Vísir - 11.02.1978, Side 7

Vísir - 11.02.1978, Side 7
VISIR Laugardagur 11. febrúar 1978 7 „FEKK EKKI NEITUN -i EN VARÐ SAMT AÐ FARA UTAN" ,,Min reynsla af þvi að sækja um fóstureyöingu hér á landi er ekki góð, en að visu átti ég við minn vanda að striða áður en nýju lögin um fóstureyðingar tóku gildi”, sagði 35 ára gömul húsmóðir, sem Helgarblaðið ræddi við. Henni sagðist svo frá: „Fyrir f jórum árum varð ég vænfær af minu fimmta barni, þrátt fyrir að ég notaði lykkjuna. Ég var þá, eins og nú, I nægilega góðum efnum til að geta framfleytt þessum barna- hópi, en að ýmsu öðru leyti átti ég við persónulega erfiöleika að striða, sem ollu þvi, að ég treysti mér ekki til að ala barn”. „Af þessum orsökum var ég ast fyrir um það hverju þetta ákveðin i að fá fóstureyðingu og studdi fjölskylda min mig i þvi efni. Það fyrsta sem ég gerði var að ræða við sálfræðing um vandamál min og skrifaði hann fyrir mig vottorð um að ekki væri æskilegt fyrir mig að eign- ast fleiri börn, eins og á stseði. Ég fékk siðan tima hjá yfir- lækni fæðingardeildar Lands- spitalans og tók hann mér vel, enda sagði hann að málið horfði öðru visi við, þar sem ég var enn með lykkjuna á sinum stað. Hélt ég þá að allt væri klappað og klárt, en það var öðru nær. Ég beið og beið, en fékk ekki til- kynningu um að ég ætti að leggjast inn á deildina. Þá hringdi ég þangað, til að spyrj- sætti, en fékk vægast sagt ónotaleg svör og var gefið i skyn að annað væri við sjúkrarúmin að gera en að nota þau fyrir slikar aðgerðir. Þetta varð mér mikið áfall, en ég var engu siður ákveðin I þvi að fá aðgerðina. Það varð þvi úr að ég fékk upplýsingar um lækni i London, sem ég gæti leitað til. Þar sem á þessum tima var mjög orðið liðið á meðgönguna, eða komið fram i 11. viku, tók ég það ráð að fara þegar utan. Þar gekk allt eins og i sögu og mér var tekið þar með þeim skilningi, sem ég þurfti svo mjög á að halda. Ég fékk allar upplýsingar um aðgerðina og hugsanleg eftirköst hennar og var siðan lögð inn á sjúkrahús strax daginn eftir. Þrem dögum siðar gat ég far- ið heim. Tæpri viku seinna var svo hringt til min frá fæðingar- deildinni”. — Fékkstu einhver eftirköst? „Nei, en á meðan á þessu stóð, leið mér mjög illa andlega. Það leið allt of langur timi frá þvi að ég tók ákvörðunina og þar til þessu var lokið. Oft var ég að þvi komin að hætta við allt saman. — Hefurðu séð eftir þvi að hafa tekið þessa ákvörðun? „Ég held að við sömu aðstæð- ur, gerði ég það sama aftur. Hins vegar er þvi ekki að neita, að þetta er erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ævinni og hún olli mér mikilli hugarkvöl um tima. Ég vildi ekki þurfa að upplifa slikt aftur”. Bretlandsferðir voru i algleym- ingi”. „Annað sem athygli vekur i þessu sambandi er að okkur er ekki kunnugt um að nema 2-3 þessara kvenna hafi fengið synjun hér heima. Astæðan getur verið sú, að konurnar vilji ekki fá nafnið sitt á skýrslur hér heima. Ég býst við að verulegur hluti þeirra sem fóru út hafi gert það af þessari ástæðu. Þótt leynd sé höfð yfir þessu og allir bundnir trúnaðarheiti, þá eru alltaf nokkrir sem vita um það og við búum i litlu þjóðfélagi. Það er áreiðanlega til ennþá að fólk leiti út fyrir sinar heima- stöðvar, e n þó held ég a ð það séu ekki nema stök tilfelli”. Mikil ásókn — Er það rétt að vegna auk- inna fóstureyðinga og ófrjósem- isaðgerða sé hálfgerð örtröð á fæðingardeildinni? „Það verður að segjast að ásóknin er ansi mikil. Þetta er álag, sem ekki var reiknað með við útreikninga á þörf fyrir sjúkrarými. Við reynum að framkvæma fóstureyðingarnar eins fljótt og hægt er og það fer ekki hjá þvi að það hlýtur að bitna á biðlist- um að öðru leyti. En það erýmislegt annaðsem kemur til. Endurbætur á gamla húsinu hafa dregist á langinn og þvi er talsvert af húsnæði, sem ekki er hægt að nýta ennþá. Svo hefur fæðingum á deild- inni fjölgað við það að öll fæð- ingarheimili i Reykjavik og nágrenni eru horfin, nema Fæð- ingarheimili Reykjavikur. Fæð- ingardeildinni var aldrei ætlað að taka við öllum fæðingum á þessu svæði, enda er hún ekki fær um það”. — Attu von á áframhaldandi fjölgun fóstureyðinga? „Varðandi tiðni fæðinga og raunar fóstureyðinga í framtið- inni, skiptir notkun getnaðar- varna höfuðmáli. Það vill svo til að athuganir sem gerðar hafa verið benda til að notkun getn- aðarvarna sé á hærra stigi hér en með flestum öðrum þjóðum. Þær benda til að 75-80% kvenna landsins á barneignaaldri nota að staðaldri getnaðarvarnir sem gefa 96-98% öryggi. Þetta tel ég aðalástæðuna fyr- ir þvi að fóstureyðingar hafa ekki vaxið enn meir en raun ber vitni. Allir eru sammála um að æskilegra sé að koma I veg fyrir frjóvgun en eyða fóstri. Takist okkuraðná tilfleirikvenna með ráðleggingar, og raunar karl- manna lika — beir verða að eiga sinn þátt i þessu — á fóstureyð- inga vandamálið aldrei að verða mikið á Islandi”. Frjósemi ekki aftur- kölluð — Hvað viltu segja um ákvæði nýju laganna um ófrjósemisaðgerðir? ,,Við læknarnir fögnuðum mjög þeirri ráðstöfun að leyfa ófr jósemisaðgerðir eftir 25 ára aldur. Hins vegar viljum við hamla gegn þvi hjá yngri kon- um, sem okkur finnst ekki alveg dómbærar á svona óafturkall- anlega aðgerð. Þvi það er ófrjósemisaðgerð- in, þótt margir virðist haldnir þeim misskilningi að svo sé ekki. Það heyrir til undantekn- inga að takist að ná árangri, þótt reynt sé að opna eggjaleið- arannaftur. Maður þættist góð- ur ef það tækist i 1% tilfella. Það hefur orðið mikil ásókn i þessar aðgerðir og við erum hlynntir þvi. Fólk veit orðið meira um þennan möguleika og þvi má búast við að aukning verði áfram á þessum aðgerð- um ” — Það eru aðallega konur sem æskja ófrjósemisaðgerðar. Hvers vegna er það? „Ástæðurnar eru fyrst og fremstaðenn rikir sú bábiljaað karlmenn missi eitthvað við þetta. Þeir eru hræddir um að geta ekki lifað eðlilegu kynlifi eftiraðgerðina, en þaðerualger hindurvitni.. Hjá karlmönnum minni aðgerð en hjá konum. En það er þó nokkuð um þetta! spurtog þaðþyrfti að kynna það f betur og sannarlega þyrfti að [ koma þvi á. Hjá þeim nágrannaþjóðum okkar sem lengst eru komnar er jafn- algengtf hjónaböndum, að mað- urinn láti gera sig ófrjóan og konan”. — Ertu ekkert hræddur um að þessi þróun i fóstureyðingum og ófrjósemisaðgerðum hafi slæm áhrif á fólksfjölgunina i landinu? „Jú, ég játa það, að þróunin er að komast á sama stig og i nágrannalöndunum. Við erum að nálgast það að okkur fjölgi ekki meir. Á siðasta ári varð 1% fjölgun miðað við fæðingar- og dánar- tölur. Þá er ekki tekið tillit til þess að fleira fólk flytur yfirleitt burtaf landinu en til þess. A sið- asta ári varð það til þess að fólkinu i landinu fjölgaði aðeins um 1.500manns i stað 2.200, sem vera átti samkvæmt fæðingar- og dánartölum. Haldi þróunin áfram með fækkun fæðinga erum við komin á þáð hættulega stig að okkur fjölgi ekki meir. Á Norðurlönd- um, sérstaklega i Sviþjóð, hvilir nú fólksfjölgunin aðallega á að- fluttu fólki, oft frá suðlægum og austlægum löndum. Við höfum það vandamál ekki ennþá, en það er erfitt að sjá fyrir hvað slik þróun hefði I för með sér á tveim til þrem mannsöldrum”. Nauðungaruppboð sem auglýst var 145„ 46. og 48. tbl. Lögbirtingablaös 1974 á Skúlagötu 42, þingl. eign Hörpu h.f. fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjálfri miöviku- dag 15. febrúar 1978 kl. 15.00. Borgarfógetaembættiö i Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 32., 33. og 36. tbl. Lögbirtingablaös 1977 á Akraseli 2, þingl. eign Rúnars Smárasonar fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik og Guöjóns Stein- grimssonar hrl. á eigninni sjálfri þriöjudag 14. febrúar 1978 kl. 10.45. Borgarfógetaembættiö i Reykjavik. Nauðungaruppboð annaö og siðasta á Ferjubakka 12, taiin eign húsfélagsins fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 14. febrúar 1978 ki. 16.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var 122., 23. og 24. tbl. Lögbirtingablaös 1976 á Borgartúni 25-27, þingl. eign Þryms h.f. fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavik á eigninni sjálfri þriðjudag 14. febrúar 1978 kl. 16.00. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 78., 79. og 80. tbl. Lögbirtingablaðs 1977 á Akraseli 39, þingl. eign Olfars Haröarsonar fer fram eftir kröl'u Gests Jónssonar hdl. á cigninni sjálfri þriöjudag 14. febrúar 1978 kl. 11.30. Borgarfógetaembættiö i Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 68., 70. og 72. tbl. Lögbirtingablaös 1976 á hluta i Alftamýri 56, þingl. eign Turid Bernodussonar fer fram eft.r kröfu Theodórs S. Georgssonar hdl. á eigninni sjalfri þriðjudag 14. febrúar 1978 kl. 14.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavik.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.