Vísir - 13.09.1978, Blaðsíða 5

Vísir - 13.09.1978, Blaðsíða 5
VTSIR Miðvikudagur 13. september 1978 5 Strœtisvagnar Reykjavíkur: 200 MILLJÓNIR VANTAR 40% fargjaldahœkkun eða aukið borgarsjöðsframlag? „Samkvæmt fjárhagsáætlun borgarinnar eru Strætisvögnum ætlaöar 271 milljönir kr. t»að liggur hins vegar ljóst fyrir að rekstrarniðurstaðan er sú, að. framlagið þarf að Vera 471 milljónir króna út árið. Það skal þó tekiö fram að þetta aukna framlag hefur ekki verið afgreitt. Strætisvagnarnir eru hins vegar ein af stofnunum borgarinnar og við höfum ekki í önnur hús að venda með að fá fé,” sagði Eirikur Ásgeirsson forstjóri Strætisvagna Reykja- vikur er hann var i morgun imitur eftir rekstrinum. ,,Það liggur ekki ljóst fyrir hvernig rekstrarafkoman er, en likur virðast fyrir þvi að farþegum fari enn fækkandi. Útreikningarsýna hins vegar aö svo virðist sem rekstrarkost- naðurinn sé um 200 miUjónir króna umfram áætlun sem gerð var haustið 1977. Byggist þetta fyrst og fremst á hækkun launa og launtengdra gjalda.” Aðspurður sagði Eirikur að Strætisvagnarnir hefðu þurft að fá 40% fargjaldahækkun um slöustu mánaöamót. „Stjórnin hefur hins vegar ekki tekið ákvörðun um hækkun.” —BA— Jarðfrœði Vatnsness rannsökuð Hópur jarðfræöistú- denta frá Háskóla ís- lands hefur undan- farna tíu daga unnið að rannsóknum á jarð- fræði Vatnsness. Hóp- urinn hefur haldið til í grunnskólanum á Hvammstanga. Athuganir þessar eru liður i þjálfun jarðfræðinema i gerð jarðfræðikorta og mæl- ingu jarðlagssniða og beind- ust aðallega að könnun á fornum jarðlögum og setlög- um. En einnig að jökulmenj- um og gömlum sjávarhjöll- um. Jarðfræðirannsóknir á Vatnsnesi eru skammt á veg komnar og hefur litið verið sinnt siðan Jakob heitinn Lindal á Lækjamóti ferðaðist um Vatnsnes á fjórða áratug aldarinnar. Það sem helst kom á óvart var hve útbreitt lipalrit er á nesinu og einnig hversu marga bergganga er þar að finna en hvort tveggja bendir til að á Vatnsnesi séu leifar kulnaðrar megineldstöðvar. Rannsóknum þessum verð- ur sennilega haldið áfram á næstu sumrum á vegum Há- skóla Islands. Leiðangurs- slióri var Jón Eiriksson. SHÞ, Hvammstanga-KS ' Frœðslu- og leiðbeiningorstöð \ \ I < Ráðgefandi þjónusta fyrir: ? í Alkóhólista, í í aðstandendur alkóhólista 2 og vinnuveitendur alkóhólista. ; í 6 5 ' Lágmúla 9. simi 82399. 5 e4íAl SAMTOK AHUGAFOLKS UM AFENGISVANOAMAUO Kræftslu- IriAbcininsarstnA AMERISKU HÁSKÓLA BOURNIR KOMNIR AFTUR LAUGARDALSVÖLLUR (Aðalleikvangur) EVRÚPUKEPPNI BIKARHAFA VALUR - MAGDEBURG ( KVÖLD KL. 18.15. BRIMKLÓ, HALLI OG LADDI VERÐA í STUÐI FRÁ KL. 17.00. VALUR '

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.