Vísir - 31.08.1978, Síða 6

Vísir - 31.08.1978, Síða 6
Styrkur til háskólanáms i Sviss Svissnesk stjórnvöld hafa tilkynnt aö þau bjóöi fram i löndum sem aöild eiga aö Evrópuráðinu sex styrki til háskólanáms i Sviss háskólaárið 1979-80. — Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma I hlut Islendinga. Styrkir þessir eru eingöngu ætlaöir til fram- haldsnáms viö háskóla og eru veittir til tiu mánaöa náms- dvalar. Styrkfjarhæðin er 950 svissneskir frankar á mánuöi og auk þess fá styrkþegar allt aö 500 franka styrk til bókakaupa. — Þar sem kennsla I svissneskum háskólum fer fram annaöhvort á frönsku eöa þýsku er nauðsynlegt að umsækjendur hafi nægilega þekkingu á ööru hvoru þessara tungumála. Þurfa þeir að vera undir það búnir, aö á það veröi reynt meö prófi. Umsækjendur skulu eigi vera eldri en 35 ára og skulu hafa lokiö háskóla- prófi áöur en styrktimabil hefst. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamála- ráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 1. nóvember n.k. á tilskildum eyöublöðum sem þar fást. Menntamálaráðuneytið 25. ágúst 1978 Styrkur til háskólanáms i Japan Japönsk stjórnvöld bjóöa fram styrk handa tslendingi til háskólanáms i Japan námsáriö 1979-80en til greina kemur aö styrktimabil veröi framlengt til 1981. Ætlast er til aö styrkþegi hafi lokið háskólaprófi eöa sé kominn nokkuö áleiöis i háskólanámi. Þar sem kennsla viö japanska háskóla fer fram á japönsku er til þess ætlast að styrkþegi leggi stund á japanska tungu um a.m.k. sex mánaöa skeiö. Umsækjendur skulu ekki vera eldri en 35 ára. Styrkfjár- hæðin er 146.000 yen á mánuöi og styrkþegi er undan- þeginn skólagjöldum. Auk þess fær styrkþegi 25.000 yen við upphaf styrktimabilsins og allt að 42.000 yen til kaupa á námsgögnum. Þá er og veittur feröastyrkur. Umsóknir um styrk þennan, ásamt staöfestum afritum prófskirteina, meðmælum og heilbrigöisvottoröi, skulu sendar menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 22. september n.k. — Sérstök umsóknar- eyðublöð fást i ráöuneytinu. Menntamálaráðuneytið 25. ágúst 1978 Menningarsjóður íslands og Finnlands Tilgangur sjóösins er aö efla menningartengsl Finnlands og Islands. I þvi skyni mun sjóöurinn árlega veita feröa- styrki og annan fjárhagsstuöning. Styrkir veröa ööru fremur veittir einstaklingum, en stuöningur viö samtök kemur einnig til greina ef sérstaklega stendur á. Umsóknir um styrk úr sjóönum skulu sendar stjórn Menningarsjóös Islands og Finnlands fyrir 30. september 1978. Aritun á Islandi er: Menntamálaráöuneytiö, Hverfisgötu 6, Reykjavik. Æskilegt er aö umsóknir séu ritaðar sænsku, dönsku, finnsku eöa norsku. Stjórn Menningarsjóðs íslands og Finnlands 28. ágúst 1978 Nauðungaruppboð að kröfu Jóns G. Briem hdl, Ásgeir Thor- oddsen hdl, Inga R. Helgasonar hrl, Haf- steins Sigurðssonar hrl, Ágústar Fjeldsted hrl, Guðmundar Ingva Sigurðssonar hrl, Brynjólfs Kjartanssonar hrl, Ólafs Ragn- arssonar hrl, Theódórs F. Georgssonar hdl, Garðars Garðarssonar hdl og Inn- heimtumanns rikissjóðs verða eftirtaldir lausafjármunir seldir á nauðungarupp- boði fimmtudaginn 7. september 1978 kl. 16 að Vatnsnesvegi 33, Keflavik Ö-3253, Ö-4190, Ö-3901, Ö-4415, Ö-4746, Ö- 188, Ö-5277, Ö-2165, R-43137, G-1353, lyftari TFC, Candy þvottavél, isskápur, hljóm- flutningstæki, sjónvarp og sófasett. Uppboðshaldarinn i Keflavík og Njarðvík Fimmtudagur 31. ágúst 1978 VÍSIR Umsjón Guðmundur Pétursson Oistard skyggnist cfjvpf #ram í taflið Starfsmenn Boussac-fata- verksmiöjunnar i austurhluta Frakkiands gripu i mótmæla- skyni við uppsagnir til þess að hrófla upp hindrunum á aðliggj- andi vegum að verksmiðjunni á dögunum. ,,Ef bara Giscard vissi, hvaö hér er um að vera og hvaða at- vinnuleysi þetta mun hafa i för með sér,” sagöi einn mótmæl- endanna. Giscard d’Estaing forseti vissi þó ósköp vel, hvaö var um að vera hjá gjaldþrotaverk- smiðjunni. Verksmiðjan var réttur og sléttur prófsteinn á nýja stefnu stjórnar hans I efna- hagsmálum. Það er sú stefna, sem hann ætlaði sér að fylgja, eftir úrslit siðustu þingkosn- inga, sem tryggðu stjórn hans 100 þingsæta meirihlutamun fram að næstu forsetakosning- um 1981. Sú stefna miðar að þvi, að auka samkeppnishæfni fransks iönaöar og annarra fyrirtækja. Knýja þau til þess að auka af- kastagetu sina og gæta meiri hagkvæmni i rekstri með þvi að nánast reka þau af rikisjötunni og hætta rDcisstyrkjum. Það hlaut auðvitað að leiða til þess, að einstök fyrirtæki, Lem ekki kæmust af hjálparlaust, yrðu gjaidþrota. Jafnframt fylgdi hætta á auknu atvinnuleysi. Hafinn yfir daglegt þref En þessi ummæli iönaöar- verkamannsins, sem búinn var aö missa vinnu sina, draga skýrt fram fyrirbrigöiö, sem nú er komið á daginn i frönskum stjórnmálum. Þeir, sem telja sig eiga um sárt að binda vegna stefnu stjórnar d’Estaings for- seta, sakast ekki viö hann sjálf- an fyrir þaö. Óánægjan meö stjórnina fer vaxandi, en skoöanakannanir fyrr I mánuðinum sýndu, aö 56% væru ánægöir meö frammistööu Giscards d'Estaings i forseta- stóli. 1 sömu könnun kom fram, aö 52% voru hundóánægöir með Raymond Barre, sem Giscard valdi til forsætisráöherraemb- ættis. Hvort sem þaö er af tilviljun eöa meistaralegu taumhaldi Giscards, þá trónar hann orðiö eins og i hásæti hátt upphafinn yfir daglegt stjórnmálaþref, og þaö án þess samt aö hafa afsal- að sér nokkru af völdum for- setaembættisins. Einn háttsett- ur embættismaöur, sem meö honum var i för i heimsókninni til Juan Carlos Spánarkonungs i Madrid nýlega, lét enda svo um- mælt, aö þetta væri fundur kon- unga. Virðing mótherjanna aukin Fyrst þegar Giscard kom til forsetaembættis, þótti hann i ýmsu draga úr þeirri pomp og pragt og nær tilbeiöslukenndu viöhöfn, sem fylgdi embættinu frá dögum De Gaulles hershöfð- ingja. A siöari árum hefur hann jafnvel veriö gagnrýndur af samherjum sinum i póiitikinni fyrir tilhneigingar til þess aö hefja sjálfan sig og forsetaemb- ættið upp i keisaralegt veldi. Það hefur veriö sagt um hann, Giscard d'Estaing Frakklands- forseti hefur hiotið ámæli fyrir að sýna tiihneigingar til að upp- hefja sjálfan sig og forsetaem- bættið i keisaralegt veidi. A myndinni hér er hann þó ekki að herma eftir Napóleon heldur að seilast eftir penna sinum I innri vasann. aö hann taki viðhafnarskyldu- störf forsetans fram yfir stjórnunarstörfin og daglegan eril. Pólitiskir andstæðingar hans finna honum að sjálfsögöu ýmislegt fleira til foráttu, en meöal flokksbræðra hans hefur einnig bryddaö á óánægju meö, aö hann skuli ekki hafa komiö á þeim félagslegu og efnahags- legu umbótum, sem hann lofaði, þegar hann varð forseti 1974. Jafnvel eftir hinn óvænta kosningasigur var ekki laust viö, aö honum væri legiö á hálsi fyrir aö nota ekki tækifæriö, meðan ánægjuöldurnar risu hæst i kosningabandalagi sosialista og kommúnista, og laða undir sitt merki óánægða sosialista. Siðustu vikurnar hefur þó þetta konunglega handbragð Giscards unnið honum virðingu jafnvel pólitiskra mótherja og gagnrýnenda i fjölmiðlum, sem viöurkenna, að það virðist ætla að henta vel, eins og nú árar i frönskum stjórnmálum. Árás Chiracs fór út um þúfur Forsetanum hefur um leið tekist að hrinda öllum áhlaup- um innan stjórnarsamsteyp- unnar. Sérstaklega atlögu Chi- racs, borgarstjóra Parisar og leiðtoga Gaullista. Chirac, sem ekki dregur neina dul á metnað sinn aö keppa viö d’Estaing um forsetaembættið 1981, hefur hæöst að hinni nýju stefnu for- setans i efnahagsmálum og gagnrýnt frumkvæði Frakk- landsforseta i ýmsum alþjóöa- málum. Svo sem eins og að senda fallhlifalið útlendinga- herdeildarinnar til Zaire og Chad, stuðning hans viö inntöku Spánar i Efnahagsbandalagiö og svo framvegis. Þarna hafa Chirac verið mis- lagðar hendur, þvi aö d’Estaing hefúr aukiö mjög virðingu sina fyrir einmitt þessar tiltektir sin- ar i utanrikismálum. Afskiptin i Zaire hafa til dæmis sérlega ■ orðið honum til vegsauka. En þyngsta áhlaup Chiracs geröi hann fyrir nokkrum vik- um, þegar hann reyndi að magna deilur við forsetann vegna fjárveitingar til Parisar- lögregluliösins. Hann krafðist þess, að rikissjóður legði meira af mörkum til móts við borgar- sjóð, en hingað til. Otmálaði hann, aö fækka þyrfti i liðinu ella. Giscard forseti hafði hins- vegar ekki svo mikið við að svara Chirac, en fól Barre for- sætisráðherra að benda á greiðsluafgang borgarsjóðs, sem nota mætti til þessa. Neyddist Chirac til þess að viðurkenna, að fjármagnið væri fyrir hendi, og vopniö snérist i hendi honum. Barre att fram á hólminn Mörg fleiri slik dæmi eru til um það, hvar forsetinn hefur ýtt Barre forsætisráöherra fram i eldlinuna fyrir sig. Meðán Gis- card hefur ekkert látiö frá sér heyra um efnahagsmálin, hefur Barre mátt hrinda öllum til- raunum til þess að fá verölagn- ingu á iönaöarvörum frjálsa, knýja fram afnám rikisstyrkja og aö sporna gegn launa- hækkanaskriðum. Þvi er þaö Barre forsætisráö- herra, sem óvinsældir þessara harkalegu aögerða bitna mest á. Giscard horfir fram á veginn Þaö veröur naumast fyrr en aö tveim eða þrem árum liön- um, sem séö veröur fyrir, hvort þessi nýja efnahagsstefna Frakklandsstjórnar leiðir til góðs eöa ills. Svo langt fram i timann getur enginn leiðtogi i Evrópu teflt nema Giscard. Meöan stjórnarforystan i Eng- landi, á ttaliu og i Vestur- Þýskalandi er bundin i báða skó, vegna þess hve naumt er á mununum i fylgi stjórnarflokka og andstöðunnar, nýtur Giscard yfirgnæfandi og tryggs meiri-. hluta úr siöasta kosningasigri. Og kjörtlmabil forsetans sjálfs rennurekki ut fyrr en 1981, eins og fyrr sagöi. Sjálfur sýnist hann svo örugg- ur um endurkjör til nýs sjö ára timabils, að hann lýtur ekki aö þvi aö þrefa um dægurmálin. Hinsvegar er hann byrjaður að tala um Frakkland eftir áriö 3.000.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.