Vísir - 12.06.1978, Blaðsíða 2

Vísir - 12.06.1978, Blaðsíða 2
2 Mánudagur 12. júní 1978 VISIR Bilió miiii Marx og Mili styttra en margir haida" — raettt við Ólaff Rognar Grímsson um ritið „Frjálshyggja og alrœðishyggja" „Það er bæði þakkar- og virðingarvert að Ólafur skuli hafa sett saman þessa bók. Og það skipar honum i sérflokk meðal islenskra stjórnmála- mannaog fræðimanna. tJtkoma bókarinnar er timamótavið- burður vegna þess að þaö er sjaldgæft að út komi bækur sem stuölaðgeta að alvarlegri heim- spekilegri uinræðu,” sagði Ólaf- ur Kagnar Grimsson prófessor, er rætt var við hann um útkomu bókarinnar „rjálshyggja og ein- staklingshyggja” eftir ólaf Björnsson prófessor. Ertu ánægður með bókina sem slika? Þaö eru einkum tvær athuga- semdir sem ég vil gera við bók- ina. I fyrsta lagi tekur hún fyrst og fremst til meöferðar vanda- mál sem voru á dagskrá fyrir 30-40 árum. Ólafur skilgreinir andstæðurnar á þeim grund- velli. I öðru lagi tel ég aö .uppsetning og samanburður á andstæöum sé rangur. Telurðu þá að bókin geymi fyrst og fremst sögulegan fróðleik? Rauöi þráöurinn i bókinni er þaö að Ólafur ber saman hag- kerfi einstaklinga og rikiskerfi grundvallað á allsherjar þjóö- nýtingu. Hann ræðir mjög litið meginþróunareinkennið á hag- kerfum iðnrikja siöustu áratug- ina. Hvort sem þau eru byggö á kapitaliskrihugmyndafræði eöa sósialiskri. Einkenni þetta er til dæmis gifurlegur vöxtur stofn- anavalds á öllum sviðum framleiöslu hagstjórnar og stjórnsýslu. Max Weber, sem Ólafur fjallar að nokkru um, taldi aö þessi stofnanauppbygg- ing, — þróun regluveldanna (bureaucracy) væri i senn höf- uðeinkenni og meginvandi 20. aldar. bróunin felst i þvi að æ stærri hluti hins þjóöfélagslega valds færist i hendur atvinnu- stjórnenda sem reka fyrirtæki i framleiðslugreinum, stjórn- sýslu og þjónustustarfsemi rikisins. A siöustu 20 árum hefur þess- arar þróunar farið aö gæta að marki á íslandi. Má i þessu sambandi minna á, að i frétt af ráöstefnu Stjórnunarfélags Islands um framtiðarþróun var aðalfyrirsögnin i einu dag- blaðanna „Stétt atvinnustjórn- endakomin upp á Islandi: Einn helsti vandi Islands er forræði þessarar atvinnustjórnenda yfir framleiöslu og rikisvaldi. Og kjörnir fulltrúar fólksins, hvort heldur kjósendur i alþingiskosn- ingar eða hluthafar i hinum flókna stjóra ins i landa. þess i Dr. ólafur Ragnar Grímsson er ekki sammála ólafi Björnssyni um hverjir séu hinir raunverulegu valdhafar í nútímasamfélagi. framleiðslufyrirtækjum eða félagar i sveitarfélagi, ráöa i raun mjög litlu. í»ú ert þá ekki sammála ólafi varðandi valkosti nú- tímasamfélags? Valið stendur i raun ekki á milli hagkverfis einstaklinga eða þjóðnýtingar heldur milli forræöis fólksins á öllum sviðum þjóðfélagsins og hins vegar forstjóraveldis i framleiðslu og stjórnsýslu. Þótt Ólafi Björnssyni sé aö nokkru ljós þessi vandi, þá f jall- ar hann mjög litið um hann. I stað þess ber hann saman kenn- ingar frjálshyggjumanna og þjóöskipulagið i Sovétrikjunum. Hann viðurkennir hins vegar að kenningar Marx um rikisvaldið séu i raun og veru i andstöðu við stjórnkerfiSovétrikjanna. Marx hafi boðað afnám rikisvalds og frjálst samfélag manna, þar sem framleiðslan væri á sam- vinnugrundvelli. Þú ert óánægður með það hvernig ólafur stillir upp annars vegar frjálshyggju og hins vegar alræðishyggju: Þessi túlkun á Marx sem ég vék að hér að framan er miklu réttari en rikisrétttrún- aðurinn sem iðkaður er f Sovét- rikjunum en fellur ekki að ætlun höfundar. Þess vegna hafnar hann þvi að byggja saman- burðinn á ritverkum Marx. Hins vegar tekur hann hugmynda- fræðileg ritverk frjálshyggju- manna eins og Hayek og notar þau til samanburðar. Kannski er ástæðan sú aö i raun og veru er ekki til neitt stjórn- eða hag- kerfi sem samræmist kenning- um Hayeks. Hér fellur Ólafur og reyndarfleiri i þá gryfju sem þeir álasa öðrum fyrir, þ.e. aö gerast „bókstafstrúarmenn og túlka frjálshyggjuna út frá „guðspjöllunum” i stað þess að skoða raunveruleikann i hag- kerfi Vesturlanda. Athugun á þeim raunveruleika sýnir, að það eru ekki einstaklingar sem ráöa framþróun eöa markmiös- setningu heldur eru það félags- einingar eins og fyrirtæki,aðal- lega stórfyrirtæki og hags- munasamtök af ýmsu tagi. Sá samanburður sem þú vilt að ólafur hefði gert myndi væntanlega hafa gerbreytt bók- inni? Ef Ólafur heföi byggt bók sina á raunhæfum samanburði hefði hún annað hvort fjallaö um samanburð á ólíkum hagkerf- um, sem til eru i raunveruleik- anum eða umræöum um ritverk hugmyndafræðingaá borð við Marx og Hayek. Hverja telurðu ástæðuna fyrir þvi að Ólafur hagar saman- burðinum á þennan hátt? Liklegasta skýringin er sú, að ýmsir fylgjendur frjálshyggj- unnar og markaðskerfisins hafa á síðustu árum haft tilhneigingu til að flýja frá greiningu á miskunnarlausa og veruleika for- og embættisvalds- hagkerfum Vestur- Þeir hafa búið sér stað til draumsýn um markaðskerfi einstaklinga, sem þeir álita að sé veruleikinn en er hins vegar hvergi að finna nema i fræðibókum. Þessi flótti er að minum dómi alvarlegasta pólitiska og fræðilega skyssa sem boðendur frjálshyggjunnar gera á okkar dögum. A hinn bóginn veröur það að teljast helsta aðalsmerki sósial- iskrar umræðu á siðasta áratug aðhafatekið rikis- og forstjóra- valdið í framleiðslu til misk- unnarlausrar gagnrýni. Og leit- aö hefur verið nýrra leiða til að tryggja raunverulegt pólitiskt, efnahagslegt og menningarlegt frelsi einstaklinga. Skapa sam- félag þar sem allir eru jafnrétt- háir en enginn herra yfir hinum, hvorki i krafti auðs né valda- stöðu. Hvernig telurðu að hægt sé að sporna við skrifræðinu? Fr j álshygg jum enn og sósialistará tslandi eigaað taka höndum saman i umræðum og greiningu á þvi vaxandi stofn- anaveldi, bæði i framleiöslu og stjórnsýslu, sem er að minum dómi að verða eitt stærsta vandamál islensks samfélags. Þá kunna menn að komast að raun um það að bilið milli Marx og Mill er styttra en margir hafa haldið. Ólafur telur að hugtök- in hægri og vinstri séu gersamlega úrelt. Ertu sammála þvi? Nei, þaö er ég ekki. Hugtökin hægri og vinstri eru merkimiðar á ákveðnum stefnum. Á siðari áratugum hafa þau veriö notuð til að aðgreina ólikar áherslur á þátt rikisins og samfélagslegum stefnum i hagstjórnar- og framleiðslumálum. Hitt er nauðsynlegt að hafa i huga, að margir aörir þættir en skoðanir á efnahagsmálum skipta fólki i stjórnmálaflokka, svo sem trú- mál, afstaða til utanrikismála og i reynd er skiptingin i hægri og vinstri i efnahagslegri merk- ingu þeirra orða aðeins ein af ýmsum átakalinum i stjórn- kerfinu. Það er þvi rétt hjá Ólafi að örlög þessara hugtaka eins og margra annarra, t.d. lýðræðis,hafa orðið þau aö vera ofnotuð og misnotuð i almennri umræðu. Þrátt fyrir slika galla geta þau enn haft sitt gildi, eða hver vill hætta að nota lýöræöis- hugtakið þótt það hafi óljósa merkingu? —BA—

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.