Tíminn - 10.09.1969, Side 16
SAKA UM „STULD
A RÆKJUMIÐUM!
SB-Reyífjavík, þriðjudag.
Deila út af rækjumiðunum
i Reykjarfirðí er nú sprottin
upp fyrir vestan. Þar hafa ís-
firðingar veitt vel af rækju '
sumar en Hólmvíkingar telja
miðin sín og hafa mótmælt
veiðuiu'.m. ísfirzkur bátur
fann þarna rækju i vor og
leyfi var veitt ísfirðingum til
veiða pania til 1. september,
en þessi rækjumið hafa ekki
verið rýtt áður.
Hans Sigiurðsson, oddviti á
Hólmavík sagði í viðtali við
biaðið í gær, að þetta mál væri
litið alvariegium auigum á
staðnum. Hólravíkin,gar hefðu
vdtiað urn þessi mið áður. —
Mér skilst, saigði haom, — á
mönnum, sem voru á þessum
tveim bátum sem reru héðan
frá Hölmavík, að öll rækjan
hafj verið upp urim í firðin-
urn, þegar leyfi ísfirðinganna
til veiðanna var útruinmið. Þeir
voru barna með 10—12 báta.
ísfirðingar töl'du sig finna
þessi mið, en það er mesti
misskilningujr, vð vissum um
bau. Við lítum þamnig á, að ís-
íirðingar eigi ekki að fá að
veiða við Húnaflóa, nema að
sýslumörkuraum mili Stranda-
sýslu og N.-ísafjarðarsýslu. en
Framhald á bls. 14
Heybrunar
haustsins
að byrja
Þegar haustar að, er þa'ð segin
saga að svo til daglega fáum við
fréttir af heybrunum víða að af
landinu. Þótt lítið hey sé víða
komið í hlöður, þá er það þó
nóg til þess að i dag kviknaði
í heyi á Korpúlfsstöðum við
Reykjavík. Á hlaðinu á Korpiilfs
stöðum er gamalt bárujárnshús,
og það var í þessu gamla húsi,
sem heyið var í. Slökkviliðið í
Reykjavík fór á staðinn og tókst
á klukkutíma að slökkva eldiun,
en eins og venjulega, leynist glóð
lengi í heyinu, og voru slökkviliðs
menn enn að störfum á Korpúlfs
stöðum um kvöldmatinn. Skemmd-
ir urðu þarna bæði á heyi og
húsum, en heyið var í eigu Aðal-
steins Þorgeirssonar bústjóra á
Korpúlfsstöðum. — Myndina tók
ljósmyndari Tímans, Guðión Ein
arsson, skömmu eftir að slökkvi-
starfið hófst á Korpúlfsstöðum.
Rússneskir vísindamenn hér:
Ekkert sérstakt
er að gerast í
Tékkóslóvakíu!
Ný tófugí eni á
Reykjanesskaga
SB-Reykjavík, þriðjudag.
Ellefu manna hópur frá
Sovétríkjunum er um þessar
mundir í heimsókn á íslandi,
en þarna er um að ræða eins
konar kynningarför á vegum
félagsins Sovétríkin — ísland.
Fólkið hefur m.a. farið norður
til Akureyrar og skoðað ýmsa
merkisstaði á landinu. í hópn-
um eru læknar, hagfræðingar,
nokkrir jarðfræðingar og tón-
listarfólk.
Blaðamönnum gafst tækifæri
til að hitta hluta hópsins að
máli. Framkvæmdastjóri Is-
landsvinafélagsins í Sovétríkjun
um, Sorokin að nafni, kvað
félagið nú vera 10 ára gamalt
og félagar þess í Sovétríkjun
Heitavatns-
flóð við
Slökkvistöð
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Um klukkan hálf sjö í morg
un urðu slökkviliðsmeiin i
Slökkvistöðinni við Hafnarfiarð
arveg, varir við að heitt vatn
rann í stríðum straumum nið-
ur Hafnarfjarðarveginn og inn
á lóð slökkvistöðvarinnar. —
Reyndist hér vera yfirfallsvatn
frá hitaveitugeymunum i Öskju
hUð. Um klukkustund eftir að
clökkviliðsmenn urðu vatnsins
varir, jókst það mjög, og urðu
þeir að dæla því burtu með
tveim kraftmiklum dælum liðs
ins. og gátu þannig forðað hús
um og tækjum frá tjóni vegna
Framhaiu á bls. 14
um fjölmarga, þ.á.m. væru
heiil fyrirtæki aðilar að þvi,
svo sem fiskverksmiðja, olíu-
hreinsunarstöðvar og margir
skólar. Sagði Sorokin, að mikil
kynningarstarfsemi um ísland
færi fram á vegum félagsins,
til dæmis sagði hann að hjá
þeim væri 17. júní jafnan hald
inn hátíðlegur svo og ýmis ‘
merkisafmæli, núna væri verið
að undirbúa 70 ára afmæli Jó-
hannesar úr Kötlum. Jafnframt
kvaðst hann vona, að 100 ára
afmælis Lenins yrði veglega
minnst á íslándi af vinafélag-
inu hér. — Þessi ferð okkar
mun hafa mikil áhrif á kynn-
ingarstarfsemi okkar heima á
næstunni, þar sem okkur hefur
gefizt kostur á að kynnast
mönnum og málefnum persónu
lega, sagði Sorokin að lokum.
Ts.ieprakof, en hann er hag-
fræðiprófessor i Moskvu, sagði
að félagsmenn hefðu gert tals
vert af því að kynna sér íslenzk
ar bókmenntir og sögu, en það
væri vissulega ánægjulegra að
koma hingað og kynnast fólk-
inu og áhugamálum þess, af
eigin reynslu. — Við komum
hérna þegar ráðstefnu utanrík-
isráðherra Norðurlanda var að
ljúka og þar var samþykkt að
kalla saman ráðstefnu um ör-
yggismál Evrópu. Við erum að
sjálfsögðu hlynntir þessari ráð
stefnu, en afleiðingar heims-
styrjaldarinnar hljóta að verða
henni þrándur i götu Þeir. sem
andvígir eru ráðslefnu um ör-
yggismál Evrópu myndu alltaf
leita að einhverju. sem þeir
gætu komið í veg fyrir hana
með. t.d. Tékkóslóvakiu. en þar
er ekkert sérstakt að gerast,
sem ætti að standa í vegi fyrir
slíkri ráðstefnu Sem hagfræð
ingi, fannst mér mjög fróðlegt
Framhald á bls. 14
SB-Reykjavík, þriðjudag.
Allmörg ný tófugreni hafa fund
izt á Reykjanesskaganum, en hins
vegar hcfur tófu fækkað mikið
á Vesturlandi. Mest ber nú á dýr-
inu á Norðausturlandi. Veiðzt
hafa árlega undanfarin ár um tvö
þúsund dýr.
— Töluvert veiddist af tófu
í vetur, sagði Sveinn Einarsson,
veiðistjóri, í viðtali við Tímann
í gær. — Síðan vetrarveiðarnar
færðust í vöxt, hefur komið í
ljós, að á þeim stöðum, sem þær
eru stundaðar, finnast mun færri
greni á vorin. Fyrir nokkrum ár-
uiu var álitið, að tófunni væri
að verða útrýmt á Reykjanesskaga
en nú í sumar hafa fundizt þar
nokkur ný greni. Upp um Borgar
fjörð og Dali hefur hins vegar
gengið mjög á stofninn. Nákvæm
ar tölur um veiðina í sumar,
liggja ekki fyrir en ég hygg, að
hún sé svipuð og undanfarin ár.
Síðustu árin hafa veiðzt um tvö
þúsund tófur árlega og meirihlut
inn eru dýr á fyrsta ári. Nú er
ekki lengur eitrað fyrir tófuna
og þarf að herða sóknina ef henni
á ekki að fjölga, einkum á það
við á Norðausturlandinu, í Norð
ur-Þingeyjasýslu og Norður-Múla
sýslu, þar er mest af tófumni rtúna.
Ekki er nóg að fara eima ferð á
vori í grenjaleit, það þarf að vera
að allan veturinn, ef vel á að
vera.
Sveinn kvað grenjaileit fara
fram á hverju vori og sagði, að
greni þau, sem vitað væri um
á landinu, skiptu þúsundum. Bæj
ar- og sveitafélög hafa fastráðo
ar grenjaskyttur, sem mörgum
hefur orðið vel ágengt í sumar.
— Ef einhver finnur. tófu á förn
um vegi og drepur hana, fær hann
greiddar 700 krómur fyrir skottið.
sagði Sveinn Einarsson að lokum.