Vísir - 28.02.1978, Blaðsíða 1
ur 28. febrúar 1978 - 46. tbl. -
Aðgerðirnar á morgun:
VERSLUNUM
EKKILOKAO
# Stöðvun á bensíni og mjólk
# Óvist um flugsamgöngurnar
Erfitt er að gera sér nákvæma grein fyrir hvað stöðvast og hvað ekki í boðuðum
verkföilum á morgun. Þó er Ijóst, að ef yfirleitt verður fylgt hvatningum þeirra verkalýðs-
félaga sem vilja verkfall, verður það nokkuð almennt.
Dagsbrún, til dæmis,
nær til bensinafgreiöslu,
mjólkurafgreiðslu, allrar
vinnu við höfnina, verka-
manna i bæjarvinnu
(snjóhreinsun gæti orðið
þar nokkurt mál) og til
hlaömanna og bensinaf-
greiðslumanna i innan-
landsfiugi.
Þar sem VH hefur ekki
boðað verkfall ætti öll
venjuleg verslunar- og
skrifstofuþjónusta að
ganga eðiilega.
Óvist er hvernig verður
með flug. Að sögn Flug-
leiða er ekki vitað hvað
morgundagurinn ber í
skauti sinu. Ef Dags-
brúnarmenn sem við inn-
anlandsflug vinna fara i
verkfall, stöðvast. innan-
landsflugið að öllum
likindum.
Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Suðurnesja
munu lika stöðva milli-
landaflug ef þátttaka i
verkfailinu verður al-
menn hjá félagsmönnum
þess.
Meðai félaga sem hafa
hvatt til þátttöku i verk-
failinu eru Dagsbrún,
Samband bygginga-
manna, Félag járn-
iðnaðarmanna, Tré-
smiðafélag Reykjavikur,
Iðja, félag vcrksmiðju-
fólks, Verkakvenna-
félagið Framsókn og
Landssamband iðnverka-
fólks.
Meðai þeirra sem ekki
hafa boöað til verkfails
eru Verslunarmanna-
félag Reykjavikur,
Starfsmannafélag
Reykjavikurborgar.
Póstmannafélag islands,
Stýrimannafélagið Ald-
an, Skipstjóraféiag Norð-
lendinga, Félag verslun-
ar- og skrifstofufólks á
Akureyri og ýmis verka-
lýðsfélög á Vestfjöröum.
Þetta er þó ekki tæm-
andi listi en Visir hafði
ekki i morgun fengið
beinar upplýsingar um
fieiri aðila. Hins vegar
munu vera fleiri félög
báðum megin viglinunn-
ar. Eins eru ýmis félög
sem hafa lýst stuðningi
við málstaðinn ef svo má
að orði komast án þess
bcinlinis að hvetja til
verkfalls.
—ÓT
Matthías
í Kreml
Matthías Bjarnason sjávarútvegs-
ráöherra er nýkominn heim úr átta daga
opinberri heimsókn til Sovétrikjanna.
Hann er hér ásamt fylgdarliði sínu i
Kreml, en á annarri og þriöju síðu Vísis i
dag er birt viötal Kjartans Stefánssonar,
blaöamanns, viö Matthias.
Yngri kynslóðin i
höfuðborginni fagnaöi i
morgun fyrsta snjónum
um langt skeið. Bíl-
stjórar og aðrir vegfar-
endur voru aftur á móti
ekki á sama máli. Þessa
mynd tók Björgvin
Pálsson i Reykjavik I
morgun.
Askriffendagetraun Vísis:
endurbirtur
Febrúarseðillinn i
áskrifendagetraun Visis
er endurbirtur á ann-
arri siöu blaðsins i dag.
Er það gert samkvæmt
óskum nýrra áskrif-
enda, sem gerst hafa
fastir kaupendur að Visi
eftir að þessi getrauna-
seðill va r birtur i by rjun
mánaðarins og einnig
vegna ýmissa lesenda,
sem ekki höfðu klippt út
og sent seðilinn, þegar
hann birtist upphaflega,
og vantaði hann þvi.
Þeir áskrifendur
blaðsins, sem ekki eru
búnir að senda okkur
útfylltan getraunaseðil
febrúarmánaðar ættu
þvi að nota timann i
blaðleysinu á morgun
og hinn daginn til þess
að koma seölinum i
póst.
Tveir bilar eiga enn
eftir aö koma i hlut
heppinna áskrifenda,
Ford Fairmont 1. aprfl
og Simca 1302 1. júní.
Minni loðna
en i fyrra
Sama deyfðin var á
loðnumiðunum fyrir austan
s.l. sólarhring og verið hef-
ur að undanförnu. Veður
var slæmt og veiðin litil
sem engin.
I morgun höfðu fimm
bátar tilkynnt loðnunefnd
um afla eftir nóttina. Held-
ur var það rýr afli,eöa lið-
lega 800 lestir.
Um siðustu helgi var alls
búið að veiða 256 þúsund
lestir af loðnu, sem er 90
þúsund lestum minna en á
sama tima i fyrra, en þá
hafði verið landað 346 þús-
und lestum.
Mestu hefur nú veriö
landað á Seyðisfirði, 35.897
lestum. Siglufjörður er i
öðru sæti með 33.249 lestir,
en á Eskifirði hefur verið
landað 31.419 lestum.
Alls hafa 72 bátar fengið
einhvern afla á vertiðinni
til þessa. A vertiðinni i
fyrra voru 80 bátar komnir
á skrá á sama tima.
— klp —
Nýtt smáauglýsingahappdrœtti að hefjast sjá bis. 5