Vísir - 07.06.1978, Blaðsíða 2

Vísir - 07.06.1978, Blaðsíða 2
Guðmundur Hannesson: Nei, ég hef ekki trú á henni. Ég held að þessir flokkar komi sér ekki saman þegar til lengdar lætur. Bjarni Felixson fþróttafrétta- maður: Ég hef enga trú á þeim. Ég á ekki von á þvi að þeir verði eins góð stjórn eins og sú siðasta, en það er sjálfsagt að gefa þeim tækifæri. Þorsteinn Laufdal, iðnverka- maður: Nei og ég hef aldrei haft trú á þeim. Þeim mun fleiri flokk- ar sem mynda stjórn þeim mun erfiðlegar geigur stjórnunin. Þetta verða eilif hrossakaup — við þekkjum þetta hér á Islandi. Hefur þú trú á vinstri stjórn í Reykjavík? Miðvikudagur 7. júni 1978 VISIB Smokie komu til landsins kalda um fimmleytið i gær. Þeir komu með fríðu föruneyti, 16 manns, með þotu Flugfélagsins frá Kaupmannahöfn, þar sem þeir hafa nýlokið við að leika á tónleikum. Það tók dulitinn tima fyrir is- lenskupressuna að þekkja þá Ur hópi rótaranna, en eftir að gengið hafði verið frá slikum smámunum reyndust þeir hinir samvinnuþýðustu. öfugt við kollega þeirra i Stranglers, sællar minningar. Reyndar sagði Alan Silson, gitarleikarinn, að honum lfkaði baravel við þaðsem hann hefði heyrt með Stranglers. ,,Ég hef að visu ekki séð þá á sviði”, sagði hann, ,,en sum lögin þeirra eru bara ansi skemmti- leg”. Alan Silson sagði þó að þessi nýbylgja væri sosum ekkert nýtt. „Þaðer bara verið að gera gamla hluti uppá nýtt”, sagði hann, ,,enda felst það eiginlega i nafninu”. Smokie komu frá Kaup- mannahöfn, eins og áður sagði, en áður höfðu þeir verið i Noregi og í Sviþjóð við tónleikahald. Að sögn Terry Uttley, bassaleikar- ans, gekk þeim bara vel, og flestir tónleikarnir tókust ágæt- lega, takk fyrir. Sömuleiðis selst hin nýja. litla plata hljómsveitarinnar, „Oh, Carol”, ljómandi að hans sögn. „Hún fór strax fyrstu vikuna i 2. sæti breska vinsældarlistans og seldist þá viku i 18 þúsund ein- tökum á dag þar, en nú siðan hefur þó eitthvað hægst um”, sagði hann. Tæki hljómsveitarinnar komu til landsins i fyrradag, samtals 21 tonn. Þar tekur ljósaútbúnað- ur mikið pláss, svo hægt er að gera ráð fyrir bæði góöum hljómi og mikilli ljósasýningu i höllinni i kvöld. Til saraan- burðar má geta þess aö Strangl- ers höfðu meðferðis innan við fimm tonn af „græjum”. „Ætli við verðum ekki aðal- lega með lög af plötunni „Greatest Hits”, sagði Alan Sil- son. „Siðan verða lög bæði nýrri ogeldri lög á prógramminu, allt eftir þvi hvernig okkur finnst stemmingin vera”. Þeir Smokie-menn voru óákveðnir i þvi hvernig þeir ætl- uðu að verja gærkvöldinu, en þegar þeir voru spurðir hvort þeir hyggðust sjá Rostropovich, hváðu þeir við og sögðust þvi miður ekki þekkja manninn. Smokie munu siödegis i dag prófá hljómburðinn, eða „testa sándið” eins og það heitir á fag- máli, i Laugardalshöllinni, en hljómleikarnir hefjast klukkan ni'u og standa að sögn í einn og hálfan til tvo tima. —GA Smokie á Keflavlkurflugvelli I gær. Frá vinstri Pete Spencer trommari, Alan Silson, gltarleikari, Chris Norman, gitarleikari og aðalsöngvari hljómsveitarinnar og Terry Uttley, bassaleikari. Visismynd GVÁ Smokie á íslandi Auöbjörg Guömundsdóttir, hús- móöir: Nei, ég hef enga trú á þeim. Ég hef ekki nokkra trú á að þeir muni koma sér saman. Mér list alls ekki á þetta. Árni Ragnarsson, skipulagsarki- tekt: Já, ég hef trú á henni. Þetta er spurningin um það hvort 'vandamálin veröa krufin áfram i toppklikum eöa sent út til flokk- anna og brotin til mergjar þar. SOSIAIISTARNIR OG MAGNUS TORFI Magnús Torfi ólafsson heldur út I kosningabaráttuna meö mikiö kvennaval sér viö hliö. Hann stefnir á aö ná kosningu I Reykjavík og slita þannig upp einn uppbótarmann, sem er sæmdarkonan Aöalheiöur Bjarnfreösdóttir. Ekki horfir nú björgulega um þau mál, en þó er aldrei aö vita nema sósialistar veiti Magnúsi Torfa stuðning, enda er hann t.d. meiri sóslalisti en aökomufólkiö á lista Alþýöu- bandalagsins, þ.e. fulltrúarnir I þriöja og fjóröa sæti. 1 sjónvarpsþætti, sem var til kynningar á stefnumiöum framboðsflokkanna fyrir næstu kosningar, mæltistMagnúsiTorfa vel aö vanda. Tal hans hefur yfir sér sanngirnisblæ, og vlst er um þaö, aö Magnús er ekki ósanngjarn maöur I pólitik. Afturá móti mun hann koma til meö aö eiga I vök aö verjast I þeim heljarátökum, sem fram- undan eru, þar sem harkan á eftir að gilda meira en annaö. Þá mun hógværö Magnúsar njóta sín heldur illa. Hinsvegar er þess að vænta að Aöalheiöur bæti það eitthvað upp þegar fer að siga I þá gömlu svona rétt fyrir kosningarnar. Þaö er nú orðið ansi f jölskrúö- ugt liðiö, sem um er aö velja á vinstri væng islenskra stjórn- mála. Þótt illa hafi gengiö undanfariö aö friöa vinstra fylgi Framsóknar, og þaö hafi skelll sér svo þúsundum skiptir á G- listann I borgarstjórnarkosn- ingunum, veröur Framsókn aö teljast vinstri flokkur vegna gamalla hugsjóna, sem lltiö hef- ur farið fyrir i tlö núverandi stjórnenda flokksins. Þá koma Alþýðubandalagiö og Alþýöu- flokkurinn og siöast Samtökin. Vinstra fólk i landinu ætti þvl ekki aö vera i vandræðum með aðkoma atkvæðum sinum i ióg. Aftur á móti sýnir þessi fjöldi vinstri flokka, aö eitthvað meira en Htið er bogið við vinstri stefn- una, og einhvers staöar hlýtur hún, innan þessara flokka, aö vera þanin út i þunnt skæni. Samtökin eru sem kunnugt er á þeim buxunum aö sameina alla vinstri menn undir einn hatt. Kemur þá aö þeim vanda þeirra aö hafa slikum mildileg- um forustumanni á aö halda. Vinstri menn eru yfirleitt manna háværastir I pólitlk, og þess vegna gæti manni dottið I hug, aö þeir þyrftu mann til sameiningar sem kæmist ööru hverju upp á háa C-ið. Enginn núverandi forustumaöur vinstri flokkanna er þannig pólitiskur söngvari, svo þaö veröur varla aö búast viö miklum sameining- um I bráö. Þaö var eftirtektarvert, aö I sjónvarpsþættinum höföaöi Magnús Torfitil þeirra, sem eru I nokkrum vafa um, hvort þeir eigi aö kjósa Svövu Jakobs- dóttur og Ólaf Ragnar Grlms- son. Mun Magnús Torfi hafa rökstuddan grun fyrir þvl, aö fjölmargir sóslalistar hyggist frekar styöja hann. til þingsetu en þau tvö. Þetta á sér slnar forsendur. Gömlum sóslalistum mun þykja orðiö nóg um, hvaö Alþýöubandalagiö er fljótt aö grlpa nýtt fólk, sem kemur meira og minna vonsvikiö úr rööum annarra flokka, og setja þar á oddinn I landsmálabarátt- unni, alveg eins og enginn nýtur sósialisti sé til I Alþýöubanda- laginu fyrir. Sumpart stafar þetta af ótta við kommúnista- grýluna, en talið er aö hún muni siöur festast við Alþýöubanda- lagiö sé alltaf veriö aö taka inn nýja og nýja menn úr rööum borgaraflokkanna. Aö hinu leyt- inu er þetta „erföasynd” stjórn- málasamtaka kommúnista. Þeir hafa alltaf kvatt til áhrifa- menn til hliöar viö hina eigin- legu ráöamenn og veitt þeim brautargengi. Svo var um Sigfús Sigurhjartarson, slöan Hannibal Valdimarsson og nú er það ólafur Ragnar Grimsson, sem hefur tekiö viö hlutveki meöreiöarmannsins. Þessar andlitslyftingar kommúnista hafa eflaust aukiö þeim brautargengi. Þessa stööu skilur sósialistinn Magnús Torfi Ólafsson, og hann er staöráöinn I aö höföa til fyrri félaga sinna i Alþýðubandalaginu, sem eru orðnir þreyttir á þvargi meö- reiðarsveina. Svarthöfði. ^ í Reykjavtk □

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.