Vísir - 11.05.1978, Blaðsíða 6

Vísir - 11.05.1978, Blaðsíða 6
AFTOKUNNI FRESTAÐ Aftöku Arabanna tveggja, sem dæmdir voru fyrir morðið á egypska ritstjóranum Youssef Sibai (framið á Nicosiu á Kýpur i febrú- ar), hefur verið frestað til 27. júni. Hæstiréttur Kýpur tilkynnti um frestunina eftir a& hafa hlýtt á málskot hinna dæmdu, en dómur hæstaréttar liggur ekki fyrir enn þá. Rétturinn tilgreindi enga ástæðu fyrir frestuninni, en al- mennt er álitið, að hún sé til þess að gefa hinum dauðadæmdu ráö- rúm til þess aö leita til Kýpurfor- seta um mildun refsingar, ef hæstiréttur staðfestir dauðadóm- inn. Verjandinn of upptekinn af gróðabók Fyrrum landbúnaðarverktaki seni dæmdur hafði vcrið fyrir morð á 25 mexikönskum land- búnaðarverkamönnum, fékk dómnum hnekkt fyrir áfrýjunar- rétti I San Francisco, en rétturinn úrskurðaði að réttarhöld yfir hon- um hefðu verið skopleikur. Úrskurðað var að ný réttarhöld skyldu fara fram i máli Juan Corona (44 ára) sem dæmdur var i li'fstiðarfangelsi 1971 eftir að hann hafði verið fundinn sekur um fjöldamorð á mexikönskum landbúnaðarverkamönnum en lík þeirra fundust grafin i ávaxtaökrum i Kaliforniu. Dómarar áfrýjunarréttarins komust að þeirri niðurstöðu að verjandi Corona,lögfræðingur að nafni Richard Hawk, hefði ekki veitt honum næga vörn eða ráð- gjöf i réttarhöldunum. Hann hefði verið ofupptekinn af þvi að skrifa strax bók um þetta fræga morð- mál, og hagsmunir hans þvi .skiþtir. Hinsvegar voru dómararnir á einumáli um það að sannanirnar fyrir sök Corona hefðu verið yfir- gnæfa.ndi en visuðu samt málinu aftur til héraðs. Corona er þafður i sérstakri verndargæslu i Soledad fangels- inu ska.mmt frá San Francisco. Harin missti auga i átökum i fangelsi 1973, þegar aðrir fangar ráðust á hann. öryggisvörður var efldur sérstaklega á ströndinni og við landamærin. Fimmtudagur 11. mai 1978. vism Umsjón: Guðmundur Pétursson 30 ÁRA AFMJtLI ÍSRAELSRÍKIS Mikill öryggisvið- búnaður var hafður i ísrael i morgun, þegar ísraelsþjóð bjó sig undir að minnast þrjátiu ára afmælis stofnunar Gyðingarikisins og þeirra sona sinna, sem fallið hafa i öllum þeim styrjöldum, sem ísrael hefur orðið að heyja fyr- ir tilveru sinni. Sérstaklega var vörður efldur við landamæri og á ströndinni, þar sem hryðjuverkamennirnir laumuðust inn i landiö i árásinni i Tel Aviv i vetur. Minningarathafnir fara fram i öllum kirkjugörðum lands- ins, i öllum bæjum og þorpum. 30 ára afmælið verður ekki haldið eins og þjóðhátiðardagur, heldur sorgardagur og öll skemmtun lögð niður. En i kvöld gengur hátið i garð með skemmtunum og dansleikjahaldi. Hundruð þúsunda Israels- manna taka sér langt fri, fram yf- ir helgi, og munu eyöa dögunum við baðstrendur eða úti i náttúr- unni. 5N1M.V .OOOKl? EIGULEGAR BÆKUR A HALFVIRÐI BÆKUR, SEM ÞU VILT EIGNAST, ^ , lítiÖinn! BÖftAHUSlÐ LAUGAVEG 178, SÍMI 86780. 'jsmm í ’ w% * yt yp 'i' iá - i F // A. T sýningarsalur Fíat 132 GLS ’77 Verö kr. 2.650 þús. Fiat 132 GLS ’76 Verð kr. 2.400 þús. Fiat 132 GLS ’74 Verð kr. 1500 þús. Fiat 131 Special sjálfsk. ’78 Verð kr. 3.000 þús. Fiat 131 Special ’77 Verð kr. 2.400 þús. Fiat 131 Special ’76 Verð kr. 2.000 þús. Fiat 128 C ’78 Verð kr. 2.300 þús. Fiat 128 CL ’77 Verð kr. 2.300 þús. Fiat 128 Special ’76 Verð kr. 1.800 þús. Fiat 127 C ’78 Verð kr. 1800 þús. Fíat 127 ’75 Verð kr. 900 þús. Fiat 127 ’74 Verð kr. 750 þús. Fiat 125 P ’77 Verð kr. 1500 þús. Fiat 125 P ’75 Verö kr. 1100 þús. Audi 100 L ’76 Verð kr. 3.100 þús. Wagoner Custom ’74 Verð kr. 3.000 þús. Bronco ’68 úttekin bretti .breið dekk. Verð kr. 1500 þús. Volvo 142 ’70 Verð kr. 1250 þús. Austin Mini ’74 Verð kr. 750 þús. Hjólhýsi Sprite Verð kr, 700' þús. ' Opiö laugardaga kl. 1-5. Allir bííar q stoðnum FIAT EIMKAUMBOO A ISLANOI Davíd Sigurðsson hf. Síðumúla 35, símar 85855 -

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.