Vísir - 03.03.1978, Síða 18
18
VTSIR
Ff
Mœffv vera
- litið inn á
bókamarkaðinn
I Iðnaðar*
mannahwsinu
tvisvar á ári"
„Það er heilmikið aí
bókum eftir góða
höfunda hérna, en einna
mest er keypt af þjóð-
legum fróðleik og ævi-
sögum. Og ljéðabækur
held ég að seljist óviða
eins og hér”, sagði
Jónas EggertseíM sem
ásamt Lárusi Blöndal
Magnea Jónasdóttir og Auöur Björg Ingadóttir:
//Vildum geta keypt 10-20 bækur."
I | —
Tugir bóka seljast upp
Geysimargir hafa komiö á bókamarkaðinn í Iðnaðarmannahúsinu og tugir bóka
selst upp.
„Það er gott verð á mjög mörgu
og það má fá ósköp af innbundn-
um bókum innan við þúsund
krónur”, sagði Jónas. Nú þegar
hafa tugir bóka selst upp að hans
sögn og seldust reyndar margar
upp á fyrstu dögum.
Hvað fólk kaupir mikið? „Það
er mjög misjafnt, en sumir kaupa
heilan kassa af bókum.”
Meðal bókanna má sjá verk eft-
irHamsun, Heinesen, Hans Kirk,
Gorki, Laxness og ýmsa fleiri.
Heilmikið er af barna- og
unglingabókum,og við þaðborðið
hittum við Magneu Jónasdóttur
12 ára og Auði Björgu Ingadóttur
13 ára.
,,Ég hef komið á bókamarkaði
tvisvar eða þrisvar áður,” sagði
Auður en Magnea kvað þetta vera
Jón S. Jónasson: /,Betri en
áður."
i fyrsta sinn sem hún kæmi. „Við
erum búnar að kaupa Mary
Poppins snýr aftur og Mary
Poppins i Lystigarði.Við kaupum
kannski fleiri en við höfum bara
svo litinn pening. Jú, við höfum
séð margar spennandi bækur og
vildum helst geta keypt svona tiu
til tuttugu bækur.”
Tvisvar á ári
Hildur Hermóðsdóttir:
,, Aðallega á höttunum eftir
Ijóðabókum og íslenskum
skáldsögum." Ljósm.
Jens.
Jón S. Jónasson var kominn
með um tuttugu bækur sem hann
ætlaði að kaupa. „Jú, mér virðast
vera nokkuð góðar bækur hérna
núna, og ég er ekki frá þvi að þær
séu kannski betri en oft áður. Ég
er með skáldsögur hérna aðallega
fyrir mig og konuna. Meðalverð?
Ætli þaðsé ekki um þúsund krón-
ur bókin. Jú, ég vildi gjarnan að
bókamarkaðir væruoftar og hefði
ekkertá móti þvi að þeir væru að
minnsta kosti tvisvar á ári”,
sagði Jón.
Hildur Hermóðsdóttir nemi tók
i sama streng, og sagði að bóka-
markaðir mættu gjarnan vera
oftar. „Ég sæki þá yfirleitt alltaf
og býst við ég kaupi tiu bækur
núna. Nei mér finnst bækurnar
ekki nógu góðar að minnsta kosti
ekki það sem ég hef séð núna, en
ég á nú eftir að lita betur- yfir
þetta.”
,,Ég er aðallega á höttunum
eftir ljóðabókum og skáldsögum
eftir islenska höfunda en er ekki
nógu ánægð með það sem ég hef
séð. En verðið finnst mér mjög
gott. Það mættu lika gjarnan vera
fleiri nýjar bækur hérna.”
sér um bókamarkaðinn
sem nú stendur yfir i
Iðna ðarmannahúsinu.
Þessum átjánda bókamarkaði
útgefenda sem haldinn er, lýkur
reyndar um helgina og þá hafa
selst ógrynni bóka enda aðsókn
mjög góð. ,,Um siðustu helgi var
hér óhemju mikið af fólki”, sagði
Jónas, „en þegar mest er, eru hér
hundruð manna inni i einu. Nei,
við höfum aldrei þurftað loka, en
það lá við einu sinni þegar við
vorum með markað i Glæsibæ.
Aðsóknin er mest fyrstu dagana,
minnkar siðan aðeins, en undir
lokin íjölgar svo mikið aftur.”
Jónas sagði að fólk á öllum
aldrikæmi á bókamarkaðinnogá
ávisunum mætti sjá að fólkkæmi
fráKeflavik, Arnessýslu ogviðar.
Eina konu vissi hann um sem
kom gagngert frá Neskaupstað til
þess að fara á bókamarkaðinn.
Fólk kemur þó aðallega utan af
landi til þess að kaupa bækur fyr-
ir söfn.