Vísir - 05.05.1978, Síða 6
ÓKEYPIS MYNDAÞJÓNUSTA
opið til kl. 7 -
Opið í hódeginu og a lougardögum kl. 9-6
M. Benz 220 D árg. '72, ekinn 600 km. á
vél. Ljósblár. Góö dekk. Útvarp Power
stýri og bremsur. Ef komast þú vilt á
kvennafar, og krækja þér i Benz. Þá
mun gefa þér þetta car, ótakmarkaðan
sjens.
Dodge Dart árg. '70 6 cyl beinskiptur í
gólfi. Rauöbrúnn, gott lakk. Verð kr.
1300 þús.. Skipti á t.d. Cortinu '72-73.
Austin Mini árg. '74 ekinn 35 þús. km.
Einn sætasti pínubill á landinu. Verð að-
eins 700 þús. Skipti á amerískum 2ja
dyra.
Chevrolet Nova árg. '70, 6 cyl. Blár.
Góður bill. Algjör útsala.
BÍLASALAN SPYRNAN
| VITATORGI
milli Hverfisgötu og Lindargötu
Símar: 29330 og 29331
i
Plymouth Duster árg. '70, 6 cyl sjálf-
skiptur, gott lakk. Sumardekk. Verð kr.
1.400 þús. Skipti á ódýrari.
Cortina árg. '68. Brúnsanseruð, gott
lakk. Stingandi sæt á kristilegu verði 300
þús.
Renault TL 12 árg. '71. Rauður, gott
lakk. Sumardekk. Útvarp. Verð kr. 750
þús.
Föstudagur 5. niaí 1978 VTSIR
Umsjón: Guðmundur Pétursson
RAÐGATAN
ffFLUG
902"
Hvers vegna sneri
kóranska farþegaþotan
við þegar hún var nær
komin yfir Atlantshafið
og ,,villtíst" alla leið til
Sovétríkjanna? Það er
spurningin sem mönnum
brennur i muna í ein-
hverri dularfyllstu gátu
sem upp hefur komið ný-
lega.
Sovétmenn hafa varist allra
frétta af þvi sem skeði eftir að
vélin kom i lofthelgi Sovétrikj-
anna. Þeir hafa sleppt flug-
stjóranum og siglingafræðingn-
um, sem þeir höfðu i viku i haldi
til yfirheyrslu. Áður höfðu þeir
fengið flugmennina til að játa að
þeir hefðu brotið alþjóðaflug-
reglur með þvi að rjúfa lofthelg-
ina.
Á leið sinni frá Sovétrikjunum
til Seoul höfuðborgar Suður-
Kóreu hafa flugstjórinn og
siglingafræðingurinn neitað að
svara þessari spurningu meðan
málið biður enn rannsóknar. —
F2n þessir aðilar eru þeir einu
sem varpað geta ljósi á málið
þvi að frásagnir farþeganna
hafa verið svo sundurlausar og
með sitt hverju móti að menn
hafa orðið litlu nær af þeim.
1 upphafi þegar Korean Air
Lines-flug nr. 902 lagði af stað
frá Paris siðdegis á leið yfir
Norðurpólinn til Seoul með 110
farþega og áhöfn innanborðs,
var allt eins og venja er tii um
farþega-og áætlunarflug. Undir
stjórn hins þrautreynda Kim
Chang Kyu (46 ára) flugstjóra,
fylgdi Boeing 707-þotan eðlilegri
stefnu yfir Norðursjóinn og
Grænland áleiðis til Ellesmere-
eyja Kanada 8.455 milna flug-
leið. Viðkoma skyldi höfð i
Anchorage i Alaska til að taka
eldsneyti en þegar vélin átti eft-
ir 3 1/2 stundar flug á þann án-
ingarstað gerði Kim flugstjóri
stórfurðulegan hlut. Hann snéri
vélinni við um 180 gráður aftur
til Evrópu.
Nokkrum klukkustundum
siðar sáu norskar radarstöðvar
hvar sovéskar herþotur fóru á
móti flugvél sem rofið hafði loft-
helgi Sovétrikjanna nærri Kola-
skaga. Þar var kóranska Boeing
707-þotan á ferðinni. Þegar
þarna var komið sögu hafði Kim
sett ,,7700”-neyðarkallskerfið
um borð i vélinni i gang.
En hvað gerðist eftir það? 1
Skýlaus svör hafa ekki heldur
fengist við þvi rúmri viku eftir
þennan atburð. Tass-fréttastof-
an sovéska segir að vélin hafi
rofið lofthelgina norðaustur af
Murmansk og hafi herþotur
verið sendar i veg fyrir hana.
Herþotur sem hafðar eru til taks
á þessum slóðum til varnar
Murmansk. Tass heldur þvi
fram að farþegaþotan hafi i
tvær klukkustundir hundsað
fyrirmæli um að lenda. Haft
hefur verið eftir Aleksei Kosyg-
in forsætisráðherra, að kór-
anska farþegaþotan hafi meira
að segja reynt ,-ið komast undan
A kortið hér fyrir ofan er merkt áætlunarleið kórönsku farþegaþot-
unnar, sem vfir Ellesmere-eyjum snéri við og flaug til Murmansk í
Sovétrikjunum.
og stinga herþoturnar af. Eftir
þvi sem Tass-fréttastofan siðan
segir var farþegaþotunn
nauðlent á isilögðu vatn
skammt frá bænum Kem
Kareliska-lýðveldinu. Tveir far-
þegar létu lifið og þrettán hlutu
meiðsli. Kosygin sagði banda-
riska sendiráðinu i Moskvu að
annar vængur vélarinnar hefði
skaðast alvarlega.
Bandariska leyniþjónustan
ljóstraði þvi upp hve radarkerfi
henni er öflugt með þvi að verða
fyrst til að skýra frá þvi að vélin
hefði verið skotin niður i Sovét-
rikjunum, eftir að hennar hafði
verið saknað i hálfan sólarhring
og skipuleggja átti leit að henni.
Skýrgreining Bandarikjamanna
á þvi sem borið hafði við var
töluvert öðruvisi en Sovét-
manna. Þeir voru vissir um að
skotið hafði verið á farþegaþot-
una en hvort það voru viðvör-
unarskot eða hvort granda átti
vélinni töldu þeir óvist. Eftir þvi
sem þeir héldu fram strax hafði
vélin ekki lent á isilögðu vatni,
heldur á herflugvelli suðvestur
af Murmansk. Hvort
skemmdirnar á vélinni stöfuðu
af skotárásinni eða af þvi að
vélinni hlekktist á i lendingu á
ókunnri flugbrautinni var nokk-
uð sem eftirlifendur úr flugvél-
inni urðu að skera úr.
Farþegarnir sem sendir voru
með bandariskri flugvél úr
Sovétrikjunum til Helsinki i
P'innlandi staðfestu að vélin
hefði orðið fyrir skotárás. Þeir
töldu sig hafa átt lif sitt að launa
flugstjóranum sem á snilldar-
légan hátt hafði bjargað þeim
með þvi að koma laskaðri vél-
inni niður á isilagt vatn. Sumir
voru of ringlaðir eftir atburðinn
til þess að geta almennilega
gert sér grein fyrir þvi hvað
gerst hafði eða til þess að geta
lýst lendingarstaðnum.
PASSAMYNDIR
teknar i litum
tilbunar strax I
bartia & flölsbyldu
LJOSMYNDIR
AUSTURSTRÆTI 6 S.12644
En hvað hafði farið svo úr-
skeiðis að farþegavélin sneri al-
veg við eftir rúmlega hálfnaða
ferð og ílaug yfir Kola-skaga
sem er Sovétmönnum sérlega
viðkvæmur vegna hernaðar-
mannvirkja og aðstöðu?
Murmansk er ekki einungis
aðalhöfn sovéska flotans á
norðurhöfum, heldur eru þar
um 900.000 hermenn og flugliðar
á skaganum.
Með þeim siglingatækjum
sem nútimatækni hefur lagt far-
þegafluginu til virtist það úti-
lokað að um villu væri að ræða. 1
fyrstu var leitað skýringar i þvi
að kóranska vélin hafi verið út-
búin eldri tækjum sem ekki
væru óbrigðul. En þvi hefur
siðan verið visað á bug þvi að
svo slök gátu þau ekki hafa
verið. Höfðu flugstjóranum og
siglingafræðingnum þá orðið á
mistök?
Það þykir alveg með ólikind-
um. Kim flugstjóri nýtur mikils
álits. Hann heíur að baki 13.000
flugstundir hjá Korean Air
Lines án nokkurs óhapps.
Einn starfsbræðra hans sagði
um hann eftir atvikið: „Kim
hefði getað flogið frá Paris til
Anchorage með bundið fyrir
augun!”
Né heldur þykir liklegt að
sovéskar orrustuþotur sem hafa
þeim daglegu skyldum að gegna
i loftvarnarkerfi Sovétmanna að
fylgjast með flugi NATO-véla
taki upp hjá sér að ráðast á far-
þegaflugvél sem er i föstu
áætlunarflugi jafnvel þótt hún
villist inn i sovéska lofthelgi.
Boeing 707 farþegaþota verður
ekki tekin i misgripum fyrir
neina herflugvél. Með rækilega
merktum einkennisstöfum
hennar var hægur vandinn að fá
upplýst hjá flugstjóranum i álf-
unni hvaða fugl var þarna á
ferð. Sérstaklega þegar vaknað
höfðu áhyggjur af þvi hvað orðið
hafði um hana.
Meðan flugstjórinn hefur ekki
varpað ljósi á málið, hafa menn
hallast að einni skýringu sem
nærtækastri. Nefnilega að flug-
ræningjar hafi leynst meðal far-
þeganna 97 (49 voru Japanar)
og neytt Kim til þess að breyta
stefnu yfir Ellesmere-eyjum og
fljúga til Sovétríkjanna.