Vísir - 07.06.1978, Blaðsíða 7
Anwar Sadat forseti Egyptalands hélt harðorða
ræðu í garð israelsmanna.
SADAT
skammar
fsraelsmenn
hélt mjög horðorða rœðii í þeirra garð
Ánwar Sadat, forseti
Egyptalands, hefur
varað hermenn sina við
og sagt að vel gæti farið
svo, að þeir þyrftu að
heyja strið við ísraels-
rild á nýjan leik. Ráða-
menn þar i landi hafi
ekki tekið nógu vel
undir friðarumleitanir
hans og ef þar verði
ekki breyting á, megi
búast við striði.
Egypski forsetinn lét þessi orB
falla i ræðu, sem hann hélt i
Ismailia, bæ við Suez-skurðinn.
Hann sagði, að Egyptar gætu
ekki sætt sig við annað en það,
að ísraelsmenn létu af hendi öll
þau svæði sem þeir hefðu her-
tekið i striðum.
„Þið eruö þjálfaöir til að
verja Egyptaland og að taka
þátt i frelsun landsins”, sagði
forsetinn. Hann sagðist vera
reiðubúinn til að láta ísraels-
menn fara i friði, en ekki með
skika af landi Egypta.
Sadat lét það koma skýrt
fram, að hann mundi ekki taka
þátt i viðræðum við Israels-
menn nema þeir slökuðu eitt-
hvað til og kæmu með eitthvað
nýtt í stað þess að halda fast við
fyrri skoðanir sinar. Ræða
Sadats var hin harðorðasta i
garð ísraelsmanna frá þvi i
striðinu árið 1973.
New York rambar á barmi gjaldþrots
Þurfa að selja
frelsisstyttuna
Borgarstjóri New York borg-
ar, Edward Koch, hefur fariö
fram á aðstoð til að bjarga
borginni frá gjaldþroti. Koch
sagöi I gær, að ef ekki fengist
hjálp gæti borgin oröið gjald-
þrota 1. júli nk.
Koch sagði, aö ástandið væri
orðiðsvo slæmtað það gæti far-
iðsvoaðráðamenn borgarinnar
þyrftu að gripa til þess óyndis-
úrræðis að selja sjálfa frelsis-
styttuna.
Ráðamenn borgarinnar hafa
fariöfram á það við ríkiö aðþað
láni borginni u.þ.b. tvær billjón-
ir Bandarikjadala til langs
tima. Er þá gert ráð fyrir að það
verði jafnvel til fimmtán ára.
New York borg hefur fengið
aðstoö frá rikinu undanfarin ár.
Siðast fóru ráðamenn fram á
lán til þr iggja ára og nú er sá
timi að renna út.
Kostnaður við félagslega að-
stoð ýmiss konar hefur hækkað
svo mikið undanfarin ár, að það
hefur gert borginni æ erfiðara
fyrir. Þangað safnast einnig
láglaunafólk, eða fólk sem ekki
starfar neitt, en þiggur styrki
frá borginni. Rekstur lögreglu
og slökkviliðs er einnig stór
liður I útgjöldum borgarinnar.
Koch borgarstjóri lagði á-
herslu á, að það mundi hafa
ógnvænlegar afleiðingar ef
borgin yrði gjaldþrota og það
væri óhugsandi að rikið gæti
horft upp á þaö án þess að haf-
ast eitthvað að.
CARTíR BODAR
BITRI SAMBÚÐ
VH> SOVÉT
Carter forseti
Bandarikjanna flutti
ræðu i nótt þar sem
hann lagði áherslu á að
sambúð Bandarikj-
anna og Sovétrikjanna
yrði hnökralaus.
Mikið hefur gengið á undan-
farið og leiðtogar stórveldanna
hafa sent hvor öðrum kaldar
kveðjur vegna afskipta af mál-
um Afriku. Bandaríkjamenn
hafa ásakað Sovétrikin um að
hafa afskipti af innanrikismál-
um i álfunni. Þar var átt við
málefni Zaire þar sem upp-
reisnarmenn réöust inn i eitt
hérað landsins. Sagt var að
Sovétmenn og Kúbumenn stæðu
að baki uppreisnarmönnum.
Talsmenn Hvfta hússins hafa
verið haröorðir i garð Sovét-
manna til þessa, þar til Carter
býður upp á slökun spennunnar
milli ríkjanna og góða sambúð.
Carter minntist á málefni Af-
riku og sagði að Sovétmenn
hefðu skemmt fyrir meö af-
skiptum af máiefnum þar i
landi.
Forsetinn tók það fram að út-
litið í sambandi viö viðræður um
afvopnun væri gott en hann
byggði ekki þessi ummæli sín á
niðurstöðum fundar utanrikis-
ráðherra landanna sem haldinn
var fyrir tiu dögum. Eftir þann
fund var fátt um kveöjur enda
komust upp hleranir Sovét-
manna i bandariska sendi-
ráðinu i Moskvu um það leyti
sem utanrikisráðherrann var i
heimsókn i Bandarikjunum.
Ræða Carters var mjög hóg-
vær og langt frá þvi sem við
mætti búast ef tekið er tillit til
ummæla Brzezinski, talsmanns
Hvita hússins fyrir skömmu.
Brzezinski áfelldist Sovétmenn
mjög og sagði að þeir færuekki
eftir þeim reglum sem settar
hefðu verið i sambandi við
slökunarstefnuna sem bæði rik-
in hefðu samþykkt að fylgja.
Olíufurstar í Arabalöndum sækjast mjög eftir aö tá
fálka til að temja til veiða.
/nferpof varar
við falkaþjófum
Það er ekki aðeins islenska
lögreglan sem eltist við grunaöa
fálkaþjófa. Norska lögreglan og
náttúruverndarmenn þar I landi
hafa fengið boð frá Interpol um
aö vera vel á verði þar i landi.
Grunur leikur á að fálkaþjófar
hafi umboösmenn i Noregi, sem
útvegi þeim fálka til aö selia
oliufurstum i Arabalöndum.
I Aftenposten birtist auglýs-
ing nýlega þar sem fimm
hundruð norskar krónur voru
boðnar fyrir fálkaunga. Þessi
auglýsing hefur vakið mikla at-
hygli náttúruverndarmanna i
Noregi en fálkinn er friöaður
þar i landi.
1
OG SPARIÐ
YKKUR VINNU
fe Woodex ii
Reynslan\hefur sannað/
að Woodex Ultra er sér-
staklega . endingargott
fúavarnarefni yið is-
lenskar aðstaéðúr# auk
þess sem þáð ver viðinn
vel gegrí veðrúrí,
•A
ÍAIOODEX
VER VIDINN FÚA
SKRISTJÁNÓ.
SKAGFJÖRDHF
Simi 24120
RAÐHERRA
SEGIR AF SÉR
■ vegna Schleye rmólsins
Iannanrikisráðherra Vest-
ur-Þýskalands, Werner Maihof-
er, hefur sagt af sér. Maihofer
var einn af fjórum ráðherrum
úr Frjálslynda flokknum i
stjórn Helmuts Schmidt sem
samanstendur af mönnum úr
Sósialistaflokki og Frjálslynda
flokki. Afsögn ráðherrans kom
tveim dögum eftir að flokkur
hans beið mikið afhroð I
kosningum i Neðra-Saxlandi og
Hamborg.
Ráðherrann sagði af sér
vegna Schleyermálsins. Hann
tekur á sig ábyrgðina af mis-
heppnuðum tilraunum lögreglu
til að finna fylgsni ræningja
Schleyers. Komið hefur i ljós að
ekki var farið eftir öllum
ábendingum, sem komu fram
um hvar Schleyer var falinn.
En vandræði Maihofer stafa
ekki einungis af máli Schleyers.
Þau byrjuðu löngu fyrr á máli
sem snerist um hleranir hjá
kjarnaeðlisfræðingi. sem var
grunaður um að vera i sam-
bandi við skæruliða.
Stjórnmálamenn bæði úr
hægri og vinstri armi, hafa
ráðist að innanrikisráðherran-
um. Þeir fyrrnefndu fyrir að
hann sé allt of frjálslyndur og
þeir siðamefndu fyrir að hann
sé allt of ihaldsamur.