Vísir


Vísir - 15.03.1978, Qupperneq 3

Vísir - 15.03.1978, Qupperneq 3
VISIR Miövikudagur 15. mars 1978 Varnarliðið og AWACS-ratsjórþoturnar: Fiölgun í lið- inu eins lítil og mögulegt er Ljost er. að eitthvað verður að íjölga i varn- arliðinu á Keflavikur- flugvelli i haust þegar ratsjárþoturnar tvær verða teknar i notkun. Aðallega verður þarna um að ræða tækni- menn, en óliklegt er að nokkrir íslendingar verði i þeim hópi þar sem störf þessara manna eru háð hernað- arleynd. Aö sögn blaðafulltrúa varnar- liðsins, Howard Matsons, er stefnt að þvi að fjölga eins lítið i iiðinu og mogulega er haegt að komast ai með Islensk stiórnvöld \eittu í síð- ustuviku endanlegt leyfi sitt til þess að varnarliðið a Keflavik- urflugvelli fengi i flugflota sinn tvær fullkomnar ratsjárþotur, og koma þær til landsins i októbermánuði i haust, eins og Visir skyrði frá i gær. Viðræður höfðu farið fram um endurnyjun flugflotans og bætta ratsjárþjónustu á hafinu i kringum Island. meðal annars þegar Einar Agústsson utan- rikisráðherra var á ferð vestan haft f fyrrahaust. Eins og fram kom i Visi i gær, kosta ratsjárþoturnar tvær um 50 milljarða islenskra króna, eða sem nemur tæpum helmingi af fjárlögum íslenska rikisins. Rekstrarkostnaður þeirra er auk þess mjög mikill. Þessi mynd sýnir að hluta til tækjabúnaö þann sem er um borö i nýju ..ratsjárstöövunum fljúgandi", sem koma til islands i október. Sautján manna áböfn er i þessum vélum og sitja flestir þeirra viö einhver flókin og fullkomin tæki. Vélunum er ekki aöeins ætlaö aö tilkynna utn óvinveittar flugvélar, heldur einnig ætlaö aö stjórna ferö- unt eigin orrustuflug% éla og leiöbeina þeim I skotfæri. V' Sýna mynd um jarð- skjólfta- spór og varnir Siðdegis i dag verður sýnd á vegum Háskólans og Upplýs- ingaþjónustu Bandarikjanna ný bandarisk kvikmynd um jarðskjálftaspár og jarð- skálftavarnir. I myndinni er greint frá nýjum uppgötvun- um sem geta leitt til þess að unnt verði að segja fyrir um jarðskjálfta. Einnig er fjallað um leiðir til þess aö koma i veg fyrir tjón i jarðskjálftum. Sýningin fer fram i stofú 158 i húsi Verkfræði- og raunvís- indadeildar viö Hjarðarhaga og byrjar kl. 17:15. öllum er heimill aðgangur en sérstak- lega eru þó jarðvisindamenn og byggingaverkfræðingar hvattir til aö sjá þessa mynd. Tvœr doktorsvarnir í Háskólanum fyrir páska Nú fyrir páska fara fram tvær doktorsvarnir við heimspeki- deild Háskóla Islands. Laugardaginn 18. marz 1978, kl. 14.00,mun George Houser, M.A. rithöfundur frá Winni- peg, verja ritgerð sina, Saga hestaiækninga á islandi, sem heimspekideild hefur metiö hæfa til varnar við doktors- próf. Andmælendur af hálfu heimspekideildar verða dr. Bo Almquist, prófessor i þjóð- sagnafræði við háskólann i Dublin, og Arni Björnsson, cand. mag. Miðvikudaginn 22. marz 1978, kl. 14.00, mun Gunnar Karlsson, cand. mag., lektor i sagnfræði viö Háskóla Is- lands, verja ritgerð sina, Frelsisbarátta Suöur-Þingey- inga og Jón á Gautlöndum, sem deildin hefur metiö hæfa til varnar við doktorspróf. Andmælendur af hálfu deildarinnar verða Bergsteinn Jónsson, lektor og dr. Björn Sigfússon, fyrrv. háskóla- bókavörður. Doktorsvarnirnar fara báð- ar fram i hátiðasal Háskóla tslands. Vantar halfa milljón-eða meira ? Með IB-lánum Iðnaðarbankans opnast nýir möguleikar á að tryggja sér lán þegar á þarf að halda. Ef þú vilt spara um lengri eða skemmri tíma skuldbindur bankinn sig til að lána jafnháa upphæð og þú hefur lagt inn að tímabilinu loknu. Samaupphæð er lögð til hliðar mánaðarlega. Sé tíma- bilið 2 - 4 ár og stefnt að háu láni gefst kostur á IB-veðláni. Sé hins vegar stefnt að láni eftir 6 eða 12 mánuði er um IB-lán að ræða. Athugum nánar þá möguleika sem í því felast. Ákveðin upphæð er lögð inn á IB-reikning í Iðnaðarbankanum í 6 eða 12 mánuði. Sé um 6 mánaða sparnaðartímabil að ræða er hámarksupphæð mánaðargreiðslu 20.000 kr.; annars 30.000 kr. Hverjir eru möguleikarnir séu t.d. lagðar inn 20.000 kr. í 12 mánuði? Við lok tíma- bilsins er búið að spara 240.000 kr. Bankinn lánar jafnháa upphæð. Með vöxtum af innstæðunni verða þá til ráðstöfunar 500.580 kr. Lánið er endurgreittmeðjöfnum greiðslum afborgana og vaxta á jafn- löngum tíma og sparað var, þ.e. 12 mán- uðum. Enmöguleikarnir eru fleiri eins og sést á töfl- unni hér fyrir neðan. Vert er að athuga að upphæðirnar eru teknar sem dæmi, og velja má aðrar. Allar frekari upplýsingar veita IB-ráðgjafar Iðnaðarbankans. SPARNAÐAR TÍMABIL mánaðarleg INNBORGL'N SPARNAULRf LOK TfMABJLS IONAÐARBANKINN LÁNAR RÁÐSTÖFL'NARFf: MÁNAfiARLEG ENfil'R ENIH RGREIHSLA 1 GREIfiSLL' MEfi VÖXTLM TÍMABIL 6 10.000 60.000 60.000 122.295 10.772 J w 15.000 90.000 90.000 183.450 16.558 X man 20.000 120.000 120.000 244.590 21-^ man i 12 10.000 120.000 120.000 250.290 11.464 ; ÍO w 20.000 240.000 240.000 500.580 22.927 l£7 man 30.000 360.000 360.000 750.860 man Banki þeirra sem hyggja aö framtíðinni Iðnaðarbankinn Lækjargötu 12, Sími 20580

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.