Vísir - 17.02.1978, Page 1
Mikil spenna
í skáksölum
Sjá viðtal við
skákáhugamenn á
Reykjavíkurskákmótinu
að Hótel Loftleiðum
á bls. 2 og 3
Föstudagur 17. febrúar 1978 43. tbl. 68. árg.
Sími Visis er 86611
Rikisstjárnin fellir niður þriðju grein ef nahagsmálafrumvarpsins:
„BREYTIR ENGU UM
AFSTÖÐU OKKAR"
sagði Björn Jónsson, forseti Alþýðusambandsins
„Það breytir ekki
nokkrum sköpuðum
hlut um okkar afstöðu
til frumvarpsins þótt
3ja greinin verði felld
niður”, sagði Björn
Jónsson, forseti
Alþýðusambands
íslands, i gær er hann
var spurður álits á til-
lögu stjórnarmeirihlut-
ans á alþingi um að
áðurnefnd grein yrði
felld niður í frumvarp-
inu um efnahagsráð-
stafanirnar.
„Eftir sem áður felst i frum-
varpinu öll sú kjaraskeröing,
sem ætlunin er að verði á
samningstimanum sem nú er að
liða,og niðurfelling 3ju greinar-
innar breytir engu þar um”,
sagöi Björn. „Þessi kjaraskerð-
ing er auðvitað það mál sem
brennur á okkur þessa stundina,
en hitt er deilumál sem hugsan-
lega hefði verið hægt að fresta
þar til siðar. Þá höfum við
heldur enga vissu fyrir þvi, að
þarna sé um neina stefnubreyt-
ingu að ræða.”
Þá sagði Björn aö á sam-
starfsfundi ASt og BSRB i gær
hefðu ráðstefnur um allt land
veri* ákveðnar og ættu þær að
hefjast upp úr helgi.
—ESJ.
Uppboðsréttur i Hollandi hefur ekki lokið störfum:
ÁHÖFN SUÐRA
HEFUR BEÐIÐ í
ÁR EFTIR
LAUNUM SÍNUM
Skipverjar á flutningaskip- inu ytra, en uppboðsréttur hefur
inu Suöra hafa nú bcðið i rétt ár enn ekki lokiö störfum, og skip-
eftir að fá laun sfn greidd, en i verjar enn ekki fengiö greiddar
febrúar i fyrra var skipið kyrr- kröfur sinar á útgerðina scm
sett i Holiandi að kröfu ensks munu nema milli 15 og 20
banka vegna skulda útgerðar- milljónum króna.
•nnar. Frá þessu máli segir nánar i
Uppboð fór siðan fram á skip- fréít á blaðsiðu 22.
Frá samningafundi blaðamanna og útgefenda sem hófst siðdegis i
gær. Taliö frá vinstri: Magnús Finnsson, formaður Bt, Kristinn
Finnbogason, framkvæmdastjóri, Eiður Bergmann, framkvæmda-
stjóri, Bragi Guðmundsson, ritstjórnarfulitrúi og ÍJlfar Þormóðsson
blaðamaður.
Visismynd: JA
Dagblöð og tíma-
rit stöðvast
í blaðaverkfalli
Verkfall blaðamanna
hófst á miðnætti siðast-
liðna nótt, þar sem sam-
komulag náðist ekki.
Sáttafundur hófst kl. 15 i
gær, en enginn árangur
hafði náðst þar þegar
gengið var frá Visi til
prentunar.
Verkfall var boðað hjá eftirtöld-
um aðilum: Otgefendum Alþýöu-
blaðsins, Dagblaðsins, Morgun-
blaðsins, Timans, Visis, Þjóðvilj-
ans, Vikunnar, Æskunnar, Dags,
Norðurlands, Islendings og hjá
Frjálsu framtaki.
011 vinna félagsmanna i Blaða-
mannafélaginu við hvers kyns
fjölmiðlun er óheimil i verkfall-
inu, án tillits til starfsheitis fé-
lagsmanna. öllum er óheimilt að
ganga i störf félagsmanna i verk-
fallinu.
—ÓT
,Viljum koma til móts
við launþegasamböndin'
— segir Geir Hallgrímsson forsœtisráðherra
um breytinguna á efnahagsfrumvarpinu
„Breytingatillagan
er viðleitni til að koma
til móts við þau sjónar-
mið sem komið hafa
fram hjá fulltrúum
launþegasamtak-
anna”, sagði Geir Hall-
grimsson forsætisráð-
herra i samtali við Visi
i gær.
A fundi efri deildar Alþingis 1
gær las forsætisráðherra yfir-
lýsingu þar sem fram kemur aö
meirihluti fjárhags- og við-
skiptanefndar hefur i bamráöi
við rikisstjórnina lagt til aö
þriðja grein frumvarpsins verði
felld niöur. Þar var lagt til að
frá næstu áramótum hafi óbein-
irskattar ekki áhrif á verðbóta-
visitölu eða veröbótaákvæöi 1
kjarasamningum.
„Við gerum þetta I trausti
þess að hugur fylgi máli hjá for-
svarsmönnum launþegasam-
takanna, en þeir hafa viður-
kennt að visitölukerfið hafi
gengið sér til húöar”, sagði Geir
Hallgrimsson 1 samtalinu við
Vfsi.
„Stefna stjórnarinnar er
óbreytt um að óbeinir skattar
eigi ekki heima i visitölunni, en
rlkisstjórnin vill taka málið upp
á viðtækara grundvelli. Þar
sem lagaákvæöi átti ekki að
taka gildi fyrr en 1. janúar næst-
komandi koma efnisþættir þess-
arar greinar ekki fram á þessu
ári”, sagöi forsætisráöherra
ennfremur.
„Ætla veröur svo mjög sem
fulltrúar launþegasamtaka hafa
gagnrýnt visitöluákvæði frum-
varpsins og að þau eigi aö setja I
lög án samráðs við þá, að þeirra
mati, að þeir meti nokkurs þá
viðleitni að jafna ágreining og
komi til móts viö þá nauðsyn að
halda fullri atvinnu með vinnu-
friöi og bættum rekstrargrund-
velli atvinnuveganna,” sagöi
Geir Hallgrimsson.
—SG.