Vísir - 15.03.1978, Page 11
vism Miðvikudagur 15. mars 1978
n
Upp er haldið i stólaiyftunni eftir
örfáa tima i skóianum.
Einn af kennurum skíðaskólans er Karolina Guömundsdóttir, sem hér
er með dótturdóttur sina og nöfnu á skiðum.
TEXTI: KJARTAN L. PALSSON
MYNDIR: MATTHÍAS GESTSSON
OG KJARTAN L. PÁLSSON
„ÞAÐ MÆTTI LÍKA
KENNA GÖNGUNA"
„Eg kunni ekkert á skiðum
þegar námskeiðið hófst og var
skelfingu lostin þegr eitthvað
hallaði undan þegar ég fór af
staö á skiðunum.”
Þetta sagði Þórlaug Baldvins-
dóttir fóstra er við hittum hana
að máii i llliðarfjalli, en þá var
hún ásamt nokkrum öðrum kon-
um að ljúka við skiðaskólann.
„Eftir aö hafa sótt þessa tima
i skólanum hef ég engan hemil á
mér á skiðunum og hræðist fátt
þegar ég er á þeim” sagöi hún.
„Næsta mál á dagskrá hjá
mér er að fá mér gönguskiði og
siðan að ganga hér um nágrenn-
ið. Þaö þarf nauösynlega að
koma þeirri grein inn i þennan
ágæta skiöaskóla. Það gerir
Iiann örugglega enn vinsælli”.
—klp—
Magnús Guðmundsson skíðakennari:
„Allt það besta
fyrir byrjendur"
Magnús Guömundsson marg-
faldur tslandsmeistarii golfi og á
skíðum og nú starfandi skiða-
kennarii Sun Valley i Bandarikj-
Hörður Sverrisson skiðakennari er hér meö f jölskyldu úr Reykjavík I
tima en þau sóttu skóiann i siðustu viku.
kennsluatriði sem væru löngu
orðin úrelt og þekktust varla
lengur.
i Hliðarfjalli um helgina hittum
við fyrir hjón úr Reykjavik, Erik
Hakansson, konu hans Bryndisi
og börn þeirra tvö Kristinn
Frantzh og Margréti Halldóru.
Bðndinn hafði lært eitthvað á
skfðum en hin sóttu öll skólann og
áttu varla orð til að lýsa ánægju
sinni með hann og allt það sem
tilheyrði Hliðarfjalli og hótelinu
þar.
Þau sögðust oft hafa hugsað um
að taka hluta af sumarfriinu yfir
veturinn og halda til Akureyrar á
skfði. Af þvi hefðu þau látið verða
i ár og eftir þvi sæu þau ekki.
Þetta hafi verið sæludagar þar
sem öll fjölskyldan hefði lært á
skiðum og verið samtaka um að
njóta útverunnar og ánægjunnar
af þvi að leika sér i hliðum Hlið-
arfjalls.
Slikt sögðu þau vera óborgan-
legt, og við sannfærðumst um að
svo væri eftir að hafa fylgst með
þeim mikla fjölda sem naut þess
að heimsækja Hliðarfjalla þessa
helgi.
—klp—
Magnús Guömundsson, skiða-
kennari i Bandarikjunum kom
með nýjar kennsluaðferðir I
Hliðarfjall.
unum — einum þekktasta skiða-
stað heims- er sá sem komið hef-
ur með nýtt blóð í skiðaskólann i
Hiiðarfjaili i vetur.
Magnús fékk fri hjá þeim i Sun
Valley i vetur. Kom til Akureyrar
um áramótin en heldur aftur utan
eftir páska. Hann biálfar
keppnisfólk Akureyringa á skið-
um og hefur haldið námskeið fyr-
ir kennara skíðaskólans.
Þar hefur hann komið fram
með það nýjasta á sviöi skiða-
kennslu og aðferðir hans hafa
opnað nýjan heim fyrir kennar-
ana og siðan fyrir nemendur
þeirra.
„Það er einfaldlega hægt að
kalla þessa aðferð þungaflutn-
ing” sagði Magnús er viö spjöll-
uðum við hann um helgina. „Þaö
er tekið það besta sem færasta
skiðafólk heims kemur fram með
hverju sinni og þær aðferðir ein-
faldaðar og útfærðar þannig að
þær séu öllum viðráðanlegar.
Úrvalsfólk sem
kennir hér
Það er úrvalsfólk sem kennir i
þessum skóla okkar hér i Hliðar-
fjalli. Þetta er margt fyrrverandi
keppnisfólk, sem á sinum ferli
hefur safnað i sinn eigin tilfinn-
ingabanka öllu er varðar skiöa-
iþróttina. Auk þess er það opið
fyrir öllum nýjungum, en þarf að
fá betri aðstöðu til aö kynnast
þeim.
Skiðaskóli sem þessi þarf að
vera til á öllum stöðum. Hann
skapar áhuga, og það lærir eng-
inn almennilega á skiöum nú til
dags nema að fá rétta og góða til-
sögn”.
— Hefur þú áhuga á að flytja
aftur til Islands og taka að þér
kennslu og uppbyggingu á skiða-|
aðstöðu á ýmsum stöðuml
Magnús?
— Hér áður fyrr var það minn
stóri draumur, en i dag veit ég
ekki hvað skal segja. Ég hef aftur
á móti haft mjög gaman af þvi að
koma hingað i þetta sinn og miðla
öðrum af þekkingu minni, og
vona að ég fáisem oftast tækifæri
til þess”....
—klp— I
„ÞAÐ VAR
STÓR STELPA
Á UNDAN MÉR"
Þær voru ekki háar I loftinu
eða höfðu mörg ár að baki sum-
ar dömurnar sem voru að ljúka
við skiðaskólann um helgina
með miklu skiðamóti, þar sem
keppt var i tveim flokkum.
Sú sem hlaut önnur verðlaun i
yngri flokknum var aöeins 4 ára
gömul og hún sagði okkur að
hún héti Harpa Hallsdóttir.
— Hvað var það sem þú
fékkst I verðlaun? spurðum viö:
„Ég veit ekki hvað það heitir,
það var svona stórt blað, sem
maðurinn skrifaði á.”
— Af hverju varstu ekki
fyrst?
,,Af þvi að það var stór stelpa
á undan mér”
— Ætlar þú að verða skiða-
drottning þegar þú verður stór?
„Ég veit það ekki....
Kannski”
— Er gaman að vera á skið-
um?
„Jaaahhhháháa...”
—klp—
Hún Harpa litla Halisdóttir var
ekki viss um hvort hún ætlaði að
verða skiðadrottning.