Vísir - 11.02.1978, Blaðsíða 14

Vísir - 11.02.1978, Blaðsíða 14
14 Laugarlagur 11. febrúar 1978 VTSIR Til New Orleans á þessum siðustu og verstu tim- verður einnig til þess betra næði til að að okkar frum- , en þurfum ekki að kröftunum i það að flengjast um landið þvert og endílangt l'yrir skit og ekki neitt.” Eina fyrir alla — Hafið þið i hyggju að gera hljómplötu fyrir isl. markað á næstunni? Pétur: „Þessi hugmynd kom upp eiginlega strax eftir að hljóm- sveitin varð til, en eftir að Ge- offrey kom i spilið vildi hann ekki að við eyddum kröftum okkar og tima i að gera eina plötu fyrir is- lenskan markað og svo aftur aöra fyrir enskan markað með sömu lögunum, heldur biða átekta þangað til málin lægju skýrar fyrir. Siðan gætum við gert þá plötu sem kæmi út bæði hér heima og erlendis.” Krisján: „Lögin vilja lika missa ferskleika sinn, ef maður er sifellt að vinna þau upp aftur og aftur.” Diskótek og aftur diskótek — Hver er, að ykkar áliti, helsta orsök þess, að poppbransinn hef- ur dregist saman siðastliðin misseri? Pétur: „Það leikur enginn vafi á bvi að diskótekin eru orsök þessarar þróunar. Og hún hófst þegar hljómsveitirnar voru bannaðar i Tónabæ, en nokkru áður var búið að banna þær i gagnfræðaskólum. Afleiðingin er sú að unglingarnir i dag eru aldir upp við diskótekin og þegar þeir hafa aldur til dettur þeim ekki i hug að fara allt i einu á ball með hljómsveitum. t dag þykir gott að fá 300 manns á sveitaball þar sem ekki var óvenjulegt að kæmu 600- 700 manns fyrir tveimur árum.” Kristján: „Það gefur auga leið að við með okkar fyrirtæki getum ekki til lengdar unað viö að fá skitakaup fyrir það sem nú þykja toppdansleikir hvað aðsókn varð- ar.”y Pétur: „Það eina sem dugar er að festa sig á einhverjum ákveðnum stað okkur að kostnaðarlausu og nota kraftana til þess að komast til útlanda”. Ekki viðurkennd atvinnugrein — Nú eru þið aðilar að tón- listarklúbbnum Rock-Reykja- vik, — haldið þiðekki aö hann eigi eftir að breyta þessu til batnaðar, ef hann fær inni i skemmunni frægu? Pétur: „Það er bara spurning um hvort ekki sé orðið of seint að gera nokkuð til viðreisnar. En auðvitað vonum við að þetta eigi eftir að breytast. Kannski að Rock-Reykjavik verði til þess að skapa starfsgrundvöll fyrir ný andlit i bransanum. Við eigum núna t.d. tvær alveg stórefnilegar hljómsveitir.Tivoli og Octopus, en þær hafa ekki verðskulduð tæki- færi til að blómstra. Þvi miður.” Kristján: „Það eru fyrst og siðast hugsjónir sem halda þessum hljómsveitum gangandi. En at- vinnuhljómsveitgetur ekki lifað á hugsjónum einum saman. Og svo nær það ekki nokkurri átt, að þessi spilamennska okkar skuli ekki vera viðurkennd atvinnu- grein. Samt sem áður sköpum við rikinu heilmiklar tekjur. Við gerðum það okkur til gamans aö reikna út hvað við höfðum greitt til rikisins i beinhörðum pening- um undanfarna mánuði. Það-var átta-stafa-tala.” Pétur: „Ef við höldum dansleik úti á landi fær rikið tæplega 50% af brúttóverði miðans. Siðan þurfum við að greiða húsinu leigu, borga auglýsingar, ferða- kostnað, aðstoðarmönnum og endum uppi með 10-15% af upp- haflegu miðaverði til skiptanna og þurfum að nota þá peninga til daglegs reksturs, til að fram- fleyta fjölskyldum okkar og sið- ast en ekki sist til þess að kaupa hljóðfæri, en þau kosta smn sKua- ing. Við erum með tæki uppá hátt i sjöttu milljón, þannig að það þarf ekki mjög skarpan mann til að sjá að við erum engir milljónerar.” og semja við óþekkta listamenn. Nú, siðan erum við búnir að biða eftir svari, en ekkert virðist hafa komið út úr þessari Midem- ráöstefnu. En Geoffrey er ekki sáttur við þessi málalok og er hann þessa dagana að bæta blásturshljóðfærum inn á upp- tökurnar og ætlar sér að koma þessu sjálfur á framfæri. Þessi neikvæða útkoma i Frakklandi átti lika sinn þátt i þvi að biðlund þeirra Sigga og Pálma brast.” — Eitthvað hef ég heyrt talað um það, að þið hafið fengið tilboð frá Bandarikjunum. Er eitthvað til i þvi? Kristján: „Jú, mikil ósköp. Góð- •vinur Björgvins Gislasonar frá U.S.A. sem kom hingað til lands siðastliðið sumar, er i sambandi við stóra lögfræðiskrifstofu þar úti. Skrifstofan hefur mann á snærum sinum, sem er gamall umboðsmaður, — hafði m.a. með Hollies og James Gang að gera. Hann sendi okkur samning og getum við farið i hljómleikaferð til New Orleans núna i vor.” Pétur: „Við vildum hinsvegar biða og sjá hvað kæmi út úr Midem-ráðstefnunni og sam- ræma þetta þannig, að það kæmi út plata með okkur um leið og við héldum af stað i hljómleikaferð- ina. En við höfum stólpatrú á Ge- offrey og þvi sem hann er að gera, þannig að það er ekki óliklegt að þetta smelli allt saman að lokum. Þó svo að hann bregðist förum við alveg örugglega til Bandarikj- anna. Það má gjarnan koma fram, að við höfum ekki viljað segja frá þessum ráðagerðum i blöðunum hingaðtil, vegna þess að við vilj- um ekki láta blása þetta upp eins- og gert var með Pelikan og Change á sinum tima. Við ætlum bara að reyna að komast inn á er- lendan markað og timinn mun leiða i ljós, hvort okkur tekst það.” Á fast í Klúbbnum — Hvað er svo næst á döfinni hjá ykkur hér á landi? Kristján: „Næsta skrefið er að ráða tvo menn i stað þeirra sem hættir eru. Við erum núna búnir að fastráða okkur hjá Klúbbnum og ætlum að gefa lausaspila- mennskuna á bátinn, að skóla- böllum undanskildum, að minnsta kosti fram á vor. Það kemur til með að auðvelda rekst- ur hljómsveitarinnar til muna, en einsog flestir vita er nú orðið vafasamt fyrirtæki að reka svona stóra hljómsveit vegna þess hve bransinn er orðinn slappur.” Pétur: „Þá losnum við við stóra kosnaðarliði ss. húsaleigu raf magn, hita o.þ.h. Einnig veröur þetta til þess að við þurfum ekki á eins mörgum aðstoðarmönnum aö halda og getum gengið að hljóöfærunum uppstilltum hve- nær sem er, en það tekur heilan dag að stilla þeim upp. Við kom- um þarna til með að hafa fastar mánaðartekjur, sem er stór plús - ó tímamótum — rœtt við Pétur Kristjánsson og Kristján Guðmundsson Peningaleysi — Kom ekki til tals að hljóm- sveitin tæki sér fri meðan á Sunnukvöldunum stendur? Pétur: „Jú, þeir vildu að það yrði gert, en við hinir sáum okkur það hinsvegar ekki fært að stoppa i svona langan tima og þvi varð það úr, að þeir hættu og við mun- um fá aðra menn i þeirra stað. Svo er þvi ekki að neita, að það var kominn upp smá mórall, sem á sinn þátt i þvi að þetta skeði.” Kristján: „Það virðist ekki leng- ur hægt að stofna hljómsveit án þess að einhver mórall komi upp innan skamms. Það er örugglega útaf þvi hve litla peninga er upp úr spilamennskunni að hafa um þessar mundir og það fer i taugarnar á mönnum.” Stofnuð til utanfarar — En eruö þiö ekki á ieiðinni til útlanda? Pétur: „Hljómsveitin var stofnuð með það fyrir augum að fara ut- an og höfum við raunar veriö að biða eftir þvi, að linurnar skýrð- ust hvað það varðar, allan þann tima sem við höfum starfaö og gerum enn. En ég vil gjarnan að það komi fram, að brottför Sigga og Pálma úr hljómsveitinni fór fram i rólegheitum og fullum vin- skap. No hard feelings eins og þar stendur.” — Hvað hafið þið svo gert til þess að komast inn á erlendan markað? Pétur: „Mánuði eftir að hljóm- sveitin var stofnuð gerðum við demo (prufuupptökur) að fjórum lögum i Hljóðrita i Hafnarfirði. Siðan sendum við þær til Dan- merkur og Englands. Eng- lendingnum Geoffrey -Calver, sem tók upp plötuna Ot um græn- ar grundu og er unnusti okkar góðkunnu söngkonu Shady Ow- ens, leist vel á það efni sem við erum með og ákvað hann að koma hingað til landsins til þess að taka upp tvær 2ja laga plötur með okkur. Við hljóðrituðum svo þrjú lög með honum á fjórum dögum og voru það lögin Driving in the city, Get on to á sure thing og Take me to the sun, sem eru öll eftir Jóhann Helgason. Tónlistarráðstefna i Frakklandi Það var maður að nafni Phil, ég man ekki eftirnafnið, sem fjár- magnaði þessar upptökur. Hann var m jög hrifinn af þessu og sagði m.a. að það væru tvö stór útgáfu- fyrirtæki i London sem hefðu sýnt okkur mikinn áhuga. Þetta var i nóvember. Þeir sögðu okkur siö- an að það yrði tónlistarráðstefna i Midem i Frakklandi i janúar og ætluðu þeir þar að semja viö þessi fyrirtæki. Það má skjóta þvi hér inn til fróðleiks, að þessi franska ráðstefna er árlegur viðburður i tónlistarheiminum og þar koma saman öll stærstu hljómplötufyr h tæki heimsins 'til þess að hlusta á ,,Ástæðurnar að baki þvi að þeir eru hættir, má rekja beint til þess hve bransinn er orðinn slappur hér á landi. Þeim bauðst starf um tveggja mánaða skeið á skemmtikvöldum sem Ferðaskrifstofan Sunna ætlar að halda víðsvegar um landsbyggðina, og gátu peningalega séð hreint ekki sleppt þvi boði." Helgarblaðið er komið i heimsókn til stórgrúpp- unnar PÓKER, en 4 herbúðum hennar hafa þeir at- burðir gerst að Sigurður Karlsson trymbill og Pálmi Gunnarsson bassaleikari hafa yfirgefið hljómsveitina. Og þegar þetta er skrifað, á sjálfan bolludaginn, hafa ekki verið valdir aðrir menn i þeirra stað. En við hittum að máli þá Pétur Kristjánsson söngvara og Kristján Guðmundsson hljómborðsleikara og ræddum við þá um ofan- greind tíðindi og fleira sem er að ske umhverfis Póker þessa dagana. -pp. VISIR Laugardagur 11. febrúar 1978 15 DnClPHLIGSANIR eftir Finnboga Aerrnannsson Vorið 1970 hitti ég mennta- skólanema, son vinafólks mins. Cg spurði hann hvað hann ætl- aði að gera uin sumarið. ,,Ég ætla að vinna fyrr FNL,” þ.e. Þjóðfrelsisfyikinguna i Viet- nam. Hann sagði mér hvaða tiinakaup hann fengi, og ég man að ég varð undrandi yfir þeirri upphæð þá. Ég gekk á hann og spurði: „Hvaða erlend riki heldurðu að styðji sænsku Viet- namhreyfinguna fjárhagslega, Sovétrikin eða Kina?” ,,Ég held bæði,var svarið”. Og áfram. Sú múgsefjun og móðursýki sem greip um sig í Sviþjóð, meðan á Vietnamstriðinu stóð er að min- uin dómi hið alvarlegasta mál sem verðskuldar fyllstu at- hygli: Þessi ótrúlegaástriðufullu (sic) tilfinningaköst vegna at- burða sein gerast hinum megin á hnettinum verða ekki með neinu inóti talin eðlileg i neinni merkingu þess orðs. (Ritstuldur úr Lesbók Morgunblaðsins 5. tbl. 5. febrúar 1978). Ofanskráð lesning er hæ- verskt sýnishorn úr langhundi eftir fil. dr. Ake Thulstrup. Þaö er ekki að marka þótt við könn- umst ekki við hann hér i Súða- vik, ég hef að minnsta kosti ekki heyrt hans getið niðri frystihúsi, eða oni bátum, en skitt með það. Þegar flett er upp á blaðsiðu tólf i Lesbókinni verður þar fyrir- sögn til að gleöja gömul augu okkar. Vietnam-truflunin I Svi- þjóð. Noh. Þetta hlýtur að vera eitthvert gamalt drasl sem ég er að lesa. í einu fáti fram á for- siðu. Nei, þetta er ný Lesbók. Mogginn er heldur aldrei svona lengi hingað vestur, að það skipti árum eða áratugum. Handritið hefur kannski lent á vergangi i prentsmiðjunni fyrir tiu árum og verkstjórinn viljað skella greininni inn heldur en ekki neitt, þegar hún loksins fannst i auglýsingaskúffunni. En mér er sagt aö kerfið sé al- veg pottþétt hjá þeim i Morgun- blaðsmóverkinu og svonalagað komi aldrei fyrir. Mikill er an- skotini^ sagði kellingin. Maöur hélt eiginlega að þeir dauöu væru búnir að grafa hina dauðu eða færu minnsta kosti ekki aö grafa þá upp, en á hverju á maður ekki von úr mógröfunum við Aðalstræti. Það hefur sum sé gerst að Sveinn Asgeirsson hefur snudd- að við að þýða þessa líka lesn- ingu eftir fil. dr. Ake Thulstrup yfir á islensku sem finna má i þvi gagnmerka timariti Eros aukinheldur Rauðu ástarsögun- um. Ég læt þetta sýnishorn sem að ofan er skráö nægja að sinni. Ég held að þetta sé míllífiskur Ur greininni. Þegar hér er komiö er mál aö klóra sér og troða vel i pipuna. Spurnarfornöfn og spurnarat- viksorð vefjast fyrir manni i upphafi næstu málsgreinar: „Hvaða erlend riki heldurðu að styðji vandamenn þessarar grcinar fjárhagslega,Sovétrikin eða Bandarikin?” Ef ég segði „bæði.held ég" gæti ég átt von á' málsókn einsog frá Vörðulandi, svo ég sleppi þvi. Hitt er kannski eðlilegri skýring, að fil. dr. Ake Thulstrup hafi hlotið sömu örlög og japanski her- maöurinn sem fannst um dag- inn i Kyrrahafinu enn aö berjast i siðari heimstyrjöldinni. Að visu viðurkennir fil. dr. Ake Thulstcup ósigur lýðræðis- ins i Vietnan^en meðul þau sem Sviar beittu-en þeir eiga að hans dómi stærstan þátt i hvernig fón- voru meðul nasis- mans. Orðrétt: Ýmislegt rifjað- ist upp fyrir mér á þessari stundu (á baráttufundi i Stokk- hólmi). Ég kom til Vinar á fjórða áratugnum. Það var ein- mitt þegar nasistar voru aö ná undirtökum i borginni. Aðferðir nasista til að láta i Ijós mótmæli eða hrifningu voru nákvæmlega hin sömu og þessa æskulýðs i Stokkhólmi á sjöunda áratugn- um. Ofgarnar mætast. 1 þrjá stundarfjórðunga fylgdist ég með þessum vitfirringslegu látum. Þá fór ég. Eg frétti svo siðar að lögreglan haföi leyst upp fundinn. Tilv. lýkur. Svo mörg voru þau orð og undarleg, að manni dettur helst i hug að skynfæri aðstandenda þeirra séu búin svonefndum ruglara, en þaö er tæki sem sett er á simakerfi sendiráða og skyldra stofnana til að koma i veg fyrir simahleranir. Sá er þó munur- inn að truflanirnar eða ruglið leiöréttist áöur áður en komið er upp i simtóliö. Hins vegar hefur ekki tekist að leiðrétta Vietnam- truflun hjá sumum lærðum mönnum i Sviþjóð svo og á Is- landi. Hún er krónisk(að þvi er virðist.úr þvi hún hefur tekið sig upp eftir öll þessi ár og það með þessum gassa. Okkur hér i Súöavik rétt rámar i að þetta hafi verið alveg á hinn veginn með Sviþjóð, Vietnapalmið og Ameriska vininn okkar. Okkur minnir að Ameriski vinurinn okkar hafi farið meö gasvélarn- ar allar aö kæfa litil börn og gamalmenni þarna austur frá og með svo góðum árangri að samviska allrar heimsbyggðar- innar reis upp og sagði ekki meir. Þetta er meira aö segja á vitorði fólks á afskekktum bæj- um á Vestfjöröum og viðar. Gamall maöur sem tók mó- grafir suörf Vatnsmýri um aldamótin sagði mér einu sinni að þeir hefðu stundum komið niður á steingeröa viðardrumba þegar þeir voru að taka grafirn- ar þarna i mýrinni. 'Wví';«

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.