Vísir - 05.08.1978, Síða 14

Vísir - 05.08.1978, Síða 14
VTSIR „Astandið í efna- hagsmálnm lagast ekki á meöan hald ið er áfram með sömu ,,Þegar menn eignast f jármuni, eitthvað umfram það venjulega, eru þeir kallaðir ríkir, en það er auð- vitað ekkert annað en hliðarkrókur af vel unnu starf i. Og það er eins með alla hluta í náttúrunnar riki — þeiMeita skjóls. Þeir leita þangað sem þeir fá best skjól og öryggi og það er eins með f jármuni. Ef þú sýnir f jármunum nógu mikla alúð falla þeir þér í fang, oft af sjálfdáðum. Það má eiginlega líkja þessu við ástir kvenna. Konur eru hægt að vinna best og varanlegast með ástúð og umhyggju en fæla þær frá sér með andstæðum aðferðum, hrottaskapog nauðgun. Þetta er líklega skýringin á því að f jármunir leita frekar til Sviss en ekki til ís- lands". Sá sem þetta mælir er Sveinn Valfells, forstjóri Vinnufatagerðar Islands h/f. Sveinn er kunnur fyr- ir störf sín á viðskipta- og f jármálasviðinu og er einn þeirra manna sem með störfum sínum hefur haft áhrif á þróun íslenskrar verslunarsögu s.l. f immtíu ár. Skoðanir hansog þeirra sem ráðið hafa ferðinni i efnahagsmálum hafa ekki alltaf farið saman og í eftirfarandi spjalli ræðir Sveinn opin- skátt og tæpitungulaust um ýmislegt sem honum hef ur þótt miður fara i þeim efnum. Auk þess f létt- ast inn \ samtalið þróun islensks viðskiptalífs í hálfa öld. „óraunhæfar kaupkröfur orsök efnahagsvandans" i upphafi samtals okkar barst talið að núverandi ástandi I efna- hagsmálum þjóöarinnar en Sveinn hefur mjög ákveðnar skoöanir á orsökum þess— „Þegar rætt er um ástandiö i efnahagsmálum er mikilvægt að gera sér grein fyrir aö allt of lengi hafa kaupkröfur fariö langt fram úr aukningu verömætasköpunar þjóöfélagsins og undan þessum kröfum hefur verið látiö i algjöru skilningsleysi á þvi, aö uppfylling slikra kaupkrafna virkar neikvætt á hag alls almennings. Þetta er kjarni málsins. Þaö liggja fyrir viötækar rannsóknir, sem ná yfir meira en hundraö ára timabil, á þvi, aö engu þjóöfélagi hefur tekist aö auka framleiöni sina og verömætasköpun sem nemur meira en 3% á mann á ári aö meöaltali. Þess vegna eru all- ar kauphækkanir sem fara fram úi þessari tölu einungis til þess fallnar.aö kynda undir veröbólgu sem færir engum aöilum bætt lifskjör heldur hiö gagnstæöa. Allar kauphækkanir umfram þessi 3% eru þvi tilgangslausar og af hinu verra. I launaumslag- inu eru að visu fleiri pappirsseöl- ar, en þeir eru einskis viröi og raunar bara vindur. Heildaráhrifin verða svo nei- kvæö þvt að þessi ruglingur á skilningi verömæta veldur óreiðu ,Allar kauphækkanir umfram 3% eru tilgangslausar og bara vindur i launaumslaginu...” og jafnframt sóun verömæta þvi menn missa virðingu fyrir hlut- unum og virðingu fyrir sparsemi. Og sóun verömæta virkar nei- kvætt á allar framfarir. Viö þetta má bæta, aö meira að segja hag- fræöingur Alþýðusambandsins hefur viðurkennt aö á tslandi hafi ekki orðiö raunveruleg kjarabót sem nemur meira en 2.6% á ári þótt kauphækkanir hafi numið hundruðum prósenta. Samt halda menn endalaust áfram að gera þessar óraunhæfu kaupkrofur og ástandið i efnahagsmálum þjóð- arinnar lagastekki á meöan hald- iö er áfram með sömu vitleys- una”. „Það ætti að setja verð- miða á alla þjónustu rikis- ins" „En það er ýmislegt fleira sem hér kemur til og eitt er gengdar- laus eyðsla og sóun sem á sér staö af hálfu rlkisvaldsins undir yfir- varpi félagslegra umbóta. Það ætti aö setja verðmiöa á alla þjónustu rikisins svo að menn vissu hvaö þeir væru aö kaupa og á hvaöa veröi. Ég er hræddur um, að margir þeir sem nú heimta alls konar þjónustu af hálfu rikisins mundu ekki vilja sjá aö kaupa hana ef þeir ættu sjálfir aö borga hana þvi verði sem hún er boöin á. En af þvi að þetta heitir félags- leg þjónusta er hún falin, sóunin og vitleysan. Gjaldeyrismálin og verðlags- mál almennt eru einnig nátengd þessu ástandi sem nú rikir i efna- hagsmálum. 1 þvi sambandi vil ég benda á nauðsyn þess, aö gefa gengiö frjálst — þ.e. sölu á gjald- eyri. Þá finnur gengiö sitt jafn- vægi undireins og verður hverju sinni jafngildi kaupmáttar þjóöarinnar og þeirra peninga „Fyrirtækjunum var slatrao tyrir algjöra heimsku.” sem hún hefur meö höndum. Þá er ég lika sannfærður um, aö ef allt verðlag yrði gefið frjálst myndi þaö verka til hagsbóta fyrir hinn almenna neytanda á hvaða sviöi sem er. Og það gildir ekki aöeins um smjör, ost eða ýsu heldur einnig um hvers konar þjónustu, sem nú er reyrð i okur- kerfi. Einokunarmyndun verkar alltaf neikvætt á hagsmuni al- mennings og þess vegna þarf að koma frjálst markaðskerfi á sem flestum sviðum. Verömyndun Ff hlutarins gerist fyrir frjálst markaösframboð en ekki fyrir einokunartaxta, hvort sem það er pipulagningamaður, tannlæknir eða hvers konar þjónustumaöur sem getur skapað sér aöstööu til aö taka óeölilega hátt gjald fyrir þjónustu sina. Markaðurinn verður að fá aö njóta sin á sem flestum sviöum þvi það er besta tryggingin fyrir réttu veröi. Og þegar ég segi réttu verði þá á ég viö, aö þaö sé ekki of hátt og ekki of lágt.” „Það er þjóðin sjálf sem skráir gengið — ekki embættismenn" Á timum efnahagsöröugleika er stundum talað um þá lausn, að fjármálamenn og menn með reynslu á viöskiptasviðinu, taki við stjórn efnahagsmáia. Hvað myndir þú gera ef þú værir fjármálaráðherra i dag? „Það fyrsta sem þarf að gera er að gera þjóöinni ljóst aö hún skráir gengið sjálf en ekki em- bættismennirnir. Þaö er mikill misskilningur aö halda, að em- bættismannalýðurinn og hinir pólitisku valdhafar skrái krón- una. Það er fiskurinn i sjónum og | „öllu valdi verður aö fylgja hlutfallsleg ábyrgö...” hegðun fólksins sem að skráir krónuna. Þess vegna er það bara vitleysa aö tala um aö þessi eöa hin rikisstjórnin hafi gripið til gengisfellingar. Þegar til slikra ráöstafana er gripiö er krónan löngu fallin og embættismennirn- ir gera ekki annaö en aö setja gúmmistimpil á orðinn hlut og yfirleitt allt of seint. Einnig þarf aö glæöa skilning þjóðarinnar á þvi, að þaö eru möguleikar á að fá jafngott lif meö færri krónum ef þær hafa meiri kaupmátt og jafnframt að ef hún vill hafa það gott má hún aldrei gera meiri kaupkröfur en sem nemur 3% á ári. Einhver mestu mistök sem gerð hafa verið i efnahagsmálum hér á landi urðu viö stofnun viðreisnarstjórnar- innar 1960, aö gera þá þjóöinni ekki ljóst aö hún skráöi gengið sjálf og að hún gæti valiö á milli þess aö fylla launaumslagið meö verðlitlum krónum eöa aö fá færri „stabilar” og réttar krónur meö fullum kaupmætti. En hvað um framtiöarþróun i efnahagsmálum eins og þetta blasir við okkur i dag. Er einhver von um að þetta breytist til hins betra að þinum dómi? „Ekki nema aö það veröi breytt algjörlega um kerfi og aö stjórn- málamenn, — mér liggur viö aö segja heimskir stjórnmálamenn, hætti aö blanda sér i viöskiptalög- málin og láti hin eðlilegu „ökonómisku” lögmál ráöa ferö- inni. Ég held aö þaö þurfi bara aö koma ný kynslóð, með nýtt upp- eldi og meiri menntun og skiln- ing á efnahagsmálum og þá megi lagfæra hlutina eins og alla aðra hluti. En til þess þarf kynslóða- skiptingu þvi að gamla kynslóðin getur þaö aldrei úr þvi sem komiö er. Þarna þarf að koma til hugar- farsbreyting sem felst m .a. i betri skilningi á hegðun manna hvers gagnvart öörum i viöskiptalegu eöa efnahagslegu tilliti. Og kerfið veröur að vera þannig, aö þaö feli i sér hvata til þess að hver og einn einstaklingur leggi sig sem mest og best fram i verðmætasköpun. Slikur hvati er nauðsynlegur þvi aö þaö er aldrei hægt meö nauðgun og valdboöi aö reka menn til aö leggja sig alla fram.” „Já, þaö voru mikil mistök aö gefa gengið ekki frjálst árið 1960. Ég lagði þá eindregiö til aö þaö yröi gert svo og að vextir yrðu gefnir frjálsir. Þá heföi lánsfé fylgt hagkvæmislögmálinu og fariö i þær framkvæmdir sem voru arövænlegastar fyrir þjóöfé- lagiö. Einungis arðvænlegar framkvæmdir geta staðið undir aö borga hæstu vextina en vitleysan ekki. Þá áætlaöi ég einnig gengi dollarans fram i timann og sagöi aö hann mundi verða á milli 210 og 220 krónur á árinu 1980. Þá sögöu allir að ég væri geggjaður og aö dollarinn færi aldrei upp i þá upphæö. En þvi miður var ég ekki nógu raunsær, — hann er nú kominn miklu hærra. Ég varaði mig ekki á þvi að heimskan var ennþá verri og meiri en ég hélt.” „Kreppan 1931 var hégómi hjá þeirri fátækt..." Við vikjum nú talinu aftur I timann og ég spyr Svein hvernig VISIR Laugardagur 5. ágúst 1978 15 það atvikaöist aö hann haslaöi sér völl á sviöi verslunar og viö- skipta. „Þaö kom nú eiginlega af sjálfu sér þvi daginn eftir ferminguna var mér boöiö starf viö verslun i Borgarnesi þar sem ég óst upp. Ég haföi aö visu kynnst verslunarstörfum litilsháttar áöur, þvi aö faöir minn rak íshús sem seldi frosinn mat, en þaö var algjör nýjung þá. Eg vann þarna i fimm ár áöur en ég fór i Verslunarskólann en þaðan út- skrifaðist ég vorið 1921. Um haustiö þaö ár hóf ég svo störf viö heildverslun Garöars Gislasonar. Þaö má þvi segja, aö þetta hafi komiö af sjálfu sér aö ég fór út i verslunarstörf en ekki eitthvaö annaö. Þegar ég byrjaöi hjá Garöari Gislasyni voru miklir erfiöleikar i viðskiptalifinu hér, — einhver sú mesta kreppa sem dunið hefur yfir þjóðina á þessari öld” En hvaö meö kreppuna sem skall á 1931, — var hún ekki verri? „Nei, hún var hégómi hjá þeirri fátækt sem þjóðin fór i gegnum á árunum eftir fyrri heimsstyrjöld- ina. Þá skall á mikið verðfall úti i heimi og allar vörur féllu i verði, þar á meöal islenska fram- leiöslan, sem auk saltfisks var aö verulegu leyti sild. tslendingar höfðu haldiö sildarverðinu svo háu að hún seldist ekki og fyrir bragöiö var henni mokað fyrir milljónir i sjóinn. Þetta ástand varði til ársins 1924 en þá kom gósenár, eftir aö búið var aö „stabilisera” gjald- miöil Þýskalands. Þjóðverjar höföu þá um skeiö búiö viö slikt hörmungarástand i efnahags- málum að þess eru engin dæmi hvorki fyrr né siðar. Markiö féll þar til það varö svo til aö engu. Laun voru þá borguö tvisvar á dag, — fyrir hádegi og eftir há- degi og menn urðu að nota timann fyrir hádegisverð til þess aö finna eitthvað til aö kaupa, þvi aö pen- ingarnir féllu svo yfir daginn, að á kvöldin voru komnir nýjir „prisar” — og allt hækkaö I verði.” En þetta hefur ekki oröiö eins áþreifanlegt hér? „Nei, aö visu var ástandiö ekki alveg eins slæmt hér. En verö- fallið var þaö mikiö aö sumar vörur féllu um 80%. Sem dæmi skal ég nefna, að fyrir jólin 1920 þurfti ég að kaupa mér nýja skó sem kostuöu 70 krónur hjá Lárusi G. Lúðvikssyni, — en sex mán- uðum seinna keypti ég mér eins góöa skó fyrir 10 krónur. A þessum tima fóru allar vefnaöar- vöruverslanir i Reykjavik á haus- inn aö undantekinni verslun „Verömyndun hlutarins gerist fyrir einokunartaxta...” Björns Kristjánssonar, sem var sú eina sem liföi þetta af heil- steypt og blómstrandi, en þeir höföu haft vit á aö halda útsölu og losna þannig við vörubirgöir sin- ar fyrir tiltölulega gott verð.” „Þetta kenndi þjóðinni að spara" „Ariö 1924 var enduruppbygg- ing vel á veg komin i Evrópu og þá komu glæsilegir timar meö stórkostlegum verðhækkunum á islenskum afuröum. Var þaö jafnvel svo, að saltfiskur steig um 100% og þetta ár varð eitthvert hagstæðasta viðskiptaár sem yfir tsland hefur komið. Þá gerðist þaö sem er einsdæmi i Islands- sögunni, aö Islenska krónan tók aö stiga en erlendur gjaldmiöill aö falla i veröi. Eftir aö tsland haföi öölast sjálfstæöi og aöskilnaöur varö milli rikissjóös tslands og Dan- merkur varð islenska krónan sér- stakur gjaldmiöill en féll I fyrstu svo, aö á árunum 1922—23 var gjaldeyrisþurrö svo til algjör. En i lok ársins 1924 snerist þetta viö og þætti þaö saga til næsta bæjar i dag ef svo snögg umskipti yrðu, aö islenska krónan stigi i veröi en erlend „valúta” félli. Gjaldmiöillinn miöaöist þá all- ur við sterlingspundiö og þaö féll svo, aö 1926 var þaö komið niöur i 22 krónur og 15 aura en haföi gengiö kaupum og sölum allt upp I 40 krónur þegar gjaldeyris- skorturinn var mestur. Þetta kenndi þjóöinni aö spara en þaö er aö veröa óþekkt fyrirbrigöi hér nú. Þegar ég fór aö vinna hjá Garð- ari Gislasyni var Þýskaland aö komast inn á viöskiptasviðiö eftir striöiö og vöruverð var mjög lágt þar i landi. Garöar haföi aldrei átt nein viöskipti viö Þýskaland og ég réöst eiginlega til þess aö vinna að uppbyggingu viöskipta viö Þýskaland. Hjá Garöari var ég i tiu ár og siöustu árin annaöist ég mestan hluta innkaupa á hvers konar varningi fyrir heildverslunina. I þvi sambandi sigldi ég til útlanda og var oft erlendis þrjá til fjóra mánuöi á árinu. Ég var þvi i aö- stööu til aö kynnast ýmis konar framleiöslu i iðnaöi og varö beint og óbeint til þess að ég fór út i framleiöslu iðnaöarvarnings þegar ég hóf sjálfstæðan atvinnu- rekstur.” //Og svo kom kreppan til Islands" „Ariö 1931 er komin hér mikil og slæm kreppa sem breiddist út frá Ameriku yfir til Evrópu en kom seinna hingað til Islands þvi aö áriö 1930 var hér mikið viö- skiptagóðæri. Þaö var reyndar allt byggt á holklaka og lánum þvi að áriö eftir kom kreppan til Islands og hófst meö þvi aö sterlingspundiö féll gagnvart dollaranum á heimsmarkaöi.” Bar þaö brátt aö hér á landi? „Þaö kom nokkuö hratt meö gifurlegu veröfalli á útflutnings- vörum Islendinga og þá komust öll meiriháttar útflutnings- og framleiðslufyrirtæki landsins i greiösluþrot. Hér varö mikill gjaldeyrisskortur og erfiðleikar á öllum sviöum. Þá varð mér ljóst, aö það mætti búa til ýmsa hluti á Islandi sem þá voru fluttir inn erlendis frá og þannig spara gjaldeyrinn og öör- frjálst markaösframboð en ekki um þræöi veita atvinnu handa fólki hér sem þá bjó viö gifurlegt atvinnuleysi. Og þaö réöi þvi, aö ég fór aö snúa mér aö iönaöi og stofnaöi Vinnufatageröina sem aö hóf störf áriö 1932. Ég valdi vinnufötin á grundvelii þess aö þar var um svolitla mögu- leika á fjöldaframleiöslu að ræöa auk þess sem þetta var algjör nauðsyr, javara. Tiltækið fékk góð ar móttökur og sérstaklega var mikil efíirspurn eftir vinnu þvi aö ég borgaði svolitiö hærra kaup en almennir kauptaxtar sögöu til um. Ég hafði akkorðs-fyrirkomu- lag á þessu og stóö þvi til boða úr- vals fólk sem haföi áhuga á þvi að afla sér sem mestra tekna.”

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.