Vísir - 17.02.1978, Side 11

Vísir - 17.02.1978, Side 11
11 vism Föstudagur 17. febrúar 1978 norsk: f § „LÍST EKKI NÓGU VEL Á BEYGINGARN- AR í ÍSLENSKU" — segir Gudrún Gordsjord, tœknimaður, sem hyggst dveljast hér í eitt úr ,,Mig langaði til aö fá einhverja tilbreytingu og athugaöi um starf i nokkrum löndum og útkoman varð sú að Island varö fyrir val- inu”, sagði Gudrun Gardsjord, tæknimaður hjá útvarpinu, I spjalli við Visi. Hún er frá Þela- mörk i Noregi, en hefur starfað sem tæknimaður hjá norska ut- varpinu frá þvi hún lauk námi ár- ið 1970. Gudrun sagðist hafa haft mik- inn áhuga á þvi að komast að sem tæknimaður hjá breska útvarp- inu, en hætti við það vegna þess hve erfitt er að fá atvinnuleyfi i Bretlandi. Þá sneri hún sér að þvi að athuga önnur lönd og næst á eftir Bretum langaði hana til að kynnast Islendingum. Hún hafði kynnst Islendingi, sem starfaði um tima hjá norska útvarpinu sem tæknimaður og hann aðstoð- aði hana við að fá starf hér á landi. Hún er eina konan sem vinnur þessi störf hjá islenska út- varpinu, en i Noregi eru nokkrar konur tæknimenn. Allt sent út i stereo i Noregi „Kaupið er þó nokkru hærra i Noregi en hér, ég býst við þvi að þaðsé um það bil tuttugu prósent- um hærra. Við vinnum mjög litla eftirvinnu hjá norska útvarpinu, — það kemur örsjaldan fyrir. Hér skilst mér að fólk byggi mikið á eftirvinnu i öllum starfsgrein- um”, sagði Gudrun. „Vinnubrögð eru hér svipuð og i Noregi en samt held ég að hér séu klippingar meira notaðar við vinnslu útvarpsþátta. Tækin eru ágæt en mér skilst að beðið sé með endurnýjun þar til flutt verður i nýja útvarpshúsið.” Gudrun sagði að næstum allt efni i norska útvarpinu væri sent út í stereo. Það eru fjórar deildir, sem allar sjá um ákveðna tegund af verkefnum, t.d. sér ein um að taka uppleiklist, önnur um tónlist og sérstök deild sér um alla .Nærri allt efni I norska útvarpinu sent út I stereo”, segir Guðrún tæknivinnu sem unnin er utan húsakynna norska útvarpsins. Hafði skiðin með Gudrun hefur mikinn áhuga á þvi að læra málið en hún dvelst hér i' eitt ár, svo að það ætti að takast. Hún hefur þegar hafið nám i málaskóla, en sagði að sér litist ekkertof vel á aö hún komist upp á lagið með að nota allar þessar beygingar sem til væru i islenskunni. „Ég vissi það áður en ég kom hingað að hér væru ágæt skiöa- lönd, svo aðég tók skiðin min með og ætla að bregða mér i Bláfjöllin við tækifæri”, sagði Gudrun. —KP nunarsjóða Aflabrestur og verðfall Snúist þróunin hins vegar við, þ.e. verði aflabrestur eða verð- lækkun erlendis minnka að visu þær tekjur i sjávarútvegi sem eru beinlinis tengdar aflamagni og fiskverði. En margföld reynsla sýnir að framleiðslukostnaður og tekjur i þjóðfélaginu lækka ekki með hliðstæðum hætti 1 kjölfar aflaminnkunar eða verðfalls er- lendis og þessar þjóðhagsstærðir hækkuðu i góðærinu. Menn sætta sig ekki við lækkaða peningaupphæð tekna og mjög torvelt reynist að þrýsta framleiðslukostnaði niður á við. Fyrr eða siðar kemur aö þvi að halli verður á atvinnurekstri, sér- staklega i sjávarútvegi. Aður en hann leiðir til atvinnuleysis telur rikisvaldið það skyldu sina að gripa i taumana. A undanförnum áratugum hefur það veriö gert með ýmsum hætti, oftast meö gengisbreytingu en einnig með ýmiss konar uppbótarkerfi. Óstöðugleikinn óæski- legur Vonandi er ekki um það ágreiningur meðal hugsandi manna að sá óstööugleiki i efna- hagsmálum, sem leiðir af si- endurteknum gengisbreytigum og margs konar uppbótarkerfum, sé óæskilegur. Ein af orsökum þessa óstöðugleika er tvfmæla- laust það samband milli tekju- sveiflna i sjávarútvegi veröbólgu og gengisbreytinga sem hér hefur verið lýst. En hvað er þá hægt að gera til þess að ráða bót á þessu? Að leggja til hliðar Það sem koma þarf i veg fyrir er að góðæri i sjávarútvegi valdi meiri aukningu peningatekna i landinu en svarar til raunveru- legra tekna af aflaaukningunni eða verðhækkuninni. 1 þessu sambandi er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir þeirri staðreynd að fáiallur ábati góðærisins að koma fram sem tekjuauki i sjávarút- veginum er mjög erfitt að koma i veg fyrir að hann valdi tekjuauka i öðrum greinum efnahagslifsins. Þess vegna verður aö sjá til þess að hluti af tekjuauka góðærisins verði lagður til hliðar og geymdur til erfiðari ára og geti þá orðið til tryggingar þvi, að ekki þurfi að láta aflabrest eða verðlækkun valda tekjulækkun og halla- rekstri. Hugmyndin að baki slikri tekjujöfnun er tviþætt. Annars vegar er um það að ræöa að láta ekki góðæri i sjávarútvegi valda svo mikilli tekjuaukningu innan hans, að hún breiðistút um efna- hagskerfið og valdi verðbólgu eða auki hana. Hins vegar er um að ræða myndun varasjóðs sem dregur úr eða eyöir áfalli vegna aflabrests eða verðfalls. Aflahyggingarsjóður Stjórnvöld hafa hér á landi gert sér grein fyrir kjarna þess vanda- máls sem hér er um að ræða og haft uppi nokkra viðleitni til þess að ráða bót á þvi á þann hátt sem hér hefur verið lýst. Þegar árið 1949 var komið á fót Hluta- tryggingarsjóði en honum var i raun og veru breytt i Afla- tryggingarsjóð árið 1962. Hlut- verk hans er að draga úr áhrifum sveiflna i afla. Hann hefur haft nokkra þýðingu til þess að draga úr áföllum, þegar afli hefur brugðizt en skipulag hans er þannig, að hann geymir ekki tekjuauka þegar afli vex. Verð jöfnunars j óður Hitt var miklu merkara nýmæli þegar Verðjöfnunarsjóði fisk- iðnaðarins var komið á fót 1969. Tilgangur hans skyldi vera að draga úr áhrifum verðsveiflna erlendis á hag fiskvinnslunnar. Þegar verðlag erlendis væri hátt, skyldi greiða f sjóðinn allt að þrem fjórðu hlutum þess, sem verð erlendis væri umfram visst verð sem stjórn sjóðsins teldi eðlilegt verð þegar yfir nokkurn tima væri litið og nefnt er viðmiðunarverð. Þegar verð er- lendis á hinn bóginn lækkaði skyldi sjóðurinn greiða verðbætur allt að þrem fjórðu hlutum lækkunarinnar niður fyrir viðmiðunarverðið. Settar voru á stofn innan sjóðsins sérstakar deildir fyrir saltfisk fiskimjöl og lýsi og síðar sérstök skreiðar- deild. Sjóðurinn hefur ekki gegnt hlutverki sinu Með lagasetningunni um Verð- jöfnunarsjóðinn kom löggjafinn á fót einmitt sliku hagstjórnartæki sem hægt væri að beita til þess að koma i veg fyrir að verðhækkun erlendis breiddist út um efna- hagskerfið og ylli eða yki verö- bólgu. Þessi lagasetning var tvi- mælalaust ein merkasta laga- setning siðari hluta liðins ára- tugs. Löggjöfin var sett i kjölfar þess er saman fór á siðari hluta liðins áratugs mikið verðfall á sjávarafurðum erlendis og afla- brestur. Sjóðurinn gerði eflaust gagn, þegar sveifla hófst upp á við eftir 1969 og hann hefur tvi- mælalaust dregiö úr erfiðleikum við verðfall. En sé litið á þróun mála i þessum efnum undanfarin ár hefur Venðjöfnunarsjóðurinn ekki gegnt hlutverki sinu eins og þvi er ætlað að vera lögum sam- kvæmt heldur þvert á móti. Með stjórn hans hefur ekki verið dregið úr veröbólgu, heldur þvert á móti kynt undir .hénni. Aþessum áratúg eða á árunum 1970-1977 hefur verðlag á freðfiski erlendis verið Islendingum hag- stætt. Meöalverðhækkun hefur á þessum árum verið um 20% i erlendum gjaldeyri á ári og rúm- lega þriðjungur i islenzkum krón- um. En á þessum tíma hefur Við- miðunarverðið verið hækkað um næstum 40% að meðaltali á ári. Flest árin hafa verið greiddar verðbætur á freðfisk úr Verð- jöfnunarsjóðnum, þrátt fyrir hið hagstæða verðlag. 1 sjóðinn hefur aðeins verið greitt 0,8% af heildarverðmæti afurðanna. Ef árið 1970 og 1971 eru frátalin nema greiðslur úr sjóðnum 2,5% af heildarverðmætinu. Unnið gegn upphafleg- um tilgangi Það var i raun og veru aðeins á árunum 1970 og 1971 aö sjóðurinn starfaði eins og honum bar. Þá nam viðmiðunarverðið um 80% af afurðaverðinu i islenzkum krón- um. En siðan hafa stjórnvöld tek- ið að ákveða viðmiðunarverðið hærra en verðlag erlendis hefur gefið tilefni til. Allar götur frá 1972 hefur viðmiðunarverðið verið hærra en markaðsverðið i islenzkum krónum. I kjölfar gengisbreytingarinnar i septem- ber 1974 var viðmiðunarverðið meira að segja hækkað um rúm- lega 40% samtimis þvi að afurða- verðið erlendis fór lækkandi. Astæðan til þessarar stefnu- breytingar i stjórn Verðjöfnar- sjóðsins hefur veriö sú að tekið hefur verið i vaxandi mæli tillit til aukningar framleiðslukostnaðar innanlands og rekstrarerfiðleika fiskvinnslunnar. En með þvi móti hefur i raun og veru verið unnið gegn upphaflegum tilgangi sjóðs- ins. / Aö þvi er saltfiskafurðir snertir hefur ekki gegnt alveg sama máli. Fram til ársins 1977 var greitt i sjóðinn um 5,5% af fram- leiðsluverðmæti. Verðið hækkaði erlendis um 40% en viðmiðunar- verðið nokkru meira eða um 41%. Aðeins litill hluti verðhækkunar- innar hefur gengið i Verðjöfn- unarsjóðinn. Mjöl- og lýsisdeild- inni virðist á hinn bóginn hafa verið beitt i rikara mæli i sam- ræmi við upphaflegan tilgang lagasetningarinnar. Ein af orsökum verð- bólgunnar Niðurstaðan er sú að hin tæp- lega áratugs gamla lagasetning um Verðjöfnunarsjóð fisk- iðnaðarins hafi komiö á fót mjög nauðsynlegu hagstjórnartæki til þess að koma i veg fyrir að verð- sveiflurá sjávarafurðum erlendis héfðu verðbólguáhrif innanlands. En þessu tæki var aðeins beitt fyrstu árin. Siðan 1972 hefur þvi verið misbeitt þannig að verð- lagsþróunin erlendis hefur aukið verðbólgu i landinu. Er hér raun- ar um að ræða þá af mörgum or- sökum verðbólgunnar sem al- menningur hefur gert sér óljós- asta grein fyrir. Ef takast á að móta framtiöarstefnu i efnahags- málum, sem m.a. geti komið i veg fyrir óhóflega verðbólgu, verður einn þáttur hennar tvimælalaust að vera öflugt kerfi verðjöfnunar- sjóða sem beitt væri með réttum og árangursrikum hætti. Gylfi Þ. Gislason

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.