Tíminn - 31.10.1969, Blaðsíða 2

Tíminn - 31.10.1969, Blaðsíða 2
2 TIMINN FÖSTUQAGUR 31. október 1969. "7 Leikritið, sem Leikfélag Kópatvogs sýnir er að góðu kunnugt. Það er Lína langsokk ur eftir Astrid Lindgren. Leik félag Kópavogs sýndi Línu langsokk fyrir níu árum undir stjórn Gunnvarar Braga Sigurð ardóttur við ágætar vinsældir Fraartialo a bls. U Lfna langsokkur — GuSrún GuS laugsdóttlr — og til hliSar meS leikarar hennar Tomml og Anna — Bryndís Theódórsdóttir og GuSriSur Gísladóttir. (Ljósm.: GuSjón). Lína langsokkur á sviði hjá Leikfélagi Kópavogs AK-Reykjavík, fimmtudag. LeikféTag Kópavogs hefur vetrarstarfið óvenjulega snemma að þessu sinni. Venju lega hefur það ekki frumsýnt fyrsta verk vetrarins fyrr en eftir hátíðar, en nú tekur það barnaleikrit til sýningar, og verður frumsýningin á sunnu daginn kemur í Kópavogsbíói kl. 3 síðd. Er þetta vel til fund ið, því að ekki eru önnur barna leikrit á sviði í Reykjavík eða nágrenni á þessum tíma. 4 CODVR BETRI BEZTVR HBS = Fást í öííum betrí tábahsverzíunum HJARTA VERND nm ÁRA Rannsóknir að hefjast á Akranesi og í Borgar fjarðar- og Mýrasyslum FB-Reykjavík, fimmtudag. S. 1. laugardag, 25. október, voru liðin 5 ár frá stofnun Hjarta verndar, landssamtaka hjarta- og æðaverndarfélaga á íslandi. Að þeirri stofnun stóðu 19 svæðafélög víðsvegar að af landinu, en svæða félögin eru nú 22 með yfir 3000 félaga. í tilefmi af þessum tímamótum boðuðu forráðamenn samtakamna fréttamenn á sinn fund, og rakti próf. Sigurður Samúelsson þar megin þætti starfsemi samtakaana á þeim 5 árum, sem liðin eru. Strax að loknum stofnfundi, var hafizt handa um víðtæka fjár söfmun, en fyrstu tvö árin fóru að mestu í fjáröflun og margvís legan undirbúning. Um áramótin 1966—1967 var hafin skipulagning á kerfisbundn um rannsóknum, og voru þá ráðn ir tveir sérmenntaðir læknar og sérþjálfuð hjúkrunarkona. Nú starfa á rannsóknarstöðinni tveir læknar, tvær hjúkrunarkonur, tveir meimatæknar, auk aðstoðar fólks og sérfræðinga. Starfsemin við rannsóknarstöð ina hófst vorið 1967. Hafði þá verið gerð áætlun um kerfis- bundna rannsókn á körlum og kon um á aldrinum 33—60 ára Aætlun þessi nær til ársins 1975. Akveðið var að rannsaka 16 árganga karla og kvenna í þessum aldursflokkum og hefja rannsðknina á Stór-Reykja vfkursvæðinu. Fjöldi karla í þess- um árgöngum er 8454, en kvenna 8926. Fyrsta starfsiárið 1967—1968 var rannsakaður % karlaárgang- anna og er þeirri rannsókn lokið. Þátttaka varð nálægt 75%. Annað starfsárið 1968—1969 var nannsakaður % kvennaárganganna og ér þeirri rannsókn einnig lokið og varð þátttafca í þessum híp um 76%. Þetta starfsár, sem er hið þriðja í röðimni, er verið að rann safca karla í Gullbringu- og Kjósar sýslu, ásamt Suðurnesjum og Keflavík, og er gert ráð fyrir, að þeirri rannsókn IjúM um næstu áramót. Auk þessara kerfisbundnu hóp ranmsókna hefur verið rannsakað ur nokkur hópur karla og kvenna bæði úr Reykjavík og utan af landi, sem hefur verið visað til stöðvarinnar. Alls hafa nú verið rannsakaðir á þessum 2 árum, sem liðin eru frá því stöðin tók til starfa, um 6200 einstaMingar. Eftir áramótin er áformað að hefja rannsókn á körlum og kon um 40—60 ára á Akranesi og í FIÐLARINN — Óvenju góð aðsókn hefur verið hjá Þjóðleikhúsinu á þessu hausti og mun þetta hafa verið einn bezti októbermánuður hjá. Þjóðleikhús- inu hvað aðsókn snertir. Þar eru nú sýnd þrjú leikrit. Fiðiarinn á þaxinu 'erður sýndur í 75. sinn n. k. þriðjudag þann 4. nóvember og alltaf er húsfylli á þessa ó- venju vinsælu sýningu. Enda hef ur Fiðlarinn nú slegið öll met hvað aðsókn snertir. Hippia leikurimn, Betur má ef dnga skal. verður sýndur í 8. skipt ið n. k. sunnudag. Mjög goð að- Borgarfjarðar- og Mýrasýslu. Verð ur höfð náin samvinna við lækna, sjúkrahússtjórn og bæjaryfirvöld á Akranesi um þessa rannsókn. Frá upphafi var ljóst að nota yrði nútíma tölvutækni við skrá setningu allra upplýsinga, þar sem fjöldi skrásettra atriða varð andi hvern einstakling er nálægt 850. Hafa því allar upplýsingar verið færðar á gataspjöld jafnóðum. Raf reiknir skrifar síðan sjúkraskrá með sjúkrasögu og niðurstöðum allra mælinga. Er þetta í fyrsta sinn hér á landi, sem rafreiknir er notaður til svo víðtækrar og fullkominnar skráningar og úr- vinnslu læknisfræðilegra upplýs- inga. Sjúkraskráin er í tvíriti, og er annað eintak hennar með niðurstöð um læknisskoðunar, sjúkdómsgrein ingu og ráðleggingum sent heim ilislækni viðkomandi þátttakanda. Unnið er nú að enn frekari hag- ræðingu við gerð sjúkraskrár þannig, að rafreiknir skrái einnig niðurstöður læknisrannsóknar og geri vissar sjúkdófnsgreiningar svo sem við verður komið. Munu þessar breyitingar, ásamt öðrum, miða að aukinni hag- kvæmni við rekstur stöðvarinnar og auka verulega afköstin. Er stefnt að því, að baustið 1970 geti stöðin tekið tii rannsóknar helm- imgi fleiri þátttakendur en nú eða um 40 á dag með óbreyttu starfs- liði. Tilgangur hóprannsókna, sem bér um ræðir, er fyrst og fremst að fyrirbyiggja ýmsa sjúkdóma og einnig að kanna tíðni og orsakir þeirra, meta gildi ýmissa rann- sóknaaðferða og áhrif hóprann- sófcna á heilbrigði manna. Nú þegar liggja fyrir nokkrar niðurstöður, er gefa til kynna þýðingu þessara rannsókna fyrir heilbrigðisþjónustuna, og má þar nefna fjölda sjúkdómstilfella, Framhald á bls. 11. 75. SÝNING sókn hefur verið á leikinn. Leikur inn er sóttur jafnt af ungum og gömlum og má segja að þetta sé leikur fyrir alla fjölskylduna. Fjaðrafokið hefur verið sýnt 10 sinnum og hefur aðsókn farið vax andi á þetta umdeilda leikrit og hafa þeir mörgu, sem skrifað hafa um Fjaðrafok, í dagblöðunum að undanförnu, átt sinn þátt í því að vekja athygli á leiknum Myndin er úr Fiðlaranum á þakinu. Myndin er af Einari Þorbergs- svni í hlutverki fiðlarans á þak- inu..

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.