Vísir - 24.11.1978, Blaðsíða 5
5
m .
vism Föstudagur 24. nóvember 1978
| Aíþingi Alþingi
Loftið lœvi
blandið í Al-
þingishúsinu
Loft var lævi bandiö i
Alþingishúsinu i gær. 1 þingsal
var haldinn fundur i Sameinuöu
Alþingi. Þar töluöu menn m.a.
um sérstakt veiöigjald áveiöileyfi
til handa útlendingum, vitnuöu i
fornsögurnar máli sinu til stuön-
ings, en töluöu fyrir daufum eyr-
um á þunnskipuöum bekkjunum.
Altént fara þó ræöurnar i Þing-
tiöindi.
Eins og svo oft vill vera, voru
tlöindin aö gerast utan þingsala, i
flokksherbergjum, kaffistofunni
og á göngum.
Um morguninn höföu fulltrúar
Alþýöuflokksins i rikisstjórn ver-
iö stóryrtir. Þeir töldu flokk sinn
ekki geta unaö tillögum hinna
flokkanna aö óbreyttu, og kröfö-
ust þess aö aögeröir i efnahags-
málum, sem nú standa fyrir dyr-
um, yröu a.m.k. lausn til lengri
tima en næstu 3 mánuöa.
Fundi i Sameinuöu þingi var
frestaö vegna funda i þingflokk-
unum klukkan þrjú, og hefur
vafalitiö veriö heitt i kolunum I
sumum flokksherbergjunum.
Þegar fundi var fram haldiö
klukkan fimm I Sameinuðu þingi,
sóttu hann fáir. Fleiri voru áfram
i flokksherbergjum og á göngum.
Ólafur Jóhannesson kom bros-
mildur af fundi i herbergi
Framsóknarflokksins, og svaraöi
spurningum fréttamanns likt og
véfrettin i Delfi. Hann vildi
ekkert segja um líkur á
samkomulagi. „Þeir eru aö ræöa
þetta allt saman, viö veröum aö
biöa og sjá til”..Hann sagöi þó, aö
frumvarp um efnahagsráöstafan-
ir yrði i siðasta lagi lagt fram á
mánudag ef af yröi. Ef ekki
næðist samkomulag um kvöldiö
eöa i dag, þá væri þaö þó liklega
borin von.
Höfuöathyglin beindist aö
flokksherbergi Alþýöuflokksins.
Þeir höföu um morguninn sett
skilyröi fyrir áframhaldandi
stjórnarsamstarfi, og sumir
segja aö Ólafur hafi þá allt aö þvi
flutt kveöjuorö. Nú var ljóst aö
eitthvaö þyrfti aö rifa seglin, ef
samkomulag ætti aö nást, þar
sem Framsókn haföi lagst á sveif
með Alþýðubandalaginu, og meö
fulltingi verkalýösforystunnar
stóöu þessir flokkar óbifanlegir.
Undir kvöldmat haföi
samkomulag ekki náöst, en þó
virtist vera aö rofa til. Ráöherrar
úr hinum flokkunum fóru inn I
flokksherbergi Alþýöuflokksins
til skrafs og ráöageröa, og
einstakir þingmenn sátu á
rökstólum viöa um húsiö. Ráö-
gert hafðí verið aö halda
kvöldfund i Sameinuöu þingi, en
frá þvi var fallið.
Þegar menn voru aö þvi spurö-
ir, hvað geröist ef samkomulag
næöist ekki, töldu sumir aö ólafur
Jóhannesson myndi leggja tillög-
ur Framsóknarflokksins fyrir
Alþingi á mánudag og láta á þær
reyna I þingsölum. Flestir voru
þó bjartsýnir á aö takast mætti aö
ná samkomulagi sem allir gætu
sætt sig þolanlega viö. Stjórnar-
slit töldu menn yfirleitt fjarlægan
möguleika. —GBG
Við erum rígmontnir
Nú bjóðum við 46 gerðir, liti
og munstur af hinum
heimsþekktu mem qólfdúkum
„Það besta er ekki
alltaff það dýrasta"
Verð frá kr. 2.080 fferm.
Sundaborg 7, simi 81069.
sundaborg
Stálslegnir opnum
vid nýja húsgagnaverslun
Stórglæsilegt úrval af boróstofuboróum
eldhúsboróum og stólum. Ennfremur er
úrvalió af skrifstofu- og skólahúsgögn-
um ótrúlega gott. Gjörió svo vel og litió
inn.
Síóumúla 2 — Simi 39555
Hinar vinsælu Mexikóhillur, sófasett og stólar
eiga erindi inn á hvert heimili.
Vió bjóóum aóeins fyrsta flokks islenska
framleióslu og gæói.