Vísir - 07.06.1978, Síða 5
Miðvikudagur 7. júnl 1978
íslendingar sœkja jarð-
hitaþekkingu til útlanda
þremur jarðgufuvirkjunum samtimis. Aætlanir á Filipseyjum
um áfamhaldandi virkjun eru stórar i sniðum. Nú er áætlað að
ljúka 1320 MW virkjun fyrir árslok 1985.
Hawaii
Sérfræðingarnir töldu eftir heimsóknina þangað, að margt
væri sameiginlegt með Kröflu og Kilauea. Kilaula er eldfjall og
er jarðhitakerfi i eystra gliðnunarbelti þess. Þar hefur aðeins
verið boruð ein hola, sem framleiðir gufu. Vinnslueiginleikar
hennar eru mjög svipaðir og sumra borhola i Kröflu. Og jarð-
hitakerfið á Hawaii virðist vera i suðu, likt og neðra kerfið i
Kröflu. Meginvandamálið á þeim svæðum sem heimsótt voru,
reyndist vera skemmdir á fóðurrörum. Til lausnar á vandanum
hefur hönnun fóðurröra verið breytt, gæði steypu aukin, holum
haldið lóðrettum og aðferðum við að geyma holur, og koma upp
blæstri i þeim, breytt.
—BÁ.
Þrír starfsmenn Orkustofnunar þeir Valgarður
Stefánsson, Sigurður Benediktsson og Sverrir Þór-
hallsson fóru nýlega í kynnisferð til nokkurra
landa, þar sem könnuð var jarðhitastarfsemi. Þeir
höfðu viðkomu á Nýja Sjálandi, en þar er fyrirhug-
uð mjög umfangsmiki! aukning jarðhitastarfsemi.
Stefnter aðþviað virkja um2000 MWaf jarðvarma
á næstu 20-25 árum. Fyrirhugað er að gufuverð þar
verði háð innlendu eldsneytisverði.
Jarövatnshiti á Nýja Sjalandi er mestur 310 C og útfellingar af
járni og klsil í borhölum eru óþekkt fyrirbæri þar. Kalkútfelling-
ar verða þó i nokkrum holum, svipað og á Islandi.
Filipseyjar.
Þeir Sigurður og Sverrir fóru til Filipseyja, en þar var um 1970
tekin ákvörðun um viðtæka nýtingu jarðhita. Nú er unnið þar að
Slurfsemin
að Sogni
stöðvast
Starfsemin sem haldið hef-
ur verið uppi ab Sogni i
ölfusi siðast liðið hálft annað
ár hefur stöðvast.
Markmiðið með starfinu
hefur verið að veita ungling-
um, sem eiga við félagslega
erfiðleika að striða, tima-
bundna aðstoð eða aðhlynn-
ingu.
Sambýlið hefur verið fjár-
magnað með mánaðarlegum
greiðslum, með hverjum
unglingi, frá félagsmála-
stofnun eða sveitarfélagi. A
starfstimabilinu hfur fengist
nokkur rikisstyrkur.
Forsenda þess, að unnt sé
að hefja svipaða starfsemi
aftur mun vera su að hentugt
húsnæði finnist. Ætlunin var
alla tið að geta stundað bú-
skap i smáum stil, garðrækt
eða trilluútgerð. Stefnt mun
að þvi að hefjast handa að
nýju næsta vor og verður
tirpanum þangað til variö til
undirbúnings.
________________—BA.
Reiknistofn-
un HÍ leigir
forritasafn
NAG-safn er heitið á yf-
irgripsmiklu forritasafni á
sviði hagnýtrar stærð-
fræði. Reiknistofnun Há-
skóla islands hefur nýlega
tekið eitt slíkt á leigu.
Hér er um að ræða tæplega 300
FORTRAN-undirforrit. Safnið
hefur þróast i samvinnu reikni-
meistara i sex breskum háskól-
um, sem nú hafa sett á fót sér-
staka stofnun til aö annast við-
hald og þjónustu og vinnu að end-
urbótum á safninu.
NAG-safnið hefur verið sett upp
á PDP-tölvu Reiknistofnunar, en
við hana eru tengdir 9 skermgr og
fjarritar, auk Salzomp-teiknara.
"Reiknistofnunarmenn hafa hug
á að fá til landsins svokallaða
stafsetjara, þ.e. sérstök teikni-
borð i beinni tengingu við tölvu,
þar sem t.d. má rekja sig eftir
ferlum á teikningu og fá hnitapör
skráð sjálfvirkt með vissum
millibilum inn á fiskskrá, en hér
mun vera um dýrt fyrirtæki að
ræða.
—BA.
^0'8ILAST°\
ÞROSTUR
85060
Sjö fengu starfslaun:
„Ælia að stunda söfnin"
— segir Kristjón Davíðsson:
Starfslaunum listamanna hefur
veriðskipt og fengu sjö listamenn
starfsiaun að þessu sinni. Eru
þau miðuð við byrjunariaun
menntaskó.la kennara og nema
um tvö hundruð þúsund krónum á
mánuði.
Kristján Daviðsson myndlist-
armaður fékk starfslaun i eitt ár
og Bragi Ásgeirsson myndlistar-
maður laun i niu mánuði.
Þriggja mánaða laun voru veitt
myndlistarmönnunum Nielsi
Hafstein, ólafi Lárussyni og
Þórði Hall. Einnig fengu þau
Manuela Wiesler tónlistarmaður
og Pétur Gunnarsson rithöfundur
laun I þrjá mánuði.
Formaður úthlutunarnefndar
er Knútur Hallsson deildarstjóri
og sagði hann á fundi með frétta-
mönnum að 54 umsóknir hefðu
borist um starfslaun að þessu
sinni. ,,Sá á kvölina sem á völ-
ina”, sagði Knútur og átti við aö
erfittværiaðskipta 6,5 milljónum
sem veittar voru á fjárlögum til
starfslauna.
Knútur lagði áherslu á að hér
væriveriðað skipta fjárveitingu
enekki úthluta styrkjum.Þetta
væru laun til listamanna. „Það á
aldrei að tala um styrki þegar
listamenn eiga i hlut”, sagöi
Knútur.
Auk hans eiga sæti i nefndinni
þeir Ólafur B. Thors og Thor Vil-
hjálmsson og sögðu þeir að lang-
flestar umsóknir hefðu borist frá
myndlistarmönnum.
Kristján Daviösson sagöi I
samtali við Visi að sennilega
myndi hann nota launin til að
skoða söfn og sýningar erlendis
sem hann hefði vanrækt að und-
anförnu.
Niels Hafstein kvaðst myndu
setja upp höggmyndasýningu og
Pétur Gunnarsson sagðist vera
önnum kafinn við að skrifa bók
sem kæmi út i haust.
—SG.
MEST SELDU
[h| Husqvarna
HANDSLATTUVELAR
Á NORÐURLÖNDUM
@Husqvama
Hinar marg-viðurkenndu
handsláttuvélar frá
Husqvarna eru í stöðugri
þróun og gera sláttinn
að leik fyrir yður.
Mótorsláttuvélin hefur sannað ágæti sitt síðastliðin 20 ár.
BS 450: ★ Mótor amerískur, Briggs Stratton, 3.5 hestöfl.
★ Startari er niðurgíraður, sem auðveldar frúnni gangsetningu.
★ Hljóðlát.
★ Hækkun og lækkun með einu handtaki.
BS 400: Sömu kostir og BS 450,-auk þess
fylgir grassafnari og hringhníf ur.
Akurvík
Glerárgötu 20,
Akureyri.
Sími 96-22233.
/
mnai S^gohMon kf
SUÐURLANDSBRAUT 16 — REYKJAVIK
SIMI 91-35200
FÁST EINNIG HJÁ UMBOÐSMÖNNUNUM UM ALLT LAND
okkur
sjó um
að smyrja
bílinn
reglulega
Passat
Auói
OOOD
Audi 100 Avant
OPIÐ FRÁ KL. 8-6.
HEKLA Hl
Smurstöð
i.augavegi 172
-- Simar 21240 — 2124«.