Vísir - 09.10.1978, Blaðsíða 7
VISIR Mánudagur 9. október 1978
t
Skjóta á
flóttafólk
f Beirút
Óbreyttir borgarar á
flótta úr hverfi kristinna
manna i austurhluta
Beirút mættu vélbyssu-
kúlnahrið á leið sinni út
úr þessum sundurskotna
borgarhluta.
Þó átti að heita, að
vopnahlé hefði bundið
enda á bardaga sýr-
lenska friðargæsluliðs-
ins (!) og kristinna
hægrimanna.
Vestrænir fréttamenn, sem
sjónarvottar voru aö þessari
morbtilraun á saklausu fólki,
sögðu, aö það hefði verið á leið
yfir bró, sem tengir austurborg-
ina við aöalþjóðveginn norður úr
höfuðborginni. Var mikill sægur
manna á brúnni, þegar skothrfðin
dundiá henni úr nálægum háhýs-
um, sem eru á valdi Sýrlendinga.
ökumenn farartækja vörpuðu
sér íána, oghverleitaði sér skjóls
fyrir byssukúlunum, eins og hann
gat. Linnti ekki skothriðinni fyrr
en brúin var mannlaus.
Fréttamennirnir sögðu, að það
hefði engin vafi verið á því, að við
skyttunum hafi blasað, að fólkið
væri vopnlaust, venjulegt flótta-
fólk, sem ætlaði að nota vopna-
hléð til þess að forða sér úr þvi
viti, sem hverfi kristinna manna i
Beirút hefur verið i stórskota- og
eldflaugnahrið Sýrlendinga und-
anfarið. — „Þetta var morð að
yfirlögðu ráði, og hreint ekkert
annað”, sögðu fréttamennirnir.
Viöast annarsstaðar i borginni
hefur allt verið með kyrrum kjör-
um, slðan lýst var yfir vopnahléi.
Sýrlandsstjórn og Libanonforseti
stóðu að yfirlýsingunni.
Elias Sarkis forseti er staddur i
Damaskus til viðræöna við
Al-Assad Sýrlandsforseta. Sagði
Sarkis, að þeir væru að kanna
hvernmöguleikatil þess að reyna
að koma á friði i Libanon. — Um
leið er staddur i Damaskus
Jasser Arafat, leiðtogi skæruliöa-
hreyfingar Palestinuaraba, og
hafa hann og Al-Assad átt nokkra
fundi saman.
Chamoun, leiðtogi hægrisinna I
Libanon, að fyrri reynsla kenndi
mönnum að byggja ekki miklar
vonir á þessu vopnahléi, sem nú
hefði verið komið á. Sagði hann,
að tiu sinnum hefði verið gert
vopnahlé, og hefðu Sýrlendingar
notað þau til þess að sækja sér
liðsauka og treysta vigstöðu sína
til næsta áhlaups.
Chamoun sagði i viðtali við
Reuter-fréttastofuna, að til þess
að friður héldist i Libanon þyrfti
aðuppfylla eittskilyrði. Hverein-
asti Sýrlendingur yrði að verða á
burt úr Libanon. — Hann gagn-
rýndi Sarkis forseta harkalega,
kallaði hann Quisling og föður-
landssvikara. Sagði hann, aö
Sarkis væri ekki fulltrúi eins eða
neins i Libanon.
MIKIL FLÓÐ
í INDÓKÍNA
Fljótið Chao Phya
flæddi yfir bakka sina i
nótt og inn i þau hverfi
Bangkok höfuðborgar
Thailands, sem lægst
standa, eins og til dæmis
Kinahverfið.
í norður-, norðaustur-
og miðhluta landsins eru
flóðin i rénun, en þau
hafa kostað tæpt
hundrað manna lifið.
Með þvi að grafa I skyndi frá-
veituskurðihlaöa varnargarða og
nota öflugar dælur hefur tekist aö
verja ýmis helstu hverfi Bangkok
svo að þau hafa ekki lent undir
flóðinu.
Mikil flóð hafa verið i ná-
grannaríkinu Kambodiu, og
raunar einnig I Vietnam og Laos.
Hafa þessi flóö valdið miklu tjóni
á hrisgrjónauppskerunni. i Thai-
landi lentu 324 þúsund hektarar
hrisgrjónalands undir flóði, en
ekki liggur ljóst fyrir hve mikið
tjónið hefur orðið.
Um hálf milljón manna var lát-
inflytja burt af heimilum sinum,
meðan hættan var mest.
Stjórnarflokkarnir héldu velli
Stjómarflokkarnir í
samsteypustjórn Hel-
mut Schmidt kanslara
gerðu öllum hrakspá-
mönnum skömm til i
kosningunum i Hessen.
Það var ekki aðeins að
þeir ynnu, heldur juku
þeir fylgi sitt til muna
frá þvi úr siðustu
kosningum.
Sósialdemókrataflokkur Schm-
idts héltstjórnaraðstööu sinni i
fylkinu og fékk ásamt frjálslynd-
um tæpt 51% atkvæöa.
Stjórnarandstöðuflokkurinn,
kristilegir demókratar, töpuðu
fy.lgi en fengu þó 46% atkvæða og
eru sem fyrr stærsti flokkur
fylkisins. — Þingmannaf jöldi
hélst óbreyttur og hafa stjórnar-
flokkarnir 57 en andstaðan 53.
Turaunaglasa-
barnið þrífst
Indverska tilrauna-
glasabarnið þrifst vel,
orðiðsjö daga gamalt og
hefur telpunni verið gef-
ið nafnið Durga, eftir
einni gyðju hindútrúar-
manna.
Afi telpunnar skýrði frétta-
mönnum stoltur frá þvi að hún
væri frek til móðurmjólkurinnar
og dafnaði vel. Móðirin sem
gekkst undir keisaraskurð er á
hröðum batavegi.
Afinn sagði fréttamönnum, að
það hefði veriö i þriðju tilraun
sem visindaxönnunum dr. Saroj
Bhattacharya og dr. Subhas
Mukherjeetókst að láta móðurina
að ganga með fóstrið fullan með-
göngutima. Aður hafði hún tvi-
vegis misst fóstrið.
Dr. Bhattacharya vildi hvorki
staðfesta þetta né bera á móti þvi
og sagði, að það mundi allt koma
fram iskýrslu sem hann og félagi
hans munu leggja fram um þess-
ar tilraunir þeirra.
Þeir félagar segjast hafa fjar-
lægt egg úr eggjastokk móðurinn-
ar, frjógvað það og siðan fryst i 53
daga, áður en þeirkomu þvi aftur
fyrir i móðurlifinu.
Óeirðir
ó
N-írlandi
Mótmælaganga kaþólskra i
Londonderry á Norður-lrlandi
snérist upp i óeirðir þegar mót-
mælendur tóku aö grýta göngu-
menn á leið þeirra.
Um 5.000 manns var i göngunni
og snerist fólkið til varnar en lög-
regla og nærtækt herlið átti fullt I
fangi með að hemja skarann. 1
heila klukkustund glimdi lögregl-
an viðgrýtandi ungmenni úr hópi
mótmælenda áður en tókst að
dreifa mannfjöldanum.
Um 70 lögreglumenn hlutu
meiðsli i óeiröunum og tuttugu
menn voru handteknir.
NÝTT
A
ÍSLANDI
SOKKABUXUR
SEM PASSA
HNJAM.
Frábaer teygjan lætur
L’EGGS passa bæði að
framan og aftan.
Hvorki hrukkur í
itum
pokav á hnjám.
PASSA
KÁLFUM.
L’EGGS fylgja öllum
iínum, sama hvernig
hné
iii-
JSé*
fw Á
MJÖÐMUM. ^
L’EGGS fylgja ^
þ formum þínum
íL og falla eins og flís
WÍ við rass.
KP" L’EGGS PASSA ÞÉR.
Frábær teygjan í L’EGGS fylgir
formum þínum og fegrar þau. ,
| AVERAGE STÆRÐ hentar nesturf
. en ef þú þarft yfirstærð þá '
L.er hún líka tiL_
I.ATTU \gafi.
SJA UM LEGGINA.
HÆLUM OG TÁ
.’EGGS fylgja lögun
itanna og falla þétt að.
umiykja öklana
og falia
kur.
L’EGGS passa frá tá í mitti.
Þú finnur L’EGGS
í sölustandinum
í næstu kjörbúð eða apóteki.
Einnig í snyrtivörubúðum.
L’EGGS HNÉSOKKARNIR eru í
einni stærð, sem passar ölium.
‘*"r'c*fonteriókci ?
Tunguhálsi 11, R. Slml 82700