Vísir - 11.02.1978, Síða 3
3
VTSIR Laugardagur 11. febrúar 1978
inga í Hvalfirði
Hreinsiútbúnaðurinn mun ódýrari en Union Carbide óœtlaði:
KOSTAR AÐEINS UM 6%
AF STOFNKOSTNAÐINUM
Af 15.000 tonnum af ryki sleppa aðeins 150 tonn út í andrúmsioftið
„Tilkostnaður við
hreinsiútbúnaðinn á
kisiljárnverksmiðjunni
á Grundartanga verður
verulega minni en gert
var ráð fyrir þegar
Union Carbide var aðili
að íslenska járnblendi-
félaginu”, sagði Jón
Steingrimsson, verk-
fræðingur, á fundi með
blaðamönnum.
Jdnsagöi, að upphaflega hefði
verið um það rætt, að hreinsiút-
búnaðurinn kostaði um sjötta
hluta af stofnkostnaði verk-
smiðjunnar.
„Núna lætur nærri aö stofn-
kostnaður þessa útbúnaðar sé
um 6% af stofnkostnaði verk-
smiöjunnar” sagöi Jón.
Aætlað er, aö verksmiðjan
kosti um 500 milljónir norskra
króna, og er kostnaðurinn við
hreinsitaekin þvi um 30 milljónir
norskra króna, eöa um 1500
milljónir islenskra króna á nýja
genginu.
Sjötti hluti stofnkostnaðarins
er hins vegar hátt i 4.200 millj-
ónir islenskra króna.
Jón sagði, að hreinsibúnaður-
inn ætti að hindra að mestur
hluti, eða minnst 99%, ryksins,
sem myndast við kisiljárnfram-
leiðsluna, færi út i andrúmsloft-
ið.
Rykið, sem myndast, nemur
um 15 þúsund tonnum miðað við
full afköst. Samkvæmt þessu
munu rykhreinsunartækin ein-
ungis sleppa út um 150 tonnum
af ryki á ári.
Jón sagði, að ryk þetta væri
mjög fingert og mætti helst lik ja
þvi við tóbaksreyk, en menn
gætu andað þvi að sér og frá sér
eins og reyk.
Sementsverksmiðjan
mun nota rykið
Forráöamenn verksmiöjunn-
ar sögðu, að Sementsverksmiðj-
an á Akranesi myndi nota rykið,
sem veröur kögglaö með sér-
stökum hætti og siban flutt til
sementsverksmiðjunnar. Mun
þar þörf fyrir allt það magn,
Jón Steingrímsson, verkfræð
ingur, skýrir frá mengunar
vörnum verksmiðjunnar.
sem myndast viö kisiljárnfram-
leiðsluna.
Jón Steingrimsson sagði, að
ryk þetta væri skaðlaust mönn-
um, dýrum og gróðri. Mikil
áhersla væri logð á að draga
sem allra mest úr mengun bæði
innan yerksmiðjunnar og utan,
enda væru strangar kröfur um
það efni i starfsleyfi hennar.
Tii þess að draga úr rykmeng-
un innan verksmiöjunnar er
m.a. notað mjög flókið loft-
ræstingarkerfi. Einnig er lögð
áhersla á vörn gegn hljóðmeng-
un. — ESJ.
Hér að ofan sjást starfsmenn
tstaks vinna við að steypa gólfið
í hráefnisgeymsiunni, þar sem
gólfflöturinn er 3.600 fermctrar.
T.h. er Guðlaugur Hjörleifsson,
staðarverkfræðingur, að'út-
skýra byggingarframkvæind-
irnar á staðnum. T.v. eru
starfsmenn hafnarmálaslofn-
unaraðreka niður stálþil i hafn-
arbakkann, en i höfninni á
Grundartanga er lengsta stál-
þil, sem notað hefur verið i höfn
hérlcndis. i þilið fara um 1000
tonn af stáli.
TÍZKUBLAÐIÐ líf
er nær uppselt hjá útgefanda
örfó eintök eftir sem aöeins veröa send til nýrra áskrifenda.
Tízkublaöið Líf þakkar frábærar móttökur og minnirá að blaðið kemur út annan
hvern mánuð. >
Auglýsendur: Tízkublaðið Líf er m.a. vettvangur vandaðra auglýsinga sem eru
áhrifamiklar og hafa langtímagildi. Vinsnmlega staðfestið pantanir yðar sem
allra fyrst.
Til tizkublaðsins Lif Armúla 18
Óska eftir áskrift
I
| Nafn:
1 — 6 tbl. 1978 kr. 2970
2—6 tbl. 1978 kr. 2475
Heimilisfang:
simi
TIZKUBLAÐIÐ LIF
SIMI 82300