Vísir - 03.03.1978, Blaðsíða 3

Vísir - 03.03.1978, Blaðsíða 3
* * 4 3 VISIR Föstudagur 3. mars 1978 œskulýðsfélaga Ársfundur æskulýðsfélaga i Reykjavik var haldinn á dögun- um i félagsmiðstöðinni Fellahelli, . en Æskulýðsráð Reykjavikur gengst fyrir fundi þessum. Ársfundurinn var settur af for- manni æskulýðsráðs, Davið Oddssyni, en að loknu ávarpi hans fluttu Steinþór Ingvarsson, Skátasambandi Reykjavikur, og Eirikur Ingólfsson, Skólafélagi Menntaskólans' við Sund, fram- söguræður um aðalefni fundar- ins: Staða og starf frjálsra æsku- lýðsfélaga i Reykjavik. Umræðuhópar fjölluðu nánar um þetta efni, og studdust þar við ársskýrslur félaga, sem lagðar höfðu verið fyrir fundinn. eru öðruvísi - Frá almennum umræðum ársfundar Æskulýðsfélaga. Hinrik Bjarnason, framkvæmdastjöri Æskulýðsráðs Reykjavikur i ræðustól. Fjölluðu um stöðu frjalsra BETRA SEINT EN ALDREI Loksins er hún komin „splunku" ný tólf laga plata \ I \ i herbert guðmundsson með Herbert Guðmundssyni Hér syngur Herbert tólf gullfalleg og melódísk eigin lög, við undirleik einnar fremstu hljómsveitar i dag, hljómsveitarinnar Eik. Herbert hefur mikla reynslu að baki sem söngvari með Tilveru, Eik og Pelican. Hann hefur mótast i að verða prýðis söngvari og lagasmiður. Hér er ó ferðinni plata sem enginn pop, rock eða country unnandi mó missa af. (Einnig fóanleg ó kassettum) FALKINN Urskurður kiaranefndar varðandi starfsmannafélög BSRB: Litlar breytingar Kjaranefnd hefur nú úrskuröað í málum sem 16 starfsmannafélög ríkis og bæja hafa skotið til hennar vegna sérkjara- samnings þeirra við hið opinbera. ! aðalkjarasamningi sem Bandalag starfsmanna rikis og bæja gerði við fjármálaráð- herra s.l. haust er svo mælt að við röðun starfa i launaflokka skuli höfð hliðsjón af áður gerð- um samningum. Frá þessári reglu megi þó vikja ef ástæða er til vegna samanburðar við kjör á almennum vinnumarkaði. Samkvæmt þessum Urskurði verða mjög takmarkaðar breyt--" ingar á röðun i launaflokka i heild og öðrum atriðum sér- samninga. Helstu breytingar á launum eru þær að þeir sem eru i lægstu launaflokkum i Póst- mannafélagi Islands hækka um einn launaflokk enda hafi þeir nám frá Póstskólanum. Lang- mest varð hækkun hjá hjúkrun- arfræðingum en þeir fengu launaflokkshækkun. Einnig varð breyting á stigagjöf sem veldur þvi að þeir færast örar upp launastigann en áður og er talið að það samsvari um hálfs til eins launaflokks hækkun. Þá fá hjúkrunarfræðingar hærra gæsluvaktarkaup hlutfallslega en aðrar stéttir. Einnig fengu ljósmæöur hækkun um einn launaflokk. Kennarar með réttindi ekki lægri en í 13. flokki. Þá úrskurðaði kjaranefnd lögreglumönnum hækkun um einn launaflokk og er það gert vegna fyrirheita. fjármálaráð- herra þar að lútandi. Athygli yekur að lægstu laun sem lög- reglumenn fá eru samkvæmt 9. flokki en lægstu laun tollvarða hins vegar samkvæmt 7. flokki Helstu breytingar á kjarasamn- ingi kennara við grunnskóla eru þær að enginn kennari með full kennsluréttindi verði i lægri flokki en 13. launaflokki en ákvæði þess efnis voru reyndar i aðalkjarasamningi. Ennfremur verða kennarar sem eru i lægri flokki en 15. ekki lengur en 4 ár i hverjum flokki. Það er óvist hvað úrskurður kjaranefndar hefur i för með sér fyrir félaga i Starfsmannafélagi rikisstofnana. Það fór fram á það að röðun i launaflokka yrði háð skilgreiningum á störfum eöa starfsiýsingu. Hefur kjara- nefnd gert þessa lýsingu fyrir hvern launaflokk. Ekki hefur verið ennþá raðað i störf sam- kvæmt þessum lýsingum en ekki er búist við þvi að þar verði miklar tilfæringar. Samanburður við önnur lönd ákvarði ekki laun. Starfsmenn hjá útvarpi og sjónvarpi fengu litla hækkun sinna launa samkvæmt úrskurði kjaranefndar. Mál þeirra á sér nokkurn aðdraganda. Haustið ’76 fóru starfsmenn hjá sjón- varpinu i verkfall. Mennta- málaráðherra leysti þá deilu með þvi að skipa nefnd til að gera samanburð á stöðu starfs- manna rikisútvarpsins i launa- kerfi opinberra starfsmanna á Islandi, Noregi og Danmörku. Menntamálaráðherra tók það fram að hann mundi beita sér fyrir þvi að tekið yrði mið af niðurstöðum nefndarinnar við meðferð kjaramála. Starfsmannafélag rikisút- varpsins setti fram kröfur um röðun i launaflokka á grundvelli athugunar þessarar nefndar. I úrskurði kjaranefndar segir að fyrir nefndina hafi það komið fram að fjármálaráðherra hefði hvorki fallist á þessa nefndar- skipun né samþykkti hann að taka bæri tillit til skýrslu nefnd- arinnar. Jafnframt mótmælti fjármálaráðherra sérstaklega að tekið yrði mið af samanburði við önnur lönd við ákvörðun launa og krafðist óbreyttrar rööunar i launaflokka. Kjaranefnd féllst á kröfu fjár- málaráðherra og úrskuröaði starfsmonnum rikisútvarpsins óbreyttri röð i launaflokka aö frátöldum einstaka tilfærslum. — KS, Segja ekki upp samningum Stjórn Skipstjórafélags Norðlendinga hefur sam- þykkt að segja ekki upp gildandi kjarasamning- um og mun félagið ekki taka þátt i fyrirhuguðum verkf allsaðgerðum. í þessari samþykkt segir að hún sé byggð á niðurstöðu víðtækrar skoðanakönnunar meðal starfandi félagsmanna. Stjórnin mótmælir þeirri fullyrðingu forseta FFSÍ sem fram hefur komið í f jölmiðlum,að FFSi muni að fullu taka j-átt í öllum fyrirhuguðum mótmæla- aðgerðum vegna efna- hagsráðstaf ana ríkis- stjórnarinnar. — ks.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.