Vísir - 11.05.1978, Page 7
RÆNDU TEKKNESKRI
VÉL OG FLÚÐU TIL
V-ÞÝSKALANDS
Ný framsalsdeila sýn-
ist nú i uppsiglingu milli
Bonn og Prag vegna
tveggja manna, sem
rændu tékkneskri far-
þegaflugvél og neyddu
til Vestur-Þýskalands.
Lögreglan i Frankfurt
segir, að mennimir hafi
haft með sér tvö kiló af
sprengiefni, en hinsveg-
ar engan kveikibúnað.
Neyddu þeir flugstjóra
Ilyushin 18-vélar sem
var i innanlandsflugi frá
Prag til Brno, til að
fljúga til Frankfurt.
Mennirnir gáfu sig á vald lög-
reglunnar strax viö komuna til
FYankfurt og óskuðu hælis fyrir
sjálfa sig og konu og börn annars.
önnur flugvél var send frá
Tékkóslóvakiu i gærkvöld til að
sækja farþegana 34 og áhöfn
vélarinnar. Tékknesk yfirvöld
kröffmst þegar í stað framsals
ræningja ina.
Vestur-Þjóðverjar hafa til þess
neitað að framselja ræningja sjö
tékkneskra flugvéla, sem um árin
hafaverið neyddar til lendingar i
Þýskalandi. Flestir ræningjanna
hafa verið dregnir fyrir rétt og
dæmdir til mismunandi langrar
fangelsisvistar vegna flugrán-
anna, áður en þeim hefur siðan
verið veitt hæli. — Þykir likleg-
ast, að sá verði hátturinn hafður á
um mennina tvo, sem rændu vél-
inni i gær.
Varpa blaða-
mönnum
í fangelsi .
Herréttur i Lahore í
Pakistan hefur dæmt
sextán blaðamenn í
fangelsi frá þrem til sex
mánaða, auk sekta,
fyrir að brjóta bann við
mótmælaaðgerðum.
Þeir voru fundnir sekir i gær
um að hafa efnt til hungurverk-
falla, staðið fyrir mannfundum
og æpt slagorð gegn hinum nýju
valdhöfum.
Fjórir blaðamenn til viðbótar
voru handteknir i gær og nokkrir
aðrir starfsmenn fjölmiðla. Alls
hafa 62 verið handteknir frá þvi i
april, 30 þeirra i sambandi við að-
för stjórnarinnar að stjórnarand-
stöðubláðinu og handtöku rit-
stjóra þess.
Tveir verkalýðsleiðtogar voru
handteknir i Hyderabad i gær
fyrir að efna til hungurverkfalls
til stuðnings blaðamönnunum i
Lahore.
Útför JMoros
gerð í kyrrþey
Stgórnin gengst fyrir minningarathöfn á morgun
Beiskir ættingjar
Aldos Moros, fyrrum
forsætisráðherra, úti-
lokuðu itölsku ríkis-
stjórnina frá hlutdeild i
útför hans i gærkvöldi.
Samkvæmt eigin
óskum Moros, sem
hann lét i ljós í einu
bréfanna, sem hann
skrifaði i prisund
Rauðu herdeildarinn-
ar, neitaði fjölskyldan
yfirvöldum um að veita
honum viðhafnarútför.
Þess i stað fór Utförin fram i
kyrrþey i litlu sveitaþorpi norð-
ur af Róm. Bar hana upp á
sama tima, sem Francesco
Cossiga, innanrikisráðherra og
æðsti yfirmaður lögreglunnar,
tók persónulega á sig ábyrgðina
á því, að lögreglunni tókst ekki
að hafa upp á og bjarga Moro.
Lagði hann fram afsögn sina i
gærkvöldi.
Eleonora, eiginkona Moros,
bauð engum vina hans úr
stjórnmálunum. Amintore Fan-
fani, fyrrum forsætisráðherra,
sem hraðaði sér úr þinginu
óboðinn til jarðarfararinnar,
varð of seinn fyrir jarðsönginn,
og var hliðum kirkjugarðsins
lokað á hann.
Þorpsbúar báru kistu hins
látna, og þegar rekunum var
kastað voruekki aðrir viðstadd-
ir en börn ekkjunnar, tveir
bræður Moros og einkaritarar
hans.
Cossiga innanrikisráðherra,
sem lagði fram afsögn sina i
gærkvöldi, kvað það vera
skyldu sina að taka á sig
fulla ábyrgð af aðgerðum lög-
reglunnar í málinu. Það var
ekki vitað, hvort Giulio Andre-
otti, forsætisráðherra, mundi
taka afsögn hans gilda, en eng-
inn hvatti Cossiga til þess að
draga hana til baka.
Um 70.000 Rómarbúar tóku
þátt i útifundi og mótmælaað-
gerðum fyrir utan kirkju i mið-
borginni, þar sem rikisstjórnin
hyggst efna bl minningarat-
hafnar á morgun. I þinginu tóku
fulltrúar allra flokka til máls og
minntust Moros.
Hryðjuverkamenn, greinilega
ráðnir i að fylgja morði Moros
eftir, skutu og særðu fram-
kvæmdastjóra rikislyfjaverk-
smiðjunnar Montedison i Mil-
anó i gær, þegar hann var á leið
heim úr vinnu.
Margrét
°g
Snowdon
skiljo
Margrét prinsessa,
systir Elisabetar
Bretadrottningar, hef-
ur fallist á að skilja við
Snowdon lávarð, sem
vill ganga að eiga Lucy
Lindsay-Hogg, að-
stoðarstúlku kvik-
myndaframleiðanda.
Margrét prinsessa (47 ára)
tilkynnti i gær að hún mundi
leita skilnaðar, og sagði um leið,
að hún hefði engar áætlanir um
að gifta sig aftur.
Þau hjónin slitu samvistum
fyrir tveim árum eftir sextán
ára hjónaband. Siðan hefur
valdið miklu umtali samband
prinsessunnar óg umgengni við
Roddy Llewellyn, 31 árs gamlan
dægurla gas öng var a.
Snowdon lávarður (48 ára)
kynntist Lindsay-Hogg i London
1974, en sambandi þeirra var
haldið leyndu til 1976. — Hin 33
ára Lindsay-Hogg er dóttir
auðugs irsks tiskufrömuðar og
skildi við leikstjórann Michael
Lindsay-Hogg 1971 vegna
ótryggðar hans. Hún starfar á
vegum sjónvarpsfyrirtækis.
Hún og Snowdon lávarður,
sem er ljósmyndari, hafa starf-
að saman að ýmsum verkefn-
um. 1974 fóru þau i sex vikna
ferðalag saman til Astraliu.
Talsmaður prinsessunnar
sagði, að veikindi hennar að
undanförnu stæðu i engu sam-
bandi við skilnaðarundirbún-
inginn. Húnerundirhandleiðslu
lækna á sjúkrahúsi einu i Lon-
don. Sagði fulltrúi prinsessunn-
ar, að hún mundi taka til við
opinber skyldustörf sin um leið
og heilsan leyfði.
Blaðamenn hittu Snowdon lá-
varð, sem veitú viðtöku verð-
launum frá samtökum tisku-
teiknara og listsafnara i veislu i
Londoni gær. — „Égvona bara,
að þið veitið Margréti prinsessu
stuðning, þegar hún kemur af
sjúkrahúsinu og tekur til opin-
berra starfa að nýju,” sagði
hánn.
Llewellyn er sagður i
skemmtiferð i Tangier i Ma-
rokkó.
Vinsœldir
Carters
dvínandi
Vinsældir Carters
forseta hafa dalað,
eftir þvi sem skoðana-
könnun Gallups bend-
ir til, en hann nýtur
samt meira fylgis en
aðalkeppinautar hans
meðal repúblikana
hefðu gert, eftir þvi
sem Washington Post
heldur fram.
Gallup-könnunin komst að
þeirri niðurstöðu, að einungis
39% þeirra.sem spurðirvoru,
töldu Carter skila forseta-
starfi sinu vel.
Þegar menn voru beðnir að
velja milli Carters og Ford,
fyrrum forseta, völdu 51%
Carter, en 45% Ford. Væri
valið milli Carters og Reag-
ans, fyrrum rikisstjóra Kali-
forniu, völdu 51% Carter en
46% Reagan.
1 annarri aðskilinni skoöan-
akönnun kom i ljós, að meiri-
hluti demókrata tók Edward
Kennedy öldungadeildar-
þingmann fram yfir Carter
sem frambjóðanda flokksins i
forsétakosningunum 1980.