Vísir - 13.09.1978, Blaðsíða 6

Vísir - 13.09.1978, Blaðsíða 6
4"'*^ Kveðjuhóf fyrír Joseph RPirro og frú verður haldið í GLÆSIBÆ fimmtudag 14. september MATUR - SKEMMTIATRIÐI - HÚLLUM-HÆ! Forsala aðgöngumiða: Frakkastíg 14B kl. 16-19 í dag og 13-15 fimmtudag og við innganginn Allt áhugafó/k um áfengis- má/ meira en ve/komið! FREEPORT-KLUBBURINN Lögtaksúrskurður Sýslumaðurinn i Árnesþingi hefur i dag kveðið upp lögtaksúrskurð fyrir ógreidd- um en gjaldföllnum útsvörum, aðstöðu- gjöldum og kirkjugarðsgjöldum álögðum i Selfosskaupstað 1978 svo og vöxtum og" dráttarvöxtum að gjaldskuldum. Samkvæmt úrskurði þessum hefjast lögtök fyrir gjöldum þessum að liðnum 8 dögum frá. birtingu hans. Selfossi 12. september 1978 Bæjarritarinn á Selfossi. KAUPMANNASAMTÖK ÍSLANOS Viðskiptavinir athugið að verslanir félagsins verða lokaðar frá kl. 12 á hádegi fimmtudaginn 14. september vegna breyt- inga á söluskatti. Verslanirnar verða opn- ar á venjulegum tima föstudaginn 15. þ.m. Félag kjötverslana Félag matvörukaupmanna FULLTRÚASTAÐA í UTANRÍKISÞJÓNUSTUNNI Staða fulltrúa i utanrikisþjónustunni er laus til umsóknar. Laun samkvæmt iaunakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf sendist utanrikisráðu- neytinu, Hverfisgötu 115, Reykjavik, fyrir 25. september 1978. Utanrikisráðuneytið, Reykjavik, 8. september 1978. Auglýsing um nómsstyrki frú Indlandi Indversk stjórnvöld hafa boöiö fram dvalarstyrki ætlaöa ungum þjóöfélagsfræöingum, háskólakennurum, blaba- mönnum, lögfræöinum o.fl. sem vilja kynna sér stjórnar- tar a lndlandi af eigin raun. Feröakostnaö þarf styrkþegi að greiöa sjálfur. Frekari upplýsingar og umsóknareyöublöö eru fyrir hendi i menntamálaráðuneytinu. 1 Umsóknum óskast skilaö til menntamálaráöuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 25. september n.k. Menntamálaráðuneytið, 8. september 1978. r s. Miövikudagur 13. september 1978VISXHL _________________________) Svíar stinga upp ó dönskum rithöf- undi til Nóbels- verðlaunanna Danir ala með sér nokkrar vonir um að eignast kannski Nóbelsverðlaunahöfund þetta árið eftir fréttsem birtist í blaðinu Berlingske tidende um, að Nóbelsnefnd sænsku akademíunnar hefði fengið augastað á rithöfundinum Villy Sörensen. Nú er farið að styttast í Nóbelsverðlaunaútnefn- inguna, en hún fer fram í október eða nóvember. undur danskur sem mestu lofs- orði hefur veriö lokið á siöasta áratuginn. Hann fékk bók- menntaverðlaun Noröurlanda- ráðs 1974 (fyrir „Uden maal og med”). Hann deildi bókmennta- verðlaunum dönsku akademi- unnar með Knuth Becker áriö 1962, og hefur þar aö auki hlotið Oehlenschláger-styrkinn, sem þykir góö viðurkenning. Bækur hans hafa veriö mikið þýddar á önnur mál. Hann þykir njóta áhrifa sem ráögjafi Gyldendals-útgáfunnar og virðingar meðal annarra skálda. William Heinesen eða Sörensen Berlingske tidende lætur þess getið i frétt um þessar Nóbels- •vangaveltur, aö Villy Sörensen þurfi aö þessu sinni sennilega aö keppa viö færeyska rithöfund- inn, William Heinsen (sjötiu og átta ára orðinn) sem þykir koma sterklega til greina. Enda hafa tveir meölimir dönsku akademiunnar þegar stungið upp á honum. Þrir Danir hafa þegar hlotið bókmenntaverðlaun Nóbels. Henrik Pontoppidan fékk þau 1917 ásamt Karl Gjellerup. Jó- hannes V. Jensen var tilnefndur 1944 og veitti þeim viðtöku 1945 (vegna striösins). í frétt Berlingske tidende kemur fram að danska aka- demian hafi á siöasta fundi sin- um, sem var i maimánuöi rætt um möguleikana á þvi aö stinga upp á Villy Sörensen. Engin ákvöröun var tekin á þeim fundi, enda kom þar fram á fundinum, að akademian var ekki viss um sinn tillögurétt gagnvart sænsku akademiunni, Villy Sörensen: Verður hann nœsti Nóbels- höfundur Dana? Eftir þvi sem Berlingske tidende heldur fram, hefur sænska akademian eöa út- hlutunarnefnd hennar, beöiö dönsku akademiuna aö benda á einhvern veröugan — „til dæmis Villy Sörensen”. Meðal meö- lima dönsku akademiunnar er auövitað litiö á þetta sem vis- bendingu um, aö sænsku aka- demiunni þyki þessi danski höf- undur og heimspekingur vel veröur Nóbelslauna. Hefur fengið fjölda verðlauna Siðustu mánuöina hefur Sörensen vakið á sér athygli fyrir að skrifa bók i félagi meö tveim öörum höfundum. Þeim K. Helveg Petersen og Niels I. Meyer, sem stóöu aö bókinni „Oprör fra midten”. En áöur en Villy Sörensen fór aö skrifa i fleirtölu fyrsta persónufor- nafnsins („við”) var hann orðinn kunnur rithöfundur af bókunum „Sære historier” (sem út kom-1953), „Ufarlige historier” (kom út 1955) og skil- greinunum i ritgerðasafninu „Digtere og dæmoner”, „Mell- em fortid og fremtid”, „Uden maal og med”, „Seneka, humanisten ved Neros hof” — ásamt „Formynderfortæling- er” frá 1964, „Nietzsche” frá 1963, „Kafkas digtning” frá 1968 og „Schopenhauer” frá 1969. Villy Sörensen er sá rithöf- og efins I að hún gerði rétt i þvi aö stinga upp á einungis einum dönskum rithöfundi. En i viötali viö Hans Holm- berg, blaöamann Berlingske, lögöu meölimir akademiunnar áherslu á þaö að þeir mundu fljótir nota tækifæriö til þess aö mæla meö Villy Sörensen, ef i ljós kemur aö þeirra sé tillögu- rétturinn. Næsti fundur akademiunnar veröur 19. septeniber, þegar Inger Christensen verður inn- limuð i akademiuna, eftir að hún hefur tekiö viö Kjeld Abell- verölaununum (25.000 krónur danskar). Veröur þá væntan- lega tekin ákvörðun um, hvort stungið veröur upp á Sörensen eða Heinesen eða jafnvel báðum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.