokkanna nái kosningu til Al-
þingis. Ahrif útstrikana og þess
að einstakir kjósendur breyti röö
frambjóðenda séu hverfandi og
fái engu breytt þar um. Þannig
séu langflestir þingmenn I örugg-
um sætum og kosningin þá nánast
formsatriöi.
Sllk gagnrýni á mikinn rétt á sér.
Flestir stjórnmálaflokkarnir hafa
reynt að koma til móts viö þessar
gagnrýniraddir með því aö efna
til prófkjöra eða skoöanakann-
anna. Gallarnir, sem slíku forvali
eru samfara, eru margvíslegir og
þau útheimta iöulega mikinn
tlma og fjármuni. Stærsti gallinn
er þó sá, aö kjósandinn á þess oft
kost, aö taka þátt I forvali flokks,
sem hann undir engum kringum-
stæðum myndi styöja I kosning-
um. Menn geta því tekiö þátt I
forvali flokks meö þvl hugarfari
einu aö skaöa hagsmuni hans.
Meö þessi atriði I huga flutti ég I
byrjun þings frumvarp um breyt-
ingu á lögunum um kosningar til
Alþingis. Efni þess er I stuttu
máli, það, að stjórnmála-
flokkarnir leggi fram framboös-
lista sina með frambjóöendum I
stafrófsröð og kjósandinn eigi
þess síöan kost, aö raða fram-
bjóöendum. Hér yrði um róttæka
breytingu frá gildandi reglum aö
ræða. Kosningar milli flokka og
prófkjör milli einstakra fram-
bjóöenda færi fram samtímis.
Ekkert frumvarp á yfirstand-
andi þingi hefur hlotiö meiri um-
ræðu en þetta og sýnist eitt hverj-
um um efni þess. Mér finnst flest-
ar þær mótbárur, sem haföar
hafa veriö uppi gegn frum-
varplnu, vera fremur léttvægar,
en út I þá sálma fer ég ekki nú.
Um örlög þess er allt I óvissu.
Liklegra tel ég, að það dagi uppi,
en aö þaö fáist samþykkt —
a.m.k. óbreytt. En þá verður
reynt á ný og skrefiö stigiö aðeins
styttra I þá átt að auka rétt kjós-
enda til að velja milli frambjóð-
enda.