Vísir - 10.02.1978, Qupperneq 11
VISIR Föstudagur 10. febrúar 1978
11
Tveir aðrir í 2. sætið
Tveir aðrir gefa kost á sér i
annað sæti listans.
Þorvaldur Jónsson fulltrúi,
gefur einungis kost á sér i annað
sæti. Hann er 51 árs og sat i
bæjarstjórn fyrir Alþýðuflokkinn
frá 1966 til 1974, en við kosning-
arnar þá vék hann fyrir Frey.
Hann hefur þvi verið varamaöur i
bæjarstjórn yfirstandandi kjör-
timabil.
Þriðja sætið
Auk Magnúsar gefur Sævar
Frlmannssonstarfsmaður verka-
lýðsfélaganna á Akureyri kost á
Tveir um fjórða sætið
Tveir bjóða sig fram i fjórða
sætið á væntanlegum framboðs-
lista. Ingvar G. Ingvarsson
verslunarmaður sem er 29 ára að
aldri og Pétur Torfason verk-
fræðingur, en hann er 31 árs.
Freyr Ófeigsson
Pétur Torfason,
Sævar Frimannsson
Magnús Aðalbjörnsson kenn-
ari, gefur kost á sér i annað og
þriðja sætið. Hann er 36 árá og
hefur starfað mikið aö félagsmál-
um.
Magnús Aðalbjörnsson
Þorvaldur Jónsson
sér i þriðja sætið. Hann er 36 ára
og hefur starfað mikið að iþrótta-
málum á Akureyri.
Ingvar G. Ingvarsson
Geir Hallgrímsson forsœtisráðherra:
Hagrannsóknarstjóri
starfar í umboð
ríkisstjórnarinnar
Reykjavík 9. febrúar
1978.
Hr. ritstjóri
Þorsteinn Pálsson,
Dagblaðinu Vísi
I forystugrein í blaði
yðar dags. 8 febrúar 1978
er vikið að störfum Jóns
Sigurðssonar hagrann-
sóknastjóra á þann veg að
ég tel nauðsynlegt að
andmæla því.
Hagrannsóknastjóri
starfar i umboði rikis-
stjórnarinnar en
Þjóðhagsstofnun heyrir
Jón Sigurðsson
Geir Hallgrimsson
sérstaklega undir for-
sætisráðherra. Hafi
menn athugasemdir
fram að færa um efna-
hagsaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar er ódrengi-
legt að gera það með
ávirðingum í garð þessa
embættismanns sem í
hvívetna vinnur störf sín
af kostgæfni og nýtur
trausts þeirra fjölmörgu
sem við hann skipta og
byggja á upplýsingum
frá Þjóðhagsstofnun.
Geir Hallgrimsson
KÖSS SUNGU VÖGGUVISUR
Arna Magnússonar og mun hafa
farið létt með rakningu ættarinn-
ar allt til Adams. Onnur athuga-
semd Jóns á spássiur þessara
handrita er: Eigi er vert að skrifa
smámenna eður kvikindaættir,
nema af þeim lifni merkismenn.
Það sem lifir þó eflaust einna
lengst af kátlegum setningum
höfðum eftir Jóni Grunnvikingi er
úttekt hans á Islendingasögum:
Bændur flugust á.
Einni stjórnmáiablekking-
unni færra i bili
Setningar á borð við þetta rifj-
uðust upp snögglega við lestur
þýddrar greinar úr sænsku i sið-
ustu Lesbók Morgunblaðsins,
sem samin er af dr. Ake Thul-
strup, og birt er i þýðingu Sveins
Ásgeirssonar. Greinin er skil-
merkileg lýsing á fyrirbæri sem
höfundur kallar „Vietnám
truflunina i Sviþjóð”. Bendir
höfundur á að Sviar eigi vanda
fyrir slikum truflunum og nefnir
fjögur ártöl i þvi sambandi fyrir
utan Vietnam truflunina sem
hófst árið 1965 og lauk niu árum
siðar.
Greinin er skrifuð i tilefni af þvi
að nýlega var þjóðfrelsishreyf-
ingin i Suður-Vietnam leyst upp
en meðlimir hennar teknir I heilu
lagi i kommúnistaflokk landsins.
Mun þá endanlega lokið tilraun-
um til aö hafa uppi þann áróður
að þjóðfrelsishreyfingin I Suöur-
Vietnam hafi verið sjálfstætt afl,
og einni stjórnmálablekkingunni
færra i heiminum I bili.
Svíar voru kaffærðir
róðri og hatri
á-
Alveg sérstaklega er forvitni-
legt að lesa lýsingar á þvi hvernig
Sviar voru af undirróðursmönn-
um, launuðum af helztu forustu-
rikjum kommúnista kaffærðir i á-
róðri og hatri á Bandaríkjamönn-
um, er illu heilli höfðu blandaö
sér i borgarastyrjöld á sömu for-
sendum og í Kóreu á sinum tima.
En það var einmitt skömmu eftir
Kóreustriðið, sem þáverandi
Bandarikjaforseti, Dwight D.
Eisenhower, móðgaði þá svo
herfilega að Sviar voru kannski
tilbúnari i múgæsingar gegn
Bandarikjunum þegar Vietnam-
striðið hófst en ella hefði verið.
Eisenhower hélt þvi nefnilega
fram i ræðu, að ekki væri nú allt
sem skyldi i sósiölskum vel-
ferðarrikjum og ekki vissi hann
betur en skýrslur sýndu að Sviar
væru orðnir óhugnanlega háir
hvaö tölu sjálfsmorða snerti.
Þessu var auðvitað mótmælt
hastarlega af Svium, en töluö orð
voru ekki aftur tekin jafnvel þótt
forsetinn væri eitthvað að reyna
að berja i brestina. Hann var auk
þess þekktur fyrir mismæli sin.
Seinna slitu löndin stjórnmála-
sambandi út af Vietnam og ann-
arri misklið.
Kvensköss sungu vöggu-
vísur
Neðanmóls
Þeim sem fylgzt hafa eitthvað
með vinnuaðferöum kommún-
ista, kemur að visu fátt eitt á ó-
vart I Lesbókargreininni. Þó skal
vitnað til einnar málsgreinar: ,,A
hinu nýja Sergelstorgi I Stokk-
hólmi voru á árum Vietnam
striösins nær daglega haldnir ein-
hvers konar útifundir til að láta i
ljós reiði og hatur I garö Banda-
rikjanna. Kvensköss sungu
vögguvisur, sem sagt var aö
mæðurnar i Vietnam rauluðu til
að bægja burtu þeim ógnum sem
stöfuðu af bandariskum flug-
mönnum.”
Indriði G. Þorsteinsson
segir að þótt enn sé
haldið áfram að drepa
fólk á sléttum Mekong-
fljóts og enginn geti um
frjálst höfuð strokið i
Kambodiu, komi það
mál ekki við Vietnam
nefndir á Vesturlönd-
um.
Hér starfaði Vietnam-
nefnd
Það var og: Kvensköss sungu
vögguvisur. Liklegast er þetta sú
setning úr samtimanum sem á
eftir aö veröa eitt af auðkennum
þess hálaunaða og velskipulagða
áróöurs á Vesturlöndum sem
tengdur var borgarastyrjöld i
fjarlægu landi, einnig hér á ls-
landi, þvi hér starfaði Vietnam-
nefnd sællar minningar og hefur
ekki verið lögö niður enn svo vit-
að sé. Er forvitnilegt að sjá staö-
hæfingar dr. Ake Thulstrup um
gegndarlausan fjáraustur bæöi
Sovétríkjanna og Kina til Viet-
nam starfshópanna i Svlþjóð og
mætti ætla að lfkt hafi þessu ver-
ið farið annars staðar.
En kvensköss syngja engar
vögguvisur sem stendur, enda er
borgarastyrjöldinni i Vletnam
lokið góðu heilli. Fjárveitingar
virðast ekki stórvægilegar til á-
róðursstarfsemi út af atburðum
annars staöar, og vel aö merkja
hafa engin stórvægileg eða kostn-
aðarsöm upphlaup oröið út af á-
standinu i Chile, sem er þó full-
komlega athugunarvert, eins og
það ástand hvarvetna I heimin-
um, þar sem verið er að fangelsa
fólk og drepa það.
Þjóðfrelsisfylkingin I Vietnam
er öll gengin i kommúnistaflokk-
inn. En lengi var til hennar vitnað
sem samtaka, sem áttu ekki ann-
að erindi út I baráttuna en vilja
land sitt frjálst af „innlendri”
leppstjórn. Yfirlýsingar um sam-
stöðu með þjóðfrelsishreyfing-
unni bárust hvaðanæfa að héðan
af Vesturlöndum og ekki sizt frá
Sviþjóö, sem varö einskonar friö-
arstóll bandariskra liðhlaupa, á-
róöursmanna þjóöfrelsishreyf-
ingarinnar og sendimanna Norð-
ur-Vietnama. Þjóö sem léöi naz-
istum járnbrautir á striðsárunum
hafði svo sem efni á þesskonar
siðgæðisvörzlu.
Kæmi hins vegar einn vesæll
Suður-Vietnami til að skýra það '
fyrir mönnum, að mikill fjöldi
landa hans vildi fá að lifa i friði
fyrir ásælni kommúnista og
borgarastyrjöldum, var ekki á
hann hlustað. Kvensköss sungu
engar vögguvisur honum til dýrö-
ar. Sænska sjónvarpið eöa út-
varpið lét sem slikur maður væri
ekki til og blöð eins og Dagens
Nyheter höföu ekkert viö hann aö
tala. Aftur á móti gengu sendi-
menn baráttuliösins að norðan
um þessar stofnanir eins og
heima hjá sér.
Enginn þarf að syngja
vögguvísur vegna þjóðar-
morðs í Kambódíu
Þjóð sem léði nasistum
járnbrautir
Nú er Vietnam sameinað i eitt
riki og hefur þegar hafið væring-
ar við grannþjóð. Sviar virðast
vera haldnir nokkrum timbur-
mönnum eftir fimmta æðiö á
þessari öld, og er grein dr. Ake
Thulstrup nokkurt vitni um það.
Enginn þarf að syngja vögguvis-
ur vegna þjóðarmorös I Kambód-
Iu, af þvi það er hið rétta þjóöar-
morö. Kassinn er kannski lika
tómur um þessar mundir.
íslenzka Vietnam nefndin er
lögzt á lárviðarlaufin og hreyfir
sig ekki fyrr en tilefni gefst. Þótt
enn sé haldið áfram aö drepa fólk
á sléttum Mekongfljótsins, og
enginn geti lengur um frjálst höf-
uö strokiö i Kambódiu kemur þaö
ekki mál við Vietnam nefndir á
Vesturlöndum. Hin illu og niður-
lægjandi afskipti Bandarikjanna
af þessum þjóðum voru kærkomið
tækifæri helztu andstæðinga
þeirra um heimsáhrif til aö
skipuleggja hina viljugu á Vest-
urlöndum til andmæla.
Þegar Bandarikjamenn voru
sloppnir frá sinum mistökum
mátti hver drepa eins og hann
vildi þarausturfrá. Eftir stendur
vitnisburður um truflun sænsku
þjóðarinnar og um átök og oröa-
glamur þeirra, sem létu blekkjast
' ótal Vietnam nefndum um alla
Vestur-Evrópu, eins og hann
stendur okkur ljósastur fyrir
sjónum i oröunum: Kvensköss
sungu vögguvisur.
IÞG