Vísir - 24.11.1978, Síða 7

Vísir - 24.11.1978, Síða 7
VISIR Föstudagur 24. nóvember 1978 c Umsjón: Guðmundur Pétursson / D Bruðlað með opinbert fé íKanada, eins og víða Rikisendurskoðandi Kanada hefur sent frá sér skýrslu, þar sem hið opinbera fær heldur slaka einkunn i meðferð sinni á almannafé. James MacDenell, aöalrikis- endurskoöandi, telur upp i skýrslu sinni fjölda dæma um, hvernig opinberir starfemenn sói fjármunum og hafi tilhneigingu til aö lita á rikissjóö, eins og ein- hvern „ótæmandi allsnægtar- brunn”. „Aö minu mati er iltbreiddur skortur á hagsýni og aöhaldi i framkvæmdum þess opinbera,” segir rikisendurskoöandinn. — Hvergi er þó getiö, hvaö ætlaö sé aömikiö féfariþannig tilspillis. En i skýrslunni segir, aö i' þrett- án meirháttar framkvæmdum á vegum þessopinbera hafi einung- is i tveimur þeirra veriö reynt aö gæta skynsamlegrar hagsýni. — Samtals kostuöu þessar fram- kvæmdir nærri 700 milljónum dollara, eða 148% meira en kostn- aöaráætlunin hljóðaöi upp á. Siðan eru tind til ýmis dæmi bruöls og jafnvel misferlis: Einn starfsmaöur kanadiska rikisútvarpsins notfæröi sér lé- legt eftirlit með fjárveitingum á þannveg, aöleysa út ávisanir aö upphæð samtals um 87.500 dollara vegna kostnaðaraf feröalögum, sem aldrei voru farin. Maöurinn var dæmdur, en féö fékkst ekki endurgreitt. Stjórnin pantaöi nýja minni eins-sents mynt, en snerist svo hugur og hætti viö. Kostnaöur af gerö nýju myntarinnar var þá komin upp i 230 þúsund dollara. Milli 99 og 179 milljónir doUara eru sviknir út úr atvinnuleysis- bótum. Nær 750.000 dollarar voru greiddir I húsaleigu fyrir skrif- stofur, sem aldrei hafa verið not- aöar, eftir aö ein af stofnunum Sameinuöu þjóöanna rýmdu þær fyrir þrem árum. Um 1.300 'manns hafa yfirgefið Kanada I 3,8 milljón dollara skuld viö skattayfirvöld, skuld, sem ekki veröur lengur innheimt, þvi aö fólk þetta er ekkki lengur kanadískir rikisborgarar. POLITISKIR FANGAR FRÁ KÚBU ÓSKA DVALARLEYFIS í USA CALLAGHAN VILL LEYSA RÓDESÍU- DEILUNA AÐ FORDÆMI CARTERS James Callaghan for- sætisráðherra Breta. mun senda persónulegan full- trúa sinn til Suður-Afríku i næstu viku í tilraun til þess að koma á einskonar ,/Camp David/y-viðræðum um Ródesíu. Callaghan geröi I breska þing- inu I gær grein fyrir þessari áætlun sinni aö binda endi á Ródesiudeiluna og skæru- hernaðinn. Sagöist hann fús til þess að vera i forsæti fundar, sem allir aöilar deilunnar mundu sitja, og gæti sá fundur sem best oröiö I Englandi á næsta ári. Fulltrúi hans Cledwyn Hughes fyrrum ráðherra á aö ganga úr skugga um hversu liklegur til árangurs slikur fundur væri. Callaghan sagöi i þinginu aö Carter Bandarikjaforseti styddi þessa hugmynd og að Stephen Low sendiherra Bandarikjanna i Zambiu.mundi fylgja Hughes i þessum erindrekstri. Munu þeir ræöa viö ráöamenn i Ródesiu, Zambiu, Tanzaniu, Mósambik, Botswana og Angóla. INTERPOL OG MYNTFALSARAR Interpol lagði í fyrra hald á falska bankaseðla sem hljóðuðu samtals upp á 53 milljónir dollara enda fékk Interpoltil meðferðar á síðasta ári um 6.000 mál vegna peningafölsunar. Andre Bossard framkvæmda- stjóri alþjóöalögreglunnar, skýröi frá þessu I gær og jafnframt þvi aö eiturlyfjasmygl og sala virtist standa i staö.þegar litiö væri yfir tvö slöustu ár. Lögreglan hefur komist yfir minna magn af ópium en náö meiru af morfini. Heróinum- setningin viröist svipuö og áöur. Bossard sagöi aö Interpol heföi oröiö þess áskynja aö kókain- notkun i Evrópu hafi um þaö bil fjórfaldast. Tregða hlaupin í samnings- umleitan- ir Egypta og Isra- elsmanna Egyptar eru ráðnir að halda áfram viðræðum við israelsmenn, þrátt fyrir erfiðleikana, sem nú hafa komið upp á# og gerðu þeir opinber í morgun drög að friðarsamningum. Kairóblaöiö Al-Ahram, hið hálf opinbera málgagn stjórnarinnar, birti i morgun samningsuppkast, þar sem kemur m.a. fram, að Egyptar og Israelar eu báöir sannfæröir um, aö slikur samn- ingur sé forsenda sátta i Austur- löndum nær. Samningsdrögin eru i niu atriö- um. Fjalla þau um brottför .sraelsmanna úr Sinai, heimild fyrir israelsk skip aö sigla um Súez-skurö og viöurkenningu beggja á þvi, aö Tiran-sund og Aqaba-flói séu alþjóöa siglinga- leiöir. I uppkastinu bjóöa Egyptar og tsraelar öörum þjóöum, sem aö- ilar eru I deilu Austurlanda nær, aö taka þátt i friöarumleitunum. tsraelsmenn segja, aö um ekk- ert frekar sé aö semja viö Egypta, og aö nú sé þaö Sadats forseta aö fallast á samnings- drögin, sem tsraelsmenn hafi þegar samþykkt. — Moshe Dayan, utanrikisráöherra, hefur látiö eftir sér hafa, aö hann muni ekki i bráö halda aftur til Washington, þvi aö frekari viö- ræöur séu óþarfar. Undirritun samningsins hefur strandaö á þvi, aö Sadat forseti vil fá ákvæöi inn i hann, þar sem sagt væri, hvenær Palestinu- arabar á vesturbakka Jórdan og á Gazasvæöinu fái sjálfstjórn. Fulltrúi kúbanskra út- laga hyggst reyna að fá Jimmy Carter Bandaríkja- forseta til þess að veita hundruðum pólitískra fanga á Kúbu sérstaka undanþágu til þess að koma til Bandaríkjanna tafarlaust. Kúbu-stjórn lofaöi i fyrradag aö sleppa um 3.600 pólitiskum föng- um, ef Bandarikjastjórn vildi leyfa þeim úr hópnum aö koma, sem vildu. Þeir eru taldir vera um 2.000. Utanrikisráöuneytiö banda- riska sagöi i gær, aö þetta fólk fengi aö koma eftir venjulegum og eölilegum leiöum. Byggöarlög brottfluttra Kúbu- manna erlendis hafa valiö sér 75 fulltrúa, sem hafa átt aö undan- förnu viöræöur viö Fidel Castro, forseta, um lausn pólitiskra fanga. Þessir fulltrúar hafa myndað nefnd, sem mun fylgjast meö hagsmunum útlaganna. — Þessi nefnd ætlar aö reyna aö ná fundi Carters forseta og reyna aö fá hann til þess aö veita pólitísku föngunum undanþágu frá þvi aö þurfa aö fara i gegnum skrif- stofubákniö meö umsóknir sinar til dvalar i Bandarikjunum. 15 ÁR í FREMSTU RÖÐ Pierre Robert HERRASNYRTIVÖR UR PIERRE ROBERT hefur á boðstólum allt, sem karlmenn þurfa til daglegrar snyrtingar. ÁRATUGA REYNSLA TRYGGIR GÆÐIN. PIERRE ROBERT Setur gæðin ofar öllu. Sími 82700

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.