Vísir - 27.02.1978, Side 3

Vísir - 27.02.1978, Side 3
3 VÍSIR Mánudagur 27. febrúar 1978 SIMCA1508 Sigraöi næturrallið Enn einu sinni sigraði SIMCA í rall-akstri hér á landi. Bilnum var ekið stanslaust i rúmar 20 klst. 950 km. leið eftir einhverjum verstu vegum og vegleysum íslands i næturralli Bifreiðaiþróttaklúbbs Reykjavikur um helgina 1. og 2. okt. Hvað bilaði? Einn pústbarki. Annað? Ekkert. SIMCA bilar frá CHRYSLER FRANCE hafa nú marg sannað ágæti sitt hér á landi. Vandlátir bilakaupendur velja.sér SIMCA 1307 eða 1508, sem eru traustir og góðir fimmdyra, framhjóladrifnir og fimm manna fjöl- skyldubilar. Talið við okkur strax ^ i dag og tryggið ykkur SIMCA. Bfi^&fi B B hf. ÁRMÚLA 36, Símar 84366 - 84491 Efnahagsróðstafanirnar höfðu áhrif á vaxtabreytinguna: MINNI VAXTA- HÆKKUN EN ELLA HEFDI ORÐIÐ „Veröbótavextir eru endur- skoðaðir á þriggja mánaða fresti og þá tekið tillit til undan- genginnar verðlagsþróunar. Að þessu sinni var einnig tekið tillit til þeirra ráðstafana sem gerðar hafa verið með lagasetningu til að draga úr verðbólgu. Verð- bótaþátturinnhækkarþvi minna en annars hefði orðið”, sagöi Davið Ólafsson seðlabankastjóri, i samtali við Visi. Frá þvi i ágúst hafa vextir við innlánsstofnanir verið samsett- ir af tveimur þáttum, grunn- vöxtum og verðbótaþætti vaxta. Seðlabankinn endurskoðar verðbótaþáttinn á um þriggja mánaða. fresti með hliðsjón af verðlagsþróuninni. Verðbóta- þátturinn hefur nú verið hækkaöur um 3 prósent, og er þvi verðbótaþátturinn 14 prósent. Við þessa breytingu hækka heildarvextir af almenn- um sparisjóðsbókum úr 16 i 19 prósent. Vaxtaaukareikningar bera 32 prósent vexti en voru áður 29 prósent. Forvextir af vixlum verða 23,5 prósent og heildarársvextir vaxtaaukalána verða 33 prósent. 1 samræmi við þá stefnu að minnka misræmi i vaxtakerfinu og jafna lánskjör atvinnuveg- anna hefur einpig verið tekin ákvörðun um að felia niður sér- stök vaxtakjör, sem gilt hafa um svokölluð útgerðarlán. Frá 21. febrúar greiðast þvi almenn- ir útlánsvextir af þessum lán- um. —KP. Fyrirtœki með prjónavöruframleiðslu: „REKSTURINN GJÖR- SAMLEGA ÓARÐBÆR" segir Úlfur Sigmundsson, framkvœmdastjóri Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins ,,Við höfum kannað markaðshorfur erlendis og þær eru mjög góöar hvað vestræna markaði snertir ef unnt verður að framleiða á viðunandi verði. Blákaldur raunveruleikinn er sá, að reksturinn hjá fyrirtækjum með prjónavöru er gjörsamlega óarðbær sem stendur. Hráefni hafur hækkað mikið á undanförn- um mánuðum og eins kemur hér til launahækkun. Þetta ráða fyrirtækin ekki við”, sagði Clfur Sigmundsson, framkvæmdastjóri (Jtflutningsmiðstöðvar iðnaöar- ins, i samtali við Visi. Þróunin í útflutningi ullarvara varð sú á siðasta ári að magn- aukning varð um 30 prósent en verðmætaaukning um 67 prósent. Þessi aukning er að mestu leyti i tilbúnum fatnaði en þar er aukn- ingin 173,5 tonn, eða sem nemur 1.092 milljónum króna. Af þessari aukningu i magni fóru um 112 tonn til Sovétrikjanna. Hér mun- ar mest um sölu á ullartreflum, sem var nýjung á árinu 1977. Vestræni markaðurinn er með 46 prósent af útflutningsmagni og 60 prósent af heildarverðmætinu. 1 tilkynningu frá Útflutnings- miðstöð iðnaðarins kemur það fram að eins og aðrar útflutnings- greinar berst þessi atvinnuvegur við miklar vinnulaunahækkanir og þar að auki hefur upp á sið- kastið orðið mikið misræmi á heimsmarkaðsverði á ull, sem hefur gert reksturinn gjörsam- lega óarðbæran i bili. Þvi er allt útlit fyrir mikla óvissu i þessari iðngrein á þessu ári nema ein- hverjar breytingar komi til. —KP. GAMANLEIKRIT MEÐ BESSA OG MARGRÉTI Þjóðleikhúsið frumsýnir á fimmtudaginn leikrit á Húsavik, en sem kunnugt er eru frumsýningar hússins að öllu jöfnu haldnar með pompi og prakt i Þjóðleikhúsinu sjálfu. Þetta er i annað skipti sem leikrit er frumsýnt utan Reykjavikur á vegum Þjóðleikhússins. Aður var barnaleikritið Furðuverkið frumsýnt i Grindavik fyrir nokkrum árum. Leikritið sem Húsvikingar fá að kynnast fyrstir landsmanna er gam- anleikur, ,,A sama tima að ári”, eftir Bandarikjamanninn Bernard Slade. Persónur verksins eru aöeins tvær, leiknar af Bessa Bjarnasyni og Margréti Guðmundsdóttur. Þau hittast á sveitahóteli og eiga saman ánægjulega helgi, og ákveða að hittast þar á hverju ári, eina helgi i senn. Leikritið spannar siðan 25 ár af ævi þeirra, þar sem við sjáum þau á 5árafresti. Að sjálfsögðu breytast þau töluvert á þessum tima og má segja að i verkrnu speglist ýmiskonar þjóðfélagsþróun og tiskufyrir- brigði i bandarisku þjóðlifi siðast liðinn aldarfjórðung, en verkið hefst 1951 og þvi lýkur árið 1975. Leikritið, sem er þekktasta verk höfundar, hefur verið sýnt viða um heim i meðferð úrvalsleikara, en það var frumsýnt á Broadway fyrir tveim árum. Þýðandi verksins er Stefán Baldursson og Gisli Alfreðsson leikstýrir þvi. Ráðgert er að sýna verkið viða um land, einnig hér i Reykjavík. —GA. Bessi og Margrét skemmta sér dável i leikritinu, en þau eru einu leik- ararnir sem i þvi koma fram.. Þjóðleikhúsið frumsýnir ó Húsavík:

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.