Vísir - 28.02.1978, Page 6
6
BJÖRIMIIMN
uy Njólsgötu 49 - Sími 15105 1
rr t— —
|TI«t A FIIhRI KM
fcg undirritaður óska að gerast áskrifandi að \ ÍSi. C í A11 m i 'i 13 Q
N'afn jioumuia o P.O.Box 1426 101 Reykjavik
lleimilisfang
Sveitarfél./Sysla r
Sfmi Nafn-nr. SIMI 86611
PASSAMYIVDIR s
feknar í litum
tilbunar strax I
barna & flölskyldu
LJOSMYNDIR
AUSTURSTRÆTI 6 S.12644
Léttar -
meðfærilegar
viðhaldslitlar
VATNSl
DÆLUR
Ö Þ. ÞORGRÍMSSI
'Armúla 16 * F leykjavík
o jg/
slipivélar vibratorar sagarbluð steypusagir
þjöppur
bmdmrsrullur
★ Athugið ★
Tiskupermanent-klippingar og
blástur (Litanir og hárskol).
Nýkomnir hinir vinsœlu
mánaðasteinar, með
sérstökum lit fyrir
hvern mánuð
Ath. Fást
aðeins hjá V/ VJHgjpf/ Skjótum
okkur \ /ZÆ?p9Öt í eyru i
á
sársaukalausan i
hátt i
MUNIÐ
SNYRTIHORNIÐ
Hárgreiðslustofan
LOKKUR
Strandgötu 1-3 (Skiphól)
Hafnarfirði, sími 51388.
.............iiiiiiiiiiiiiúiiiiiiiiiiiiii
VARIÐ YKKUR! RÚSSARNIR
KOMA! RÚSSARNIR KOMA!
■>
Hundrað dögum eftir
að Anwar Sadat forseti
flaug til Jerúsalem i
leitað friði virðist deila
Araba og ísraela jafn-
LURIE’S OPINION
Sadat valtur á
friðarstólnum
fjarri lausn og áður og
Sadat litlu bættari
nema ef siður væri.
Hann hefur dalað i áliti
jafnvel i augum vina
sinna i hinum Araba-
löndunum.
Egypskir fjölmiðlar hylltu
hann sem friðarpostula og
bandarisk timarit völdu hann
mann ársins, þegar hann flaug
til ísraels 19. nóvember öndvert
við vilja sumra leiðtoga Araba
sem kölluðu hann svikara fyrir
bragðið.
En jafnvel þeir Arabar sem
studdu friðarumleitanir Sadats
telja nú margir að hann hafi
klúðrað málinu, eins og Egyptar
klúðruðu „björgunarað-
gerðinni!” á Larnaca-flugvelli
fyrir viku. Það frumhlaup varð
til þess að skopteiknararblað-
anna i Beirút hafa dregið Sadat
sundur og saman i háði siðan.
I þessum heimshluta þar sem
hverjum og einum er svo sárt
um virðingu sina út á við að
hann setur hana öllu ofar gera
þessar skopteikningar Sadat
meiri skaða en jafnmargir
leiðarar hefðu megnað.
Eitt vinstriblaðið birti skop-
mynd af figúru sem undrunin
uppmáluð spyr aðra: „Hvað
þýðir vikingasveit?” Svarið:
„Það er hópur manna sem
gengur um i einkennisbúningi
berandi vopn og fremur sjálfs-
morð!” — Þetta dæmi gefur
nokkra hugmynd um i hvaða
ljósi þeir i Austurlöndum nær
skoða björgunaraðgerð Egypta
og úrvalsliðið sem sent var til
Kýpur.
Leiðarahöfundar hafa látið þá
skoðun i ljós að þessi forsending
I hafi verið ákveðin til þess að
fægja ögn glansinn á Sadat þvi
að hann hafði farið mjög dofn-
andi. Einskonar eftirliking af
árás tsraelssveitanna á
Entebbe-flugvöllinn fyrir tveim
j árum sem vakti margra aðdáun
I fyrir hugdirfsku og garpsskap.
Ummæli Andrews Young
sendiherra Bandarikjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum á dögun-
um þóttu gefa visbendingu um
að bandamenn Sadats forseta i
Washington væru ekki of vissir
um, hversu óhætt mundi að
reiða sig á stjórn hans. — Young
lét svo ummælt að hann teldi
Carter Bandarikjaforseta hafa
afráðið að selja Egyptalandi
fimmtiu F-5orrustuþoturaf ótta
við að bylting vofði yfir i Kairó.
„Það eina sem Bandarikjun-
um og ísrael stafar hætta af um
þessar mundir væri sá mögu-
leiki aðSadat yrði velt úr stóli af
sinum eigin her,” sagði Young.
,,Og ég held að það hafi verið
ástæðan fyrir þvi að Carter lét
undan og lofaði Égyptum flug-
vélunum.”
Raunar var þessi eftirgjöf
Carters litið annað en mála-
myndar sýndarmennska. Þess-
ar F-5 þotur sem nota má
báðum höndum til
sprengjuárása sem til loft-
orrusta eru smiðaðar eftir 25
ára gömlum teikningum, og
þotuflugmenn á Vesturlöndum
segja þær vita gagnslausar
gegn t.d. flugflota Israels.
Sjálfur kallaði Sadat þær
„tiunda flokks” vöru en hafði
raunar áður lýst þvi yfir að
hann ætlaði ekki að nota
vélarnar gegn ísrael heldur
þyrfti hann þeirra með vegna
„aukinnar ábyrgðar” sinnar i
Afriku.
Það eru eins og mörg önnur
ummæli stjórnmálamanna, sem
vilja segja sem allra minnst
meðsem ábúðarmestu orðalagi.
Ef mennleitaskýringaá þessari
auknu ábyrgð Egypta i AfrEku i
afskiptum þeirra af málefnum
annarra landa i Afriku kemur
auðvitað fyrst i hug nýliðinn at-
burður, þegar ýfirvöld Kenya
kyrrsettu egypska flutningavél
sem var á leið með nitján smá-
lestir af skotfærum til hersveita
i Sómaliu en þær berjast við
Eþi'ópiuher i Ogaden-eyðimörk-
inni. Eins menn vita styðja
Sovétmenn Eþiópiustjórn. —
Eftir þvi sem Kenyastjórnsagði
hafði egypska vélin ekki leyfi til
þess að fljúga yfir lofthelgi
Kenya að minnsta kosti ekki.
til hergagnaflutninga. En stjórn
Sadats svaraði fyrir sig með þvi
að kyrrsetja eina Kenyaflugvél i
Kairó og neyða aðra til lending-
ar.
Má vera að Sadat telji sig
þurfa orrustuþotur til þess að
fylgja herflutningavélum sinum
á leiðarenda i Afriku. Eða til
enn róttækari aðgerða eins og
Larnaca-ævintýri sem lyktaði
með þvi að fimmtán egypskir
hermenn lágu i valnum stjórn-
málasamband Egyptalands og
Kýpur var rofið og kaldar
kveðjur sendar á milli. Sadat
kallaði Spyros Kyprianou for-
seta Kýpur, „pólitiskan dverg”.
Sömu nafngift gaf hann
leiðtogum fjögurra Arabarika
þrem mánuðum fyrr, þegar
þeir hittust i Tripóli ásamt
leiðtogum Palestinuaraba til
þess aðárétta andstöðu sina við
friðarumleitanir hans við
ísrael. I yfirlýsingu Tripóli-
fundarins var talað um að
„frysta” samskiptin við
Egyptaland. Þar var ekki talað
um að rifta algerlega samband-
inu og fólst i þvi augljós tilraun
til þess að skilja eftir opna gátt
til málamiðlunar. Áður en
margar klukkustundir höfðu
liðið hafði egypski leiðtoginn
rofið stjórnmálasambandið við
þessa aðila um leið og hann fór
um þá háðulegum orðum.
Diplómatisk lipurð virðist
Sadat ekki gefin nema I litlum
mæli og málamiðlunarmaður er
hann enginn. Það sést best á til-
boðunum, sem hann hefur gert
ísrael til friðarsamminga en
þar hefur hann i engu slakað til
frá fyrri kröfum Araba né lagt
neitt nýtt til. Vart höfðu við-
ræðunefndir Egypta og Israels
fyrr sest við samningaborðin til
þess að hef ja viðræður en hann
missti þolinmæðina og kallaði
sina fulltrúa heim til Kairó þeg-
ar honum fannst Israel ekki
slaka nógu til.
Andstæðingar Sadats hafa
hlakkað yfir þvi hve litið hann
hefur uppskorið i þessum
friðartilraunum sinum. Þeir
segja: „Hvað sögðum við ekki?
Hver hefur nokkurn tima fengið
júðana til þess að láta nokkuð af
hendi án þess að fá eitthvað enn
meira i staðinn?”
Kremlstjórnin hefur álengdar
beðið átekta framvindu máls-
ins. Þeirhafaboðið leiðtogunum
af Tripólifundinum til Moskvu
og styðja þá með ráðum og dáð.
Það birtist til dæmis i auknum
vopnasendingum frá Sovét-
rikjunum til Sýrlands sem tekið
hefur við forystuhlutverki i
andstöðunni við Sadat og nýtur
fjárhagsaðstoðar Libýu til.
Rússar prédika að taka eigi
aftur upp viðræðurnar frá þvi á
Genfarráðstefnunni 1973 um
málefni Austurlanda nær, en
þar sátu þeir i forsæti með
Bandarikjamönnum. Þeir segja
að ferð Sadats til Jerúsalem
hafi verið viðleitni til þess að
taka fyrir áhrif þeirra á friðar-
viðræðurnar.
I þessu andrúmslofti er farið
að grilla aftur i þann ófriðar-
neista sem örlaði á áður en Beg-
in forsætisráðherra Israels bauð
Sadat til Jerúsalem en þá var
altalað að nýtt strið i Austur-
löndum nær yrði vart umflúið.