Vísir - 03.03.1978, Blaðsíða 12
12
Föstudagur 3. mars 1978
vism
„Gamaldags" hurðir
Nýjar hurðir með gam-
aldags útliti.
Breytum gömlu hurð-
unum i ,,gamaldags”
með fullningum að yð-
ar óskum. Munstur og
viðarliki 42 tegundir.
Sýnishorn á staðnum.
Brunas:
EGILST ÖÐUM
FDRMCD SF
gF- w Skipholt 25 — Reykjavik —
Simi 24499
Nafnnr. 2367 — 2057.
~'F!
IW* I
Lœrið vélritun
Ný námskeið hefjast þriðjudaginn 7.
mars. Kennsla eingöngu á rafmagns-
ritvélar, engin heimavinna.
Innritun og upplýsingar i sima 41311
eftir kl. 13.00.
Vélritunarskólinn
Suöurlandsbraut 20
Hljóðfæraleikarar
Aðalfundur Félags íslenskra hljómlistarmanna
verður haldinn í Lindarbœ, laugardaginn 11.
mars kl. 13.15
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tekin ákvörðun um jarðarkaup Orlofs-
heimilissjóðs.
3. Samningar við Rikisútvarpið — Sjón-
varp (viðauki).
4. Samningar við íslandsdeild Alþjóða-
sambands hljómplötuframleiðenda.
5. Önnur mál.
Stjórnin.
Aðalfundur
Kennaradeildar F.Í.H.
verður haldinn strax að aðalfundi F.í.H.
loknum. Fundarefni: Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Stjórnin.
Ritari
Landbúnaðarráðuneytið óskar eftir að
ráða ritara. Góð vélritunarkunnátta nauð-
synleg. Umsóknir sendist landbúnaðar-
ráðuneytinu fyrir 8. mars n.k.
Prófkjör Sjálfstœðismanna
í Reykjavík um helgina:
Atta
þúsund
þurfa að
kjósa svo
úrslitin
verði
bindandi
í prófkjöri Sjálfstæðis-
manna fyrir borgar-
stjórnarkosningarnat;
sem fram fer á morgun,
sunnudag og mánudag,
verður kosið um 39
manns. í kjöri eru 30
karlar og níu konur og af
þessum hópi gáfu 18 kost
á sér til próf kjörsins en 21
er tilnefndir af uppstill-
ingarnef nd.
Allir borgarf ulltrúar
Sjálfstæðisflokksins taka
þátt í prófkjörinu, en sem
kunnugt er hafa Sjálf-
stæðismenn á að skipa niu
borgarf ulltrúum af 15.
Sömuleiðis eru allir vara-
borgarfulltrúar flokksins
með í prófkjörinu, nema
Úlfar Þórðarson læknir.
Þar fyrir utan tóku f jórir
á listanum núna þátt í
prófkjörinu 1974 en 17 ný-
liðar verða í kjöri núna.
Frambjóðendur hafa
að undanförnu unnið að
undirbúningi prófkjörs-
ins með sínu stúðnings-
fólki. Mikið hefur verið
um útgáfu bæklinga og
dreifibréfa og eftir því
sem Vísir kemst næst
hafa um 15 frambjóð-
endur sent út bækling
og/eða dreif ibréf. Margir
vinna þannig vel að kynn-
ingu á sjálfum sér og
þeim málaflokkum sem
þeir munu einkum beita
sér fyrir nái þeir kjöri í
borgarstjórn, en litið
virðist vera um baráttu
innbyrðis milli frambjóð-
enda.
Núverandi borgarfull-
trúar Sjálf stæðisf lokks-
ins eru Birgir ísleifur
Gunnarsson, Albert Guð-
mundsson, Ólafur B.
Thors, Markús Örn
Antonsson, Elín Pálma-
dóttir, Magnús L. Sveins-
son, Ragnar Júliusson,
Páll Gíslason og Davíð
Oddsson.
Varamenn fiokksins í
borgarstjórn eru Úlfar
Þórðarson, Valgarð
Briem, Margrét Einars-
dóttir, Sveinn Björnsson
iðnaðarverkf ræðingur,
Sveinn Björnsson kaup-
maður, Hilmar Guð-
laugsson, Sigríður Ás-
geirsdóttir, Bessí Jó-
hannsdóttir og Gústaf B.
Einarsson.
Bindandi úrslit
Til þess að úrslit geti orðið
bindandi fyrir kjörnefnd þarf
fjöldi þeirra sem þátt tekur i
prófkjörinu að nema minnst
30% af kjörfylgi Sjálfstæðis-
flokksins við siðustu borgar-
stjórnarkosningar eða minnst
8.092. Auk þess þurfa einstakir
frambjóðendur að hljóta minnst
50% greiddra atkvæða til þess
að kosning þeirra verði bind-
andi.
1 prófkjörinu árið 1974 tóku
þátt 8.470 manns. Þá hlaut Birg-
ir tsleifur Gunnarsson borgar-
stjóri flest atkvæði eða 7.776
sem eru liðlega 91%. Næst komu
Albert Guðmundsson, Ólafur B.
Thors, Markús Orn Antonsson
og Elin Pálmadóttir. Þessi
fimm fengu meira en helming
atkvæða og úrslit þvi bindandi
hvað þau varðaði.
Kosningin
Kosningarétt hafa allir
stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins i borgarstjórnar-
kosningunum, sem náð hafa 20
ára aldri 28. mai 1978 og áttu'
lögheimili i Reykjavik 1. des.
siöast liðinn. Einnig eiga at-
kvæðisrétt allir meðlimir Sjálf-
stæðisfélaganna sem áttu lög-
heimili i borginni 1. des. Vakin
er sérstök athygli á að prófkjör-
ið er opið óflokksbundnum
Sjálfstæðismönnum ekki siður
en flokksbundnum.
Á atkvæðaseðlinum er nöfn-
um frambjóðenda raðað eftir
stafrófsröð Kjósa skal átta
frambjóðendur að minnsta kosti
og ekki fleiri en 12. Er það gert
með þvi að setja kross fyrir
framan nöfn frambjóðenda sem
kjósandi vill að skipi endan-
legan framboðslista.
Á meðan kosning stendur yfir
er starfrækt sérstök upp-
lýsingamiðstöð og þar eru veitt-
ar allar upplýsingar um próf-
kjörið. Siminn er 82900.
Kjörstaöir
Kjörhverfin eru sjö talsins og
verður kosið á eftirtöldum
stöðum: i KR-heimilinu við
F'rostaskjól, Grófinni 1,
Templarahöllinni við Eiriks-
götu, Samkomusal Kassa-
gerðarinnar við Kleppsveg,
Valhöll Háaleitisbraut 1, Coca
Cola Draghálsi og i‘ húsi Kjöts
og fisks að Seljabraut 54.
Á morgun, laugardag og á
sunnudag verða kjörstaðir opnir
frá klukkan 14-19. A mánudag-
inn verður kjörstaðurinn i Val-
höll opinn frá klukkan 15,30-
20,30 og lýkur kosningunni þar
með.
Að lokum skal það tekið fram
að nemi þátttaka i prófkjörinu
30% eða meira af kjörfylgi
flokksins við siðustu borgar-
stjórnarkosningar er kjörnefnd
skylt að birta opinberlega upp-
lýsingar um úrslit i prófkjörinu
að þvi er tekur til 12 efstu sæt-
anna.
—SG