Vísir - 07.06.1978, Blaðsíða 8

Vísir - 07.06.1978, Blaðsíða 8
8 fóík Rod Stewart og nýja vinkonan i London. Rod lœtur ekki deigan síga Söngvarinn kunni Rod Stewart hef ur ekki verið við eina f jölina felldur i kvennamálum eins og flestum er víst kunnugt. Ekki er langt siðan slett- ist upp á vinskap hans og sænsku leikkonunnar Britt Ekland. Enn er Rod kominn á stúfana nú með nýja konu. Það er leikkona og heitir Alana Hamilton. Hún var áður gift söng- varanum George Hamilton. Þau Rod sáust saman á flugvellinum i London þegar þau voru á leið til Skotlands þar sem hann ætlaði að horfa á skoska landsliðið leika. Aðspurð sagði Alana að Rod hefði sagst ætla að kvænast henni, en hún tæki nú ekki mark á því nema rétt I meðal- lagi. Þetta segði hann við þær allar. Sennilega skýrasta stúlka. —SE MIA FARROW I NÝJUSTU MYND JAN TROELLS Sænski leikstjórinn Jan Troell er nú tekinn til við upptökur á nýjustu mynd sinni er nefnist á íslensku Hvirf ilvindur- inn. Það er stórfram- leiðandinn Dino de Laurentiis sem stendur fyrir gerð þessarar myndar, sá hinn sami og fjármagnaði á sínum tíma King Kong, eina af dýrustu kvikmyndum sem gerðar hafa verið i seinni tið. Upphaflega stóð til að Roman Polanski leikstýrði myndinni, en sökum vandræða þeirra er hann lenti i við banda- risk yfirvöld út af nauðgunarmáli varð ekkert úr því. Jan Troell varð þá f yrir valinu sem leikstjóri og til liðs við hann var fenginn Berg- man — myndatökumað- urinn Sven Nykvist. Þá er það einnig einvalalið sem leikur í mynd þess- ari. Troell fékk því ráðið að Max von Sydow léki annað karlaðalhlutverk- ið, en þegar hann vildi einnig sænska leikkonu i aðalkvenhlutverkið setti de Laurentiis hnefann i borðið. Var leitað til Miu Farrow og tók hún hlut- verkið að sér. Lítið hef- ur sést til Miu undanfar- ið á hvíta tjaldinu. Sið- asta kvikmynd hennar var stórmyndin The Great Gatsby sem sýnd var hér fyrir nokkrum árum. Það verður því forvitnilegt að sjá hvernig henni tekst til nú. Þriðja aðalhlutverk- ið í myndinni leikur Ja- son Robards, sem hefur fengið Óskarsverðlaun- in tvö síðastliðin ár, fyrir leik sinn i myndun- um All the President's Men og Julie. —ÞJH Miftvikiiriagur 7. júnt 1878 vtsra Stuttu siöar kom Jim aö kletta' beltinu. „fariö á undan ViÖ kom- um þegar þiö gefiö merki” sagöi hann. irmŒsrjsi Helduröu aö þau séu Þaö er aö~| minnsta kosti Ég hélt aö þessi frlmerki myndu endast i ár aö minnsta kosti. W r JME- >IJ Hvaö er oröiö af öllum Komdu elskan og segöu bless viö Fred og Betty. i>au eru hnin aö nakka niöur oc eru — Ekki ef (ég get komiö f I veg fyrir) þaö ~ —G

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.