Vísir - 10.02.1978, Síða 24
VlSIR
'ffftrgHómn
w m >
Smáauglýsing í Vísi er enginQÍ««4óauglýsing s™'
Opiö virka daga til kl. 22.00 '^^PH I H OVvll
Æk
Laugardaga kl. 10-12
Sunnudaga kl. 18-22
í helgarblaði Vísis
á morgun:
Um 450
fóstureyðing-
ar hérlendis á
síðasta ári
Fóstureyftingum hefur
fjöigað mikið hér á landi á
siöustu árum. 1973 voru þann-
ig framkvæmdar 194 fóstur-
eyðingar en 1976 uröu þser
samtals 357 og á síðasta ári er
áætlaö að þeim hafi fjölgað
um hundrað og voru þær þá
orönar um 450 talsins.
Ófrjósemisaðgerðum hefur
einnig f jölgað mjög mikið þvi
að áárinu 1975 voru þær 192 en
á næsta ári, 1976, voru þær
orðnar 416 talsins.
A sama tima og ófrjósemis-
aögerðum og fóstureyðingum
fjölgar, fækkar barnsfæðing-
um allmikið.
Þetta og margt f leira kemur
fram i grein Sigurveigar Jóns-
dóttur, blaðamanns,i helgar-
blaðinu á morgun. Þar eru
einnig viötöl við lækna,og kon-
ur sem farið hafa 1 fóstureyð-
ingaraðgerð. —GA
Hörkuárekstur
og ekið á
gangandi
vegfaranda
Haröur árekstur varð á mót-
um Reykjavikurvegar og
Hjallabrautar 1 gærkvöldi á
áttunda timanum.Tveir fólks-
bilar lentu þar saman. Annar
kom eftir Reykjavikurvegin-
um þegar hinum var ekiö af
Hjallabraut inn á Reykjavik-
urveg i veg fyrir hann. Við það
kastaöist sá um fjóra metra.
Bilarnirskemmdust mikið, en
ekki munu hafa orðið alvarleg
slys á fólki.
Rétt fyrir miönætti i nótt var
svo ekið á gangandi stúlku á
Hafnarfjarðarvegi. Stúlkan
var flutt á slysadeild.
— EA
Um þriðjungi byggingarframkvœmda á Grundartanga lokið:
Verksmiðjan kostar jafnt og
10-12 stórar loðnubrœðslur
,,Þaö er sennilega lokið
um þriðjungi verksins hér
á Grundartanga", sagði
Guðlaugur Hjörleifsson,
staðarverkfræðingur við
byggingu kísiljárnverk-
smiðjunnar, við Vísi í gær
þegar blaðamenn kynntu
sér starfsemina. Fyrri
áfangi verksmiðjunnar
verður tekinn i notkun
fyrir 1. apríl á næsta ári.
Stofnkostnaður verksmiðj-
unnar er áætlaöur um 500 millj-
ónir norskra króna, sem er laus-
lega reiknað um 25 milljaröar
islenskra króna á núverandi
gengi, og sagöi Jón Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Islenska
járnblendifélagsins,að það sam-
svaraði stofnkostnaöi viö 10-12
stórar loðnubræðslur.
Hann sagði að þótt sú áætlun
gæti raskast vegna verðþróun-
ar, væru engin merki um slikt
enn sem komið væri.
Um þessar mundir starfa um
140 manns viö byggingu verk-
smiöjunnar. Auk þess starfa um
26 manns við smiði Grundar-
tangahafnar, en þaö verk er al-
gjörlega á vegum Hafnarmála-
skrifstofunnar. Aætlaöur kostn-
aöur við höfnina var i janúar
siðast liönum um 700 milljónir.
Fjölmennasti hópurinn er á
vegum Istaks, sem annast alla
jarðvinnu og steypufram-
kvæmdir á vinnustaðnum, og
mun núverandi framkvæmdum
þeirra þar ljúka að mestu nú
siðsumars. Sem stendur vinna
80-90 manns á vegum Istaks á
Grundartanga. Um 20 manns
vinna hjá Miöfelli, sem annast
gerö vatnsveitu.
Unnið er einungis 48 klukku-
stundir á viku, og um helgar —
frá þvi siödegis á föstudag og
þar til á mánudagsmorgun —
dvelja starfsmennirnir við
byggingu kisiljárnverksmiðj-
unnar heima hjá sér. Aöra daga
vikunnar eru um 100 manns bú-
settir i vinnubúðum á bygging-
arsvæðinu.
1 hópi starfsmanna á svæðinu
eru 12 útlendingar, Norðmenn
og Sviar, og vinna þeir einkum
viö að reisa stálgrindahús, sem
eru keypt frá útlöndum. Sjálft
ofnhúsið á Grundartanga er
stærsta stálgrindahús á Islandi.
Grunnflötur þess er um 3.300
fermetrar, en mesta hæð rúm-
lega 45 metrar.
— ESJ.
,Hreinsunar-
menn' sigruðu
Eirikur Tómasson og aðrir
svonefndir „hreinsunar-
menn” í Framsóknarflokkn-
um i Reykjavík báru sigur úr
býtum iátökunum á aðalfundi
Félags ungra framsóknar-
manna i gærkvöldi.
Fundurinn var mun fá-
mennari en viö var búist en
hann sóttu aðeins 80-90 manns.
Björn Lindal sem borinn var
fram af Eiriki og fleirum,
hlaut 52 atkvæði i formanns-
kjörinu en mótframbjóðand-
inn, ólafur Tryggvason, 32 at-
kvæði. Eiriksmenri náðú siðan
Ölium aðalmönrium i stjórn,
Við kjor fulltrúaráðs fram-
sóknarfélaganna komu fram
tveir listar, og hlaut listi Ei-
riks .45 atkvæði en mótlistinn
ihlaut 37 atkvæði. —ESJ
Eins og eftir hondsprengju
Skemmdir þær sem oröið hafa
á túnum i Kelduhverfi eru
smám saman að koma i ljós.
Tunin á bæjunum Mörk og
Hliðargerði eru mjög illa farin
Misgengi er viöa mikið og
sprungur stórar. Einum bónd-
anum varð það að oröi, þegar
hann var búinn að athuga
sprungur og mjsgengi i túninu
sinu, að það væri eins og hand-
sprengjum hefði verið varpað
þar um allt.
Nokkur snjór er ennþá yfir,
svo að eflaust eiga meiri
skemmdir eftir aö koma i ljós.
En séð er að erfitt verður að
komast með vinnuvélar yfir
vegna þess hve miklar sprungur
eru i túnunum.
Ekki hafa fundist neinir stórir
landskjálftakippir undan farið i
Kelduhverfi.
VMJ - KP.
í helgarblaði Vísis á morgun:
„Kerfið rœktar
afbrotamenn"
RÉTTARGÆSLUMAÐUR HAUKS HEIÐARS UM
HÆSTARRÉTTARDÓMINN VARÐANDI GÆSLUVARÐHALDIÐ:
Tíminn verður að
leiða það í Ijós
hvort dómurinn verður grundvöllur faglegra umrœðna í hópi lögfrœðinga
„Ég hef aidrei látið i ljós við
fjölmiöla persónulegar skoðanir
minar á dómum hæstaréttar og
breyti ekki út af þeirri venju
nú”, sagöi Sveinn Snorrason,
hæstaréttarlögmaður og réttar-
gæslumaöur Hauks Heiðars,
fyrrum forstöðumanns á-
byrgðadeildar Landsbankans,
er Visir leitaöi álits hans á dómi
Hæstaréttar þar sem framleng-
ing gæsluvarðhaldsúrskurður
sakadóms yfir Ilauki var staö-
fest.
Fyrir hönd Hauks haföi
Sveinn Snorrason kært úrskurö-
inn til Hæstaréttar og krafðist
þess aö hann yröi úr gildi felld-
ur, auk þess sem hann krafðist
þess aö „málsmeðferð yröi
vitt”.
Sveinn Snorrason hafði þetta
um niðurstöður Hæstaréttar aö
segja: „Þessi dómur er, eins og
aðrir dómar Hæstaréttar óhjá-
kvæmilega eru og eiga að vera,
varða á vegi islenskra lögvis-
inda og réttarsögu. Hvort hann
veröur siðar að grundvelli fag-
legra umræðna i hópi lögfræð-
inga verða aðrir aö meta og
timinn aö leiða i ljós.”
Þess eru dæmi hér-
lendis að afbrotamenn
hafi fengið þrisvar
sinnum ákærufrest og
þar á eftir þrisvar skil-
orðsbundna dóma.
Þetta og margt fleira kemur
fram i könnun sem tveir guð-
fræöinemar hafa gert á trúar-
og félagslifi fanga á Islandi.
Könnunin fór fram I fangels-
um landsins með persónulegum
viðtölum. Þar kom fram að á
meðan afbrotamennirnir fá
frest og aftur frest á refsingu
sinni halda þeir að áhættan við
afbrotin sé engin.
Afbrotaferillinn er oft oröin
þrjú ár eöa lengri áður en þeir
eru settir inn. „Þarna er kerfið
beinlinis að rækta afbrota-
menn”, segja guöfræðinemarn-
ir Þórsteinn Jónsson Ragnars-
son og Valdimar Hreiðarsson I
samtali við helgarblaðið sem
kemur út á morgun.
Ákveðið í dag hvort
við bjóðum í einvígið
Lokaákvörðun um hvort gert
verður tilboö um að halda
heimsmeistaraeinvigið i skák
hérlendis veröur væntanlega
tekin í dag. Þá munu þeir aðilar
semkæmu til meö aö standa á
bak viö tilboðiö saman til fundar
og ræöa niðurstöður þeirra at-
hugana sem gerðar hafa veriö.
Tilboð I einvigishaldið verða
opnuð i aðalstöövum FIDE þann
16. febrúar eða á fimmtudag i
næstu viku og er þvi skammur
timi til stefnu. — SG