Vísir - 23.06.1978, Blaðsíða 5

Vísir - 23.06.1978, Blaðsíða 5
vism Föstudagur 23. júnl 1978 5 ER KOSIÐ UM: Ellert B. Schram alþingismaður skrifar: Sérstök óstœða er til að vekjo athygli ó því að hugsanleg fylgisaukning Alþýðuflokksins er túlkuð sem stuðningur við vinstri stjórn ----------y--------- Tveir atburöir i stjórnmála- baráttu siöustu vikna hafa meö afdráttarlausum hætti skoriö úr um þaö hvaö kosiö er um á sunnudaginn. Þessir atburöir eru annars- vegar úrslitin i borgarstjórnar- kosningunum myndun nýs meirihluta i borgarstjórn Reykjavikur og hinsvegar túlk- un vinstri manna á niöurstööum skoöanakannana siödegis- blaöanna. Talsmenn vinstri flokkanna hafa marglýst þvi yfir aö þetta tvennt sé vinstri sveifla sem bendi til eindregins vilja kjós- enda um aö mynduö veröi ný vinstri stjórn i landinu. Sérstök ástæöa til aö vekja athygli á þvi aö hugsanleg fylgisaukning Al- þýöuflokksins er túlkuö sem stuöningur við vinstri stjórn. Jafnframt þvi sem Þjóöviljinn gengur út frá þessu sem staðreynd, leggur hann áherslu VINSTRI STJORN EÐA SJÁIFSTÆDISTLOKK á aö Alþýðubandalagiö veröi hiö sterka forystuafl nýrrar vinstri stjórnar. Alþýöuf lokkurinn Þetta skulu þeir hafa i huga sem velta þvi nú fyrir sér hvort þeir eigi að kjósa Alþýöuflokk- inn. Alþýöuflokkurinn teflir fram nýjum mönnum og boöar breytingar. En hann er enn sem fyrr sósialiskur flokkur sem beitir sér fyrir harðari stétta- átökum þjóönýtingu og auknum rikisafskiptum af atvinnu- rekstri. Skyldi það vera farsæl- asta leiöin til aö draga úr spill- ingu I kerfinu aö auka enn viö rikisbákniö? Skyldi þaö vera árangursrikasta siðbótin aö auka enn völd og áhrif ævi- ráöinna embættismanna? Bent hefur verið á þaö hvernig Alþýöuflokkurinn hefur gerst taglhnýtingur kommún- ista i verkalýðshreyfingunni og ekki þurfti Alþýöuflokkurinn langan umhugsunartima áöur enhann gekkst undir forystu Al- þýöubandalagsins viö myndun nýs meirihluta i Reykjavik. Vinstri stjórn eöa Sjálf- stæðisf lokkinn tJrslitin i Reykjavik um dag- inn og fullyröingar vinstri manna um aö kjósendur vilji eindregiö nýja vinstri i lands- málum hefur hvort tveggja valdiö þvi, aö kosið er um þaö eitt hvort hér skuli mynduö vinstri stjórn. Styrkur Sjálf- — Ekki þurfti Alþýðuflokkurinn langan umhugsunartima áður en hann gekkst undir forystu Alþýðubandaiagsins við myndun nýs meirihluta i Reykjavik. stæðisflokksins i kosningunum ræður þar úrslitum. Alþingiskosningarnar eru aö þessu leyti örlagarikari en flest- ar aörar. Ekki er tekist á um störf þeirrar rikisstjórnar sem nú situr, ekki um einstök mál eöa menn heldur er kosiö milli tveggja fylkinga milli lifsviö- horfa. Viljum viö gefa sósialisk- um stjórnarháttum byr undir báöa vængi opna skólana upp á gátt fyrir pólitiskri innrætingu og þjarma að frjálsum atvinnu- rekstri? Eða viljum viö treysta svo Sjálfstæöisflokkinn aö hon- um takist aö skapa mótvægi og viönám gegn þeim öflum sem hafa marxiska kreddutrú aö leiðarljósi? Sjálfstæöisflokkurinn er ekki fullkominn flokkur. Stjórnar- seta hans hefur ekki veriö hnökralaus. En allt slikt stendur til bóta og þaö-áfall sem hann varð fyrir i borgarstjórnar- kosningunum mun honum aö kenningu veröa. Sjálfstæöisflokkurinn hefur einn flokka haft styrk til aö halda aftur af vinstri öfgum og uppgangi. Flokkurinn hefur ekki átt stuöning allra lýöræöis- sinnaöra borgara en flestir hafa engu aö siöur skiliö þetta mikil- væga hlutverk hans og metiö þaö. Þess vegna fékk Sjálf- stæöisflokkurinn svo góöa kosningu i þingkosningunum . 1974. Kjósendur voru ekki allir aö lýsa yfir ævarandi stuöningi viö Sjálfstæöisflokkinn heldur aö láta I ljós andúö sina á ómengaðri vinstri stjórn. Þaö sama þarf aö ske nú. Kjósendur þurfa aö foröa okk- ur frá vinstri stjórn áöur en ekki eftir að hún er mynduð. Þeir þurfa að visa á bug hinni nýju valdastétt lýðskrums og stæri- lætis. Þörf er aðhalds og mót- vœgis við vinstrí öfíin — ella kann jafnvœgið í íslensku þjóðlífi að raskast Crslit byggðakosninganna eru skýr. Sjálfstæðisflokkurinn missti meirihlutann IReykjavik og varð fyrir áföllum viða um land. Uppi eru hugmyndir um stóraukin rlkisumsvif og eina leiðin til að halda þeim innan þolanlegra marka er aö styrkja Sjálfstæðisflokkinn til mótvægis viö vinstri öflin, skapa þeim að- hald. Sovét-ísland er boðað Alþýöubandalagiö stefnir aö þvi að koma sósialískum stjórnarháttum á hér á landi eru ummæli frú Soffiu Guðmunds- dóttur, bæjarfulltrúa og vara- þingmanns. Þetta eru raunar bara orð. En þau eru lýsandi fyrir vissa manngerö sem af einhverjum ástæöum er i nöp viö lýöræöislega stjórnarhætti og sér ekkert athugavert við sósialismann eins og hann er i framkvæmd. Refsidómurinn yfir Orlof og sú áþján sem hann lýsir, ætti þó að stugga við mönnum. En þaö er siöur en svo, aö hægt hafi verið aö greina þaö á frambjóö- endum Alþýöubandalagsins hér fyrir noröan. Ef á Orlov var minnst, fóru þeir aö tala um þaö að Framsóknarflokkurinn heföi svikiö bændur. Að brjóta niður þjóð- félagið Eftir aö hafa setiö 11 þing- málafundi dylst mér ekki aö meiri harka meiri óskamm- feilni veður nú uppi innan Al- þýöubandalagsins en fyrr. „Til- gangurinn helgar meöaliö” er þeirra kjörorð og I yfirlýsingum og flokkssamþykktum er blygöunarlaust sagt, aö þaö sé markmiö Alþýöubandalagsins að vinna flokkspólitiskt innan verkalýöshreyfingarinnar, inn- an skólanna. Þetta hefur aö visu veriö svo i reynd, en fram undir þetta reynt að dylja þaö i oröi. Raunar má segja aö þaö hafi verið þýöingarlaust öllu lengur svo mjög sem pólitisk ágengni t.d. viö unglinga hefur aukizt svo mjög sem kennarar viöa um land hafa misnotað aöstööu sina og svívirt hugsjón kennara- starfsins. Markmiöiö meö þessu er aö sjálfsögöu augljóst. Þaö á aö valda glundroöa og sundrung. Innan verkalýöshreyfingarinn- ar er hinn flokkspólitiski undir- lægjuháttur áberandi. Þar er Haraldur Steinþórsson gleggsta dæmiö. Nú hefur hann algjör- lega snúiö viö blaðinu i sam- bandi við samningana i gildi eftir aö meirihlutinn I Reykja- vik sveik svo freklega gefin fyrirheit i byggöakosningunum. Þessi sami maöur var lika varaforseti BSRB á vinstri- stjórnarárum. Þá fiutti hann ræöur um, að ekki mætti fylgja eftir verkfallskröfu opinberra starfsmanna þá var árangur stefnu hans I launamálum sá aö opinberir starfsmenn drógust verulega aftur úr öörum stétt- um. Verzlunarfólk ekki i náðinni Það er eftirtektarvert aö I öll- um málflutningi Alþýöubanda- lagsins er lögö áherzla á, aö mjög veröi aö þrengja kosti verzlunarinnar og fækka þvi fólki sem aö henni vinnur. Nú bera skýrslur meö sér aö verzlunar- og skrifstofufólk er meðal hinna lægst launuöu. Þaö er þvi ekki feitan gölt aö flá, þar sem þaö er og frekar ástæöa til aö rétta þess hlut. En i þessum áróöri Alþýöu- bandalagsins gætir lika þeirrar lágkúru aö sum störf séu ómerkilegri en önnur og þeir sem vinna þau sömuleiöis. Verzlunar- og skrifstofufólk er annars flokks verkalýöur aö mati þeirra Alþýöubandalags- manna. Kratar og Framsókn duga ekki Reynslan hefur sýnt aö til þess að halda niðri öfgaöflunum innan Alþýöubandalagsins þarf annaö og meira til aö koma en staðfesta Alþýöuflokks og Framsóknarflokks. Sérstaklega gætir þess um hin siöarnefnda. Þaö er engu likara en Fram- sóknarmenn séu á glóðum, þeg- ar kommúnistar eru annars vegar. Þaöer af þessum sökum, sem fylgistap þeirra er óhjá- kvæmilegt, sem menn ,eru hættir aö treysta þeim. Aðhalds er þörf Nú eru uppi hugmyndir um stóraukin rikisumsvif i her- búðum vinstri manna. Stefna á aö hallarekstri ýmissa rikis- fyrirtækja og greiöa mismuninn með aukinni skattálagningu: komiö hefur fram, aö fyrirtækj- um skuli mismunaö eftir rekstrarformum og hér á Akur- eyri kvaö svo rammt aö þessari kröfu, aö þaö kom beinlínis fram i ræöu eins af frambjóö- endum Alþýöubandalagsins aö hömlur skyldu settar viö einka- rekstri. Nú Jiggur þaö fyrir að hinn /----------V Halldór Blöndal skrifar: Ef ó Orlov var minnst ó framboðsfundunum hér fyrir norðan fóru frambjóðendur Alþýðubandalagsins að tala um, að Framsókn hefði svikið bœndur L. a frjálsi atvinnurekstur hefur hvarvetna skilaö mestum arði, staöiö undir beztum lifskjörum. Þaö er i samræmi viö hugsunar- hátt og eöli Islendinga aö ein- staklingurinn skuli hafa svig- rúm frelsi til aö velja og hafna. Eða halda menn að svo fámenn þjóö heföi getaö byggt upp þetta land svo sem gert hefur verið ef kerfiskreddur og pólitikusar hefðu varðaö veginn i atvinnu- málum: stjórnunin heföi komiö ofan frá. Nei, — aöhalds er þörf og mót- . vægis viö vinstri öflin og þann hugsunarhátt sem hér hefur veriö lýst. Sjálfstæöisflokkurinn er eina stjórnmálaafliö sem treystandi er i þeim sökum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.