Vísir - 09.10.1978, Qupperneq 2

Vísir - 09.10.1978, Qupperneq 2
Mánudagur 9. október 1978 VISIR Hér sjáum viö Feilan (XFeilan, aöalmanninn i Silfurtunglinu, slá um sig. „Silfurtunglið er örugglega með þvi viðamesta i dagskrárgerð, sem Sjónvarpið hefur ráðist i. Og örugglega viðamesta stúdióframleiðslan. Stúdióupptökur stóðu yfir i þrjár vikur, en hingað til hefur eitt verk aldrei verið þar nema hálfan mánuð” sagði Jón Þórarinsson dagskrárstjóri Lista- og skemmtideildar Sjónvarpsins er rætt var við hann um leikrit Halldórs Laxness, Silfurtunglið. Upptaka fór fram á verkinu i stiidiói frá og meö 10. ágúst og út þann mánuö. Undirbúningur aö þessu hófst hins vegar strax i fyrrahaust er höfundurinn og Hrafn Gunniaugsson settust við aðsemja þá gerð sem notuö hefur verið við upptökurnar. Upptök- unni stjórnaði Egill Eövarösson. Sýningardagur hefur ekki verið endanlega ákveðinn. Jón sagöi að þegar væri búið aö ákveða hvaöa upþtökur ætti aö nota varöandi hvert atriði. Næsta skrefiö væri samsetning leikrits- ins, en það mun taka eitthvaö á þriðja klukkutima að sýna það. Silfurtunglið verður sjónvarpsþáttur „Ein aöalbreytingin frá Silfur- tunglinu eins og þaö var sýnt á leiksviði er sú að i sjónvarpinu verður Silfurtunglið sjónvarps- þáttur. A leiksviðinu var þaö hins vegar skemmtistaður. Leikritiö er einnig brotið mikið meira upp en unnt var að gera á einu leiksviði áður. Þannig var til dæmis eitt og sama sviöið i öllum fyrsta þætti, en I sjónvarpinu gát- um við breytt út af þessu.” Jón sagöi að tekið heföi verið fullt tillit til þess að leikritiö yrði Silfurtunglið: PRJALVEROLD OG HVERSDAGSTILVERA „Viðamesta innonhúsupptaka til þessa" segir Jón Þórarinsson Hér er augsjáanlega allt komiö á fulla ferð og dömurnar f Silfur- tunglinu eru framúrskarandi glæsilegar. sýnt i lit, en þess þó gætt að þeir sem heföu svart-hvit tæki gætu einnig notið þess að horfa á verk- ið. „Viö urðum að sérpanta ýmis- legt og meira en oft áður, bæði i leikmynd og búninga. Þetta urðum við að gera til aö undirstrika betur þessa prjálveröld, ef nota má þaö nafn. Við geröum ýmislegt til að kalla fram hinar miklu andstæður sem koma fram i verkinu. Við höfum annars vegar stúlkuna sem kem- ur úrhinni hversdagslegu veröld, sem er stundum jafnvel subbuleg. A hinn bóginn höfum viö „sterilíseraðan” plastheim. Við sérpöntuöum til dæmis glit- efni sem notuð eru i búninga leik- ara i þessu skyni.” Leikarar I Silfurtungii eru ekki margir. Mað helstu hlutverkin fara þau Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) en hún leikur Lóu, og Egill Ólafsson sem leikur Feilan Ó. Feilan. Þau voru bæði i Spil- verki þjóðanna. Þórhallur Sigurðsson leikur óla, mann Lóu. Steindór Hjörleifsson leikur fööur Lóu, en hann kemur aldrei i Silfurtungliö. 1 leikgerð Sjónvarpsins er hins vegar lagt meira upp úr þvi sem 1. DESEMBER KOSNINGAR STÚDENTA: Kosið verður 21. október Kyrsta desemberkosningar stúdenta fara fram á stúdenta- fundi i veitingahúsinu Sigtúni við Suðurlandsbraut 21. október n.k. Kosin veröur hátiðarnefnd , en hún skal skipuö 7 mönnum er kosnir skulu leynilegri listakosn- ingu. Framboði ásamt meðmælum 10 stuðningsmanna og tillögum um markmið og tilhögun hátiöahald- anna skal skila kjörstjórn fyrir klukkan 12 mánudaginn 16. október. Kosningafundurinn mun standa frá klukkan 14.30-17.30. íslenskar samþykktir í Leníngrað { Llr*aittij>«tr lókti |*»l« i 21. i v<'tlalýf5»»áAt<t< |n« Ky<d<tt»ah»rikjáiuvá, j N>■>, LlaixK. firttu lúr i Þfi- t«ífirt>l 11 lil I > fúiii «1. WilalýðxiáA. *«eitt<ttt It.f.ir Itiui-i.ð «i1 milt It.tUir, k'jt.t t H.-xt.x k i Þý,U .,lj,yA,,lýf»v,:W. irn. »•« ut, Ik-Iui it'iiA ctkveðitl áS l»ii> f:,ri ftlttti líi »!><plis i lolfliikjll.iuilutttlttt, Í'áiiii ij- iittiii aíÍiiiiiíi „A haklx haria «:<»?:, „ I I‘«IWhIí. I>:,m.,l»-||<l<l< <-»» lr:< r>ý.k» „Ij.ýAuKAo blíttu, IWtm-.ti.il, (élttttli. N<:o-::i. r\,l!;.i«ti, S..t,1iii>jui. um, finulatuli, S,„,(,l>;u«l»ii<>v<-I,littt, l*ýxUI<m<li l>v S> <|<ji>S, 1MI }<■»«« l;,W<-i„!„r í >ii. VíAlitttfíxt-fiii ,<tS«lef„ttii,:j< <tA j«t'x*u xjuui ut á -Í,»««i li»li vwlttljlWii^í- fytil f,iÁ<- ;,fvi>)„uu: <>:: f<-la«;sfe)irUW, liánilötuiii. Fj.JttiatRai rrSu, v<>rú flullar <<ut j><-x», iii.il Vttttt' |<;« mctrgi í,<>A!:>d fr-UC \ <-<l.:<)' S-t,r<-< (i„y ;<!!:„ <!<>: <-Ui >iA:i, r,ki*xtj„„,i, lirlnixitt*, ftamn.t fyrir |>vi Itry,ia i<-»kefni <iA tvyna a<\ *íi>At;i iiíj«í„í,A;trk;,|»>l:f.<::J>iS »s Wrfjtt «<tt„J>»'f»t aAx-rAÍ< í ;»ít .>i>iiiii>.>«itt,tlti -> \,<\i,».j;.<-t:„ veiUIVAvféfaxa i fi'mma ý„i.xí, foixitttt, (iktaiSast ,x't :t! ‘IrUor- k'fr.ttttt »S»f;t'A„„>. vf«.,fi:«gv!i>;:,< l>vy'X- illgll ■>;'. „ðiuttt siih fSttllt l' llgú <„' stS- t.i lctír, w-tiÁ <-„, itfll.ii fyrír 'ltrrxf, „kv.Aút „,.,!. ví,,.,l>., .|, ;•». frf.<x< !<>•* <>j? S é;i!;tleyx vAí<» v.-rn lt>« Lokaáilyktun <X-?<t<f»XRt<4: < s;>v :»:<*<(.«■ !&4a. i Ekki er langt um liðið siðan islensk verkalýöshreyfing tuldi sig vera aö heyja kjarabaráttu i kjörklefum. Nokkru áður en sú kjarabarátta var háð tóku fjór- tán islendingar þátt i 21. verka- lýðsráöstefnu „Eystrasalts- rikjanna”, sem haldin var I Leníngrad 13. til 15. júni s.l. Þátttakendur voru frá Þýska alþýðulýðveldinu, Danmörku, islandi, Noregi, Póllandi, Sovét- ríkjunum Finnlandi, Sambands- iýðveldinu Þýskalandi og Svi- þjóð, eða 340 manns alls. Eystrasaltsrfkin sjálf eru ekki sundurliðuö sérstaklega i frétt af þessari ráðstefnu, enda heyra þau undir Sovétrikin nema átt sé viö Danmörku, Sviþjóð og Finnland, sem væntanlega eiga að standa að friöun Eystrasalts, sem bar á góma á ráöstefnunni. i lokaályktun er þvi m.a. lýst yfir að andstaða þeirra, sem vilji vinna gegn slökun spennu i heiminum, sé oröin sterkari en verið hafi og voldug öfl innan vopnaiðnaöar og hers muni hefja nýtt vigbúnaöarkapp- hlaup, sem leiði til verulegrar aukningar hernaðarútgjalda Að sjálfsögðu er hér átt við vopna- iðnað og herafla Vestur-Evrúpu og Bandarikjanna. i frétt af ráöstefnunni segir énnfremur að sænski fulltrúinn, Ingemar Noren, hafi nefnt mjög fróðlegar töiur i ræðu sinni, sem sagt I þá veru, að ef þeir 128 milljarðar bandarikjadala, sem Bandarikin veita til hermála væru lagðir I friðsamlegri fram- leiöslugreinar, mundi það veita 1.357.000 mönnum atvinnu. t hergagnariðnaðinum veita þessir fjármunir hins vegar 100.000 mönnum atvinnu, segir I fréttum af ráðstefnunni i mál- gagni verkalýösins, Vinnunni. i simskeyti, sem ráðstefnan sendi frá Leningrað tU Alls- herjarþings S.þ. segir einnig frá vigbúnaðarkapphiaupinu, án þess að Bandarikin séu til- greind þar sérstaklega. i skeytinu segir aö þátttakendur i ráöstefnunni vilji aö fjármunir sem renni tU vopnabúnaðar verði notaðir til að mæta þörf- um sérhvers lands á félagslegu og fjárhagslegu sviöi. Væntan- lega er þar fólgin i friðun Eystrasalts og Noröur-Atlants- Itafs og annarra hafa, sem Sovétmenn hafa ekki einkaleyfi á. t rauninni er ekki nema gott eitt um það að segja að fjórtán fulltrúar frá islandi skuli sitja verkalýðsráðstefnu. En ó- neitanlega hefur heimilisfang ráðstefnunnar ráðið nokkru um framgang hennar, umræður og áiyktanir, enda virðist af frétt- um i Vinnunni, að fyrst og fremst hafi verið rætt um her- búðarkapphiaup Bandarikj- anna. Tölur þaöan um herkostn- að liggja á lausu. öðru máli gegnir um vlgbúnaöarkostnað Sovétrikjanna.Hann var ekki til umræðu á þessari ráðstefnu. Þau geta eytt stórum hluta af þjóöartekjum sinum árlega i vigvélar og manndrápstól án þess að ráðstefna verkalýös i Leningrað þurfi nokkur orð um það að hafa. Enginn Svíi stendur þar upp til að tiunda töl- ur i ráðstefnugesti um eyöslu Sovétmanna á sviði hermanna. Aftur á móti gleymdist ekki aö álykta um Chile eða Suður-Afríku. Kambodfa var hins vegar ekki á dagskrá og ekki Vietnam, sem stendur nú i þvi að ofsækja Kinver ja búsetta i landinu. Þá var ekki minnst á friðlýsingu Barentshafs. Það er óhætt að segja að islensk verkalýöshreyfing hafi liaft nóg að gera á liðnu sumri. Fyrir utan velheppnaða baráttu I kjörklefunum, tókst hún á við hergagnaframleiðslu i Banda- rikjunum, stóð að ávitum á Chile og samþykkti meö þögn- inni þjóðarmorö i Kambodlu og hergagnaframleiðslu Sovét- manna. Það er eðlilegt að þann- ig verkalýöshreyfing telji sér skyldara en öðrum samtökum aö fara með rikisstjórn á tslandi. Hún á sinar stóru póli- tisku stundir, einkum þegar hún kemst i bland við , ,Eystrasalts- rikin” austur I Leningrað. Aftur á móti hefur þess áreiöanlega verið gætt aö hleypa ekki hinum fjórtán fulltrúum verkalýðsins i bland við vinnandi sovéskan verkalýð, heldur hefur veriö látið nægja að kynna þá fyrir hinum rikislaunuðu „verka- mönnum”, sem hafa að atvinnu aö standa að svona alþjóðlegu sjói I hinu sextiu ára gamla riki öreiganna. Svarthöfði.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.