Vísir - 13.09.1978, Blaðsíða 14

Vísir - 13.09.1978, Blaðsíða 14
14 Miövíkudagur 13. september 1978 VISIR „Og þá er þaö Laugardalsvöllurinn, svcinar” gæti Haraldur Sígurösson (helmingurinn af Halla og Ladda) veriö aöségja viö þá Brimklöarmenn og Ladda á þessari mynd. „Faraldsfœtur" og fótbolti í Laugardalnum Upp ó það er boðið á Laugardalsvelli í dag. Fyrst skemmta Halli, Laddi og Brimkló í einn og hólfan tíma — og síðan leika Valur og Magdeburg í Evrópukeppni bikarhafa ,,Þaö hefur enn ekki veriö skorað íslenskt mark i leikjum við erlend lið hér i sumar, og okkur finnst timi til kominn að slfkt gerist, þegar við leikum gegn Mageburg”, sagði Pétur Sveinbjarnarson, formaður knattspy rnudeilda r Vals, á blaöamannafundi i fyrradag. Valur og a-þýska liðið Magde- burg leika fyrri leik sinn i Evrópukeppni á Laugardals- velli I dag og hefst kl. 18,15. Um kl. 16.45 hefst þar hinsvegar „konsert” Halla og Ladda og Brimklóar. „Faraldsfótanna” svokallaöra. Þeir skemmta siöan aftur i hálfleik en annars veröa þaö leikmenn Vais sem ætla aö skemmta áhorfendum. A- þýska liðið er geysilega sterkt, það sést best á þvi að i þvi eru 10 landsliösmenn, sem hafa 227 landsleiki að baki. og margir þeirra eru i fremstu röð i heiinalandi sinu i dag og eru fasramenn i landsliði A-Þjóö- verja. Af þeim má nefna Martin Hoffmann, sem er einn albesti leikmaður þeirra, en hann á 40 Jandsleiki aö baki og var meðal annars f gullverölaunaliði A-Þýskalands á Ólympfuleikunum 1976 i Montreal. Af öðrum leikinönnum má nefna miö- vallarspilarann Wolfgang Stein- bach, framlinuinanninn Jocakim Streich, og Jörgen Sparwasser. Allt eru þetta landsliðsmenn meö tugi lands- leikja aðbaki hver.svo segja má aö í liöinu sé valinn maöur i hverju rúmi. En hvað um möguleika Vals- manna?. ,,Ég sé að mótherjat okkar eru reynslumiklir leikmenn og þetta verður án efa erfiður leikur. Við erum hinsvegar í toppformi þessa dagana og ætlum okkur að leika tQ sigurs i leiknum á miðvikudag', sagöi Ingi Björn Albertsson, fyrirliði Vals á fundinum. Þá vöktu forráðamenn Vals athygli á þvi á blaðamanna- fundinum að Valur hefði aðeins einu sinni tapað hér leik i Evrópukeppni. Það var gegn Glasgow Celtic, en Valur hefur ekki tapað heima, þótt and- stæðingarnir hafi verið jafnfræg lið og Benfica, Standard Liege og ungverska liðiö Vasas. „Af þessu erum við stoltir og við ætlum ekki að tapa fyrir Magdeburg” sögðu Valsmenn. A fundinum var mættur aöalþjálfari Magdeburg, en hann var hér viðstaddur, er Vaiur lék gegn 1A um helgina. Hann sagði á fundinum að Vals- liðið hefði komið sér á óvart, og þótt hann væri ekki hræddur við Valsmenn. þá myndi lið hans leika af varkárni á Laugardals- vellinum. Sem fyrr sagði hefst leikurinn kl. 18,15 en einum og hálfum klukkutima áður byrja „Faraldsfæturnir” að hita mannskapinn upp. TILKYNNING til söluskattsgreiðenda Frá og með föstudeginum 15. þ.m. fellur söluskattur niður af ýmsum tegundum matvæla. Af þvi tilefni vill ráðuneytið vekja athygli söluskattgreiðenda á nokkr- um ákvæðum söluskattreglugerðar. Undanþágur Frá og með 15. þ.m. fellur niður söluskatt- ur af öllum þeim matvörum sem ekki eru þegar undanþegnar söluskatti öðrum en gosdrykkjum, öli, sælgæti og súkkulaði- kexi. Með matvörum teljast hvers konar vörur sem ætlaðar eru til manneldis svo sem kjöt og kjötvörur, mjólk og mjólkur- afurðir, fiskur, ávextir, grænmeti og aðr- ar nýjar og geymsluvarðar matvörur, sbr. nánar 2. tl. 1. gr. rgl. nr. 316/1978. Aðgreining viðskipta Þeir aðilar sem selja bæði söluskattskyld- ar og söluskattfrjálsar vörur skulu halda hinum söluskattskyldu og söluskattfrjálsu viðskiptum greinilega aðgreindum bæði i bókhaldi sinu og á söluskattskýrslum. Allir slikir aðilar skulu halda innkaupum á skattskyldum og skattfrjálsum vörum aðgreindum i bókhaldi sinu. Bókhald og söluskattuppgjör smásölu- verslana Þeim smásöluverslunum sem ekki hafa aðstöðu til að halda sölunni aðgreindri á sölustigi er heimilt að skipta heildarsöl- unni á hverju uppgjörstimabili eftir hlut- falli innkaupa af söluskattskyldum vörum annars vegar og söluskattfrjálsum vörum hins vegar á sama timabili. útsöluverð innkaupanna skal þá reiknað á öllum inn- kaupum og skal heildarsölunni siðan skipt i sömu hlutföllum og nemur hlutfallinu milli útsöluverðs innkaupanna i hvorum flokki fyrir sig. Ekki skal tekið tillit til birgða við upphaf eða lok timabils. Söluskattskil fyrir septembermánuð 1978 Þeir aðilar sem selja vörur, sem eru und- anþegnar söluskatti, skulu skila tveimur skýrslum fyrir septembermánuð. Skal önnur skýrslan varða timabilið 1.-14. september en hin timabilið 15.-30. septem- ber. Þeir smásöluaðilar, sem nota heimild til skiptingar á heildarveltu eftir útsölu- verði innkaupa skulu gera söluskattskil fyrir 1. til 14. september eftir eldri regl- um, þannig að frá raunverulegri sölu á þvi timabili skal draga innkaup söluskatt- frjálsra vara á timabilinu að viðbættri álagningu. Sölu á timabilinu 15.-30. september skal skipt i hlutfalli við skipt- ingu innkaupa milli söluskattskyldra og söluskattfrjálsra vara á þessu timabili. Söluskatt fyrir september skal þvi gera upp án tillits til birgða við upphaf eða lok timabilanna. Sérstök athygli skal vakin á þvi að engar birgðatalningar þurfa að fara fram vegna söluskattskila fyrir september. Varðandi undanþágur frá söluskattskyldu, bókhald og söluskattskil visast að öðru leyti til reglugerðar nr. 169/1970 um söluskatt með áorðnum breytingum, sbr. sérstaklega reglugerð nr. 316 8. september 1978. Fiórmólaráðuneytið, 11. september 1978 DREGIÐ EFTIR 2 DAGA Hjartavernd

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.