Vísir - 11.05.1978, Blaðsíða 1
Fórst í morgun með
trillu frá Höfnum
Litil opin trilla með
einum manni frá Höfn-
um fórst i morgun, Rétt
áður en blaðið fór i
prentun var ekki vitað
hvernig þetta atvikaðist
en þegar aðrir bátar frá
Höfnum fóru til róðra i
morgun, sigldu þeir
fram á brak úr þessum
báti og lóðabelg sem
merktur var honum.
Menn úr björgunar-
sveit Slysavarnafélags-
ins i Höfnum, Eldeyjac
voru kallaðir út og
gengu þeir fjörur.
Maðurinn er talinn hafa
róið snemma i morgun.
Mikið brim var i morg-
un. Maðurinn, rúmlega
þritugur, hefur búið i
Höfnum.
—EA
Gamlcar matvörur til sölu
Síðasti sölu-
dagur fyrir
^ tveim árum
,,Vi5 höfum fengið upplýsingar um pakkaðar
neysluvörur i verslunum, þar sem dagstimpill um
siðasta söludag er útrunninn fyrir mörgum
mánuðum og allt að tveim árum”, sagði Hrafn
Friðrikssoni forstöðum aður Heilbrigðiseftirlits,
Hrafn sagði að þetta
virtist vera algengara
með innfluttar vörur
heldur en þær sem
framleiddar eru hér-
lendis. Þegar dag-
stimplun siðasta sölu-
dags væri útrunnin
þýddi það að framleið-
andinn tæki ekki lengur
ábyrgð á vörunni og þvi
væri óheimilt að hafa
hana til sölu.
„Heilbrigðisnefndir á
hverjum stað eiga að
fylgjast með að settum
reglum sé framfylgt.
En það hafa borist
kvartanir til okkar og
eins hefur starfsfólk
eftirlitsins orðið vart
viö að reglum sé ekki
hlýtt”, sagði Hrafn
Friöriksson.
Allar vörur sem bera
útrunninn dagstimpii
ber að fjarlægja úr
verslunum. Eftirlit meö
innfluttum neysluvarn-
ingi virðist litið eöa ekki
neitt að sögn Hrafns.
Ekki er kannað er vörur
koma til landsins hvort
þær fullnægja þessum
skilyrðum og þvi ekki
vart við innflutning á of
gömlum vörum fyrr en
þær eru komnar i
verslanir.
Heilbrigðiseftirlit
rikisins hefur birt aug-
lýsingu þar sem vakin
er sérstök athygli á
banni við að selja vörur
með útrunnum dag-
stimplum. —SG
Lokadagur er í dag, 11. maí, samkvæmt
dagatalinu. Vertiöin i ár hefur samkvæmt
upplýsingum Fiskifélagsins verið heldur ié-
legri en i fyrra viðast hvar, nema helst á
Hornafirði og Austfjörðum.
Myndin hér að ofan er af einum þeirra
milljóna fiska sem dregnar voru úr hafinu á
þessari vertið. Þetta er langa, fisktegund
sem við islendingar berum ekki allt of mikla
virðingu fyrir, að minnsta kosti ekki ef
marka má svipinn á manninum sem sýnir
hana Ijósmyndaranum. Visismynd GVÁ.
k ■ #
Einbýlishúsaléðir á VO millj*
Verð á lóðum undir einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu
er allt frá fjórum og upp í 10 milljónir króna, eftir þvi
hvar þær eru.
Vísir gerði nokkra athugun á lóðaverði og kom í Ijós að
hægt er að kaupa lóðir i Selási fyrir 4-6 milljónir, sjávar-
lóðir á Seltjarnarnesi eru seldar á 8-10 milljónir og á
Arnarnesi er verðið frá sjö og upp i 9-9,5 milljónir króna.
Gatnagerðargjöld eru ekki með i þessum tölum, en fyrir
700 rúmmetra hús í Selási þarf að greiða borginni liðlega
tvær milljónir í gatnagerðargjöld.
Verð á raðhúsalóðum er nokkru lægra — og til dæmis
eru slikar lóðir í Selási seldar á 3,5-4,5 milljónir og munu
gatnagerðargjöld nema um 80 þúsund krónum á íbúð.Sjá
bls. 3. — SG
Benedikt
svarar
i kvöld
Benedikt Grön-
dal, formaður Al-
þýðuf lokksins,
svarar spurning-
um lesenda Vísis í
sima 86611 í kvöld
á milli kl. 19.30 og
21. Lesendur, sem
búsettir eru úti á
landi, geta hringt
til Visis síðdegis í
dag og látið skrá
sig, og verður þá
hringt til þeirra
meðan á beinu
linunni stendur.
Sjá nánar á bls. 2
Seyðis-
fjörður
í Kesn-
ingasiá
. Vísis
»*r
Seyðisf jörður
er i Kosningasjá
Visis í dag, og er
þar rætt við efstu
menn allra list-
anna i bænum auk
þess sem gerð er
grein fyrir úrslit-
um siðustu bæjar-
stjórnarkosninga
þar.
Kosningasjá
Vísiserá blaðsíðu
11.