Vísir - 23.06.1978, Síða 16

Vísir - 23.06.1978, Síða 16
20 Föstudagur 23. júni 1978 VISIR „Geit i hvern húsgarö” var kjörorö ykkar i borgarsljörnarkosningunum. Kokk inn á hvert heimili verður væntanlega kjöroröiö i aiþingiskosningunum. — Eöa hvernig fyndust ykkur: „Bændur allra landa sameinist.” þiö hafiö engu aö týna nema ullinni.” Kraftaverk(ir) Al- þ ýðubandalagsins Mottó: „Skjótvirkasta leiöin til að kollvarpa einu þjóöfélagi er aö grafa undan gjaldmiöli þess”. V.I.LENIN I. Hvers konar flokkur er Al- þýöubandalagiö? Þetta kann aö þykja fávlslega spurt. Snurfusuö áróöursimynd flokksins ætti að vera farin aö siast inn i vitund þina. Og hefur vafalaust gert, a.m.k. I Stór-Reykjavik, ef marka má úrslit borgarstjórnarkosning- anna. Og vist er myndin fögur til aö sjá: „Spegill, spegill, herm þú mér...” Þiö kannst viö rödd stúpunnar úr (mann- kyns)sögunni? Alþýðubandalagið er hvorki meira né minna en málsvari verkalýðs, þjóöfrelsis og sósíal- isma. Til aögreiningar frá öör- um, sem ekki eru þaö. T.d. til aögreiningar frá málsvörum auövalds, landráöa og ófrelsis. (Viö gætum lika valiö þeim aör- ar nafngiftir, þvi af nógu er aö taka: Kalliö þá t.d. aröræn- ingja, heimsvaldasinna, auö- valdsleppa o.s.frv.) Alþýöubandalagiö vill m.ö.o. vera flokkur hinna fögru nafn- gifta. Þaö er líka flokkur hinna stóru oröa. Þaö er aö visu ókurt- eislegt, sérstaklega þessa dag- ana, meöan sigurviman er ekki runnin af þeim, aö vekja athygli á, aö stundum vill þaö vefjast fyrir oröhákunum, aöstanda viö stóru orðin, þegar á reynir. Skyldi vera allt sem sýnist um svo friðan flokk? II. Eitt er þaö enn, sem aögreinir Alþýöubandalagiö frá öörum dauölegum flokkum. Þaö eitt á sér hugsjón — og hana háleita. Þaöeitt hefur markvissa stefnu aö leiöarljósi, sem visar hinum trúuöu veginn, handan viö dægurþras og rig. Alþýöubandalagið vill breyta „sjálfri gerö þjóöfélagsins”. Meö þvi aö koma á sósialisma. Sá sósialismi er alveg sér á parti og á sér ekki hliöstæöu annars staöar á jaröarkringl- unni. Hann á t.d. ekkert skylt viö sovét-afbrigöiö. Hann er miklu háþróaöri en A-Evrópska tilbrigöiö. Hann finnst ekki i Kina. Þaö er helzt hann finnst sunnan Alpafjalla, á risekrum Pó-dalsins. M.ö.o. hann er soldiö likur Italska afleggjaran- um. Annars greinir fræöimenn á um, hvort þeir i Flórenz fengu sinn evró-kommúnisma frá Fróni, eöa öfugt. Allavega þrffst fyrirbæriö vel bæöi hjá Fiat og viö Faxaflóa. — En einkaleyfiö er nú samt skráö i Moskvu. Að visu hefur enginn af æðstu prestum safnaöarins gert utan-safnaöarfólki skiljanlegt, hvaö nákvæmlega felst i þessum séríslenzka sósialisma. I þvi er styrkur hans einkum fólginn. Já, einmitt i þvi. Hann er svo viöfeömur, óhöndlan- legur... Nægir aö segja aö hann er eitthvað fallegt, eitthvaö menningarlegt, eitthvaö lýö- C Jón Baldvin Hanni- balsson skrifar: ... y ræðislegt, og — allavega eftir- sóknarvert. Utansafnaöarfólk ber ekki skynbragö á svo (fagur)fræöilega hluti. III. Utansafnaðarfólk á eiginlega ekki skáliö að eiga svona and- lega uppréttan flokk háleitra hugsjónamanna. En lausnarinn má ekki vera aö þvi aö biöa lýösins. heldur leysir hann sjálf- ur. Fólkiö kann ekki gott aö meta, enda uppfullt afófrómum efasemdum vantrúarmannsins. Þaö er t.d. alltaf aö spyrja: Hvernig stendur á þvi, I svo lýöræöislegum flokki, aö safn- aöarfólkiö fær ekki sjálft aö velja sér frambjóöendur? Treysta æðstuprestarnir ekki sinum söfnuöi? Hvernigstendurá þvi, um svo (þjóö) frelsaöan flokk, aö hann hefur I tvigang setiö i rikis- stjórn, og I bæöi skiptin gleymt aöláta herinn fara? Fyrirgefiö: þaö var auðvitaö 'hinum að kenna. En samt: Hvers vegna lét þjóðfrelsisfylkingin kyrrt liggja, og sat áfram á valdastóTi i skjóli hers heimsvaldasinna? Hvernig stendurá þvi, um svo verkalýössinnaðan flokk, aö hann kann ekki aöra verkalýös- pólitik en aö heimta hærra kaup I krónutölu, vitandi vits um að krónan sigur, gegniö fellur og kaupmátturinn eyöist I eldi og brennisteini veröbólgunnar? Hvernig stendur á þvi um svo verkalýössinnaðan flokk, aö alltaf, þegar hann stendur upp frá kjarasamningum fyrir sin félög, þá er þaö hátekjufólkiö innan hreyfingarinnar, sem hef- ur hrifsaö til sin bróöurpatrinn, en láglaunafólkiösitur eftir meö sárt enni stéttvisinnar aö loknu löngu verkfalli. Hvernig stendur á þvi, meö flokk, sem einn allra, á sér djúpfrysta fræöikenningu frá öldinni sem leið aö vopni, aö hann vill tel ja öðrum trú um, aö flókin efnahagsfyrirbæri, eins og t.d. verðbólga stafi bara af illu innræti og vondri hegðun nokkurra braskara? Hafa mennirnir aldrei lesiö „Das Kapital”? — Aldrei heyrt minnzt á Marx? Eöa, ef þeir trúa þessu sjálf- ir, hvernig stendur þá á þvi, aö eldur verðbólgunnar á tslandi hefur aldrei i sögu lýöveldisins logaö.jafn glatt um fjármuni hins fátæka manns og á valda- tima Alþýðubandalagsins? Nánar tiltekiö: Þegar núver- andi formaöur þess var viö- skipta (les: veröbólgu- mála)ráöherra? — Dugðu þá ekki stóru oröin? Hvaö dvaldi þá kraftaverkin? Kannski kraftaverkir? Hvernig stendur á þvi aö lækkun vaxta 140% veröbólgu er Alþýöubandalaginu sálu- hjálparatriöi? Erþaövirkilegai anda hins „visindalega sósia- lisma” aö ræna unga sem aldr- aöa sparifé sinu, og flytja þaö gefins I sjóöi atvinnurekenda (les: auövaldsins)? Er þaö virkilega svo? Hvernig stendur á þvi að flokkur hins alþjóölega bræöra- lags (maöur er ekki þjóðfrels- aöur nema stundum) boöar eitt- hvaö sem heitir „islenzk at- vinnustefna?” Viö nánari at- hugun reynist þaö vera sú teg- und einangrunarstefnu sem boöar framleiöslu fyrir heima- markaö. Þaö er aö visu þjóö- legt, en ákaflega vitlaust. Og kemur hastarlega viö pyngju hins vinnandi manns. Vegna þess aö láglaunafólk hefur hag af þvi aö kaupa innflutta vöru, sem er ódýrari en viö getum framleitt. Og vegna þess aö dýra, innlenda vöru, sem ekki er samkeppnisfær á erlendum mörkuöum, veröum viö aö styrkja meö niöurgreiöslum eöa tollvernd, sem er sami hlutur- inn. Slik framleiöslustarfsemi heldur niöri kaupgetu almenn- ings. Gerir Island að láglauna- landi. Fiskur borgar sig, af þvi að hann er útflutningsvara. Þess vegna er hátt kaup á skut- togara, en lágt i kexverksmiöju. Hvers vegna, góöir þjóöernis- sósialistar? Eru nú týnd hin fornu fræöi? Hvar er alþjóöa- hygpjan? „Geit i hvern húsagarð” var kjörorö ykkar i borgarstjórnar- kosningunum. „Rokk inn á hvert heimili” veröur væntan- lega kjöroröiö i alþingiskosn- ingunum — Eöa hvernig fyndist ykkur: „Bændur allra landa, sameinizt.Þiö hafiö engu að týna nema ullinni”. Eöahvernig stendur á þvi, aö Alþýöubandalagið er fariö aö boöa landbúnaöarpólitik, sem er ennþá vitlausari en þaö sem gengur undir sama nafni hjá Framsóknarflokknum — og er þá langt til jafnað. Oft er flagð undir fögru skinni, kennir þjóötrúin af lifs- reynslu sinni. Fagurt skal mæla, enflátthyggja, og gjalda lausung viö lygi — stendur á öörum staö. Og þá minnist ég þess, þegar ungur nemandi minn stóöupp á framboðsfundi i Alþýöuhúsinu á Isafiröi 1974 og spuröi frambjóöanda sinn af hrekklausri einlægni: „Hvað er sóslalismi, Kjartan?” Og hugmyndafræöingurinn svaraöi af yfirvegaöri rósemi þess manns, sem ekkert fær haggað — orörétt: „Sósialismi, ungi maður, já, — þaö er nú þaö.” — Já, þaö er nú þaö, Kjartan minn. J.B.H. OKEYPJS MYNDAÞJONUSTA opið til kl. 7 Opið í hódeginu og d laugardögum kl. 9-6 Chevrolet Nova árg. 74, ekinn 53 þús. km, 6 cyl, sjálfskiptur, powerstýri og bremsur, útvarp, segulband, sumar- dekk. 2ja dyra skoðaður 78. Vínrauð. Gott lakk. Verð kr. 2.650 þús. Fæst einnig á skuldabréfi. Maverick Crabber árg. 71, 6 cyl. sjálf- skiptur, 2ja dyra, gulur. Gott lakk. Sumardekk. útvarp. Powerstýri. Skoð- aður 78. Verð kr. 1550 þús. Fæst einnig á skuldabréfi. Cortina 1600 árg. 74, ekinn 65 þús. km. 2ja dyra, blasanseraður. Gott lakk. Út- varp, segulband. Skoðaður 78. Verð kr. 1.5 millj. Skipti á 8 cvl. sjálfskiptum. Mercury Comet árg. 73, ekinn 50 þús. km. 6 cyl. grænsanseraður. Gott lakk. 4ra dyra. Sumardekk og vetrardekk. Skoðaður 78. Vill skipti á Mözdu. Verð Þr 1800 þús. Escort 1300 árg. 74. Ekinn 36 þús. km. Blár. Gott lakk. 2ja dyra. Sumardekk. Verð kr. 1170 þús. Peugeot404station árg. '67, ekinn 8 þús. km. á vél. Verð kr. 550 þús. Fæst á góð- um kjörum. Opel Rekord 1700 árg. 70, vélarlaus. Drapp. Gott lakk. Sumardekk. Tilboð óskast. Höfum kaupendur að nýlegum ameriskum, helst 2ja dyra. BILASALAN SPYRNAN VITATORGI milli Hverfisgötu og Lindargötu Simar: 29330 og 29331

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.