Vísir


Vísir - 24.01.1978, Qupperneq 5

Vísir - 24.01.1978, Qupperneq 5
visra Þriðjudagur 24. janúar 1978. „GERÐUM RAÐSTAFANIR í VIÐSKIPTUM NATO VIÐ ÍSLAND, PORTÚ- OG FRAKKLAND ## - segir dr. Luns framkvœmda- stjóri um kommúnistastjórnir innan NATO GAL Joseph Luns, fram- kvæmdastjóri NATO, sagði á opinberum fundi i Brussel i gær, að það yrði „sérdeilis al- varlegt”, ef kommún- isti yrði settur i em- bætti varnarmálaráð- herra eða utanrikisráð- herra rikisstjórnar sem hlut ætti að varn- arbandalaginu. Luns var að ræða sérstaklega stjórnmálástandið á Italiu og varaði við möguleikanum á þvi að kommúnistum yrðu falin em- bætti, sem lytu að öryggismál- um rikisins. Hann sagði, að NATO hefði áður átt viðskipti við rikis- stjórnir bandalagsrikja skipað- ar kommúnistum, eins og Is- land,Portugal og Frakkland, og bætti við: „Við gerðum nauð- synlegar ráðstafanir og þær tókust”. En dr. Luns sagði, að Italfa hefði sérstöðu i þessu efni. Ólikt þessum þrem löndum, sem hann gat, þá er stjórnin i Róm fastameðlimur i kjarnorkuráði NATO, sem skipuleggur hvern- ig Atlanlshafsbandalagið mundi heyja kjarnorkustrið við Sovét- rikin, og fjallar þvi um við- kvæmustu leyndarmál NATO. Tveir hópar sigruðu tind- inn samtímis Bandariskir og svissneskir fjallgöngumenn urðu fyrstir til þess að sigrast á Aconcag- ua (6.964 m) samtimis eftir mismunandi leiðum, en það er hæsta fjall vesturálfu. Hópur fimm fjallgöngu- manna, undir forystu John Heffernan, komst á tindinn eftir leið, sem liggur yfir hættulegan jökul, en á þeirri lið hefur margur fjallgöngu- maðurinn látið lifið. Svissneskur hópur undir forystu Walter Schwizer og Hans Rudolf Schenkel fór aðra leið, sem oftast er valin. Þriðji hópurinn, undir for- ystu Austurrikismannsins Leo Scholommer varð að snúa við, þegar hann var kominn i 6.400 metra hæð, þvi að einn úr hópnum veiktist. Aconcagua gnæfir yfir And- esfjöllum, um 12 km frá landamærum Chile og er i Argentinu. Hann er sagður 43. hæsti tindur heims. Árlega reyna um 60 fjallgönguhópar að klifa hann. RÆNDU BAR- ONI í PARÍS Þannig var umhorfs á Broadway, þegar búið var að moka af götum. SNJÓÞYNGSU Á AUSTURSTRÖNDINNI Mikil snjóþyngsli hafa veriö að undanförnu i noröausturrikj- um Bandarikjanna og hafa valdið glundroða i umferð jafnt i borgum sem úti á þjóövegum. I siðustu vikulok var bruna- gaddur á þessum slóðum og með snjóþyngslunum tepptist flugumferð. En á mánudag Lögreglan i Nicara- gua hefur nú i haldi mann, sem játað hefur, að hann hafi skipulagt morðið á Chamorro rit- stjóra og einum helsta leiðtoga stjórnarand- stöðunnar i landinu. Hefur maðurinn bendlað einn kaupsýslu- hafði tekist að ryðja flestar brautir flugvalla, og þeir, sem setið höföu veðurtepptir um helgina, komust þá leiðar sinnar. 1 New York fóru áætlunar- ferðir járnbrautanna meira eða minna úr skoröun, og lögðust al- mann og tvo áhrifamenn i Nicaragua við morð- ráðin. Silvio Pena Rivas, sem játað hefurað hafa sett morðingjana til höfuðs Chamorro ritstjóra, segist hafa gert það að undirlagi Pedro Ramos, kaupsýslumanns ættaðs frá Kúbu en með bandariskan rikisborgararétt. Rivas sagði i gær, að Ramos hefði tjáð honum, að með honum veg niður í tvo daga til sumra úthverfanna. Snjóskaflar urðu hærrien fólksbilar. Þak á hljómleikahöll á Long Island hrundi undan snjó- þyngslunum og olli miklu tjóni á áheyrendasætunum sem voru 3.500 talsins. að banaráðunum stæðu Cornelio Hueck, forseti fulltrúadeildar Nicaraguaþings, og Fausto Zel- aya,fyrrum bankaráðsformaður. Tveir þessir siðast nefndu hafa áður verið nefndir i sambandi við morðrannsoknina, en þeir hafa látið frá sér fara yfirlýsingar, þar sem þeir neita nokkurri vitneskju um morðið. Pedro Ramos yfirgaf Nicara- gua og hélt til Bandarikjanna daginn áður en morðið var fram- ið. — Zelaya hefur einnig yfirgef- ið landið og er sagður einhvers staðar i Evrópu með fjölskyldu sinni. — Hueck dvelst á búgarði sinum við Kyrrahafsströndina, um 150 km suður af höfuðborg- inni. Einkaritari Ramos bar vitni i gær, og sagðist hún hafa séð Pena Rivas koma á skrifstofu Ramos og taka við umslagi fullu af pen- ingum úr hendi aðstoðarmanns hans, sem er annar kúbanskur amerikani, Fausto Alvarez að nafni. Franska lögreglan leitar dauðaleit i dag að Edouard-Jean Empain iðjuhöldi og baróni og ræningjum hans. Barón- inum var rænt i gær skammt frá heimili sinu i einu af heldri hverfum Parisar. Ræningjarnir hafa ekki skilið eftir nein skilaboð um lausnar- gjaldskröfur, og veit lögreglan ekki hvort politiskar ástæður ligja að baki ráninu, eða hvort um er að ræða venjulegan auðgunar- glæp. Empain barón er maður fertug- ur, belgiskur að þjóðerni, og stýr- ir samsteypu, sem tekur til rúm- lega 500 fyrirtækja viðs vegar um heim. Hann hefur oft verið skot- spónn vinstrisinna. Frönsku blöðin liktu i fréttum sinum í morgun ráni hans við ráni Baader-Meinhofhryðjuverka- mannanna á Hanns-Martin Schleyer, leiðtoga atvinnurek- enda i V-Þýskalandi i fyrra. Stjórn Valery Giscard D’Estaing lætur þetta mál mjög til sin taka og fyrirskipaði Frakk- landsforseti, að sér skyldi gefin skýrsla á klukkustundarfresti um framvindu rannsóknarinnar. Baróninn er eini útlendingur- inn, sem komist hefur til áhrifa innan samtaka franskra atvinnu- rekenda. Hann var á leið að heiman i bif- reið sinni, þegar sendibill varð á veginum, en á götunni lá vél- hjólamaður, og leit út sem slys hefði orðið. Um leið og bifreið barónsins nam staðar, stukku tveir grimuklæddir menn út úr sendibilnum og yfirbuguðu bar- óninn með aðstoð „þess slasaða”. Aðrir stukku inn i bilinn og óku honum burt. Einkabilstjóri bar- ónsins var bundinn og honum varpað inn i sendibilinn, en siðar var hann skilinn eftir i Utjaðri Parisar. Hann hafði sætt alvar- legum likamsmeiðingum og gat ekki gefið neina gagnlega skýrslu á ræningjunum. — Bifreiö bar- ónsins fannst siðar yfirgefin. Siðasta mannrán i Frakklandi var i april i fyrra. Þá var rænt Luchino Revelli-Beumont, for- stjóra dótturfyrirtækis Fiats i Frakklandi. Honum var sleppt gegn 2 milljón dollara lausnar- gjaldi. Atta Argentinumenn voru handteknir fyrir ránið, og kom féð mest allt i leitirnar. Einn af hverjum tuttugu kaupendum okkar hlýtur kr 200.000.oo í verðlaun Fasteignasalan Afdrep Skúlatúni 6, simar 28644 & 28645. Seljendur, látið AFDREP annast söluna. Þorsteinn Thorlacius, viðskiptafræðingur. UPPUOSTRANIR í CHAMORRO- MORDMÁLINU

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.