Vísir - 10.02.1978, Síða 4
4
Auglýsing um
aðolskoðun bifreiða
í lögsagnarumdœmi
Reykjavíkur í
febrúarmónuði
Mánudagur 20. febrúar R-1 til R-400
Þriðjudagur 21. febrúar R-401 til R-800
Miðvikudagur 22. febrúar R-801 til R-1200
Fimmtudagur 23. febrúar R-1201 til R-1600
Föstudagur 24. febrúar R-1601 til R-2000
Mánudagur 27. febrúar R-2001 tii R-2400
Þriðjudagur 28. febrúar R-2401 til R-2800
Skoðað verður að Bildshöfða 8, alla virka
daga nema laugardaga frá kl. 8.00 til
16.00.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðar sinar til bifreiðaeftirlitsins, Bilds-
höfða 8, og verður skoðun framkvæmd þar
alla virka daga kl. 08:00-16.00
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
Festivagnar, tengivagnar og farþega-
byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvi, að bifreiðaskattur og vá-
trygging fyrir hverja bifreið sé i gildi.
Athygli skal vakin á þvi, að skráningar-
númer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tima verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að
máli.
Lögreglustiórinn i Reykiavik
7. febrúar 1978
Sigurjón Sigurðsson.
BÍLAVARAHLUTIR
Plymouth Belvedere '67
Opel Kadett '69
Taunus 17 M '67
Saab '66
BILAPARTASALAN
Hotðatuni 10, simi 1 1397.
Opið fra kl, 9 6.30, lauqardaga
kl. 9 3 oy sunnudaqa k I ) 3
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 16., 18. og 20. tbl. Lögbirtingablaðs 1977 á
hluta i Fellsmúla 13, þingl. eign Ingibjargar Leifsdóttur
fer fram eftir kröfu Gjaidheimtunnar I Reykjavlk og
Baldvins Jónssonar hrl. á eigninni sjálfri mánudag 13.
febrúar 1978 kl. 13.30.
Borgarafógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta i Faxaskjóli 24, þingl. eign Þór-
halls Sigurðssonar o.fl. fer fram á eigninni sjálfri mánu-
dag 13. fehrúar 1978 kl. 14.00.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Föstudagur 10. febrúar 1978 vism
Eþíópíuher stefnir
að Adenflóa með
aðstoð fró Kúbu
og Sovétríkjunum
— segja talsmenn Sómalíu
Eþiópiustjórn hefur gefið út
þá yfirlýsingu að það sé eins
gott fyrir Sómaliu að gefast upp
strax eða biða afhroð i styrjöld-
inni. Stjórnvöld eru sannfærð
um að með þeirri aðstoð fí5
Sovétrikjunum og Kúbu sem
hún hefur fengið, sé vonlaust
fyrir Sómali að berjast áfram
uin yfirráðin yfir Ogaden eyði-
mörkinni.
í yfirlýsingunni segja stjórn-
völd i Addis Ababa að Sómalir
ættu frekar að hugsa um fjöl-
skyldur sinar sem væru svelt-
andi heima fyrir. Það eina sem
þeir gætu gert væri að gefast
upp án skilyrða.
Rétt eftir að yfirlýsingin var
gefin út, var gerð inikil árás á
tvö þorp i Sómaliu. Barist var i
návigi, og einnig voru gerðar
loftárásir á þorpin.
Fregnir frá Sómaliu herma að
það séu kúbanskir og sovéskir
hermenn sem stjórni bardög-
um. Þá segir einnig að mjög
harðir bardagar séu við borgina
I)ire Dawa og þar segjast Sóm-
alir hafa eyðilagt 43 sovéska
skriðdreka.
í Reutersfréttum segir að tið-
ar árásir séu gerðar á borgina
Hargeisa i Sóinaliu en þar búa
um sjötíu þúsund manns. Það er
enginn umferð farþegavéla um
flugvöllinn, en herþotur fara
þar um reglulega.
Hargeisa er um sjötiu þúsund
manná borg i Sómaliu, eins og
áður segir. Þar eru strætin
þröng og rykug. Þau hlykkjast
milli litilla hvitkalkaðra kum-
balda. Menn safnast saman á
litlum kafffihúsum og ræða
málin. Þar sitja þeir i skugga
trjánna og ræða ástandið i land-
inu og þamba heil ósköp af tei.-
Konurnar halda sig i litlum hóp-
um, en eru ekki þátttakendur i
umræðum karlmannanna. Lifið
gengur sinn vanagang, þrátt
fyrir siendurteknar árásir Eþió-
piu. Borgin er um það bil áttatíu
kilómetra frá landamærum
Eþiópiu. Hún er aðal skotmark
þeirra til að fá Sómali til að gef-
ast upp i striðinu um Ogaden.
Hargeisa er gömul höfuðborg
breska Sómalilands. Hún er
þægilegt skotmark fyrir Eþió-
piu og þotur hafa gert sex árásir
frá þvi hinn 7. febrúar.
Fórnarlömb árásanna
Margir óbreyttir borgarar
hafa orðið fórnarlömb árás-
anna. i 'ni af árásunum sem
gerðar voiU nýlega á Hargeisa
lentu sprengjubrot i barnaskóla.
Eiginkona kennara i skólanum
sat á skólatröppunum ásamt
dóttur sinni og beið eftir manni
sinum. Dóttir þeirra varð fyrir
sprengjubroti og beið bana, en
konan særðist illa. Tveir kenn-
arar i skólanum biðu bana og
fjögur börn. Þoturnar sem
gerðu árásina flugu svo lágt að
ein þeirra rakst i skilti á Orien-
tal hótelinu, svo það sópaðist
burtu.
Þrátt fyrir mikla eyðilegg-
ingu I borginni Hargeisa, þá
hefur hún ekki orðið eins fyrir
barðinu á styrjöldinni, eins og
þorpin Harar og Jijiga. Tiðar á-
rásir á Hargeisa að undanförnu
gætu verið merki um það að
Eþiópia ætli að þjarma að Sóm-
ölum með þvi að gera borgina
að skotmarki sinu.
Sómaliustjórn hefur látið frá
sér fara að liklegt sé að Eþiópiu
her stöðvi ekki árásir sinar við
landamæri landanna. Talið er
mögulegt að þeir stefni að þvi að
komast að Adenflóanum með
hjálp kúbanskra hermanna og
stuðningi frá Sovétrikjunum. Ef
svo færi, þá myndu hermenn
Eþiópiu taka Hargeisa. Fregnir
frá borginni benda til þess að
þar sé undirbúningur ekki hafin
fyrir mögulega töku borgarinn-
ar. Vestrænir fréttamenn þar,
hafa sent frá sér fréttir þess
efnis, að hermenn séu sjaldséðir
á götum borgarinnar og svo
virðist sem átaka sé ekki að
vænta i bráð. Myrkvun hefur
ekki verið fyrirskipuð i borg-
inni, þrátt fyrir að þotur Eþió-
piu fljúgi næturflug yfir borgina
og inn yfir Ogaden eyðimörkina.
Farþegaflug hefur að visu verið
stöðvað um flugvöllinn, en her-
þotur fara um völlin.
Vegna þeirra átaka sem eiga
sérstað milli landanna, þá hafa
allir útlendingar flust brott.
Talið er að aðeins Englendingur
og þrir Þjóðverjar búi ennþá i
borginni. Um 1960 voru um tvö
hundruð Bretar búsettir i Har-
geisa, en þeir stunduðu aðallega
viðskipti og stjórnunarstörf.
—KP.