Vísir - 24.01.1978, Síða 10

Vísir - 24.01.1978, Síða 10
10 Þriðjudagur 24. janúar 1978. VISIR VÍSIR Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdarstjórí: Daviö Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guö mundurG. Pétursson. Umsjón meö helgarblaði: Árni Þórarinsson. Blaöamenn: Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrímsson, Jónína Michaelsdottir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan L. Pálsson, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánssön. Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Jón Einar Guðjónsson. Utlit og hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Auglysinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siöumúla 8 simar866U og 82260 Afgreiösla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 1700 á mánuöi innanlands. Verö i lausasölu kr. 90 eintakið. Prentun Blaöaprent h/f. Formaðurinn, flokkssvélin og fjölflokka athvœðin Urslit prófkjörs Framsóknarflokksins í Reykjavík, sem kunngerö voru í gær, eru þeim flokki og öðrum alvarleg áminning um þaö, að kosningabandalög og prófkjör fara ekki saman. Kjósendur láta ekki bjóða sér það, að ákveðinn hópur f rambjóðenda bindist samtökum á þann hátt sem fjórir menn gerðu í prófkjöri Fram- sóknarf lokksins, þegar um lýðræðislegar forkosningar á að vera að ræða. Kjósendurnir eiga að velja milli manna en ekki samtryggingarhópa. Sigur Guðmundar G. Þórarinssonar, verkfræðings, sýnir að kjósendur geta sprengt slík bandalög og atorku- samir ungir menn geta komist langt, þótt sterk sam- vinnuöfl séu á móti þeim. Guðmundur sagði i viðtali við Vísi i gær, að ,,f lokksvél- in'' hefði unnið á móti sér í prófkjörinu í samvinnu við kosningabandalagið á framboðslistanum. Með ,,f lokksvélinni'' á Guðmundur eflaust við þá for- kólfa, sem ráðið hafa ríkjum í Reykjavíkurvígi f lokksins um skeið, en þeir hafa lítt verið hrifnir af að hleypa utanaðkomandi aðilum þar nokkuð upp á dekk. Ólafur Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins, á ekki neinn eignarhlut í f lokksvélinni, né heldur stendur hann að rekstri hennar. Hann hefur þvert á móti veitt Guðmundi Þórarinssyni ómetanleg^n stuðning og mun hann vænta mikils af honum á komandi árum á vett- vangi Framsóknarflokksins. Þórarinn Þórarinsson, formaður þingflokks Fram- sóknarflokksins getur að nokkru rakið ósigur sinn til óvinsælda kosningabandalagsins og þess, að hann hafði nánast engin persónuleg umsvif í kosningabaráttunni. Breyttir tímar kref jast nýrra aðferða, hvort sem mönn- um líkar það betur eða verr. Skýringanna á framgangi Einars Ágústssonar, ráð- herra, er aftur á móti að leita í verulegri þátttöku ann- arra kjósenda en flokksbundinna Framsóknarmanna. Það, að hann kemst einn bandalagsmanna í öruggt þing- sæti sýnir, að atkvæði bandalagsins hafa ekki riðið baggamuninn. Atkvæðin, sem féllu Einari í skaut eru að stórum hluta til sömu f jölf lokka atkvæðin sem réðu úrslitum við próf- kjör Sjálf stæðisf lokksins og Alþýðuf lokksins í Reykjavík á dögunum, enda var smalað á vegum sömu aðila nú og fyrir hin prófkjörin tvö. Árangur aðalhlekksins í hagkeðju framtíðarinnar, Kristjáns Friðrikssonar, má rekja til margra ára stöðugrar kosningabaráttu hans og margvíslegrar kynningar í útvarpi og ákveðnum dagblöðum á hug- myndum hans varðandi auðlindanýtingu og efnahags- undur. Kristján Benediktsson stendur sem fyrr traustum fót- um í efsta þrepi borgarstjórnarlistans og hefur það ef- laust ekki verið til skaða, að hann fékk ókeypisall-langa auglýsingu i Kastljósi Sjónvarpsins kvöldið áður en próf- kjörið hófst. Framgangur unga fólksins, Gerðar Steinþórsdóttur og Eiriks Tómassonar er í samræmi við aukin áhrif ungs fólks í stjórnmálaf lokkunum almennt. Atkvæði íþrótta- iðkenda hafa aftur á móti ekki megnað að halda Alfreði Þorsteinssyni í öruggu sæti á borgarstjórnarlistanum. Þegar úrslitin í Reykjavíkurprófkjöri Framsóknar- f lokksins eru skoðuð er Ijóst, að áhrifa f lokksformanns- ins hefur gætt þar verulega, að því er Guðmund Þórarinsson varðar, en fjölflokka prófkjörsatkvæðin hafa komið Einari Ágústssyni i fyrsta sætið. Flokksvélin góða er aftur á móti ekki nægilega kraft- mikil lengur til þess að skila þeim árangri, sem til er ætl- ast af henni, enda orðin gangstirð, slitin og erfið í rekstri. EININGARKERFI í GRUNNSKÓLANN? r Bessí Jóhannsdóttir, kennari, varpar í þess- ari grein fram þeirri hugmynd, hvort ekki væri rétt að taka upp einingakerfi í grunn- skólanum, hætta aldursskiptingu og láta þroska nemenda ráða ferðinni hjá þeim. S______________________4 A undan förnum árum hefur islenzkt skólakerfi tekiö miklum breytingum. Grunnskólalögin frá 1973 eru nú tekin aö hafa áhrif i vaxandi mæli. Eölilegt er, að breytingarnar, gildi þeirra og gallar séu mjög til umræðu. Sú stefna hefur verið tekin upp i grunnskólum landsins að blanda i bekki nemendum með mjög mismunandi námsgetu, og finnst mörgum þetta rétt stefna, og þannig komið i veg fyrir að nemendur séu dregnir i dilka s.s. tossa og séni. Þetta hefur valdið erfiðleikum i fram- kvæmd. Kennarar eru oft ekki nægjanlega undirbúnir til að mæta þeim nýju vandamálum er skjóta upp kollinum. Má nefna sem dæmi, að i staö þess að nemendur séu dregnir i dilka eftir bekkjum, t.d. A bekk , D bekk, þá flyzt þetta inn i bekk- inn. Nemendur eru gjarnan miskunnarlausir hver viö ann- an Þeir láta óspart i sér heyra, hvaö þeim lfkar vel og hvað miður. Duglega nemendur skortir oft umburöarlyndi gagn- vart þeim, sem lakari eru. Kennarinn þarf að mæta þess- um vanda. Þá skapast sú hætta, að athygli hans beinist um of að þeim lakari. Þau duglegu „spjara sig” segja menn gjarn- an, en þau lakari dragast aftur úr vegna sífelldrar áminningar um vangetu þeirra. Breytinga er þörf á skólastarfinu. I skólum landsins er mjög mismunandi aðstaða til sjálf- stæðrar vinnu nemenda. Sam- felldur skóladagur er enn á óskalistanum. Krafan um að þannig sé búið að skólanum, að hægt sé að stunda þar vinnu all- an daginn verður æ háværari. Nemandi og kennari eiga að geta komið til starfa að morgni og unnið eðlilegan vinnutima. Þetta er i raun jafnréttiskrafa, þar sem við vitum að nemendur standa mjög misjafnlega að vigi gagnvart heimanámi. Sumir fá aðstoð við nám sitt, en þeir eru þó án efa i meirihluta sem hafa engan til að liðsinna sér. For- eldrar lærðu i flestum tilvikum annaö en börn þeirra, og skilja ekki það, sem þau eru aö fást við. Myndast þvi oft neikvæð af- staða þeirra til skólans eins og hann er i dag. Margir foreldrar vildu gjarnan hjálpa börnum sinum við heimanámiö, en geta það ekki vegna timaskorts; má þar nefna einstæða foreldra, sem eiga fullt i fangi meö að afla viðurværis. Þarna væri og komið til móts viö heimilin, þar sem sifellt áhyggjuefni er hjá utivinnandi foreldrum, hvað börnin séu að gera oft ein heima, i reiöuleysi. Samfelldur skóladagur yrði þvi jafnt styrk- ur fyrir heimilin og skólana. Margir telja, aö um of hafi verið dregið úr námskröfum i grunn- skólanum. An efa á sú stefna að blanda i bekki er hér hefur rikt, talsverða sök á þessu. Námskröfurnar og ein- ingakerfi Það vita allir, sem við kennslu hafa fengizt, að ef miða á náms- kröfur við árgang i heild hlýtur aö draga úr þeim. Tökum dæmi: I 9. bekk grunnskólans eru nú námskröfur i sögu ekki nema u.þ.b. 1/3 af þvi, sem áður gerðist á landsprófi. í raun- greinum virðast námskröfur vera allt að þvi misseri minni. Þetta hefur verið gert á sama tima og ekki hefur verið dregið úr kröfum i sama námsefni i menntaskólunum. Skal þvi eng- an undra hve há fallprósenta er á fyrsta ári i þeim. Er þetta rétt stefna? E.t.v. má segja, að fyrir stóran hluta nemenda séu þetta nægar kröfur. En hvað þá með þau dugmestu? Er það sann- gjarnt gagnvart þeim, að ekki skuli vera boðið upp á meira námsefni? Margir kennarar hafa án efa farið þá leið að fara út fyrir námsefnið i ríkum mæli, láta nemendur vinna ritgerðir eða önnur aukaverkefni. Nem- endur geta ekki sætt sig við, að það sé jafnrétti i námi, að allir séu dregnir niður á bás meðal- mennskunnar. Þjóðfélagið hef- ur i raun ekki leyfi til aö kæfa hæfileikarika nemendur, skapa hjá þeim námsleiða. E.t.v. er ein leið að opna skólana og koma á einingakerfi. Þar með væri úr sögunni sú skipting,er nú á sér stað, i bekkjardeildir eftir aldri. Þroski nemenda til að fást við verkefni yrði þá und- irstaðan. Hægt væri að auka hjálparkennslu og siðast enekki sizt getulitlir nemendur væru ekki daglega minntir á „heimsku sina”. Iðnaðardeild Sambandsins: Áhersla lögð á full- unnin mokkalambskinn Skipulagsbreytingar hafa orðið hjá iðnaðar- deild Sambandsins á Akureyri. Bergþór Konráðsson, aðstoðar- framkvæmdarstjóri, mun framvegis hafa með höndum yfirum- sjón sölumála á vegum verksmiðja iðnaðar- deildar. Frá og með áramótum mun Jón Arnþórsson sem verið hefur sölustjóri útflutnings, taka við nýju starfi hjá deildinni. Iðnaðardeiídin vill leggja sér- staka áherslu á mikilvægi þess að nýta sem hægt er fullsútuö mokka-lambsskinn frá skinna- verksmiðjunni Iðunni til fata- gerðar fyrir innanlandsmarkað og útflutning. Af því tilefni hefur verið ákveðið að stofna sjálf- stæða verksmiðju, sem I byrjun verður að uppistööu til fyrri skinnadeild Heklu. Verksmiðjustjóri verður Jón Arnþórsson og mun hann s já um daglega framkvæmdast jórn hins nýja fyrirtækis. —KP.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.