Vísir - 27.02.1978, Qupperneq 4
Búnaðarþing í Reykjavík:
Mánudagur 27. febrúar 1978 VISIR
ENDURSKODUN A FRAMLEIÐSLU EFST
Á BAUGI
„Þaö hafa engin stórmál
verið afgreidd á þessu
búnaðarþingi ennþá en fyrir þvi
liggja um 25 mál og auk þess
hafa verið flutt nokkur erindi”,
sagði Agnar Guðnason,
forstöðumaður Upplýsinga-
þjónustu landbúnaðarins, i
samtali við Visi.
Búnaðarþing var sett siðast
liðinn mánudag og að sögn
Agnars stendur það til 7. mars.
Á þinginu eiga sæti 25 fulltrúar
en allir þeir sem hafa áhuga að
fylgjast með málum þar eru
velkomnir. Þingið er haldið á
HótelSögu.
í erindi sem Halldór E.
Sigurðsson. landbúnaðarráð-
herra flutti á búnaðarþinginu
kom fram að Veiðimálastofnun
ætlar að setja upp útibú i
Borgarnesi. Einnig kom fram i
ávarpi ráðherra að fyrirhugað
er að reisa verksmiðju á Sel-
fossi til að vinna úr slátur-
úrgangi. Sagði Agnar að þessi
verksmiðja væri til á pappirun-
um en það vantaði peninga til að
hrinda hugmyndinni i
framkvæmd. Ein slik verk-
smiðja er til á landinu og er hún
i Borgarnesi. Framleiðir hún
m jöl til blöndunar i fóðurbæti
Endurskipulagning
á framleiðslu
Agnar taldi að stærsta mál
þingsins væri ályktun frá
formannafundi búnaðarsam-
bandanna, höldnum um það
leyti sem þingið hófst, er lögð
var fyrir þingið. I þeirri ályktun
er lagt til að framleiðslu- og
skipulagsmál landbúnaðarins
verði endurskoðuð og stefna og
störf þéirra aðila er um þau mál
sjá verði samræmd. Ennfremur
segir i þeirri ályktun að það
þurfi að haga framleiðslu land-
búnaðarins eftir búskaparað-
stæðum og markaðsaðstæðum á
hverjum stað. Einnig er hvatt til
þess að Stéttarsamband bænda
og Búnaðarsambandið
samræmi stefnu sina varðandi
fyrirhugað kvótakerfi á
framleiðslu landbúnaðarvara.
Þessari ályktun hefur verið vis-
að til allsherjarnefndar.
Þá hefur verið endurflutt
frumvarp um afleysingarþjón-
ustu fyrir bændur og húsfreyjur.
Það var afgreitt frá siðasta
þingi en er nú endurflutt með
breytingum. Gert er ráð fyrir
þvi að 2 menn verði ráðnir til að
leysa af fyrir hver 150 heimili.
Sagði Agnar að vonast væri til
að landbúnaðarráðherra myndi
leggja það frumvarp fyrir
alþingi. — KS
iiimiimitimimiiiiimiiiimiiimiiMimiiiii
IIIIHIinK A
GLANSSKOL
Morgir litir.
Gefur hárinu skemmtilegan blœ.
Hárgreiðslustoton
VALHÖLL
Óðinsgötu 2
- Sími 22138
Z_sl
Nýkomin styrktarblöð og
augablöð í eftirtaldar
bifreiðar:
Hœkkið bílinn upp svo að hann taki ekki
niðri á snjóhryggjum og holóttum vegum
Bedford 5 og 7 tonna, augablöö aftan.
Datsun diesel 70-77. augablöð aftan.
Mercedes Benz 1413, augablöð og krókblöð.
Mercedes Benz 322 og 1113, augablöð.
Scania Vabis L55 og L56, augablöð og krókblöð
aftan.
Scania Vabis L76, augablöð og krókblöð.
2” 2 1/4” og 21/2” styrktarblöð i fólksbíla.
Mikið úrval af miðfjaðraboltum og fjaðra-
klemmum.
Smíðum einnig fjaðraklemmur eftir máli.
Sendum i póstkröfu hvert á land sem er.
Bílavörubúðin Fjöðrin h.f.
Skeifan 2, simi 82944.
Hann ó afmœli í dag:
Hefur selt hólfa
milljón Vísisbloðo
Blaðsölufólk Visis er yfirleitt
með eindæmum duglegt og
áhugasamt i starfi. En varla
verður á nokkurn hailað þegar
sagt er að Auðunn Gestsson sé
með þeim fremstu i hópi þeirra
sem bera af i dugnaði og elju.
1 átta ár hefur Auðunn selt Visi
á hverjum útkomudegi blaðsins,
eða fast að þvi/ og má sú veiki
vera þung sem aftrar honum frá
að sinna sinu starfi.
Þar sem Auðunn á fertugsaf-
mæli i dag fannst okkur vel viö
hæfi að spjalla stuttlega við hann
og spurðum fyrst hvort hann væri
ekkert leiður á blaðsölunni.
„Nei ég er mjög ánægður með
þessa vinnu. Aður en ég byrjaði,
fyrir átta árum, vann ég i Múla-
lundi og finnst þetta miklu
betra”, segir Auðunn. Hann
kvaðst alltaf selja blaðið á
Laugavegi og i Austurstræti.
„Það eru margir sem kaupa
alltaf af mér Visi, sama fólkið á
hverjum degi og maður tekur eft-
ir ef það vantar einn dag. Salan
gengur mjög vel og ég hef oft
fengið söluverðlaun frá Visi og
tvisvar orðið sölukóngur. Sjálfur
les ég Visi á hverjum degi og
finnst sérstaklega gaman að i-
þróttafréttumsagði Auðunn
Gestsson.
Hann kvaðst ætla að selja blað-
ið á afmælisdaginn eins og aðra
daga. Mánudagar væru jafnan
góðir söludagar en Auðunn selur
jafnan nokkur hundruð eintök af
Visi á dag.
Miðað við dagsölu hans og hve
sjaldan hann hefur verið frá
vinnu má telja liklegt að Auðunn
hafi selt um hálfa milljón eintaka
af Visi siðan hann byrjaði fyrir
átta árum.
Sem þakklætisvott fyrir vel og
Auðunn Gestsson er einn traustasti blaðsölumaður VIsis. Visism. BP
samviskusamlega unnin störf á
liðnum árum færði Visir honum
gullúr að gjöf i tilefni afmælis-
dagsins og vonast til að njóta
starfskrafta hans sem lengst.
—SG.
Jón Hnefill Aöalsteinsson
Hugmyndasaga
Frá sögnum til siðskipta
Saga hugmyndanna
Ný bók eftir Jón Hnefil
Út er komin á vegum Iðunnar
bókin Iiugmyndasaga, — Frá
sögnum til siðaskipta eftir Jón
Hnefil Aðalsteinsson fil. lic,
menntaskólakennara. t bókar-
kynningu á kápu er gerð svofelld
grein fyrir bókinni:
,,I bók þessari eru teknar til
meðferðar ferns konar hug-
myndir: þjóðsagnahugmyndir,
trúarhugmyndir, heimspekihug-
myndirog stjórnmálahugmyndir.
Þjóðsagnahugmyndir skipa veru-
legt rúm i bókinni, enda er þar
um að ræða elstu vitnisburði
mannlegrar hugsunar, og reynt
er að skipa þjóðsögnunum á sinn
markaða bás á vettvangi visinda.
Trúarhugmyndir og stjórnmála-
hugmyndir eru einnig teknar
hlutlausum, fræðilegum tökum
eins og gera ber i riti, sem tælað
er til notkunar í skólum. Og sama
er að segja um heimspekihug-
myndir.
Frá örófi alda hafa menn spurt:
Hvaðan kom ég? Hver er ég?
Hvað ber mér? Hvert fer ég? Og
svo spyrja menn enn i dag. Hug-
myndasagan greinir frá formi
þessara spurninga á ýmsum tim-
um. Bók þessi hlýtur þvi að vera
áhugaverður lestur hverjum
þeim sem glima vill við gátur lifs-
ins og fræðast um hvaða svör
hafa verið gefin við þeim á mis-
munandi timum. En fyrst og
fremst er bókin rituð til notkunar
við kennslu i hugmyndasögu i
menntaskólum og öðrum fram-
haldsskólum.”
Bókin er 146 bls. að stærð. Hún
er sett og prentuð i Offsettækni
sf., en Bókfell hf. annaöist bók-
bandsvinnu.