Tíminn - 31.10.1969, Síða 4
4
TIMINN
FÖSTUDAGUR 31. október 1969.
Þeir, sem nú gerast áskrifendur að tímaritinu ,tSkák"
öðlast yfirstandandi árgang ókeypis,en greiða fyrir næsta
ár. „Skák"'hóf göngu sína 1947 og eru ilest tölublöðin
.fáanleg enn.
Tímaritið „Skák" — Pósthólf 1179 — Reykjayík.
Áskriftarsími 15899 (ó kvöldin).
• Klippist hér i
Ég undirritaður óska hér með eftir að gerast áskrifandi að
tímaritinu „Skák".
□ Hjálagt sendi ég áskriftargjald næsta árs. kr. 500,00.
□ Áskriftargjaldið greiðist gegn póstkröfu.
Nafn ......................................................
Heimilisfang...............................................
HJÚKRUNARKONUR
Stöður hjúkrunarkvenna við skurðlækningadeild,
legudeild og skurðstofur, eru lausar til umsóknar.
Upplýsingar veitir forstöðukona Borgarspítalans
í síma 81200.
Reylíjavík, 20.10. 1969.
Sjúkrahusnefnd Reykjavíkur.
Sendisveinn
Viljum ráða pilt með vélhjól til sendiferða.
Starfsmannahald S.f.S.
VIÐA-
VANGI
Bifreiðar og vegir
f frétt í Tímanum í gær, er
greint frá því, að aðeins um
500 bifreiðar hafi verið flutt-
ar inn til landsins fyrstu átta
mánuði þessa árs. Þetta er
langt um of iág tala til að rísa
undir cðlilegri endurnýjun og
aukningu þessa aðal samgöngu
tækis íslendinga. í þessu sem
öðru er farsælast að endur-
nýjun verði sem jöfnust, en
við s.l. áramót voru 43 þús-
und bifreiðar skráðar í land-
inu og margir þeirra komnir
ti! ára sinna. Kunnugir telja
eðlilegt og hagkvæmast fyrir
þjóðarbúið að árleg endurnýj-
un bifreiðakostsins sé' 8—10%
eða 3.500 til 4000 bílar áriega.
Með tveimur gengisfellingum
og hærri tollum og gjöldum
af innfluttum bifreiðum en
þekkist í nokkru landi í heim-
inum, hefur þetta nauðsynja-
tæki almennings verið gert svo
dýrt, að kaupgeta manna leyfir
ekki eðlilega endurnýjun nauð
svnlegra farartækja. Sök sér
væri, ef þessi háu gjöld öll
rynnu til vegagerðar og vega-
viðhalds, þar sem betri vegir
tryggja ódýrari rekstur, betri
endingu bifreiða og þar af leið
andi yrði ekki nauðsynlegt að
endurnýja bifreiðakostinn eins
ört og nú meðan búið cr við
hálf ófæra vegi á helztu leið-
um. En megin parturinn af
þessum miklu álögum á bif-
reiðar og rekstur þeirra renn-
ur til ríkissjóðs, til almenna
þarfa hans.
Stórgölluð löggjöf
f Degi á Akureyri eru hin
nýju skólakostnaðarlög og agn
úar beirra teknir til umvæðu.
Þar segir m. a.:
„Vorið 1967, skömmu áður
en Aiþingi var slitið, rétt fyrir
kosningar það vor. lagði
menntamálaráðherrann fram í
þinginu frumvarp til nýrra
skólakostnaðarlaga. Voru þar
nýstárleg ákvæði um framlög
ríkis- og sveitarfélaga til skóla
bygginga og rekstrar skólanna.
Þótti mörgum þingmönnum
reglur þær, er þar voru settar,
í senn flóknar og torskyldar
og bar með viðsjálar, enda
þeir, sem gerzt máttu vita ekki
á ein» máli um, hversu skýra
skvldi sumt það, er um var
spurt. Með atbeina ríkisstjórn
ar var þó máiinu hraðað og
það afgreitt í skyndi, en ekki
orðið við óskum þeirra, sem
töldu réttara að veita tóm til
frekav' atliugunar.
f ninum eldri skólakostnað-
arlögum var kveðið á um það,
að ríkið -skyldi greiða 75%
af stofnkostnaði heimavistar-
skóla og sveitarfélögin 25%. f
nýju lögunum er þessu breytt.
Ríkið á að leggja fram 50%
af byggingarkostnaði kennslu-
húsnæðis (skólastofur) en
kostnað við byggingu heima-
vista og íbúða á ríkissjóður að
greiða að fullu, ef tvö sveitar
félög eða fleiri eru samau um
skóla. Formælendur laganna
sögðu að þetta mundi lækka
framlag sveitarfélaganna úr
25% niður í 20% eða minna.
En rekstrarkostnaðarhlutfallið
átti að verða svipað og áður.
En í lögunum var ákvæði, sem
lítið bar á, um að kennslumála
stjórnin skyldi setja reglurnar
um hvað telja skyldi hæfilegt
húsnæði og hæfilegan bygging
arkostnað. Hins vegar hefur
það dregizt - meira en tvö ár
að setja þesar reglur og kynna
þær og eru þær nýkomnar.
Um það leyti sem nýju lög-
in voru sett og áður en reglurn
ar urðu kunnar, hófust fram-
kvæmdir við nokkrar skóla-
byggingar hér í kjördæminu, á
' Stóru-Tjörnum, Hrafnagili og
Hafralæk. Var þar hafizt handa
samkvæmt teikningum, sem
samþykktar höfðu verið af
hlutaðeigandi yfirvöldum. Nú
sýnir reynslan, að hinar nýju
reglur hafa þau álirif, að fram
lag sveitarfélaganna verður
-ekki minr.a en það hefði orðið
samkvæmt eldri lögunum, held
ur meira og á sumum stöðum
miklu meira. Um þetta munu
fulltrúar hinna nýju skóla hafa
verið að ræða við þingmenn-
ina um helgina. Vonandi tekst
að bæta úr þeim mistökum,
sem orðið hafa við setningu
hinna nýju skólakostnaðarlaga,
en þau hafa valdið hinum
mestu vonbrigðum, þar sem
verið er að bæta menntunarað-
stöðu í hinum dreifðu byggð-
um.“ T.K.
BIFREIDAEIGSNDUR!
Opna á morgun, laugardag 1. nóvember, bón- og þvotta-
stöð, að Sigtúni 3.
KJARTAN SVEINSSON.
GULLFISKABÚÐIN
AUGLÝSIR
Nýkomin sending af fóðri
og alls konar vítamínum
fyrir fugla.
Einnig gott úrval af fisk-
um. fuglum og gullhömstr-
um. Leikföng fyrir fugla.
Skraut fyrir fiskabúr.
Sendum gegn póstkröfu.
GULLFISKABÚÐIN,
Barónsstíg 12.
Heimasími 19037
fyrir hádegi.
Jörö óskast
Fjalljörð á Suðurlandi (Ámessýsla til Skaftafells-
sýslna), óskast til kaups. Sérstaklega er óskað eftir
fjölbreyttu landslagi, en ekki eftir miklum bygg-
ingum, eða stórri búskaparjörð.
Fasteignasalan HÚS & EIGNIR
Bankastræfi 6. Símar 16637 og 40863
OMEGA
Nivada
®s
rOAMEr
JUpÍlUL.
PIERPOÍIT
(smiör)
SIUIYRJIII MEÐ WÉMMJBRH)
I® i«l ®® ®®11
□sta> og Smjörsalan s.f.
Hemlaviðgerðir
Rennum bremsuskálar. —
slípum bremsudælur.
Límum á bremsuborða og
aðrar almennar viðgerðir.
HEMLASTILLING H.F
Súðarvogi 14 Sími 30135.
HVIagnús E. Baldvinsson
Laugavegi 12 — Sími 22804
GANGSTÉTTARHELLUR
Milliveggjaplötur ■ skorstemsstemar - legsteinar
garðtröppusteinar - vegghleðslustemar o. fl. -
6 kanta hellur. Jafnframt helluiagnir.
HELLUVER,
Bústaðabietti 10. Sími 33545.