Vísir - 31.08.1978, Blaðsíða 2

Vísir - 31.08.1978, Blaðsíða 2
2 SPURT t REYKJAVÍK: HEFUR ÞU UNNIÐ í HAPPDRÆTTI? Gunnar Gunnarsson: Nei aldrei nokkurn tima, og þó hef ég spilaö i ein fimm til sex ár. Ég hugsa samt aö ég hætti þvi ekki i bráð. Maður hefur alltaf vonina. Kolbeinn Kolbeinsson : Nei aldrei, enda tek ég ekki þátt i happ- drætti, nema kannski til að styrkja eitthvaö. Annars eru möguleikarnir hverfandi á þvi að fá vinning og ef annað væri gætu happdrættin ekki þrifist. Sigurður Vilhelmsson: Ég hef náttUrulegaaldrei unniö þvi að ég hef aldrei átt happdrættismiða. Ég veit nú ekki hvort maöur f er nokkuð að spila reglulega i happ- drætti, nema maður færi að gera sér vonir um bil. Þá gæti veriö aö ég keypti miða hjá styrktarhapp- drættum. Guðrún Halldórsdóttir: Það kom einu sinni vinningur, aö visu ekki stór, á miöa sem ég átti að helmingi. Ég hef þvi bara fengið hálfan vinning, þrátt fyrir það aö ég hef átt miða i ein 10 ár. Birgir Sigurðsson: Ég hef aldrei unnið enda aldrei átt happ- drættismiða. Ég býst ekki við þvi að fá mér miða strax. mammwm Fimmtudagur 31. ágúst 1978 ■■■■■■■■■■■■■■■■■! „Stunda lax- veiði og rjúpnaskytt- í frí- stundunum" — segir Kjartan Lárusson, nýskipaður forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins ,,Var það ekki einn hinna ungu þingmanna sem sagöi um daginn, að hann væri orðinn svo gamail, að hann ætti engin áhugamái leng- ur? Ætli ég segi þá ekki að ég sé ekki nógu gamall og þroskaður til að eiga nokkur áhugamál!’’. Sá sem þetta segir er Kjartan Lárusson, nýskipaöur forstjóri Feröaskrifstofu rikisins, en við heimsóttum hann fyrir stuttu gagn- gert til þess að kynnast manninum ,,á bak við starfiö” ef svo má að orði komast. „Mitt helsta áhugamál er að ferðast”, segir Kjartan, ,,en þó ferð- ast ég liklega ekki meira en gengur og gerist. Einna helst vil ég feröast hér innan lands, og er mér þá nokkurn veginn sama hvert ég fer. Aöalatriðið er að finna fallegan stað, og ef veöur er gott get ég verið hvar sem er langt eöa skammt frá bænum.” „Þið ráðið þvi hvort ég sit hér við skrifborðiö eða stend fyrir utan húsið! — En ef ég fer út þá sést nafnið á fyrirtækinu og þá er þar komin ókeypis auglýsing!” sagði Kjartan um leið og Ijósmyndari VIsis GVA, smellti af. — Ferðastu þá einn eða i stórum hópi ef þú vilt njóta ferðarinnar? „Best kann ég við mig með fjölskyldunni eða i hópi fárra vina, að fara út i náttúruna og gera bara mest litið. Þá kemur það einnig fyrir að ég skrepp á veiðar, einkum rjúpnaveiði og örlitiö laxveiði. En þaö skal tekið fram aö sá veiðiskapur er á ákaflega frum- stæðu stigi, og ekki eru nein stórafrek til að gorta sig af á þessu sviði. Ég vona bara að þetta hljómi ekki allt of „viðskiptalegt”, þetta um ferðalögin innanlands, þvi mér finnst raunverulega gaman að þvi að fara út i náttúruna, þó svo ég vinni við að selja ferðir hér um landið! Þá finnst mér einnig gaman að koma til útlanda, sérstaklega til Grænlands, sem að mörgu leyti likist íslandi, og svo er að sjálfsögðu einnig gaman að koma til gjörólikra staöa. Varðandi önnur áhugamál veitég varla hvaðég á aö nefna, ég les ekki sérlega mikiö, en þó hef ég gaman af að gripa niður i bók og lesa kafla og kafla — Frekari bóklestur veröur aö biöa elliáranna! Þá kemur það fyrir að ég fer á völlinn, og horfi á iþróttakapp- leiki, en ég hef aldrei verið fé- lagsbundinn i neinu félagi, hvorki iþróttafélagi, stjórn- málafélagi eða flokki né nokkru öðru. Þegar ég fer á völlinn vil ég helst halda með þvi liðinu sem vinnur, en á pólitik hef ég vissulega minar ákveðnu skoö- anir. En ástæða þess að ég hef ekki gengið I nein félög, er sjálf- sagt sú, að ég hef ekki viljaö deila alfariö sorg eða gleði meö neinum aðila hvaö þetta varð- ar.” geti ekki beinlinis talist til skemmtiferða. En það er alltaf fróðlegt og skemmtilegt a& fara utan og kynnast sjónarmiö- um og þankagangi nágranna okkar.” — Fylgja mikil ferða- lög starfi þinu? „Já talsvert. Við erum að selja ferðir til útlendinga um Is- land, og aðallega byggist þetta á þvi að selja ferðirnar að vetrin- um, og þarf þá oft aö fara utan til samningagerða. Ég hef gam- an af þessum feröum, þó þær Varðandi starfið sagöi Kjart- an, að það væri að mörgu leyti spennandi verkefni sem hann hefði með höndum, og leitast væri við að reka Ferðaskrifstofu rikisins eins og hvert annað fyr- irtæki. „Það er mikilvægt að fá sem mest út úr þessari iöngrein, ef kalla má ferðamálin þvi nafni, enda gengur okkur is— „Veröur þaö ekki illa séö ef forstjóri rikisfyrirtækis losar um bind- ishútinn og sest upp á borö til myndatöku?” lendindum ekki of vel að afla okkur gjaldeyris. Við eigum að leggja áherslu á að efla ferða- málin hér á landi, alveg eins og aðrar þjóðir leggja nánast allt i sölurnar til að fá okkur til sin”, sagði Kjartan. — Að lokum Kjartan. Ertu ekkert hræddur um að þessi stofnun, Ferða- skrifstofa ríkisins verði lögð niður á næstu árum, eins og margir virðast telja eðlilegt? „Ég held að ferðamönnum brygöi mjög i brún ef ekki væru Edduhótelin og ýmis önnur starfsemi sem rekin er af Ferðaskrifstofunni. Þá eru einnig margir þeirrar skoðunar að meö þessu fyrirkomulagi fá- ist góð nýting á húsnæði rikis- ins, og vist er að þetta fyrirtæki skilar til baka þvi fjármagni sem kemur frá hinu opjnbera. En það er alveg rétt að innan tiltölulega fárra ára kann sú staða að vera komin upp, aö einkafyrirtæki geti vel annast þá þjónustu sem við veitum, og þá er það bara allt i lagi og ekk- ert við það að athuga að aðrir taki við af okkur”. Þar með kvöddum við Kjart- an Lárusson, en þess má geta að hann gaf sér ekki tima til aö fara heim með okkur og taka mynd af honum með fjölskyld- unni eins og við hefðum þó helst kosið. En Kjartan er kvæntur Rut önnu Karlsdóttur, og eiga þau einn son, Þór, sem er sjö ára. —AH. Björgunarsveitamenn a œfingu á Siglufirði: svið flugslys Settu á Fjölmennt æfinga- mót björgunarsveitar- manna á Norðurlandi var haldið á Siglufirði um helgina. Sett var á svið flugslys og voru b j örgunarsveitarmenn látnir leita að flugvél- inni. Á mótið mættu 14 björgunar- sveitir Slysavarnafélags Is- lands á svæði númer 6 en það nær frá Hrútafirði að Ljósa- vatnsskarði. Auk þess komu flugbjörgunarsveitir frá Varmahliö og Akureyri og hjálparsveitir skáta frá Blöndu- ósi og Akureyri. Þátttakendur voru alls um eitt hundrað manns. Æfðar voru björgunaraðgerö- irásjó oglandi og meöferðátta- vita og fjarskiptatækja, enn- fremur skyndihjálp á slysstaö og fleira. Mótið tókst mjög vel að sögn, og gekk vel að finna týndu flugvélina þrátt fyrir þoku og súld og erfitt leitarveð- ur. Aðalbækistöð æfinganna var á Hóli. Þaðan var æfingunum stjórnað og þar var upplýsinga- miðstöð til hjálparsveitanna. Björgunarsveitarmenn héldu siðan fund með sér að afloknum æfingum eftir hádegi á sunnu- dag. Björgunarsveitin Strákur á Siglufirði sá um þetta æfinga- mót og undirbúning þess. For- maður hennar er Helgi Antons- son vélstjóri. —ÞRJ, Siglufirði/—KS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.