Vísir - 10.02.1978, Page 7

Vísir - 10.02.1978, Page 7
yisiR Föstudagur 10. febrúar 1978 Vinnuveitendasamband íslands um tillögu ASÍ: Hefur í för með sér stórauknar álögur á atvinnureksturinn Tillögur fulltrúa Alþýðusam- bands tslands að skammtlma- lausn I efnahagsmálum hafa I för með sérstörauknar álögur á atvinnureksturinn segir i álykt- un frá Vinnuveitendasambandi tslands. Vinnuveitendur telja að sam- þykkt þeirra tíllagna myndi stórlega auka þann vanda sem þeim væri ætlað að leysa. Of langt bil væri milli hugmynda aðila vinnumarkaðarins til þess að þeim einum sé fært að gera tillögur með skjótum hætti um lausn hins bráða vanda. t áiyktuninni segir að Vinnu- veitendasambandið sé í grund- vallaratriðum andvigt þvi að rikisvaldið hafi úrslitaáhrif á kaup- og kjarasamninga þótt oft hafi til þess komið. liikis valdinu sé þó ávallt rétt og skylt aðhafa forystu um að reyna að finna leiðir til að forðast efnahags- öngþveiti. Slikar aðgerðir hafi á undanförnum áratugum verið framkvæmdar undir svipuðum kringumstæðum og nú eru i efnahagsmálum. —KS 1J g , 1 t Keflavík hefur verið opnuð ný og glæsileghúsgagnaverslun sem ber nafnið Hlynur. Er hún til húsa að Hafnargötu 32 og þar upp á annari hæð. Þetta er sérverslun með eldhúsinnréttingar og Is- lenskhúsgögn og er ýmsar góðar vörur að finna í þessari nýju verslun. Eigendur hennar eru hér á þessari mynd sem tekin var er búðin var opnuð i vikunni. Þau eru talið frá vinstri: Anton Hjör- leifsson, Kolbrún Guðmundsdótt- ir, Anna Skaftadóttir og Vil- mundur Árnason. — klp/Ljós- mynd HB Keflavik. BANDARÍSKIR JAZZ- LEIKARAR HINGAD Þrír bandariskir jazzleikarar koma til landsins á morgun, laugardag og leika þeir fyrir is- lenska jazzunnendur á þremur tónleikum. Laugardaginn 11. febrúar i Menntaskólanum við Hamrahlið. Sunnudaginn 12. febrúar á Hótet Esju og mánu- dag 13. febrúar á Hótel Loft- leiðum. Meðlimir triósins eru þrir, Horace Parlan pianó, Doug Raney gitar og Wilbur Little bassi. Horace Parlan hóf pianónám 7 ára að aldri að ráði lækna, til að vinna upp lömun á hægri hluta likamans, sem hann varð fyrir 5 ára gamall. Aö áeggjan kennara sinna, þróaði hann yfirburða vinstri handar stil sinn. Hann hefur leikið inn á margar plötur með hljómsveit- um sem hann hefur verið meö- limur i, svo sem Charles Mingus Jazz Workshop, Lou Donaldsen Quartet og öðrum listamönnum svo sem Dexter Gordon, Stanley Turrentine, Slide Hampton og fl. Wilbur Little (bassi) hóf að leika á pianó og sneri sér slðan að bassanum. Snemma á 6. ára- tugnum lék hann með Miles Davis, Sonny Stitt, Lester Young, John Coltrane og fór I J.J. Jonson Quintet árið 1956 og á hljómleikaferð um Evrópu með þessari hljómsveit árið 1957 tók hann þátt I hinum frægu trió upptökum undir leiðstögn Tommy F'lanagen i Sviþjóö. Doug Raney (gitar) valdi git- arinn sem sitt hljóðfæri 13 ára Horace Parlan að aldri. Gitarleikarinn Barry Galbraith var einkakennarinn hans, meðan hann lærði einnig mikið af hljóðfæraleikurum eins og Charlie Parker, Bud Powell, Sonny Stitt svo að einhverjir séu nefndir. —EA NÓÍHJITA PVRIR ÖUU DIIR5AIR BÍIA5KIPTI HR8486 Opiö: mánud.-föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 10-16. 600 fm. bjartur og upphitaður, mjög skemmtilegur sýningarsalur ALLTAF PLÁSS FYRIR BÍLINN ÞINN. ÞAÐ FARA ALLIR ÁNÆGÐIR FRÁ OKKUR ORÐSENDING TIL VIÐSKIPTAVINA Vegna flutninga á fyrirtœki voru í nýtt húsnœði að BÍLDSHÖFÐA 16 verða varahlutaverslun, bílasala og skrifstofur vorar lokaðar dagana 13—16. febrúar. Opnum aftur 17. febrúar að BÍLDSHÖFÐA 16 ^Suei BJÖRNSSONAca SAAB—UMBOÐIÐ

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.