Vísir - 02.05.1978, Blaðsíða 27
vtsm
Þriöjudagur 2. maí 197H
3)
Dýrasýning
til
fjáröflunar
fyrir
dýraspítala
Fjáröflunarnefnd Dýrasplt
ala Watsons heidur hina ár-
legu dýrasýningu slna sunnu-
daginn 7. mai n.k. i Laugar-
dalshöll. Ágóða verður varið
til byggingar sjúkraskýlis fyr-
ir stórgripi.
Dýraspltali Watsons er i dag
starfræktur sem hjúkrunar-
stöð dýra, en hann er i Viðidal,
ofan við cfri Fákshúsin.
A sýningunni i Laugardals-
höll verða sýndar ýmsar dýra-
tegundir, svo sem hundar,
geitur, marsvin, 15 fuglateg-
undir, dúfur, dverghænsni,
skjaldbökur og kaninur.
Guðrún A. Siinonar vcrður
til staðar ásaint fögru iiði
katta. Fákskonur munu sjá
um kaffi og goðgæti.
Kynnir verður Gunnar
Eyjólfsson, leikari og Guð-
mundur Guðmundsson, búk-
talari mun koma fram.
Félag áhugamanna um
dúfnarækt i Kópavogi verður
með á þessari sýningu en það
er nýstofnað félag.
Frá Fáksheimilinu viö
Elliðaár verður mörg hundruð
manna hópreið. A sýningunni
gcfst yngstu borgurunum
tækifæri til að komast á hest-
bak. Einnig vcrða sýndar
hlýðniæfingar mcð liundum og
margt fleira.
Kröfluskýrslan um kaupin á aflvélunum í Kröfluvirkjun:
Höfðu litlar upplýsingar
er vélarnar voru keyptar
A árunuin 1975 og 1976 voru bor-
aöar 9 vinnsluholur á Kröflu-
svæði, 1250-2200 metra djúpar.
..Vinnsluboranir sýndu, að
Kröflusvæðið er flóknara að innri
gerð en önnur þekkt jarðhita-
sva'ði i heiminum. Fyrir hcndi
eru tvö jarðhitakerfi, efra kcrfi
ofan við 900-1100 m dýpi, 220 C
heitt og neðra kerfi neðan viö
1100-1500 m 320-340 C heitt.
Neðra kerfið er liklega i suðu og
hitastig þess með þvi hæsta, sem
mælst hefur á jarðhitasvæðum.
Vegna hins háa hita er komið út
fyrir þekkingarmörk jarðefna-
fræðilegra eiginleika jarðhita-
vökvans,” segir i Kröfluskýrslu
iðnaðarráðherra og siðar i henni
er visað til álits sérfróðra ráð-
gjafa um virkjunarframkvæmdir
þ.á.m. Orkustofnunar.
1 febrúar 1975 ritar Orkustofnun
iðnaðarráðuneyti bréf og segir
m .a.: ,,Orkustofnun er ekki þeirr-
ar skoðunar, að svo mikillar var-
færni sé þörf við Kröflu.
Hún dregur heldur ekki i efa
nauðsyn þess að hraða virkjun
þar. Hins vegar telur Orkustofn-
un nauðsynlegt að allir aðilar
þessa máls geri sér ljóst. að þvi
fylgir áhætta að hefja byggingu
orkuvers og annarra vinnslu-
mannvirkja, áður en vinnslubor-
unum er lokið og nægjanlegt
gufumagn fengið upp á yfirborð-
ið.” Siðar i bréfinu segir Orku-
stofnun að hún telji litlar likur á
að vinnsluboranir sýni neikvæðan
árangur.
10. april 1975 var samningur um
kaupin á aðalaflvélunum undir-
ritaður. Og i skýrslu ráðherra
segir að litlar upplýsingar hafi
legið fyrir um hvaða eiginleika
aflvélarnar þyrftu að hafa er á-
kvörðun var tekin og æskilegra
hefði verið að hafa nákvæmari og
fullkomnari upplysingar um jarð
hitasvæðið við skilgreiningu á
aðalaílvélum. „
-L> A
Hestamennskan
er á uppleið — segja Fáksmenn
i athugun er að byggja fleiri
hesthús á félagssvæöi Hesta-
mannafélags Fáks i Reykjavík og
úthiuta lóðum til einstaklinga.
Þetta kemur fram i frétt frá Fáki.
Þar segir að mikill og vaxandi á-
hugi sé fyrir hestaiþróttinni og
hefi félagið ckki getað annað eft-
irspurn eftir plássi fyrir hesta á
liðnuin vetri.
Þá segir þar að miklar fram-
kvæmdir hafi orðið á svæði fé-
lagsins að Viðivöllum á siðasta
ári. Sett var upp raflýsing fyrir
framan hesthúsin og auk þess tók
h’ákur þátt i raflýsingu á Vatns-
veituvegi. Leitað hefur verið til
borgaryfirvalda um raflýsingu á
skeiðvellinum og verður byrjað á
þeim framkvæmdum i sumar. A
siðastliðnu s’umri hófust fram-
kvæmdir við að ganga frá áhorf-
endasvæði við skeiðvöllinn og var
það unnið að mestu leyti i sjálf-
boðavinnu.
Félagið rak reiðskóla i vetur
eins og undanfarna vetur og á
sumrin rekur það reiðskóla i Salt-
vik i samráði við Æskulýðsráð og
hafa um 8-900 börn sótt náms-
skeið i reiðmennsku á siðastliðnu
ári. Einnig starfrækir félagið
tamningastöð.
Firmakeppni Fáks verður
haldin að Viöivöllum laugardag-
inn 6. mai og að venju fara fram
kappreiðar á annan i hvitasunnu.
Aðalfundur Fáks var haldinn
fyrir nokkru, þar sem stjórn fé-
lagsins var kjörin. Formaður er
Guðmundur Ólafsson, en fram-
kvæmdastjóri Fáks er Bergur
Magnússon.
—KS
Stjórn Fáks og framkvæmdastjóri: Ólafur Magnússon, Jón Björnsson,
Ingi Lövdal, Bergur Magnússon, Guðmundur ólafsson, Hjördis Björns-
dóttir, Valdimar Jónsson og Gunnar Steinsson.
RANGE ROVER, árgerð ,73
Fallegur og vel með farinn. Ekinn 95.000.*
Litur gulur. Pluss sœti,- vökvastýri,- lituð gler.
Ný dekk — 8 aukadekk — dráttarkúla.
Til sýnis hjá,
Hallarmúla 7, sími 81S88.
Starfskraftur óskast á hárgreiðslustofu.
Tilvalið fyrir manneskju sem hefur áhuga
á hárgreiðslunámi.
Upplýsingar aðeins á staðnum
HÁRHÚS LEÓ
Bankastrœti 14
4